Dagblaðið Vísir - DV - 11.07.1990, Síða 27
MIÐVIKUDAGUR 11. JÚLÍ 1990.
43
LífsstOI
Of mikill farangur
getur orðið dýrt spaug
Nú eru margir á ferö og flugi bæði
innanlands og utan. Vill þá oft
brenna viö aö menn hafa meira meö-
ferðis en nauðsynlegt er. Á hinn bóg-
inn er það að sjálfsögðu heilmikið
sem stór fjölskylda þarf að hafa í far-
teskinu og er yfirvigt því eðlilegur
fylgifiskur þegar fljúga skal til
áfangastaðar. En hver skyldi kostn-
aðurinn vera?
20 kílóa hámarks-
þyngd á almennu
farrými
Almenna reglan er sú að reiknuð er
1 prósenta af fargjaldi fyrsta farrým-
is þegar fundin er sú upphæð sem
greiða skal fyrir yfirvigt. Það fer því
eftir flugleiðum hversu hár kostnað-
urinn getur orðið. Sömu reglur um
hámarksþyngd gilda þó á öllum flug-
leiðum til Evrópu og eru það 20 kíló
sem farþegum er leyfilegt að bera
með sér, auk handfarangurs. Hand-
farangur má ekki vera fyrirferðar-
meiri en svo að hann komist fyrir
undir sæti. Eru öryggisreglur hafðar
að leiöarljósi í þvi sambandi.
Þessar reglur gilda um alla farþega
sem greiða fargjald. Börn undir
tveggja ára aldri, sem aðeins greiða
tryggingargjald, falla ekki undir
þetta og er aðstandendum því gefinn
kostur á að greiða yfirvigt fyrir þann
aukafarangur sem oft á tíðum fylgir
ungviðinu. Burðarrúm má að sjálf-
sögðu fylgja barninu.
Leitað var eftir upplýsingum hjá
Flugleiðum um þann kostnað sem
fylgir því að hafa farangurinn of
þungan.
Dýrast er að borga undir aukakíló-
in til Frankfurt, 530 krónur á hvert
kíló. Heimsborgin París er ekki langt
undan en þangað er kostnaðurinn
516 krónur fyrir hvert kíló. Til Lund-
úna kostar 513 krónur á hvert kíló,
til Lúxemborgar 427 krónur og Kaup-
mannahöfn rekur lestina með 357
krónur kílóið.
Á flugleiðum Amarflugs er kostn-
aðurinn 436 krónur á kílóið til Amst-
erdam en 497 krónur ef flogið er til
Hamborgar. Þar gildir einnig að 0-2
ára börn hafa ekki farangursrétt.
Ef flogið er á viðskiptafarrými
(business class) gildir önnur há-
i-Vi i
Kostnaöur viö yfirvigt getur verið töluverður og er betra að hafa það i huga áður en lagt er upp í flugferð.
DV-mynd JAK
marksþyngd. Er þar miðaö við 30
kíló en greitt er fyrir allan þann far-
angur sem fer fram yfir það.
Tværtöskurtil
Bandaríkjanna
Ef ferðinni er heitið vestur um haf
til Bandaríkjanna er ekki farið eftir
hámarksþyngd heldur er gengið út
frá því hversu margar töskumar eru
sem menn hafa meðferðis. Má hafa
með sér tvær töskur. Miöað er við
staðlaðar stærðir og er reiknað með
ummáli og þunga hveiju sinni.
Á almennu farrými er talað um
þrjár stærðir en eðlilegt er að menn
hafi meðferðis tvær töskur af milli-
stærð. Hver taska má þó ekki vera
þyngri en 32 kfló. Eftir það er borguð
yfirvigt.
Hvert aukakíló kostar 66 dollara,
eða sem samsvarar tæplega 3900
krónum. Ef flogiö er tfl Orlando bæt-
ast 10 dollarar við þessa upphæð, eða
tæplega 590 krónur.
15 kíló innanlands
í innanlandsflugi er um að ræða 15
kflóa hámarksþyngd og gilda um það
sömu reglur bæði hjá Arnarflugi og
Flugleiðum. Verð, sem greitt er fyrir
of þungan farangur, greiðist eftir
þeirri flugleið sem flogin er.
Kostnaður hleypur á fimm kílóum.
Hjá Flugleiðum kosta fyrstu 5 kflóin
315 krónur en upphæðin verður 392
krónur þegar virðisaukaskatti hefur
verið bætt við. Verðið fer síðan stig-
hækkandi og kosta 20 kílóin rúmar
fimmtán hundruð krónur.
Hjá Arnarflugi kosta fyrstu 5 kílóin
405 krónur hvert kíló og 780 krónur
ef yfirvigtin nær 20 kílóum.
Ódýrara með fragt
Hjá Flugleiðum var bent á að mun
hagstæöara er fyrir farþega að senda
mikinn farangur með fragtflugi ef
vdtað er fyrirfram að þyngdin er of
mikfl. Er munurinn þónokkur og
borgar sig að velja þann kostinn.
Koma þarf með farangurinn vel
tímanlega ef þessi leið er farin og er
ágætt að hafa samband vdð starfs-
menn áður.
-tlt
Verðkönnun Verðlagsstofnunar á spaghetti:
Verðmunur er 146%
á spaghettitegundum
í lok júnímánaðar gerði Verðlags-
stofnun könnun á einstökum tegund-
Verðmunur er mikill á einstökum
tegundum af spaghetti og pasta, allt
að 146 prósent. DV-my nd JAK
um af spaghetti og pasta. Verðmunur
reyndist vera 146% milli tegunda.
Könnunin náði tfl þriggja framleið-
enda: Barilla, Mueller's og Honig.
Kannað var hæsta og lægsta verð á
spaghetti og núðlum frá þessum fyr-
irtækjum. Pakkningar voru misjafn-
lega stórar og var því miðað vdð 100
grömm í hverju tilvdki og reiknað út
meðalverð á því.
Hagstæðustu kaupin
frá Barilla
Spaghetti frá Barilla var á langbesta
verðinu. Var meðalverð á 100
grömmum 13 krónur en sama magn
af spaghetti frá Mueller's var dýrast
og þurfti að borga 32 krónur að með-
altali fyrir þaö.
Meöalverð á spaghetti frá Honig
reyndist vera mflh verðs hinna
tveggja framleiðendanna og var það
16 krónur ef keypt voru 500 grömm
en 25 krónur ef keypt var 250
gramma pakkning. Það er því augljós
verðmunur sem ákvarðast af því
magni sem keypt er.
Neytendur
Yfir 155% verðmunur
milli verslana
Þrátt fyrir að verð á spaghetti frá
Barilla hafi verið lægst var áberandi
mikill verðmunur milli hæsta og
lægsta verðs. í þeirri verslun, þar
sem það reyndist dýrast, var jafnað-
arverð 23 krónur en aðeins 9 krónur
þar sem verðinu var haldið í lág-
marki. í prósentum er munurinn því
155,6%. Það er því nauðsynlegt fyrir
neytendur aö vera vakandi fyrir
verðmun sem þessum og gera verð-
samanburð upp á eigin spýtur annað
slagið.
Núðlur ódýrastar
frá Honig
Samanburður náði einnig til núðla
en framleiðsla frá Barilla var ekki
fyrir hendi. Á núðlum frá Honig og
Mueller's var 81% verðmunur á með-
alverði. Hins vegar var 100 prósenta
munur á hæsta verði mflh tegunda.
Á lægsta verði munaði um 22 krón-
um og eru það 110 prósent.
-tlt