Dagblaðið Vísir - DV - 23.07.1990, Side 13
MÁNUDAGUR 23; JÚLÍ 1990.
13
DV
Hvað verður um
Tryggyi Ólafsson skrifar:
Við íslendingar eigum fárra kosta
völ þegar hérlendir stjómmálamenn
eru komnir á þá skoðun að með ein-
hverju móti verðum við að semja við
Evrópubandalagið annaðhvort með
fullri aðild eða einhverri aukaaðild
með sérsamningum. - Allir vita þó
að þessi aukaaðild er ekki tU um-
ræðu og verður ekki. Annaðhvort
verðum við að sætta okkur við sam-
eiginlegar reglur þessa þjóöabanda-
lags eða vera utan þess að fullu.
Það er eins og þessar staðreyndir
séu ekki að fullu ljósar íslenskum
stjórnmálamönnum og er það eitt og
sér afar hættulegt einmitt í byrjun
þeirra viðræðna sem eiga að fara
fram því þannig er verið að eyða tím-
anum tU einskis og koma í veg fyrir
aðrar heppUegri lausnir.
En þegar neyðin er stærst er hjálp-
in næst. Því það má til sanns vegar
færa að mikU yrði neyð okkar íslend-
inga ef svo færi að við yröum að vera
einir á báti án einhvers konar banda-
lags þegar EB verður fullmótað. -
Nú eru nefnilega verulegir mein-
bugir á því að þetta viðamikla þjóða-
bandalag verði að veruleika á tilsett-
um tíma.
Það er komið í ljós að tvær öflug-
ustu þjóðirnar innan bandalagsins,
Bretar og Þjóöverjar, eru að fjarlægj-
ast hvor aðra og það svo hratt að
ekki mun Uða á löngu áður en upp
úr sýður. Bretar geta t.d. augsýrúlega
alls ekki þolað sameiginlegt mynt-
bandalag. Þeir geta heldur ekki þolað
Þjóðverjum að vera eins konar for-
svarsþjóð á meginlandinu en það
myndu þeir óhjákvæmilega verða
þegar fram líða stundir.
Þjóðverjar munu heldur ekki slaka
á kröfum og settum reglum EB í
neinu tUUti tU þess að koma tU móts
við Breta og jafnvel ekki nokkra aöra
þjóð innan bandalagsins. Þetta eru
atriði sem eru fyrst núna að koma
upp á yfirborðið og ummæU og af-
sögn breska viðskiptaráðherrans
nýlega eru staðreyndir sem engan
veginn eru gleymdar og grafnar. Það
á viö um báðar þessar þjóðir, fyrrum
hatramma andstæðinga í tveimur
mannskæðum styrjöldum.
Hvernig við íslendingar ætlum að
ganga til samvinnu við bandalag
Evrópuríkja við þær aðstæður sem
eru að skapast, slá striki yfir það sem
liðið er og segja sem svo; það eru
komnir nýir tímar og okkur er ekk-
„Að hin algengu og þörfu hjálpartæki, gleraugu, skuli kosta 38 þúsund krón
ur er hróplegt óréttlæti!"
Rándýr gleraugu
Ragnheiður Sveinsdóttir hringdi:
Ég var að kaupa gleraugu einu
sinni sem oftar á ævinni. Ekki er það
í frásögur færandi nema vegna þess
að gleraugun kostuðu slíkt morð fjár
að mér blöskraði og því tek ég málið
fyrir á þessum vettvangi.»
Verðið á gleraugunum var kr.
38.000, hvorki meira né minna! Er ég
fór að kanna málið kom í ljós að
álagning á þessum þörfu og algengu
hjálpartækjum er frjáls. Það fmnst
mér þó einkennileg ráðstöfun vegna
hinna mörgu sem þurfa að nota gler-
augu, sumir frá vöggu til grafar ef
svp má segja.
Ég hefi einnig frétt að þetta mál
hafi komið til umræðu og þá að gler-
augu yrðu háð verðlagseftirliti en
fallið hafi veriö frá því. Ekki er held-
ur sjúkrasamlagi til að dreifa eða
þátttöku almannatrygginga, svo
sjálfsagt sem það væri að láta lyfseð-
il frá augnlækni fylgja sömu reglum
og gilda um aðra lyfseðla sem frá
læknum eru aíhentir. - Þetta eru
meiriháttar mistök að mínu mati.
Nú eru áðurnefnd gleraugu ekkert
sérstök að öðru leyti en því að þau
eru tviskipt sem kallað er en um-
gjörðin afar einfóld og venjuleg að
öllu leyti - engin tískuumgjörð eöa
þess háttar. - Ég vildi mælast til þess
að gleraugnatilvísanir frá augnlækn-
um verði látnar sæta sömu meðferð
og aðrar tilvísanir eða lyfseðlar frá
læknum almennt. - Annað er hróp-
legt óréttlæti.
Köttur í óskilum
María hringdi:
Ég hringi vegna kattar sem
fannst í reiðileysi á Skeggjagötu
fyrir nokkru. Kötturinn er læða,
svört og grá - þó heldur meira af
gráa litnum. Hún er mjög loðin og
gæti því allt eins verið eins konar
síamsköttur.
Kötturinn hefur grænt hálsband,
með einhveijum steinum á. Engin
merking var á bandinu, því hún
hefur dottið af. - Núna er kötturinn
í vörslu fólks sem hefur síma 10853.
Þangað getur eigandi eða umsjón-
armaður kisu hringt og fengið frek-
ari upplýsingar um verustað henn-
ar.
Lesendur
ísland?
ert vandara um en öðrum þjóðum
Evrópu, er með öllu óskiljanlegt. Eða
ætlum við að gangast undir sam-
þykktir, reglur og lög Evrópubanda-
lagsins fyrirfram þar sem lög þess
eru æðri landslögum hvers ríkis?
Þetta eru Bretar farnir að skilja og
hafa vaknað upp viö vondan draum
þar sem þeir sáu fyrir sér yfirburði
og yfirráð voldugra meginlandsríkja
með Þýskaland í fararbroddi og þeim
afleiðingum sem það hefði fyrir ey-
þjóð sem Bretar þó eru. - Hvað yrði
þá um ísland í samanburði við Breta?
Við íslendingar eigum að bíða átekta,
hætta öllum viðræðum og samninga-
umleitunum við Efnahagsbandalag-
ið og nota biðtímann sem skapast til
að leita eftir samningum viö Banda-
ríkjamenn um fríverslun með allar
okkar útflutngingsafurðir og inn-
flutning þaðan. Við erum ekki með
meiri viðskipti en svo að þau rúmast
vel í gagnkvæmum samningi við að-
eins eina þjóð.
KERTAÞRÆÐIR
ípassandi settum.
Leiðari úr stálbiöndu. Sterkur og þofir
eð leggjast I kröppum beygjum. Við-
ném aðeins 1/10 ef viðnðmi kolþráða.
Margföld neistagæði.
SKEIFUNNI 5A, SÍMI: 91 -8 47 88
Leiðbeinendanámskeið
fyrir kennara
Kennarar! Nú er tækifæri til að öðlast réttindi
sem leiðbeinendur í skyndihjálp.
Rauði kross islands heldur leiðbeinendanámskeið fyrir kenn-
ara dagana 22. til 24. ágúst nk. í Kennaraháskóla islands.
Vinsamlega tilkynnið þátttöku fyrir'3: ágúst nk.
Ekkert þátttökugjald.
Upplýsingar og skráning í síma 91-267221
T€C
STEREO BÍLTÆKIM/KASSETTU
Gerd 514
20 wött. Sumartilboð kr. 5.950
Rétt verð 7.200
_________20wött. 12 stöðvaminni. Sjálfvirkur
leitari. (PLL - synthesizer - tuner)
Sumartilboö kr. 11.950
Rétt verð kr. 14.350
RISBS1 50wött. 12 stöðva rninni. Sjálfvirkur
leitari. (PLL - synthesizer - tuner) - Dolby - Spólun í
báðar áttir - Tenging fyrir CD spilara - Fader o.m.fl
Sumartilboð 17.950
Rétt verð 21.900
Gerd 534
ISETNING AF FAGMÖNNUM
VÖNDUÐ VERSLUN
FÁKAFEN 11 — SÍMI 688005
Langholtsvegi lll Glæsibæ Nóatúni 17
S. 687090 S. 82922 S. 84085
—■ ■ 1 ■ »T'M ■■■■!■» Illlllllll !■!■■■ 1111 II 1 I ■ I ■ I ■ ■ 1111
Þú færð myndixnar á 60 mínútum
Opnum
kl. 8.30
iii g ii iiiii i ■ im ■ ■ ■ ■ ■ ■ n im
LJÓSMYNDAÞJÓNUSTAN HFÍ
Laugavegi 178 - Sími 68-58-11 (næsta hús við Sjónvarpið)
[mminmiiinmiiiiiinn
PRISMA