Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.1990, Blaðsíða 13
FÖSTUDAGUR 11. MAÍ 1990.
13
Lesendur
Grétar Örvarsson og Sigríður Beinteinsdóttir aðalfytjendur Eins lags enn í Evrópusöngvakeppinni sem lenti í 3.
sæti að mati bréfritara - og kannski fleiri.
Vorum í 3. sæti
Lóa hringdi:
„Við erum í þriðja sæti,“ sagði son-
ur minn þegar úrslitin voru kynnt í
Evrópusöngvakeppninni sl. laugar-
dagskvöld. Þegar ég og fleiri á heimil-
inu fórum að hugsa máhð, fannst
okkur öllum þetta hljóta að vera rétt.
Nú hef ég hitt svo marga eftir að
úrslitin voru kynnt sem segja það
sama. - Við vorum þriðja hæst í stig-
um talið og þess vegna er varla um
annað en þriðja sætið aö ræða fyrir
okkur.
Hvemig hefði nú farið ef tvö lönd
hefðu fengið jafnmörg stig í fyrsta
sætið? Hefðu þau þá skipt með sér
stigunum? Hefði þá verið úrskuröað
að aðeins annað landið fengi verð-
launin? Hvort landið hefði átt rétt á
að halda keppnina að ári?
Ég get ekki hetur séð en í þessu
tilviki séu tvö lönd jöfn að stigum í
öðru sæti og síðan komum við íslend-
ingar í þriðja sæti. - Ef tvö lönd hefðu
orðið jöfn að stigum í fyrsta sæti
hefðu þau að sjálfsögðu þurft að
koma sér saman um verðlaunin og
eins það hvort þeirra héldi keppnina
næsta ár. Það hefði verið útilokað
að slá fram staðhæfmgu sem segði
að þau hefðu lent í fyrsta og öðru
sæti.
Þetta er eins einfalt mál og mest
getur orðið. Eða hefur massinn alltaf
rétt fyrir sér? Hvemig var ekki þetta
með, jörðin flöt“? Allir sammála vit-
leysunni lengi vel. Þar kom þó að
einn kvað upp úr með hið rétta og
svo komu allir hinir. - Ég skil nú
ekkert í okkur íslendingum, sem vilj-
um ávallt hafa allt á hreinu, að mót-
mæla þessari niðurstöðu ekki strax!
BÍLASALAN BUK
Skeifunni 8 Sími 68-64-77.
BÍLASÝNING
Sýnum og seljum
um helgina
Mercedes Benz bíla af ýmsum
gerðum og stærðum.
laugardag 10-17
sunnudag 13-17.
Á Skólavörðuholtinu
Kristján Hafliðason skrifar:
Það hefur lengi hvarflað að mér að
láta eitthvað frá mér fara til lesenda-
síðu DV en ekkert orðið úr þvi. - Nú
þegar vetrardoðinn er smátt og smátt
að láta undan síga fyrir sumarkom-
unni fer ýmislegt það að særa augað
sem maður veitti tæplega athygli á
meðan veturinn hafði völdin. - Og
nú dugar þögnin ekki lengur.
Ég á oft leið fram hjá Skólavörðu-
holti, þar sem Hallgrímskirkju ber
við himin með Leif hinn heppna í
forgrunni sem beinir haukfránum
augum sínum í vestur. - Þetta tekur
sig allt ágætlega út. En hvemig er
umgjörðin?
Jú, hún er þannig að umhverfis
þessi mannvirki er skjaldborg fólks-
bíla, vörabíla og vinnuvéla. Um helg-
ar er skjaldborgin öflugust og mest
áberandi, enda tækin þá ekki í notk-
un. Ég hefi víða farið erlendis, skoð-
að kirkjur og minnismerki, en aldrei
séð neitt þessu líkt.
Hvað skyldu þeir erlendu ferða-
menn hugsa sem koma hingað til að
Við Hallgrímskirkju á góðum vor-
degi.
skoða og ljósmynda? Spyr sá sem
ekki veit. - Og þó, maður fer nærri
um það. Er nú ekki kominn tími til
að rumska og gera eitthvað í máhnu?
Frábær þjónusta
Kolbrún H. Halldórsdóttir hringdi:
Ég vil þakka fyrir frábæra þjón-
ustu í versluninni Herramönnum á
Laugavegi 97. Þann 2. maí sl. komum
við þangað tvær vinkonur ásamt
ungum manni sem við voram að
aðstoöa við að kaupa buxur.
Við voram orðnar úrkula vonar
um að fmna þær vegna ýmissa
ástæðna, þær vora annaðhvort of
stórar eða of htlar eða meiriháttar
lagfæringar þurfti að gera. En þegar
við komum inn í þessa verslun var
þar kona við afgreiðslu og tók hún
svo vel á móti okkur og aðstoðaði á
allan hátt við að finna réttu stærð-
ina, að því verður ekki gleymt.
Meira að segja tók hún að sér að
lagfæra og breyta buxunum á staðn-
um fyrir okkur. í ofanálag máttum
við bíða í versluninni á meðan hún
framkvæmdi verkið. Við fórum því
ánægð heim að þessu loknu. - Svona
verslun gefum við 10 í einkunn.
Tapaði veski
S. S. skrifar:
Ég varð fyrir því óhappi að tapa
veski mínu á götu í Úthhðinni hér í
Reykjavík. Sennilega til móts við hús
númer 14. í veskinu var ékkert fé-
-mætt, en dýrmæt skilríki ásamt
bankakorti.
Sá sem fann veskið er vinsamlega
beðinn að koma því til skila til lög-
reglunnar í Reykjavík sem allra
fyrst.
TORFÆRUKEPPNI
3 fíaust
JEPPAKLÚBBUR
OG REYKJAVÍKUR
rSLANDSMEISTARAKEPPNI 1990
gft<3£p00
HJÖRlfllÐIR
DRIFLIÐIR
Frítt fyrir
12 ára
og yngri
LAUGARDAGINN 12. MAI KL. 14.00.
IGRYFJUNUM VIÐ HRAUN ÍGRINDAVÍK
^jiSj
SMURSlUR
L0FTSIUR
BENSlNSlUR
trailmaster
FJÖÐRUNARBÚNAÐUR
WfllB
FYRSTA TORFÆRUKEPPNIARSINS
A DRAUMASVÆÐINU
4-5 NÝJAR GRINDUR MÆTA
HVAÐ GERIRÁRNIKÚPS fSLANDSMEISTARI Á NÝJU GRINDINNI
A BEGGI EINHVERN „SÉNS” EÐA HVAD HALDIÐ ÞIÐ?
M/ETIÐ - SJAIÐ OG UPPLIFIÐ
KEPPNIN BYRJAR STUNDVfSLEGA KL. 14.00
„3 TÍMA STANSLAUS SKEMMTUN”