Dagblaðið Vísir - DV - 11.07.1990, Side 13

Dagblaðið Vísir - DV - 11.07.1990, Side 13
MIÐVIKUDAGUR 11. JÚLl 1990. Lesendur Ríkisbáknið og fjár- hagsvandi einstaklinga Gunnar Þórarinsson skrifar: Fámenn þjóð, skuldum hlaðin, og einstaklingar í hvers konar at- vinnurekstri sjá ekki neina framtíð í áframhaldandi daglegu brauðst- riti. Koma þar aöallega til háar álögur opinberra aðila á allan rekstur. - Söluskattur, samþykkt- ur á hinu „háa Alþingi" árið 1960, 2%, og tii „aðlögunar" í eitt ár. Síð- an átti að fella hann niður. - En allt eintóm svik. Hvað er hann í dag? - Virðisaukaskattur! Auðvitað gengur þetta ekki. Tök- um dæmi af lítilU verslun með matvörur með takmarkaða álagn- ingu. Þar koma til greiðslur til starfsfólks, í laimaskatt, húsaleigu, aðstöðugjaid, rafmagn og hita, vegna vörurýmunar o.fl. o.fl. Þessi verslun getur rétt flotið. - Katta- og hundamatur er með hæstu álagninguna! Fámenn íslensk þjóð í miklu strjálbýli með dýra flutn- inga stendur einfaldlega ekki undir þessu öllu. Það líður ekki sá dagur að ekki sé fariö fram á verðhækkanir. Mesta frekjan er hjá Ríkisútvarp- inu sem virðist aldrei fá nóg. Samt er verið að fella niður álögur af sjálfu ríkinu á ríkisstofnun!! - Lít- um á húsbáknið, útvarpshúsið nýja. Og stofnunin er einnig á - Laugaveginum þar sem nóg hús- rými væri fyrir alla starfsemina. Ríkisútvarpið er með tvær rásir á móti htlu útvarpsstöðvunum sem eru þó með mun skemmtilegri dag- skrá. En sannið til, krafa mun koma fram um að stöðva þetta ein- staklingsframtak - og það verður framkvæmt með skattheimtu. Núna er að skella yfir þjóðina gífurleg alda gjaldþrota. Þegar tahð berst að stjómskipan þessa lands lætur fólkið sér fátt um finnast og ræðir það mál varla, lætur sem minnst á sér bera, enda engin furða því ríkið er stærsti vinnuveitand- inn og fólkið er ánægt með að fá að vera ríkisstarfsmenn. - Ein- staka þingmenn hafa minnst á of marga þingmenn. Þeim megi fækka um helming. Ég held að ekkert sé að marka þessi orð þeirra. Stærsta hættan er nú hinn gífur- legi vandi sjálfstæðs atvinnurekst- urs. Ríkið gefur ekkert eftir. Ef ekki er borgað koma lögfræðingar og fógeti samstundis. - Þaö eru dökkir tímar fram undan á íslandi og atvinnuleysi og uppgjöf er dag- legt brauð. Ég hef það mín lokaorð að það þarf að skera á ríkisrekstur- inn og hefja spamað, og ekki bara hjá ríkinu. Reykjavíkurborg þarf líka að stokka upp hjá sér. - Þó að fólk hafi kosið Davíð verður borg- arstjóri líka að skilja að Reykjavík er á íslandi. 13 ov óskar eftir að ráð Upplýsingar hjá i afgreiðslunni í Ri Kópasker a umboðsmann fr< jmboðsmanni í sín eykjavík í síma 91 - á 1. ágúst. na 96-52170 og 27022. ER VATNSKASSINN BILAÐUR? Gerum við-seljum nýja ameríska - evrópska Ármúla 19,128 Reykjavík Símar 681877, blikksmíðaverkstæðið 681949, vatnskassaverkstæðið 681996, skrifstofan Fuglalíf á Tjörninni í hættu - hrekið varginn burt F.A.Ó. hringdi: Það er afar leiðinlegt að horfa upp á hvernig fuglalífið á Tjörninni er í hættu vegna aðkomufugla, einkum veiðibjöhu eða máva sem era að- gangsharðir að ungunum sem þarna synda og era að ná sér í æti ásamt öðrum staðarfuglum sem þama hafa fengið að vera í friði gegnum árin. Ég man að fyrir nokkrum áram var gerð aðfór að hinum óboðnu gestum og þeir skotnir og varð þá friður þama um stimd að ég held. Nú þyrfti umsjónarmaður við Tjömina, sem ég held að sé enn að störfum, að fá því framgengt að aftur verði gerð atlaga að varginum og hann flæmdur burt. Það gengur ekki að láta þennan fallega reit og fuglalífið líða fyrir það að þarna séu vargfuglar að flæma kohur og unga þeirra burt og jafnvel ráöast að þeim og drepa. Alhr sem koma niður að Tjörn era sammála um að núverandi ástand eigi ekki að láta dankast þangað til of seint er að bjarga staðnum frá því sem hann hefur ávallt verið, eins konar friðuð vin í miðborginni. Opnunargjald Stöðvar 2: Forréttindi fyrir bí Gunnar Jónsson skrifar: Vegna sumarleyfis míns í sumar, frá 1. ágúst til loka september, hef ég ákveðið að greiða ekki afnotagjald af afraglara mínum þessa mánuði. Af furðuskrifum einhverrar Birnu Gunnarsdóttur, sem virðist vinna eitthvað á ykkar vegum, má sjá, að hún ætlar að innheimta kr. 500,00 af hverjum þeim sem ekki greiðir mán- aðarlega af afraglara sínum allt árið. Þar sem þetta er ekki í samræmi við þá venju, sem skapast hefur og verið til spamaðar fyrir marga, sem eru áskrifendur að Stöð 2, vil ég að þið vitiö að engin þörf verður fyrir ykkur aö opna aftur afruglara minn fyrir mig i október nk. Ég mun aldrei greiða slíkt gjald th Stöðvar 2 því þá hafa þau forréttindi sem við með Stöð 2 höfðum, það val- frelsi sem viö voram hreyknust af, að greiða fyrir horfun, öfugt við það sem er á RÚV þar sem krafist er greiðslu þótt við vhjum ekki horfa á hana - fyrir bí. Þetta vil ég að þið fáið að vita með nægum fyrirvara. Bréf þetta var einnig sent th Stöðv- ar 2 með afriti th markaðsstjóra sama fyrirtækis - og birtist hér að beiðni bréfritara. Við Tjörnina. - Staöbundið fulgalíf líður fyrir ásókn vargfugla. Auglýst er eftir einbýlishúsi til kaups eða leigu á Hvammstanga. Æskileg stærð er ca 150-200 fermetr- ar. Þess er óskað að tilboðum verði skilað til dóms- og kirkjumálaráðuneytisins fyrir 17. júlí nk. í tilboði ber að tilgreina lýsingu á húsi, stærð þess, svo og verð og greiðsluskilmála. Áskilið er að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum. Dóms- og kirkjumálaráðuneytið, 9. júlí 1990 ■ ■■■■ uIumferoar er margra bol! SUZUKISWIFT SEDAN er sérlega glæsilegur og rúmgóður fjölskyldubíll, þar sem vel fer um farþegana og nægt rými er fyrir farangur. SUZUKISWIFT SEDAN býðst með aflmiklum 1,3 I og 1,6 I vélum, 5 gíra handskiptingu eða sjálfskiptingu. Einnig er hann fáanlegur með sítengdu aldrífi. VERÐ: 1,31GL eindríf..... 783.000,- kr. stgr. 1,61GLX eindrif.... 878.000,- kr. stgr. 1,61GLX sítengt aldrif. 1.031.000,-kr. stgr. TIL AFGREIÐSLU STRAX $ SUZUKI SUZUKIBILAR HF SKEIFUNNI 17 • SÍMI 685100 NYR O G STÆRRI

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.