Dagblaðið Vísir - DV - 23.07.1990, Page 6
6
MÁNUDAGUR 23. JÚLÍ 1990.
Fréttir
Tilraunir með nýtt yngingarlyf:
Á að yngja fólk
um tuttugu ár
Læknar í Bretlandi eru nú aö
kanna áhrif nýs lyfs sem mun geta
unnið bug á flestum neikvæðum
hliðum öldrunar. Bæði körlum og
konum yfir sextugt hefur verið
boðið að taka þátt í tilraun á lyfinu
í London seinna á árinu. Læknam-
ir binda vonir við að fyrir tilstilli
lyfsins munu þúsundir eftirlauna-
þega bráðlega getað náð bkamlegu
ásigkomulagi á við fólk sem er allt
að 20 árum yngra. Nánar tiltekið á
lyfið að gera fólk grennra, sterkara,
duglegra og jafnvel hærra.
Lyf þetta er hormónalyf og hefur
hingað til einungis verið notað til
hjálpar bömum sem ékki vaxa eðli-
lega. í breska blaðinu The Sunday
Times er haft eftir Peter Sönksen
prófessor, sem leiða mun rann-
sóknir á lyfinu, aö daglegar lyfia-
gjafir geti gert öldraðu fólki betur
kleift að takast á við verkefni dag-
legs lífs. Öðlist þetta fólk þá meiri
orku þannig að það geti til dæmis
gengið lengri vegaiengdir og kom-
ist hraðar upp stiga.
Meiri lífsgæði?
„Við ímyndum okkur ekki að hér
sé kominn hinn eini sanni æsku-
brunnurinn en lyfið mun hins veg-
ar geta aukið lífsgæði þessa aldurs-
hóps til muna. Við vonumst til að
lyfið muni ekki aðeins fá fólk til
að líða hetur heldur minnka þörf
þess á ýmiss konar þjónustu sem
kostuð er af almannafé. Þannig
getur lyfið komið í veg fyrir að fólk
þurfi að leggjast inn á stofnanir
vegna vöðvarýrnunar og almenns
veikleika," segir Sönksen.
Læknarnir segja ekki útilokað að
lyfið geti einnig orðið miðaldra
fólki til góðs og því full ástæða fyr-
ir þaö að huga að endumýjun
trimmgallans og aö herða upp
hjónarúmið.
Einstaka manneskjur hafa þegar
notið góðs af þessu lyfi og í blaðinu
er vitnað í ummæli nokkurra ein-
staklinga. Þannig gekkst 51 árs
kona undir aðgerð þar sem heila-
dingullinn var fiarlægður fyrir 14
árum. Heiladingullinn framleiðir
vaxtarhormón og hefur meðal ann-
ars áhrif á orku og efnaskipti. Eftir
þrálátar meðferðir var henni loks
gefið þetta nýja lyf fyrir stuttu og
er að eigin sögn allt önnur eftir.
Hún er þrekmeiri og styrkari, auk
þess sem sjálfstraust hefur aukist
til muna.
Elli kerling
Notkun á þessu tilraunalyfi er
enn mjög takmörkuð en árs-
skammtur fyrir fullorðinn kostar
um 300 þúsund krónur. Ef komandi
tilraunir gefa jákvæðan árangur
búast læknarnir við verðlækk-
un.
íslenskur læknir sagði í samtali
viö DV að hann hefði ekki heyrt
af þessu lyfi og var frekar vantrú-
aður á yngingarmátt þess. Þannig
gætu alls konar aukaverkanir
komið í ljós. Auk þess heíöi það
ekki borið árangur þegar menn
reyndu að grípa á jafnafdrifaríkan
hátt inn í náttúralögmálin og að
stöðva elli kerhngu.
-hlh
Áfengisneysla
dregst saman
Heildarsala áfengis var minni
fyrstu sex mánuði ársins en á sama
tíma fyrir ári. Heildarsala áfengis
nam 4.257.039 lítrum eða 465.854 alkó-
hóllítram. Sambærilegar tölur frá
árinu 1989 eru 4.443.266 lítrar eða
498.410 alkóhóllítrar. Samdráttur frá
ári til árs er því 4,19 prósent í lítrum
talið en 6,53 prósent í alkóhóllítram.
Ef skoðuð er sala á einstökum teg-
undum kemur í ljós að neysla létt-
vína hefur dregist nokkuð saman.
Mestur er samdrátturinn í sölu rósa-
víns, eða 11,33 prósent, 7,57 prósent
í sölu hvítvíns og rauðvínssalan hef-
ur dregist saman um 2,72 prósent. Á
hinn bóginn hefur sala á kampavíni
aukist um 3,86 prósent.
Mjög fáar tegundir sterkra vína
auka hlutdeild sína á markaðnum.
Af þeim hefur orðið mest aukning í
sölu á bitterum, 34,59 prósent, og á
Rom Punch, 31,72 prósent. Hins veg-
ar hefur sala á brennivíni dregist
saman um 13,83 prósent og sala á
vodka hefur minnkað um 7,61 pró-
sent.
Sala á bjór var leyfð 1. mars á síð-
asta ári og ef sölutölur yfir hann á
fiögurra mánaða tímabili eru skoð-
aðar kemur á daginn að sala hans
var 3,14 prósent minni en á síðasta
ári.
í þessum magntölum er ekki tekið
tillit til þess áfengis sem áhafnir flug-
véla og skipa flytja inn í landið eða
þess magns sem ferðamenn taka með
sér frá útlöndum eða kaupa í fríhöfn.
-J.Mar
Þessi bygging í Skerjafirði hefur verið kærð til félagsmálaráðuneytisins.
DV-mynd JAK
Nýbygging í Skerjafirði:
Kvartað til ráðuneytisins
Félagsmálaráðuneytinu hefur hor-
ist formleg kvörtun vegna nýbygg-
ingar við Gnitanes í Skerjafirði í
Reykjavik. í bréfi, sem ráðuneytinu
hefur borist, er fundið að nýtingar-
hlutfalli lóðarinnar. íbúar nærliggj-
andi húsa, við Gnitanes og Einars-
nes, sendu kvörtunina. Þeir finna
helst að því að húsið, sem er í bygg-
ingu, sé of stórt. Þá þykir húsið, sam-
kvæmt teikningum, einnig vera of
hátt miðað við önnur hús í nágrenn-
mu.
Félagsmálaráðuneytið hefur nú
sent máhð til skipulagsstjóra ríkisins
sem hefur erindi íbúanna til með-
ferðar.
Miðstjórn ASÍ mótmælir tillög-
um um húsnæðislánakerfið
„Þótt ekki verði gerð athugasemd
við vinnuhrögð og forsendur, sem
nefndin vinnur út frá, er nauðsynlegt
að mótmæla tillögum þeim sem hún
gerir, það er að loka strax lánakerf-
inu frá 1986 og hækka vexti á öllum
lánum sjóðsins frá ársbyijun 1984,“
segir meðal annars í ályktun sem
samþykkt var á fimdi miðstjórnar
Alþýðusambands íslands á fimmtu-
dag. Ályktunin fiallar um álit emb-
ættismannanefndar sem félagsmála-
ráðherra skipaði til að gera úttekt á
fiárhagsstöðu Byggingarsjóðs ríkis-
ins.
Segir ennfremur að húsbréfakerf-
ið, sem taka á við lánakerfinu frá
1986, sé umdeilt og ekki komin á það
reynsla þar sem það hefur aðeins
verið í gangi á takmörkuðu sviði. Því
sé ekki hægt að fullyrða um ágæti
þess umfram 86-kerfið sem vissulega
hafi galla sem ekki hafi náðst sam-
staöa um að laga. Segir að höfuðerf-
iðleikar 86-kerfisins séu vegna sí-
minnkandi framlaga hins opibera.
„Því verður að krefiast þess að
opinber framlög til 86-kerfisins verði
aukin svo það geti starfað, aö
minnsta kosti þangað til reynslan
sýnir að annar kostur sé betri.“
Loks segir að verkalýðshreyfingin
krefiist þess „að vera með í ráðum
um breytingar á fyrirkomulagi að-
stoðar þess opinbera við húsnæðis-
öflun fólks og að ekki verði nú farið
að byltingarkenndum tillögum fram-
angreindrar nefndar".
-hlh
Sandkom
Flokkur
minnisskaðaðra
Steingrímur
Hermannsson
l’orsa.'tisráð
herrafórtíl
Glasgow á
fimmtudaginn
áólympíuleika
fatlaðra. Þetta
erífvrstaskipti
sem Islending-
ar taka þátt í þessum leikum. Menn
hafa verið að velta íyrir sér erindi
Steingríms á leikana og í hvaða grein
hann muni keppa. Eina rökræna til-
lagan hingað til hefur verið sú að Big
Red muni keppa í wrestling í flokki
minnisskaðaðra,
Café brutale
JónArsælI
Þórðarsoner
skemmtilegasti
útvm-psmaður
íslendinga. Um
daginn þogar
liannvaraðaf-
kynnasamtalí
morgunþætti
rásar 2 var það eitthvað á þessa leíð:
„Þetta var Bjarni Sigtryggsson. ný-
ráðinn markaðsstjóri Arnarílugs.
Guð þjálpi honutn.“ Kstiil Jóns Ár-
sæls frá Vestur-Þýskalandi fyrir all-
löngu var með því besta sem heyrst
hefúrí útvarpi. Sandkornsritara
rainnir að hann hafi verið eitthvað í
þessa áttina: „Hér í Dússeldorf
drekka menn mikið kaffi. Það er
framreitt í þremur útgáfum: „café
normale", sem er venulegt kaffi,
, ,café speciale“, sem er kaffi og kon-
íak, og „café brutaie“ sem er bara
komak.“ Lengri var pistillinn ekki.
And I ífsupp lyft ing
Sjálfstæðis-
monneruauð-
aðiraðund-
írbúakosninga-
baráttunaað
vorikomanda.
Fríðrik Soph-
ussonhjólar
_______________ einsogvitlaus
maöur ntn alla borg og er orðinn að
tákni heílbrigðs lifernis manna sem
nálgast fimmtugsaldurinn óðfluga.
Davið Oddsson hefur loks breytt um
hárlagningu. Þorsteinn Pálsson er
dálítið tvístigandi sem fyrr og safnar
ýmist skeggi eða rakar sig. Aðrir '
þingmennmunu sjálfsagtlaga sig til
og strekkja á réttum stöðum. Það
veröur spennandi að sjá hvort þessi
npplyfting nær til Austfiarðagoðans
Egils Jónssonar. Það verður þó ekki
að teljast líklegt þar sem hann birtist
enn sem fyrr, rauöþrútinn og stoitur,
ó síðum Morgunbiaðsins og skrifar
um mál málanna, jarðræktarlög og
rikisframlög til j aröbóta.
Lánveiting
út í loftið
Deiia Arnar-
fjugsmannaog
OlafsRagnars
Grímssonarer
núóðumað
komastíhop
jiKirrasumar-
málasemerf-
iöasteraðíá
nokkurnbotní.
Þaö er komið í hóp dellumála á borö
viö Mógilsármálið og fornleifagröft-
inn á Ströndum. Eittþað furðuleg-
asta í Arnarflugsmálinu er að Ólafur
Ragnar segist ekki geta boðið Alþingi
upp á frumvarp um niðurfeliingu
skulda Arnarflugs þar sem fors vars-
menn félagsins haíl ekki skiiað inn
neinum gögnum um hvernig þeir
ætla að reisa félagið viö. Það sé því
ekki hægt að ætlast til að Alþingi
samþyktó að verja 150 milljónum af
skattfé landsmanna nánast út I loftiö.
Almenningur stólur þetta viðhorf
Ólafs Ragnars að sjálfsögðn. En það
sem er erfiðara að skilja er að ríkis-
stjómin, með Ólaf Ragnar innan-
borðs, samþykkti þessa 150 mOIjóna
króna niðurfellingu ti! Alþingis á sín-
um tíma. Rikisstjórnin virðist sam-
kvæmt þessu ektó gera miklar kröfur
varðandi upplýsingar ura raál sem
hun afgreiðirog skiptirþáenguhvort
þau fela í sér hundruð milljóna króna
framlag af skattpeningum.
Umsjón: GunnarSmárí Egílsson