Dagblaðið Vísir - DV - 23.07.1990, Blaðsíða 27
MÁNUDAGUR 23. JÚLÍ 1990.
35
Lífsstíll
Hvað felur ferða-
trygging í sér
Ferðalög liggja í loftinu á þessum
tíma árs. Einn þáttur, sem þeim fylg-
ir, er að tryggja sig í bak og fyrir.
Ekki er öllum kunnugt um hvað felst
í ferðatryggingu og vill það á stund-
um valda misskilningi.
Almenn ferðatrygging
Mögulegt er að kaupa almenna
ferðatryggingu þar sem trygging far-
angurs er innifalin. Einnig er hægt
aö kaupa farangurstryggingu ein-
göngu. Flest tryggingafélög bjóða
upp á svokallaðan „pakka“. í þeirri
tryggingu felast örorku- og dánar-
bætur vegna slysa, sem eru um 2
milijónir, svo og dagpeningar vegna
þeirra. Greiðast dagpeningar vegna
vinnutaps. Sjúkratrygging er einnig
innifalin og að síðustu er trygging á
farangri. Er lágmarkstrygging á far-
angri 130 þúsund krónur en ekkert
hámark. Ef einn einstakur hlutur,
svo sem pels eða skartgripur, fer yflr
um það bO 25% af heiidarvátrygg-
ingu ber að tilkynna það og þarf þá
að fá þann hlut tryggðan alveg sér-
staklega. Reglur um þetta atriði er
nokkuð mismunandi milli trygginga-
félaga og er ástæða til að kynna sér
þetta sérstaklega í hverju tilviki um
sig.
Flest tryggingafélög bjóða hag-
stæðari kjör þeim sem þegar eru í
viðskiptum við fyrirtækið.
Neytendur
Sjálfsábyrgð
Eigin áhætta er alitaf til staðar. Eru
það munir sem heyra undir stuld-
hættu, eins og til dæmis myndavélar,
sjónaukar, skartgripir og fleira. Eðh-
legt er að sjálfsábyrgð sé um 30%.
Er þetta skýrt tekið fram á trygging-
arskjali.
Ef hlut er stolið er grundvallarat-
riði að kæra það hjá viðkomandi yfir-
völdum. Ef það er ekki hægt út af
tungumálaörðugleikum, lélegum að-
stæðum eða af öðrum orsökum er
algert skilyrði að fá staðfestingu á
því hjá fararstjóra eða flugfélagi ef
bætur eiga að fást. Sönnun verður
að vera til staðar.
Ekki eru greiddar bætur ef menn
týna hlut.
Sum tryggingafélög eru í sambandi
við alþjóðleg samtök um slysahjálp.
Má sem dæmi nefna SOS þjónustuna
og hefur þó nokkuð reynt á það. í
öðrum tilvikum er haft beint sam-
band við félagiö, annaðhvort símleið-
is eða með telexi.
Ferðarof er það kallað þegar eitt-
hvað óvænt kemur fyrir sem veldur
því að ijúfa þarf ferð. Eru greiddar
sérstakar bætur í slíkum tilvikum
og er ágætt að aðgæta hvort það er
innifalið í þeirri tryggingu sem keypt
er.
Greiðslukortaviðskipti
Ef menn eru handhafar greiðslu-
korta, frá Visa eða Eurocard, fá þeir
hinir sömu sérstaka tryggingu ef
helmingur fargjalds er greiddur með
korti. Þeir sem eru með guUkort eru
þó undanþegnir þessu ákvæði og er
þeim ekki skylt að greiða fargjaldið
með korti sínu. Með guilkortinu fæst
einnig betri trygging því kaupa þarf
viðauka við venjulega tryggingu ef
menn eru með aimennt kort.
Ferðarofstrygging er einrng inni-
Flestir kaupa sér ferðatryggingu áður en lagt er af stað. Færri vita þó hvað
felst í þeirri tryggingu fyrr en á reynir.
fahn ef þau verða á fyrri hluta ferðar
og ná bæturnar allt að 1000 dollurum,
sem samsvarar tæpum 60 þúsund
krónum.
Verðhugmyndir
Hér eru dæmi um nokkra trygg-
ingamöguleika miðað við þriggja
vikna ferð. Kostnaður er nokkuð
misjafn og er hann einnig breytilegur
eftir því hvert ferðinni er heitið.
Til Evrópu mundi kostnaður vera
í kringum 2.500 krónur og er hann
ýmist örhtið lægri eða hærri eftir því
við hvaða tryggingafélag er skipt.
Gjaldið fer einnig eftir því fyrir
hversu háa upphæð farangurinn er
tryggður. í lengri ferðir, svo sem til
Bandaríkjanna eða Áusturlanda
fjær, eykst kostnaður nokkuð og er.
meðalverð í kringum 3.500 krónur.'
Sérstakt verð fyrir íjöskyldu fæst
einnig í mörgum tilvikum og eins ef
menn eru þegar með önnur viðskipti
við fyrirtækið.
-tlt
Góð kaup eru oft gerð á útsölum og þegar beðið er í biðröðinni er gott
aö hafa í huga að „þolinmæðin þrautir vinnur allar“.
DV-mynd JAK
Útsölur úti um
allan bæ
Útsölur eru nú í fullum gangi. Eru
í langflestum tilfehum nýjar vörur á
boðstólum og er afsláttur sá sem gef-
inn er allt að 70-80 prósent. Algeng-
ara er þó að hann sé á bihnu 20-50
prósent.
Langarbiðraðir
í verslunum í Kringlunni mynduð-
ust miklar biðraðir þegar útsölur
hófust á miðvikudag. Voru dæmi
þess að beðið var við dyr þegar opnað
var og var stundum ansi löng biðin
við afgreiðslukassann. Það sama er
að segja um verslanir við Laugaveg-
inn og hafa viðskiptin aukist mjög
mikið.
Mikhvægt er að verð sé sýnt á verð-
miðum. Á þeim á að sjást hvaö varan
kostaði fyrir verðlækkun og eins á
hvaða verði hún er á eftir.
Skilað og skipt
Mismunandi reglur ghda um
möguleika á að skila eða skipta vör-
unni sem keypt er. í Hagkaupi er
hægt að skila og skipta útsöluvöru
ef kassakvittun er geymd. í Kaupstað
í Mjódd er hins vegar hægt að skipta
á númeri eða í ht en ekki er hægt
að skha. Ákveðna reglu er ekki held-
ur hægt að finna hjá tískuvöruversl-
ununum og er ekki úr vegi að fá
upplýsingar um það þegar verslað
er. Að sjálfsögðu er ávaht hægt aö
skila vöru ef hún er gölluð.
Hvað er í boði?
Fatnaður í öhum stærðum og gerð-
um er á boðstólum. Virðist vera
nokkuð meiri sala í barna- og kven-
fatnaði þó að aðrar vörur séu einnig
eftirsóttar. Skór eru einnig vinsælir
og rjúka út eins og heitar lummur.
í stórmörkuðunum er þó ýmislegt
annað th á afsláttarverði og má þar
meðal annars nefna leikföng, plötur
og garðhúsgögn.
-tlt
iimiimmmmmmmmm ^ 2500 FðX
/ | W **Myndsenditæki = Fax **
-Hsm n:n ? í j fax/sími/ljósritísamatækinu
■ ‘ ™ = innbyggður Fax/síma-skiptir =
Verð kr. 51.004,- án/vsk
63,500,- með/vsk
PÖNTUNARÞJÓNUSTA
MARKAÐSÞJÓNUSTAN, Skipholti 19,3. hæð, sími 26911
Utsölustaðir:
Lyfjaberg, Hraunbergi 4.
Háaleitisapótek, Háaleitisbraut 68.
Snyrtivörubúðin, Laugavegi 76.
Snyrtivöruverslunin Thorella,
Laugavegsapóteki, Laugavegi 16.
Snyrtivöruverslunin Stelia, Bankastræti 3.
Vesturbæjarapótek, Melhaga 20-22.
Garðsapótek, Sogavegi 108.
Árbæjarapótek, Hraunbæ 102b.
Apótek Garðabæjar, Hrísmóum 4, Garðabæ.
Apótek Mosfells, Þverholti 3, Mosfellsbæ.
Akureyrarapótek, Hafnarstr. 104, Akureyri.
Apótekið Siglufirði, Norðurgötu 4, Sigluf.
Dalvikurapótek, Goðabraut 4, Dalvik.
Essoskálinn (snyrtivörudeild), Flateyri.
Nesapótek, Eiðistorgi 17, Seltjarnarnesi.
Snyrtivöruversl. Sandra, Reykjavíkurvegi 50.
Lyfjaforðinn, Grundarfirði.
Stykkishólmsapótek.
Borgarnesapótek.
Apótek Úlafsvikur.
Apótek Akraness.
Borgarapótek, Álftamýri 1-5.
Snyrtivöruversl. Spes. Kleifarseii 18.
Apótek Hafnarfjarðar, Strandgötu 34.
Byggið upp heilbrigt ogfallegt hár
HEILDIN sf. sími 656050
Fœst abeins íapótekum ogsnyrtiv'óruverslunum
musde
í