Dagblaðið Vísir - DV - 03.07.1990, Side 3
ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚLÍ 1990.
3
Fréttir
Þeir leyndust nokkuð vel, ungarnir við nýja útvarpshúsið, en þó ekki meira
en svo að glöggt auga gat uppgötvað þá. Systkinin tvö leyndust á bak við
stóra bróður sem greinilega var kjarkaðri en hinir og þorði að líta upp til
Ijósmyndarans.
DV-mynd GVA
Uppsagnir hjá Örva í Kópavogi:
Var broslegur
misskilningur
- segir forstöðumaðurinn
„Þetta var broslegur misskilning-
ur vegna nýrra laga um verkaskipt-
ingu ríkis og sveitarfélaga. Félags-
málaráðuneytið gekk í þetta mál og
það er leyst. Við höfum öll dregið
uppsagnir okkar tíi baka,“ sagði
Bergur Þorgeirsson, forstöðumaður
Örva, sem er vemdaður vinnustaður
í Kópavogi.
Allir menntaðir starfsmenn Örva
höfðu sagt upp störfum vegna deilna
við Svæðisstjórn fatíaðra.
Bergur segir að ágreiningur hafi
verið stjómunarlegur og hugmynda-
fræðilegur um markmið staðarins
út frá þjálfun fatlaðra. Fyrir tilstuðl-
an félagsmálaráðuneytis hefur lausn
fundist og uppsagnir hafa verið
dregnar til baka.
„Það tókst að ræða þetta á góðum
grunni. Máhð er enn á viðkvæmu
stigi. Staðfesting um málalyktir kom
frá ráðuneytinu síðastiiðinn fóstu-
dag. Það má segja, ef við bemm þetta
saman við Mógilsá, að ráðuneytið
hafi bmgðist aht öðmvísi við hjá
okkur en hjá þeim. Það styður okkur
alveg fullkomlega,“ sagði Bergur
Þorgeirsson.
-sme
Vestmannaeyjar:
Flak Sjöstjörnunnar
farið af rafstrengnum
Ómar Garðaisson, DV, Vestmannaeyjuin;
Danskt kapalskip var fengið til við-
gerðar í síðustu viku á gamla raf-
strengnum milh lands og Eyja. Við-
gerðin tók ekki nema rúma fjóra
daga enda var veður gott og er kostn-
aður áætlaður milh 40 og 50 mihjónir
króna. Skipt var um streng í kaplin-
um, nokkur hundmð metra, og gekk
þaö vel.
Sjöstjaman VE, sem sökk rétt
norðvestur af Elhðaey í vetur, lenti
á strengnum og skemmdi hann. Það
sást við myndatökur neðansjávar
nokkru eftir slysið en þegar undir-
búningur viðgerðar hófst í síðustu
viku kom í ljós að báturinn var horf-
inn. Fannst hann um 150 metra norð-
vestur af fyrri stað og er farinn að
hðast í sundur. Báturinn hefur fjar-
lægst vatnslögnina, sem er 200 metr-
um austan við gamla strenginn. Nýi
strengurinn hggur hins vegar einum
khómetra vestar. Ef bátinn rekur
lengra lendir hann fljótlega á hrauni
og því ekki tahn hætta á að hann
valdi meiri skemmdum.
Þverá:
Rútu ekið á tvo bfla
Rútu var ekið á tvo bha austan við
brúna yfir Þverá í Rangárvallasýslu
síðdegis á sunnudag. Brúin er mjó
og geta bhar ekki mæst á henni.
Tveir bhar vora samtímis á brúnni
og bakkaði ökumaður annars th að
hinn gæti farið yfir. Þegar bhamir
vom komnir af brúnni austanmegin
kom að rúta. Ökumanninum tókst
ekki að stöðva rútuna og skipti eng-
um togum að hún skah á báðum bh-
unum.
Engin slys urðu á fólki en bílamir
skemmdust talsvert.
-sme
Hella:
Tvennt flutt til læknis
Tvennt var flutt th læknis eftir
harðan árekstur milh tveggja bha á
Hehu í gær. Öðmm bhnum var ekið
eftir þjóðveginum en hinum var ekið
inn á þjóðveginn og í veg fyrir bílinn
sem þar var.
Fólkið slasaðist ekki alvarlega.
Báðir bílamir eru mikið skemmdir.
Opnunarræða á alþjóðahvalveiðiráðstefnunni:
Stöðvum dráp á
„rósum hafsins"
Kiistjáii Bemburg, DV, Hollandi
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráð-
herra Hohands opnaði alþjóða-
hvalveiðiráðstefnuna í gærmorgun
en hún er haldin þar í landi. í opn-
unarræðu hans kom greinhega
fram að ríkisstjóm Hollands er al-
farið á móti því að hvalveiðar verði
leyfðar aftur í hagnaðarskyni. í
raeðu sinni líkti ráðherrann hvöl-
um við „rósir hafsins“. Að lokinni
ræðu sinni gekk hann út th
Greenpeace manna sem afhentu
honum bol með áletmninni
„Stöðvum hvaladráp".
Á ráðstefnunni mun væntanlega
ráðast hvort hvalveiöar verða
leyfðar aftur í hagnaðarskyni. 33
ríiti em talin taka afstöðu á móti
„Rós hafsins" skorin í Hvalfirði.
hvalveiöum.
Fulltrúar Greenpeace samtak-
anna voru mættir fyrir utan hótelið
þar sem ráðstefnan er haldin strax
í gærmorgun með mótniælaspjöld.
Á fundi Greenpeace manna kom
fram að samtökin telja of snemmt
að hefja hvalveiðar aftur núna. Þau
telja tölur, sem komiö hafa fram
um hvalastofna, til að mynda frá
Noregi, alrangar.
Tölur þær sem íslendingar og
Norðmenn setja fram á ráðstefn-
unni eru gerðar tortryggilegar af
umhverfisverndarsinnum. Tölu-
verður mótbyr mætir því Halldóri
Ásgrímssyni og fylgdarmönnum
hans á ráöstefnunni.
KB/ÓTT
Æí - nú hefur hann sofið ílla eína nóttína enn, blessaður
karlinn hann Arngrímur.
Hvaða vandræðí að hann skulí gera sér þetta, - karlálftín,
að reyna að sofa á sömu dýnunní þríðja eða fjórða
áratugínn í röð og ganga svo með þessa , ,skúffu‘ ‘
í gegnum lífið.
BROSMEÐAL
Sérðu nokkuð af sjálfum þér í svípnum á honum
Arngrímí - svona stundum - eftír órólega nótt á vondrí dýnu?
Já - þá máttu gjarnan hafa í huga að besta brosmeðalíð
er alvöru rúmdýna - ekki bara eínhver dýna
- heldur ekta fjaðradýna með bestu bólsturefnum
sem hægt er að fá.
Og þessar dýnar færðu hjá okkur
- svo eínfalt er það
Eigum víð ekkí að híttast
í dag og tala um dýnur
M0BLER
FAX 91-673511 SIMI 91-681199
HúsgagnaAöllin
REGENT MÖBEL Á ÍSLANDI
BILDSHÖFÐI 20 112 REYKJAVÍK
■sme