Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.1990, Page 11
FIMMTUDAGUR 14. JÚNÍ 1990.
11
Yelena hefur sannarlega ástæðu til að vera glöð eftir sigurinn. Hér er hún
með frönskun fatahönnuði, Tierr Muglair.
Fyrirsætukeppni í Moskvu
Nýlegavarhaldinfyrirsætukeppn- Yelena Boznyakova. Það er ekki á
in „Supermodel 90“ í Moskvu. hverjum degi sem sovésk stúlka
Keppnin er alþjóðleg og var nú hald- vinnur fyrirsætukeppni en þær hafa
in í fyrsta skipti í Sovétríkjunum. þó komið meira fram í sviðsljósið að
Sigurvegarinn var sovésk stúlka, undanfórnu.
Allra augu á
litlu blómarósinni
Athina, dóttir Christinu Onassis og
Thierry Roussel, hefur nú fengið
annan félagsskap en lífverði og barn-
fóstrur. Líf hennar með móður sinni,
sem lést fyrir um einu og hálfu ári,
var frekar einmanalegt og fáir leik-
félagar voru til taks.
Nú er Athina hjá föður sínum og
Gaby konu hans. Þau giftu sig nýlega
og féllu brúðhjónin nokkuð í skugg-
ann því augu flestra beindust að At-
hinu. Hún hefur nú eignast fjöl-
skyldu og breikkar brosið með hverj-
um deginum.
Thierry leggur mikla áherslu á það
að dóttir hans fái að alast upp eins
og önnur börn en ekki umkringd líf-
vörðum. Áöur hafði Athina engin
samskipti við hálfsystkini sín tvö en
nú fær hún tækifæri til að kynnast
þeim vel.
Hin fimm ára gamla hnáta erfði
mikil auðæfreftir móður sína, um 7
billjón dollara. Það verður allt geymt
til betri tíma enda hefur fimm ára
gámalt barn lítið við slík auðæfi að
Athina blómarós er lagleg stúlka en gera. Margsinnis hefur það líka
má passa sig á aö láta ekki auðæfin sannast að margur verður af aurum
skemma líf sitt. api.
_________________________________Sviðsljós
Sonur Marlon Brando ákærður:
Morðið hugsanlega
vegna ósanninda
Christian, sonur Marlon Brando,
hefur verið ákærður fyrir morð á
Dag Drollet eins og komið hefur
fram. Dag var unnusti Cheyenne sem
er systir Christians. Jaques Drollet,
faðir hins látna, segir aö morðið hafi
hugsanlega verið framið vegna
ósannra sagna Cheyenne um að Dag
hafi lagt í vana sinn að berja hana.
Cheyenne, sem er tvítug, á von á
barni. Harmleikurinn átti sér stað
16. maí sl. í stórri villu Marlon
Brando í Los Angeles. Hinn grunaði
segir atburðinn hafa átt sér stað eftir
að hann hafi horft upp á Dag berja
systur sína og úr varð mikið rifrildi
milli hans og Dags.
Drollet, faðir Dags, kveður Marlon
hafa sagt sér að Cheyenne hafi sagt
ósatt um barsmíðamar. Samkvæmt
því hefði Dag aldrei lagt hendur á
hana. Drollet sagði þetta við frétta-
menn eftir yfirheyrslur í réttarsal.
Hinn grunaði tjáði sig ekkert þar og
faðir hans var ekki viðstaddur.
Lögmaður Christians sagði þetta
vera mikinn harmleik fyrir báðar
fjölskyldurnar og að faðir hins látna
og faðir hins grunaða yrðu brátt afar
sama barns.
Cheyenne og Dag bjuggu saman á
æskuslóðum hans, Tahiti, en fluttust
til Bandaríkjanna þegar hún varð
vanfær til að fá betri læknishjálp.
Hér sést Christian viö réttarhöldin með nýjum lögmanni sinum. Hann treyst-
ir myndavélunum greinilega ekki of vel.
Faðir Dags segir engan vafa á því að
Dag sé faðir barnsins sem Cheyenne
ber undir belti.
Móöir Dags, Lizette, harmar þenn-
an atburð mjög og segist eiga langt í
land með að ná sér, því Dag var
einkasonur hennar. Hún kveðst ekk-
ert hafa við Marlon Brando að tala.
Drollet vildi ekki láta hafa neitt eftir
sér þegar hann var spurður um hvort
hann væri bitur í garð Brando fjöl-
skyldunnar.
Madonna í nýrri mynd
Aðalleikarar nýju myndarinnar Dick Tracy, þau Warren Beatty, Charlie Korsmo og Madonna, koma hér til
þekkts leikhúss í höfuðborg Bandaríkjanna. Tilefnið var kvikmyndahátíð haldin i Washington. Myndin er byggð
á samnefndri myndasögu sem gengið hefur mjög lengi þar i landi. Warren leikur aðalhlutverkið í myndinni,
Madonna leikur andstuttu figúruna Mahoney og Korsmo leikur strákinn.
viö flytjum-sendum-sækjum
25050
SÉNDIBILASTOÐIN Hf
opið um kvöld og helgar