Dagblaðið Vísir - DV - 03.07.1990, Blaðsíða 17
ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚLÍ 1990.
17
betur í viðureigninni gegn ÍA og er nú í 2.
DV-mynd GS
mn í botnslagnum
sín mjög vel og þaö gildir í leikjum deild-
arinnar og ekkert annað. Atli Eðvalds-
son lék nú á miðjunni en var aftasti
maður varnarinnar í síðasta leik. Komst
Atli þokkalega frá leiknum og á örugg-
lega eftir að styrkja KR-liðið mun meira
í komandi leikjum.
Leikinn dæmdi Eyjólfur Ólafsson og
komst mjög vel frá leiknum. Hann sýndi
Heimi Guðmundssyni, ÍA, gula spjaldið.
Áhorfendur í nepjunni á KR-velli í gær-
kvöldi voru með færra móti enda
kannski margir búnir að fá nóg af knatt-
spymuíbili. -SK
lofti
baráttuleik 1 Eyjum
dæmd var á Aðalstein Aðalsteinsson fyr-
ir að hafa handleikið boltann. Eins og
áður sagði jafnaði Ingi Sigurðsson síðan
metin með sannkölluðu draumamarki
10 mínútum fyrir leikslok.
Leikurinn var geysilega harður og
spiluðu Víkingar mjög gróft. Tveir leik-
menn Uðsins fengu rautt spjald, þeir
Goran Micic og Ath Einarsson, og auk
þess vom sex gul spjöld á lofti.
Sæmundur Víglundsson dæmdi leik-
inn og var ekki nógu sannfærandi.
1. deild - Hörpudeild
Vál 6 1 1 14-6 19
KR. 8 5 n 313-9 15
Fra: m 7 4 1 2 14-3 13
Vík tngur.........8 3 3 2 10-9 12
FH 8 3 0 5 11-11 9
I*\ 8 2 2 4 8-13 8
KA 8 2 1 5 8-13 7
Sfia rnan 7 2 1 4 7-13 7
Þór — 8 2 i 5 8-12 7
2. deitd
(pepsídeild)
Fylkir UBK „6 ..6 5 0 i 1 16- 1 13 6 15 ÍlH
Víðir „6 3 2 i 7- 7 11
TindastóU 6 3 1 2 7- 6 10
::KS:*»« »:•:<♦► •♦►•:«« ► ..6 3 0 3 9 11 9
Selfoss ..6 2 1 3 10- 10 7
Keflavík ..6 2 0 4 5- 7 6
ÍR ..6 2 0 4 8- 14 6
Leiftur ..6 1 w 3 4 9 5
Grindavík.... ..6 m 1 4 8- 11 4
ÍK sigraði Þrótt frá Reykjavík,
1-0, í toppslag 3. deildar í gær-
kvöldi. Omar Jóhannsson geröi
sigurmark ÍK-manna í gífurleg-
um baráttuleik. Völsungar og
Haukar gerðu 2-2 _ jafntefli.
Sveinn Freysson og Ásmundur
Arnarsson gerðu mörk heima-
manna en Guðjón Guðmundsson
gerði bæði mörk Hauka. Reynir
vann 4-0 sigur á BÍ á Árskógs-
strönd. Garöar Níelsson gerði tvö
mörk og þeir Þórarinn Amarsson
og PáU Gíslason skoraðu eitt
mark hvor. Einherji og Þróttur
frá Neskaupstað gerðu 3-3 jafn-
tefli. Ömólfur Oddsson, Gísli
Davíðsson og Arnar Gestsson
gerðu mörk Einherja en Ólafur
Viggósson skoraði þrennu fyrir
Þrótt.
-RR/KH/MJ
Skotar unnu
Skotar unnu landskeppnina i
fijálsum iþróttum í keppni karla-
Mða sem lauk að Varmá i gær-
kvöldi. Skotar hlutu 141 stig, írar
136 og íslendingar 126. í kvenna-
flokki hlutu írsku stúlkurnar 90
stig en þær íslensku 69.
-SK
Tap gegn
Danmörku
íslenska piltalandsliöið í hand-
knattleik beið lægri hlut fyrir
Dönum í gær er Uðin mættust á
opna Norðurlandamótinu, sem
fram fer í Svíþjóð.
íslenska Uðið byrjaði mun bet-
ur í leiknum í gær og náði fljót-
lega góðri forustu, 4-1, en í hálf-
leik höíðu Danir náö að komast
yfir og höfðu eins marks forustu,
12-13.
Jafnt var síðan í upphafi seinni
hálfleiks, 14-14, en þá kom slæraur
kafli hjá íslendingum og Danir
náðu að skoruðu finun mörk á
móti einu marki íslands og breyttu
stððunni í 15-19 sér í vil og örugg-
ur sigur Dana var staðreynd,
22-28.
Markahæstur íslensku leik-
raannanna var Sigurður Bjarna-
son sem skoraöi 7 mörk og næstur
honum vai' Magnús Sigurðsson
meö 5 mörk.
Að sögn Lárusar H. Lárussonar,
liðsstjóra íslenska liðsins, á is-
lehska liðið enn möguleika á aö
ieika um efstu sætin en í dag verð-
ur leikiö gegn Finnura og Suður-
Kóreu og nái ísland aö vinna bæði
þessi liö tryggir iiðið sér rétt til að
leika í undanúrsUtum.
-HR/BS
íþróttir
„Höfum þetta
í hendi okkar“
- sagði Ingi Björn Albertsson eftir sigur Vals á FH
„Ég get ekki neitað því að þetta var
tilfinningaleikur fyrir mig en enginn
er annars bróðir í leik. Ég er ánægð-
ur með sigurinn en ekki leikinn en
það er gott að halda efsta sætinu. Við
höfum þetta nú í hendi okkar og þaö
klúðrar þessu enginn nema við,“
sagði Ingi Björn Albertsson, þjálfari
Vals, en lið hans sigraði FH, 0-1, í
Kaplakrikanum í gærkvöldi.
Ingi Björn lék og þjálfaði sem
kunnugt er lið FH en í gærkvöldi
kom hann í heimsókn á gamlar slóð-
ir og sigraði gömlu félagana.
Valsmenn eru þar með komnir með
góða forystu á toppi 1. deildar og hð-
ið hefur nú unnið 5 leiki í röð. Vals-
menn þurftu ekki að sína neinn stór-
leik til að vinna FH-inga sem hafa
nú tapað fimm leikjum af átta og
viröast ekki Uklegir til stórræðna í
sumar, að minnsta kosti ekki ef mið
er tekið af þessum leik.
Fyrri hálfleikurinn í Kaplakrika
var hreint út sagt hrikalega dapur
og ekkert marktækifæri leit dagsins
ljós fyrr en í síðari hálfleik. Þá voru
Valsmenn mun sprækari og voru
óheppnir að skora ekki þegar Þórður
Bogason skaut í stöngina úr góðu
færi. Þegar stundarfjórðungur var til
leiksloka skoruðu Valsmenn eina
mark leiksins og var þar að verki
Sævar Jónsson meö glæsilegum
skalla. Valsmenn voru nær því að
bæta mörkum við undir lokin en
FH-ingar að jafna. Hafnfirðingar
komust reyndar ekki í eitt einasta
færi í öllum leiknum og segir þaö
dáhtið um frammistöðu Uðsins.
Valsliðiö virkaði ekki ýkja sann-
færandi en það gerði þó það sem
þurfti th aö sigra. Þorgrímur Þráins-
son og Sævar Jónsson voru mjög
sterkir og Þóröur Bogason átti einnig
mjög góðan leik.
Hjá FH var Andri Marteinsson
bestur en miklu munaði um marka-
kónginn, Hörð Magnússon, sem gekk
ekki heill til skógar.
Lið FH: Halldór Halldórsson, Birgir
Skúlason, Guðmundur Hhmarsson,
Björn Jónsson, Ólafur Kristjánsson,
Andri Marteinsson, Þórhallur Vík-
ingsson, Kristján Gíslason, Guð-
mundur V. Sigurðsson, Pálmi Jóns-
son, Hörður Magnússon (Kristján
Hilmarsson 63.).
Lið Vals: Bjarni Sigurðsson, Þor-
grímur Þráinsson, Sævar Jónsson,
Steinar Adólfsson (Ámundi Sig-
mundsson 70.), Bergþór Magnússon
(Ingvar Guömundsson 70.), Baldur
Bragason, Magni Blöndal Pétursson,
Anthony Karl Gregory, Einar Páll
Tómasson, Þórður Bogason, Snævar
Hreinsson.
Dómari var Óh Ólsen og dæmdi
hann þokkalega.
-RR
íþróttir eru einnig á bls. 18
ISLAH'
> /’ ''« '/% A
• Björn Jonsson fyrirliði FH-inga á hér í höggi við Valsmanninn Steinar Adólfsson i Kaplakrika. Valsmenn sigruðu
í leiknum og eru áfram efstir í 1. deild. DV-mynd Brynjar Gauti
> 'M ■ & m
Höi pudeildin
4*
aðalleikvangi Laugardals í kvöld kl. 20.00