Dagblaðið Vísir - DV - 23.07.1990, Blaðsíða 28
36
MÁNUDAGUR 23. JÚLÍ 1990.
Meiming
Fréttir
Nýlistasafnið
endurreist
Fyrir nokkrum misserum, þegar Nýlistasafninu viö
Vatnsstíg var lokaö og nýlistínni pakkað niður eftir
tíu ára starfsemi, myndaðist tómarúm í íslensku
myndiistarlífi. Þótt safnið hafi kannski ekki alltaf
starfað í samræmi við yfirlýst markmið og stundum
trassað að uppfylla ýmsar þær kröfur sem yfirleitt eru
gerðar til safnastofnana, hafði það alltént á boðstólum
athafnarými sérstaklega sniðið fyrir fiöllistír og til-
raunastarfsemi ungu kynslóðarinnar.
Við lokun safnsins hrökklaðist sú starfsemi að mestu
leyti út í kuldann og unga kynslóðin út úr landinu eða
upp á hanabjálka. Skiljanlega hefur nokkurs vonleys-
is gætt meðal þeirra fulltrúa hennar sem undirritaður
hefur rætt við, og hefur þess einnig gætt í myndlist
þeirra. Hins vegar lifðu margir í voninni um endur-
reisn Nýlistasafnsins, og á tímabili var mikið rætt um
kaup á gamalli vélsmiöju í vesturbænum undir safniö.
Ríki og borg til bjargar
Óneitanlega er það svolítil kaldhæðni að stofnun
íslandsbanka skuli beinlínis hafa orðið til þess að vekja
Nýlistasafnið aftur til lífsins, og það í sínu gamla hús-
næði við Vatnsstíg. Þegar Alþýðubankinn, eigandi
húsnæðisins og skilningsríkur leigusali safnsins um
árabil, gerðist aðili að samstarfi bankanna, varð ljóst
að ekki yrði þörf fyrir gömlu byggingarnar við Vatns-
stíg, sem ákveðið haföi verið aö nota undir geymslur.
Gengu fulltrúar Nýlistasafnsins þá á lagið og báðu
ríki og borg að festa kaup á þessum byggingum safn-
inu til handa. Sjálfir hétu þeir að leggja fram vinnu
sína við að gera þær upp. Nú hefur það gerst sem
ýmsir töldu útilokað, ríki og borg hafa sameinast um
kaup bygginganna og afhent þær Nýhstasafninu til
afnota og listamennimir hafa sameinað þær og breytt
í 200 fm listamiðstöð með fjórum mismunandi stórum
sýningarsölum, geymslu fyrir listaverkaeign safnsins,
skrifstofuaðstöðu og bókasafnsrými.
Bjart og rúmgott
Áður en lengra er haldið er við hæfi að óska aðstand-
endum til hamingju með þennan áfanga, sem á örugg-
lega eftir að hleypa nýju lífi í íslenska myndhstarstarf-
semi. Listaverkageymslan var áður á jarðhæð, en hef-
ur nú verið flutt á efri hæð. Við það stækkar efri salur
jarðhæðar - aðkomusalurinn - til muna, en neðri sal-
ur hennar er óbreyttur. Þetta fyrirkomulag kemur
sýningarstarfseminni til góða, en kann að torvelda
flutning verka til og frá geymslu.
Það sem áður var efri hæð hefur minnkað og er orð-
in nokkurs konar millihæð, því frá henni er nú gengt
bæði inn í skrifstofu/bókasafn, þar sem áður var tré-
smiðjan hans Bensa, og alla leið upp í gamla Gallerí
SÚM. Galleríið hefur verið stækkað og er nú fall-
egasti salur hússins, bjartur og rúmgóður, með útsýni
yfir byggðina í kring. Skipt hefur verið um glugga í
byggingunni allri, og innréttingar málaðar í hólf og
gólf.
Óteljandi möguleikar
Við þessar breytingar á Nýlistasafninu hafa nú skap-
ast nær óteljandi möguleikar í sýningarhaldi. Hægt
er að halda meiri háttar yfirlitssýnignar á verkum
Ur Súm-sal Nýlistasafnsins.
Myndlist
Aðalsteinn Ingólfsson
einstakra listamanna í safninu, eöa yfirgripsmiklar
hópsýningar, fjórar smærri sýningar í einu, eða þá að
leggja alla neðri hæðina undir tónlistar- eða leiklistar-
uppákomur, án þess að trufla myndlistarsýningar á
efri hæðum safnsins.
Nýlistasafnið hefur hafið starfsemi sína með þremur
sýningum. Á jarðhæð eru verk eftir franskan konsept-
listamann, Bauduin að nafni. Hugmynd hans er að
tengja saman nokkur eylönd, þar á meðal ísland, með
því að færa grjót á milh þeirra, með tilheyrandi skrá-
setningu á tilfærslunni og staðháttum. Virðist þessi
viðleitni hans vera angi af því rómantíska landslags-
konsepti, sem var í tísku fyrir nokkrum árum, en er
nú sennilega farið að láta á sjá. Allt um það er út-
færsla listamannsins bæði þokka- og smekkleg.
Vald og spilling
Á miðhæö er niðursetningur (installasjón) eftir Ní-
els Hafstein er nefnist „Vald", og er ljóðræn hugleið-
ing um einn fylgifisk valdsins, spillinguna. Pappírskór-
óna stendur upp úr skólpröri sem riðar til fails, spila-
stokkur skartar eintómum gosum, en hnífsblað stend-
ur út úr vegg og heldur við leiktjald. Gegnt kórónunni
er mynd af vængjuðu ljóni, merki Feneyja.
í SUM-salnum hefur verið komið fyrir nokkrum eldri
verkum í eigu Nýlistasafnsins, eftir Ástu Ólafsdóttur,
ívar Valgarðsson, Rúnu Á. Þorkelsdóttur og Þór Vig-
fússon. Er vel til fundiö að kynna listaverkaeign safns-
ins á þennan hátt og verður vonandi framhald á.
Þessum fyrstu sýningum hins endurreista Nýlista-
safns lýkur þann 29. júlí næstkomandi.
Andlát
Kristinn J. Magnússon, Álfaskeiði 14,
Hafnarfirði, lést í Landspítalanum
20. júlí.
Friðrikka Guðmundsdóttir, Þor-
finnsgötu 2, lést í Landspítalanum
að morgni 20. júli.
Jarðarfarir
Elín Tómasdóttir, sem andaðist 15.
júlí, verður jarðsungin frá Bústaöa-
kirkjumánudaginn23.júlíkl. 13.30.
Halldór Vigfússon rafvirkjameistari,
Smiðjuvegi 19, Kópavogi, verður
jarðsunginn frá Bústaðakirkju
þriðjudaginn 24. júlí kl. 13.30.
Þorsteinn Gunnarsson frá Fornu-
söndum, Tunguseli 1, Reykjavík, sem
lést í Landspítalanum 16. júlí, verður
jarðsunginn frá ÁskirKju 25. júlí kl.
15.00.
Karl Ólafsson frá Vestmannaeyjum,
Hraunbæ 102a, sem lést 13. júlí, verð-
ur jarðsunginn frá Fossvogskirkju
mánudaginn 23. júlí kl. 13.30.
Lára Ingibjörg Magnúsdóttir frá
ísafirði, sem lést í Vífilsstaðaspítala
15. júlí, verður jarðsungin frá Há-
teigskirkju mánudaginn 23. júlí kl.
15.
THkynmngar
Sumarferð safnaðarfélags og
kirkjukórs Áskirkju
verður farin sunnudaginn 29. júli nk.
Lagt verður af stað frá Áskirkju kl. 8.30,
ekið að Skarði í Landsveit og messað í
kirkjunni þar. Síðan verður farið í Þjórs-
árdal. Kvöldverður verður snæddur að
Básum í Ölfusi. Vinsamlegast tilkynnið
þátttöku fyrir 24. júlí til Þuríðar í s.
681742, Bryndísar, s. 31116, eða Hafþórs,
s. 33925 sem gefa allar upplýsingar.
Happdrætti
Happdrætti heyrnarlausra
Dregið var í vorhappdrætti heyrnar-
lausra þann 16. júlí sl. og eru vinnings-
númer eftirfarandi: 1. 19951, 2. 10456, 3.
22988, 4. 18162, 5. 6109, 6. 8752, 7. 4718, 8.
14735, 9. 18364, 10. 17925, 11. 15853, 12.
18880, 13. 22347, 14. 21671, 15. 24515, 16.
11969, 17. 1426, 18. 22898, 19. 1416.
Vinninga má vitja á skrifstofu Félags
heymarlausra, Klapparstíg 28, alla virka
daga, sími 91-13560. Félagið þakkar veitt-
an stuðning.
Tónleikar
Þriðjudagstónleikar í
Listasafni Sigurjóns
Á þriðjudagstónleikum 24. júlí kl. 20.30 í
Siglujgörður:
Sigurvegarinn úr
kvennariðli
Bynjar M. Valdimaisson, DV-ökuleikni ’90
Stærsti bíllinn í keppninni var 12
tonna vörubíll. Ökumanni bílsins
gekk vel að aka brautina en vegna
stærðar var hann með lélegan tíma.
Sigurvegari kvöldsins var án efa
Birgitta Pálsdóttir sem hafði veriö
með 150 refsistig og best i öllum
flokkum og hafði einnig þriðja besta
tímann í sumar. Önnur í kvennariðli
var Margrét Birgisdóttir með 297
refsistig. í karlariðli vann Örn Arn-
arson með 165 refsistig, annar var
Sigurður Jack með 195 refsistig og
þriðji Björn Sverrisson með 281 refsi-
stig. í riðli byrjenda sigraði Ástþór
Sigurðsson með 201 refsistig, annar
var Sveinn Hjartarson með 261 refsi-
stig og þriðji var Óli Brynjar Sverris-
son með 320 refsistig.
Það var ekki eingöngu í ökuleikni
sem Siglfirðingar stóðu sig vel heldur
einnig í hjólreiðakeppninni því þar
jafnaði Renzo Gustav Passaro í eldri
flokki besta tímann á reiðhjólunum
með því að fara brautina á 42 sekúnd-
um, annar var Birkir Þór Sigurðsson
með 54 refsistig og þriðji Ingvar Þór
Kristjánsson með 55 refsistig. í flokki
9-11 ára var sigraði Ingólfur Magn-
ússon meö 64 refsistig, annar var
Páll R. Karlsson með 78 refsistig og
þriðji var Gústaf Guðbrandsson með
89 refsistig.
Verðlaunin gaf Torgið h/f, Leifs-
bakari s/f og VÍS.
Birgitta Pálsdóttir náði bestum árangri í ökuleikninni á Síglufirði.
Listasafni Sigurjóns Olafssonar flytja
þau Freyr Sigurjónsson og Margarita
Reizabal tónlist fyrir flautu og píanó eftir
Carl Reinecke, Georges Enescu og Fran-
cis Poulenc.
Akureyri:
Ökukennarinn sigr
aði í kvennariðli
Brynjar M. Valdimars., DV-okuleikm '90:
Ökuleiknin fór fram við hús Út-
gerðarfélags Akureyrar þar sem
viö fengum aðstöðu. í kvennariðli
tók Anna Kristín Hansdóttir, sem
er ökukennari, þátt í ökuleikninni.
Hún stóð sig mjög vel, svaraði öll-
um spumingum rétt og hafði sam-
tals 213 refsistig. Kemur hún því
til með að taka þátt í úrslitakeppni
í haust ásamt öðrum sigurvegurum
í karla- og kvennariðlum og tíu
bestu í byrjendariðli. Önnur var
Steinunn Ragnarsdóttir með 254
refsistig og þriðja Guðlaug Krist-
insdóttir með 256 refsistig.
Sigurvegari í karlariðh var Finn-
ur Víkingsson með 169 refsistig,
annar varð Guðmundur Guð-
mundsson með 186 refsistig og
þriðji Reynir Þórhallsson með 203
refsistig. í riðli ungra ökumanna
varð Axel Vatnsdai efstur með 253
refsistig.
í hjólreiðakeppni, sem fór fram á
meðan keppendur í ökuieikni svör-
uðu spumingum, sigraði í riðli 9-11
ára Marinó Nordqvist með 67 refsi-
stig. Annar varð Haraldur Vil-
hjálmsson með 74 refsistig og þriðja
Helena Guðmundsdóttir með 114
refsistig.
Fjöimiðlar
Hringferð á sunnudagskvöldi
Þótt helgin hafi haft upp á ýmis-
iegt að bjóða bæöi í útvarpi og sjón-
varpi verður að segjast eins og er
að rýnir eyddi ekki miklu af athygh
sinni í þessa tvo miðla. Þegar gengið
var tii náða á sunnudagskvöldið
hafði verið horft og hlustað á slitur
úr dagskrá beggja en engan dag-
skrárhð frá upphafi til enda, með
einni undantekningu þó. Komum
aðþvísíðar
Risatónleikar um vegginn á laug-
ardagskvöld fóra mestmegnisfyrir
ofan garð og neðan. Megauppákom-
ur af þessu tagi sjást orðiö svo oft á
skjánum að maður kippir sér ekki
upp við slikt lengur.
Þáttur um mismsunandi sálar-
kreppta Bandaríkjamenn áfertugs-
aldri hefur oft fengið mann tii aö
setj ast smástund og horfa, í þeirri
von að maður fyndi nú kannski eítt-
hvaö af sjálfum sér þama í þessu
veseni. Eftir þokkalega bytjun með
ágætis sprettum inni á milii hafa
þessir þættir hins vegar dalað veru-
lega og era varla annaö en eitthvert
meiningarlaust skvaldur sem ekki
kemur manni hiö minnsta viö.
Myndin sem byggði á sögu Dick-
ens var ágæt Enn elnu slnni var
maður minntur rækilega á hvað
græðgin getur gert mannfólkinu,
hvernig venjulegt dagfarsprútt fólk
(á yfirborðinu aUa vega) fer að stela,
Ijúga, pretta og myrða í þeim til-
gangi einum aö komast yfir ein-
hverjar aumar spesíur.
Ég fór hringinn í gærkvöldi. Þótt-
ist nokkur góður að hoppa hvergi
af þar sem ekki var stoppað svo
mikið æm einu sinni tÖ að tey gja
úr sér og gleypa eina með öiiu. Ég
var háifieröalúinn eftir hálfan ann-
antímaí sprengá hringveginum,
eins og sjálfsagt fleiri sem ferðuöust
með. Hugmynd Friðriks Þórs hafa
sjálfsagt margir fengjð í kohinn en
það er ekki nema Friðrik Þór sem
framkvæmir hugmyndir sem þess-
ar, samanberBrennu-Njálssögu -
sællar minningar.
Haukur Lárus Hauksson