Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.1990, Blaðsíða 26
34
FÖSTUDAGUR 11. MAÍ 1990.
Fólk í fréttum v
Haraldur Johannessen
Haraldur Johannessen, forstööu-
maöur Fangelsimálastofnunar ríks-
ins hefur veriö í fréttum DV. Har-
aldur er fæddur 25. júní 1954 í Rvík
og lauk lögfræðiprófi frá HÍ1983.
Hann var í námi í afbrotafræði í
Floridastate University í Talla-
hassee í Flórída 1983-1984 og var
aðstoðarmaöur forstjóra ÍSALS
1984-1986. Haraldur var lögmaður
viö embætti ríkislögmanns frá
stofnun þess 1. janúar 1986 og hefur
veriðforstöðumaður Fangelsis-
málastofnunar ríkisins, frá stofnun
þess 1. október 1988. Haraldur var í
stúdentaráði HÍ1976-1978 og hefur
verið varaformaður barnaverndar-
ráðs íslands frá 1987. Haraldur
kvæntist 4. júlí 1976 Brynhildi Ingi-
mundardóttur, f. 15. febrúar 1956,
hjúkrunarfræðingi. Foreldrar
Brynhildar eru: Ingimundur Kr
Helgason, lögregluvarðstjóri á Sel-
tjarnesi og kona hans Svava Björg-
ólfs, sjúkraliði. Synir Haraldar og
Brynhildar eru: Matthías, f. 6. des-
ember 1973 og Kristján, f. 11. janúar
1985. Bróðir Haraldar er: Ingólfur,
f. 17. febrúar 1964, læknisfræðinemi
íHÍ.
Foreldrar Haraldar eru: Matthías
Johannessen skáld og ritstjóri
Morgunblaðsins og kona hans Jó-
hanna Kristveig Ingólfsdóttir. Matt-
hías er sonur Haraldar Johannes-
sen, aðalgjaldkera Landsbanka ís-
lands, bróður Ellen, móðir Louisu
Matthíasdótturlistmálara. Harald-
ur er sonur Matthíasar Johannes-
sen kaupmanns, frá Björgvin í Nor-
egi og konu hans Helgu Jónsdóttir,
Norðfjörð verslunarmanns í
Reykjavík, bróður Sigríðar, ömmu
Jakobs Möller ráðherra, föður Bald-
urs, fyrrv. ráöuneytisstjóra og skák-
meistara, föður Markúsar hagfræð-
ings. Önnur systir Jóns var Helga,
langamma Hans G. Andersen. Jón
var sonur Magnúsar Norðfjörð,
beykis í Reykjavík, Jónssonar,
beykis í Reykjafirði, bróður Guð-
bjargar, langömmu Sigríðar, ömmu
Friðriks Ólafssonar stórmeistara,
og langömmu Jóhanns, afa Jóhanns
Hjálmarssonar skálds. Önnur systir
Jóns var Hallgerður, langamma
Ágústar H. Bjarnasonar, heimspek-
ings og háskólarektors. Móðir Jóns
verslunarmanns var Helga Ingi-
mundardóttir, systir Ingigerðar,
langömmu Bjargar, ömmu Garðars
Cortes óperusöngvara. Bróðir Helgu
var Ólafur, langafi Valgerðar,
ömmu Einars Benediktssonar
sendiherra.
Móðir Matthíasar var Anna Jó-
hannesdóttir bæjarfógeta í Reykja-
vík, Jóhannesson, sýslumanns í
Hjarðarholti, Guðmundssonar, b. á
Miklahóli í Viðvíkursveit, Jónsson-
ar, bróður Halls, föður Sigurðar,
langafa Páls á Höllustöðum. Annar
bróðir Guðmundar var Jóhannes,
afi Vilhjálms Stefánssonar land-
könnuðar. Móðir Jóhannesar bæj-
arfógeta var Maren Lárusdóttir
Thorarensen.sýslumanns á Enni,
Stefánssonar, amtmanns á Möðru-
völlum, Þórarinssonar, sýslumanns
á Grund, Jónssonar ættföður Thor-
arensenættarinnar. Móðir Marenar
var EUn Jakobsdóttir Hafstein, syst-
ir Péturs Hafstein amtmanns, foður
Hannesar ráðherra. Móðir Önnu
var Jósefína systir Haraldar afa
Benedikts hæstaréttardómara,
Halldórs alþingismanns og Harald-
ar Blöndals hrl. Jósefina var dóttir
Lárusar Blöndals, amtmanns á
Kornsá, Björnssonar Blöndals,
sýslumanns í Hvammi í Vatnsdal,
ættfóður Blöndalsættarinnar. Móð-
ir Jósefínu var Kristín, Ásgeirs-
dóttir dbrm og bókbindara á Lamba-
stöðum á Álftanesi Finnbogasonar,
bróður Jakobs, langafa Vigdísar for-
seta. Móðir Kristínar var Sigríður
Þorvaldsdóttir, SystirÞuríðar,
langömmu Vigdísar forseta.
Jóhanna er dóttur Ingólfs b. á
Víðihóh á Hólsvöllum, Kristjáns-
sonar, b. á Grímsstöðum á Fjöllum
Sigurðssonar, b. á Hólum í Laxárdal
Eyjólfssonar, systir Þuríðar, langafa
Sigurðar, föður Sigurðar dýralækn-
is á Keldum. Móðir Kristjáns var
Ambjörg Kristjánsdóttir, systir
Áma, afa Aðalgeirs Kristjánssonar
skjalavarðar. Annar bróðir Arn-
bjargar var Kristján, langafl Jónas-
ar Jónssonar búnaðarmálastjóra og
Kristjáns Ámasonar dósents. Móðir
Jóhönnu var Katrín Magnúsdóttir
b. í Böðvarsdal i Vopnafirði, Hann-
essonar, b. í Böðvarsdal, Magnús-
sonar, b. í Böðvarsdal Hannessonar.
Móðir Magnúsar eldra var Guðný
Björnsdóttir stúdents í Böðvarsdal
Bjömssonar og konu hans Guðrún-
ar Skaftadóttur, systir Árna,
Haraldur Johannessen.
langafa Magðalenu, ömmu Ellerts
Schrams. Móðir Magnúsar yngra
var Guðrún Jónsdóttir b. í Syðrivík
Einarssonar og konu hans Guðrúnu
Stefánsdóttur, systur Svanborgar,
langömmu Halldórs, foður Kristín-
ar, fomanns ferðamálaráðs. Bróðir
Guðrúnar var Guðmundur faðir
Stefáns langafa fóðurs Guðrúnar
Agnarsdóttur alþingismanns og
Gunnlaugs Snædals, prófessors.
Móðir Guðrúnar var Sólveig
Björnsdóttir, systir Guönýjarfrá
Böðvarsdal.
Afmæli
Sæmundur Jónsson
Sæmundur Jónsson, rafvirki og
bátasmiður, Hólavegi 36, Siglufirði,
er sjötíu og fimm ára í dag.
Sæmundur fæddist í Lindar-
brekku á Siglufirði en fór fjögurra
mánaða með foreldrum sínum inn
í Fljót og var þar til átta ára aldurs
er hann flutti aftur með þeim til
Siglufiarðar þar sem hann hefur
búið síðan.
Sæmundur byijaði tólf ára að
standa vakt-ir á sumrin við Ljósa-
stöðina á Siglufirði og starfaði þar
til 1937 er hann hóf störf hjá Síldar-
verksmiðjum ríkisins þar sem hann
var rafvirki til 1953. Hann var síðan
vélstjóri við Hraðfrystihús SR á
Siglufirðiíil ársloka 1962.
Sæmundur er þekktur völundur á
Siglufirði. Hann hefur smíðað tíu
báta, m.a. sjö og tíu tonna trillur
sem hann sjálfur átti og gerði út í
frítíma sínum.
Sæmundur kvæntist 17.7.1937,
Jónínu Guðbjörgu Braun, f. 26.3.
1916, en fósturforeldrar hennar
voru Jón Gunnlaugsson, í Ási í Gler-
árhverfi, og kona hans, Ingibjörg
Sigurjónsdóttir.
Sæmundur og Jónína eignuðust
sjö börn og eru sex þeirra á lífi.
Börnþeirra: Stefanía, f. 16.1.1937,
húsmóðir í Syðra-Vallholti í Skaga-
firði, gift Gunnari Gunnarssyni, b.
þar og eignuðust þau tvær dætur;
Jón Örn, f. 13.5.1938, smiður hjá
Slippstöðinni á Akureyri, ekkill eft-
ir Þórunni Þorgeirsdóttur og eign-
uðust þau tvo syni og tvær dætur;
Jórunn, f. 28.11.1943, húsmóðir á
Akureyri, gift Jóni Ævari Ásgríms-
syni kaupmanni og eiga þau eina
dóttur; Úlfar Helgi, f. 5.10.1945, vél-
virki og veitustjóri í Reykjahlíð í
Mývatnssveit, í sambúð með Unu
Einarsdóttur og eiga þau saman
eina dóttur auk þess sem Úlfar á tvo
syni frá fyrrv. hjónabandi, dóttur
frá því fyrir hjónaband og tvö stjúp-
börn; Anna, f. 17.11.1948, húsmóðir
á Siglufirði, gift Ámunda Gunnars-
syni vélvirkja og eiga þau einn son
og tvær dætur; Sigrún, f. 10.1.1951,
d. 14.1.1951; Sigrún Björg, f. 21.7.
1957, húsmóðir og gestgjafi á Hofi í
Öræfum, gift Ara Magnússyni, b.
þar og gestgjafa og eiga þau þijár
dætur. Langafabörn Sæmundar eru
nú orðinníutalsins.
Sæmundur er elstur átta alsyst-
kina og tveggja hálfsystkina hans
og eru átta þeirra á lífi. Alsystkini
hans: Hulda, húsmóðir á Siglufirði;
Kristján Ægir, vélstjóri á Siglufirði;
Bára, húsmóöir á Sauðárkróki, nú
látin; Gústaf, smiður á Akureyri,
nú látinn; Sigurlaug, húsmóðir á
Siglufirði; Kristín, húsmóðir í Hafn-
arfirði, og Björgvin Dalmann,
verkamaður á Siglufirði. Hálfsyst-
kini Sæmundar samfeðra eru Erling
vélvirki á Siglufirði og Edda, hús-
móðir í Borgarnesi.
Foreldrar Sæmundar voru Jón
Kristjánsson frá Lambanesi í Fljót-
um, f. 21.4.1890, vélstjóri, og kona
hans, Stefanía Stefánsdóttir, f. 26.7.
1890, húsmóðir.
Sæmundur og Jónína verða heima
á afmælisdaginn og taka á móti gest-
um frá klukkan 14:00.
Sólveig Jónsdóttir,
Austurbrún 4, Reykjavík.
Ásmundur Böðvaisson,
Gerðarvegi3, Gerðahreppi.
Kristinn Tómasson,
Hverfisgötu 102A, Reykjavík.
Guðríður Þ. Markúsdóttir,
Hverfisgötu 119, Reykjavik.
Hún tekur á móti gestum á af-
mælisdaginn klukkan 19:00 hjá
syni sinum, Brúarflöt 6, Garðabæ.
Einarlngvarsson,
Skeljagranda 9, Reykjavík.
ii. mai
Halldóra Svava Clausen,
Engjaseli31, Reykjavík.
Einar Björnsson,
Norðurgötu38, Akureyri.
Guðlaug Ragnarsdóttir,
Brekkugerði 16, Reykjavík.
Guðjón Hafstein Guðmundsson,
Kvistabergi 1, Hafnarfirði.
Inga Guðmundsdóttir,
Spítalastíg 5, Hvammstanga.
Miriam Thorarensen,
Skarðshlíð 10F, Akureyri.
Lára Guðbjörg Sighvatsdóttir,
Fífuseli 30, Reykjavík.
Andlát
Guðjón Fjeldsted Teitsson
Guðjón Fjeldsted Teitsson, forstjóri
Skipaútgerðar ríkisins, til heimilis
að Hofsvallagötu 55, Reykjavík, lést
2.5. s.l. en útfór hans fer fram frá
Neskirkju í dag, fóstudaginn 11.5.
klukkan 15:00.
Guðjón fæddist að Grímarsstöð-
um í Andakílshreppi í Borgarfirði
og ólst þar upp. Hann lauk gagn-
fræðaprófi frá Flensborg 1923, Sam-
vinnuskólaprófi 1926 og stundaði
nám í Skerry’s College í Edinborg
sumarið 1929.
Guðjón var skrifstofustjóri Skipa-
útgerðar ríkisins frá stofnun hennar
1929-53 og forstjóri Skipaútgeröar-
innar 1953-76.
Hann var formaður stjórnar-
nefndar Skipaútgerðarinnar 1966-77
og fyrsti formaður og framkvæmda-
stjóri Verðlagsnefndar 1938-42. Þá
var hann stjómarformaður Sam-
vinnumötuneytis í Reykjavík
1934-46. Hann sat í stjóm Taflfélags
Reykjavíkur um skeið frá 1977 og
gegndi ýmsum öðrum trúnaðar-
störfum.
Guðjón átti þrjú systkini sem öll
eru látin. Þau voru Daníel, f. 10.10.
1892, d. 1974, b. á Grímarsstöðum en
kona hans var Rannveig Helgadóttir
og eignuðust þau fimm börn en íjög-
ur þeirra eru á lífi; Sigurlaug, f. 1894,
en hún lést ógift og barnlaus og Sím-
on, f. 22.3.1904, d. 1987 en ekkja
hans er Unnur Bergsveinsdóttir og
eignuðust þau fimm börn sem öll
eruálífi.
Foreldrar Guðjóns voru Teitur
Þorkell Símonarson, f. 3.4.1865, d.
23.6.1945, b. og oddviti á Grímars-
stöðum, og kona hans, Ragnheiður
DaníelsdóttirFjeldsted, f. 2.8.1867,
d. 23.1.1933.
Teitur var sonur Símonar, b. í
Ásgarði, bróður Ingibjargar á
Hvanneyri, móður Gróu, móður
Helga Sigurðssonar, fyrsta hita-
veitustjóra í Reykjavík. Ingibjörg
var einnig móöir Teits, sem var afi
Teits Jónassonar forstjóra og lang-
ferðabílstjóra, og Ásgeröar Búadótt-
ur veflistakonu, og langafi Trausta
Jónssonar veðurfræðings. Þá var
Ingibjörg móðir Vilhjálms Árnason-
ar, húsasmíðameistara, fóður
Óskars, fyrsta garðyrkjustjóra
Reykjavíkur. Vilhjálmur var einnig
faðir Guðrúnar, húsmóður og kenn-
ara í Reykjavík. Símon var sonur
Teits, b. á Hvanneyri, ættfóður
Hvanneyrarættarinnar, bróður
Jóns, b. í Efstabæ, langafa Magnús-
ar skálds, Ingimundar, fræðimanns
á Hæli, Sigurður, b. á Reykjum og
Leifs prófessors Ásgeirssonar. Jón
var einnig langafi Péturs Ottesens
alþingismanns og Jóns Helgsonar
ritstjóra. Teitur var sonur Símonar,
b. á Hæli í Flókadal Roða-Teitsson-
ar, og Ingibjargar Sveinsdóttur.
Móðir Teits á Grímarsstöðum var
Sigríður Jónsdóttir, b. á Ausu Páls-
sonar, b. í Ártúni, bróður Tómasar,
b. í Auðsholti í Biskupstungum, föð-
urafa Sigrúnar, móður Þorsteins
hagstofustjóra og Hannesar rit-
stjóra Þorsteinssonar, en systir Sig-
rúnar var Steinunn, móðir Tómasar
Guömundssonar skálds. Móðir Sig-
ríðar í Ásgarði var Gróa Gissurar-
dóttir.
Ragnheiður Fjeldsted var dóttir
Daníels Fjeldsted, b. á Hvítárósi,
bróður Andrésar, b. á Hvítárvöllum,
föður Lárusar hrl, afa Katrínar
Fjeldsted. Daníel var sonur Andrés-
ar, b. á Narfeyri og á Hvítárvöllum
Vigfússonar, gullsmiðs og b. á
Stóru-Tungu á Fellsströnd, ættföður
Fjeldstedættarinnar Sigurðssonar.
Móðir Andrésar á Narfeyri var Kar-
itas, systir Skúla, afa Kristínar,
móður Skúla Thoroddsen ritstjóra,
Þórðar læknis, Þorvaldar náttúru-
fræðings og Sigurðar verkfræðings,
föður Gunnars Thoroddsen forsæt-
isráðherra. Karitas var dóttir Magn-
úsar Ketilssonar, sýslumanns í Búð-
ardal. Móðir Daníels var Þorbjörg
Guðjón Fjeldsted Teitsson.
dóttir Þorláks, hreppstjóra á
Hvallátrum við Breiðaíjörö Gríms-
sonar, og Katrínar Einarsdóttur,
systur Eyjólfs eyjajarls, langafa
Snæbjarnar vegamálstjóra.
Móðir Ragnheiðar Fjeldsted var
Sigurlaug Olafsdóttir, b. á Norður-
reykjum í Hálsasveit Jónassonar og
Arnfríðar Eiríksdóttur.