Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.1990, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.1990, Blaðsíða 2
2 FIMMTUDAGUR 14. JÚNÍ 1990. Fréttir DV Fyrsti dagur réttarhalda yfir Jósafat Amgrímssym og félögum í London: Opnunairæða saksóknara stóð í þrjá klukkutíma - ákæran snýst um falsaða vixla uppá 120 milljónir króna Jósafat Arngrímsson á erfiða daga fyrir höndum Attreð Böðvarsson, DV, Londan: Réttarhöld yfir Jósafat Am- grímssyni og fjórum mönnum öör- um, sem gefið er að sök aö hafa reynt að svíkja um 20 milljónir Bandaríkjadala út úr National Westminster bankanum í London, hófust í gær. Búist er viö að þau standi í tvær vikur og mun sak- sóknarinn leiða fram vitni erlendis frá til þess að sanna sekt mann- anna fimm. Sakbomingamir vom allir mætt- ir við upphaf réttarhaldanna í gær nema annar Tyrkinn en hann er í varðhaldi í Tyrklandi og óvíst hve- nær eða hvort hann mun verða sendur til Bretlands. Málið er bæði mikið að umfangi og geysilega flókið og í þriggja klukkustunda langri opnunarræðu rakti saksóknarinn málið eins og það lítur út frá hendi bresku krún- unnar. Á næstu tveimur vikum mun svo koma í ljós hvaða hlutar sögu saksóknarans standast nánari skoðun og hveijir ekki. Falsaðir víxlar? Það skiptist eiginlega í tvo hluta. Annar hlutinn sriýst um 10 milljón dollara víxil sem útgefinn var í Danmörku og ábektur af tveimur tyrkneskum bankastjórum en hinn hlutinn snýst einnig um 10 milljón dollara víxil útgefinn í Hong Kong og er hann einnig ábektur af þess- um sömu bankastjórum. Málið snýst aðallega um þaö hvort uppá- skriftir bankastjóranna voru fals- aðar eöur ei og mun saksóknarinn leiða fram tyrknesku bankastjór- ana í miöri þessari viku. Saksókn- arinn segir fimmmenningana hafa vitað að bankatryggingarnar eða ábekingar þessara tveggja víxla voru falsaðar og að þeir hafi gert samsæri sín á milli um að selja víxlana í krafti þessara fölsuöu uppáskrifta. Víxillinn, sem gefinn var út í Danmörku, var gefinn út af for- stjóra dansks útflutningsfyrirtæk- is, Danish Foodstuffs Trading, til þess að fjármagna kaup á skreið og þorskhausum frá Noregi til inn- flutnings til Nígeríu. Danska fyrir- tækið, ásamt bresku fyrirtæki og fyrirtæki í Nígeríu, Josy Kay Ltd., gerði samning við norskt fyrirtæki þann 22. mars í fyrra um kaup á að minnsta kosti 10.000 30 kg pökk- um af fyrsta flokks skreið og 16.000 pökkum af annars flokks skreið ásamt 10.000 30 kg pökkum af þorskhausum. Verðið fyrir vöruna var um níu milljónir Bandaríkja- dollara og skyldi breska fyrirtækið sjá um fiármögnun kaupanna en sami maöur stjómar reyndar breska fyrirtækinu og því rrige- ríska. Leynifundur Vegna slæmrar stöðu nígeríska gjaldmiðOsins er erfitt um vik fyrir nigerísk fyrirtæki að afla gjaldeyris til innflutnings og forstjórar danska fyrirtækisins og þess breska hittu tvo af sakborningun- um, írann Peter Mark Bogler og Jósafat Amgrímsson, í London til þess að ræða fiármögnun á fisk- kaupunum. Forsfióri breska fyrir- tækisins hitti svo Bogler og Jósafat aftur seinna og í framhaldi af því bað hann forsijóra danska fyrir- tækisins að gefa út víxil að upphæð 10 miBjórrir dollara og sendi danski sfiórinn tvo undirskrifaða víxla til hans og segist ekki hafa séð þá síð- an. Þremur vikum seinna, í ágúst í fyrra, fékk danski forstjórinn blað sent sem lofaði ábekingu tyrknesks banka en viðskiptabanki Danans samþykkti ekki þetta loforð. í sept- ember sendi Daninn tveimur öðr- um mönnum í Bretlandi umboð til þess að fá víxlana ábekta, þar á meðal kaupsýslumanninum Trilock Handa, sem er einn þeirra sem ákærður er ásamt Jósafat, og þann fimmtánda september var Handa handtekinn þar sem hann var að reyna að fá National Westm- inster bankann tO þess að kaupa af sér tvo vixla og var annar þeirra víxill gefinn út af Dananum. Jósa- fat, Bolger og tveir Tyrkir, Kujuk og Covan að nafni, voru hand- teknir þann sama dag. Tyrkneskur banki í skreið- arkaupum Saksóknarinn benti á að Handa heföi, þegar hann var að reyna að fá National Westminster bankann tO að kaupa vixlana, ekki getaö útskýrt það hvers vegna tyrknesk- ur banki væri að taka áhættu með því að ábyrgjast nígerísk skreiðar- kaup, sérstaklega þegar tekið væri tillit til ástands nígeríska gjaldmið- ilsins og tyrkneskra hafta í slíkum alþjóða fiármálum. National Westminster bankinn heföi einnig fengið telex hjá tyrkneska bankan- um sem ábekti víxlana sama dag og Handa hefði reynt aö selja víxl- ana þar sem fullyrt heföi verið að uppáskriftir bankasfióranna væru ófalsaðar og væri þessi yfirlýsing samkvæmt ósk breska bankans. Engin slík beiðni heföi hins vegar komið frá breska bankanum tO tyrkneska bankaris. Til Hong Kong Hinn 10 milljóna doOara víxillinn var útgefinn af forsfióra fyrirtækis í Hong Kong. Maður að nafni Je- rome Lim, er vinnur fyrir það fyrir- tæki hér í London, hafði um skeið verið að falast eftir láni til þess að kaupa nær tveggja nrilljóna punda fasteign fyrir hönd fyrirtækisins en mistekist. Hann hitti Bogler, sem sagðist geta útvegað banka- tryggingu frá banka í Tyrklandi, og var Lim áhugasamur um aö ganga til samstarfs við hann. Stuttu seinna hitti Lim þá Bolger og Jósafat og lét Jósafat hann fá 5-10 víxOeyðublöð. Forsfióri fyrir- tækisins í Hong Kong skrifaði svo undir þrjá af þessum víxlum sem útgefandi, Lim lét búa til stimpil í London með nafni fyrirtækisins, stimplaði undirskriftirnar og lét Bogler hafa víxlana. Lim átti síðan að fá 3 milljónir dollara tíl þess að fiármagna fasteignakaup fyrirtæk- isins. Saksóknarinn rakti einnig hvernig Handa reyndi að selja vixl- ana tvo, en án árangurs, í banka einum sem benti honum á að ýms- ir gallar væru á víxlinum frá Hong Kong, meðal annars að undirskrift- ir tyrknesku bankastjóranna væru ekld framan á víxlinum eins og vera bæri heldur aftan á og að hvergi kæmi fram til hvers ætti að nota hann. Grunsemdir vöknuðu í breska bankakerfinu um að eitt- hvað gruggugt væri á seyði og þær leiddu til þess að fiársvikadeOd lög- reglunnar fylgdist með hveiju fót- máli fimmmenninganna þann 14. og 15. september, allt þar til þeir voru handteknir um klukkan fimm á föstudeginum þann 15. septemb- er. Þriðji Tyrkinn Mál þetta er jafnvel enn flóknara en hér hefur verið tæpt á, enn hef- ur ekki verið minnst á þátt þriðja Tyrkjans, kaupsýslumanns í Istan- búl, sem mun líklega leika stærra hlutverk eftir því sem á réttar- höldin líður. Saksóknarinn telur jafnvel aö hann hafi leikið lykO- hlutverk í aö falsa undirskriftir tyrknesku bankasfióranna en ekki er vitað hvers vegna hann mun ekki bera vitni fyrir réttinum. Áðumefndur Jerome Lim var leiddur fram í dag sem fyrsta vitni saksóknarans en hann var aöeins í vitnastúkunni í um 45 mínútur í dag og kemur aftur fyrir rétt á morgun. Lim þessi er frá Singapore og hefur að sögn kunnugra verið þrívegis handtekinn af bresku lög- reglunni. Hann fieitaði að gefa upp heimilisfang sitt munnlega í réttin- um en skrifaði það niður handa dómaranum sem er kona á milli fimmtugs og sextugs. Hann stað- festi sögu saksóknarans og sagði að Jósafat heföi átt að selja víxilinn í Lúxemborg eftir aö Bolger vinur hans hefði fengið tyrkneska bank- ann tíl þess að tryggja víxilinn. Saksóknari heldur áfram að yfir- heyra Lim í dag en Lim reyndi ár- angurslaust að fá vitnaleiðslunni frestað til fimmtudags. Óvíst er hvaða hlutverki Lim gegnir í þessu máli og hvort hann geti varpað ein- hveiju ljósi á hinar meintu falsanir á bankatryggingum víxlanna. Að- alvitni saksóknarans' tyrknesku bankastjórarnir, eru í raun einu mennirnir sem geta leitt réttinn í allan sannleika um málið en veij- endur sakborninganna eru mjög efins um að þeir muni í raun bera vitni. Saksóknarinn heldur því fram að hann viti ekki betur en þeir muni bera vitni og væntanlega skera úr um það hvort þeir hafi tryggt þessa tvo víxla. Listahátíð Asmundur verður að hreinsa sig - segir Páll Halldórsson formaöur BHMR Austurstræti kl. 17.17: Auðhumla íslenska óperan kl. 20.00: Palli og Palli er ballet sem bygg- ist á bamasögunni sígildu, Palli var einn í heiminum. Þetta er barna- og fiölskyldusýning þar sem hug- myndafluginu er gefinn laus taura- urinn. Borgarleikhús kl. 20.30: Dansarar frá San Francisco bal- lettinum með sína síðustu sýningu. Helgi Tómasson er listdansstjóri og hefur samið tvö af fiórum verk- um sýningarinnar. Hressókl. 21.00: Fram koma Megas, Hættuleg hljómsveit, PaOi, Móa og búöing- amir og Ari Matthíasson les Ijóð eftir Þór Eldon. Hótel ísland kl. 21.30: Les Négresses Vertes eða Grænu blökkukonumar flyfia tónlist sem er frumleg og áfeng blanda ýmissa stíltegunda. T0 Júpíters er álíka erfitt að skflgreina en þau munu hita upp fyrir Grænu blökkukon- umar. -pj „Það sem okkur finnst alvarlegt í þessu máli og Ásmundur verður aö sjálfsögðu að taka afstöðu til er það að í bréfi ríkisstjórnarinnar er hreint og beint vitnaö til þess að þetta sé að kröfu þessara aðOa. í þessu felst einhver harðasta árás sem gerð hef- ur verið á nokkurn verkalýðsleið- Fiskvinnslufyrirtækið Stakkholt hf. í Ólafsvík er nú til sölu. Fyrirtæk- ið hefur átt í nokkrum erfiðleikum að undanförnu en hjá því vinna 50-60 manns og það gerir út þijá vertíðar- báta en einn hefur þegar verið seld- ur. Að sögn Kristjáns Pálssonar bæjar- toga hér á landi. Ég gæti allavega ekki setið undir því,“ sagði Páll HaO- dórsson, formaður Bandalags há- skólamenntaðra ríkisstarfsmanna, en háskólamenn eru ekki ánægðir með meintan þátt ASÍ og BSRB í þeirri frestun sem nú hefur verið ákveðin á launaleiðréttingu þeirra. stjóra er Stakkholt hf. eignalega séö vel stætt og það gæti vel gengið. Mik- ilvægt væri að halda starfsemi þess gangandi. Fjöldi manns hefði þar vinnu og það væri ófært að missa kvótann úr plássinu. Kristján bætti því viö aö tOlaga um aö kaupa Stakk- holt hf. og breyta því í almennings- PáO sagði að ríkisstjómin sækti rökin fyrir aðgerðum sínum í sam- komulag aðOa vinnumarkaðarins. Það myndi þó ekki breyta neinu því ætlunin væri að mæta þessu af fidlri hörku. í dag kl. 14 verður almennur fundur í Bíóborginni á vegum BHMR. -SMJ hlutafélag heföi verið lögö fram í bæjarstjórn en endanleg niðurstaða í máhnu lægi ekki fyrir. • Þá hefur einnig komið fram tílboð í fyrirtækið sem nokkrir heimamenn standa að. -GRS Bæjarfélagið íhugar kaup á Stakkholti hf.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.