Dagblaðið Vísir - DV - 27.07.1990, Síða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 27.07.1990, Síða 28
36 FÖSTUDAGUR 27. JÚLl 1990. LífsstíU DV kannar grænmetismarkaðinn: íslenskt grænmeti að koma á markaðinn Islenskt grænmeti er aö koma í verslanir núna en verð er enn sem komið er mjög hátt miðað við það erlenda. Væntanlega lækkar verðið á næst- unni þegar framboð eykst. I- n p GÚRKUR § c o 0Q 1 ■ 248 141 /# Y\ VÍNBER §- f II 489 335 "É~ pi p PAPRIKA <0 3 ■■ c ‘O I i 578 332 A te & Pl p KARTÖFLUR <0 3 C •o 0Q tB 8 ™0 já é\ 3h n TÓMATAR «0 3 C •o 1 ■ 245 168 9 1- 9 SVEPPII 3 mm ‘o 1 i 559 30( Verð á grænmeti er á svipuðum nótum og það var í síðustu viku. Helst hefur sú breyting orðið á að íslenska grænmetið er að koma á markað. Er það mun dýrara en það erlenda því enn er framboð nokkuð takmarkað. Um leið og rætist úr því mun verð væntanlega lækka eins og vani hefur verið hingað til. Hefur til að mynda þegar orðið verðlækkun á íslensku gulrófunum sem komu í verslanir fyrir um það bii tveimur vikum. Var kílóverðið í upphafi um 300 krónur en nú fást rófurnar á verðbilinu 125 til 159 krónur á þeim stöðum sem litið var á. Sveifla er nánast engin þar sem tómatamir eru annars vegar. Munar einungis 6 krónum á meðalverði frá í síðustu viku og er það nú rúmar 206 krónur. Mismunur milli hæsta og lægsta verös er 46% og var hæsta verð að finna hjá Blómavali, 245 krónur, en það lægsta hjá verslun- inni Bónus, 168 krónur. Fjarðarkaup seldi tómatakílóið á 194 krónur, Hag- kaup á 197 krónur og Mikhgarður á 228 krónur. Gúrkur voru að þessu sinni á 141 krónu í Bónus þar sem verð var lægst. Fjarðarkaup seldi kílóið á 216 krónur, Hagkaup á 219 krónur og Blómaval á 245 krónur. Hæst var verðið hjá Miklagarði en þar kostaði kílóið af gúrkum 248 krónur. Meðalverð sveppa að þessu sinni var 421 króna. í síðustu viku var það 558 krónur. Lægsta verð á sveppum var 306 krónur hjá Bónus. Fjarðar- kaup var með sína á 316 krónur, Blómaval á 435 krónur en MikUgarð- ur var með 488 króna kílóverð. Hag- kaup seldi sveppina á hæsta verðinu, 559 krónur. Var munur á hæsta og lægsta verði rúmlega 80%. í síðustu viku misritaðist verð sveppa og var uppgefið verð á þeim rangt. Sagt var að kílóverðið væri 245 krónur en það var verð á hálfu kílói. Hið rétta er aö heilt kíló seldist á 490 krónur. Leiðréttist það hér með og er beðist velvirðingar á þessum mis- tökum. Verð vínbeija var einnig svipað því sem það var í síðustu viku. Hefur meðalverð þeirra breyst frá því að vera 357 krónur í það að vera 394 Á tilboðstorginu í versluninni Fjaðarkaup kenndi ýmissa grasa. Meðal annars var þar að finna hrökkbrauð frá Weber og kostaði pakkinn 86 krónur. Einnig voru aðr- ar tegundir til frá sama framleiðanda krónur. Lægsta verð var að finna hjá Hagkaupi en þar fékkst kílóið á 335 krónur. Næsta verð fyrir ofan var 353 krónur, hjá Fjarðarkaupi, 399 kostaði það hjá Miklagarði og hæsta verð var að finna hjá Blómavali en þar kostaði kílóið 489 krónur. Munur á hæsta og lægsta veröi var 46%. Verslunin Bónus seldi ekki vínber. Ekki var mikil verðhreyting á með- alverði grænu paprikunnar frá síð- ustu viku. Var það nú tæpar 450 krónur. Munur milli hæsta og lægsta verðs var 74%. Var lægsta verðið hjá Bónus en þar kostaði kílóið 332 krón- ur. Hæst var verðið hjá Blómavali en þar var kílóverö 578 krónur. Fjarðarkaup seldi paprikukílóið á 392 krónur, Hagkaup á 449 krónur og Mikligarður á 498 krónur. Fyrstu íslensku kartöflurnar voru að koma í verslanir og fengust þær í versluninni Bónus. Voru þær sunn- lenskar og kostuðu 149 krónur kílóið. Erlendar kartöflur voru á boðstól- um í öllum verslununum og var á 109 krónur. Sulta og marmelaði ofan á hrökkbrauðið var einnig á til- boðsverði og kostaöi krukkan af sul- tunni 119 krónur. Te með vörumerk- inu Pickwick var hægt aö kaupa á 134 krónur pakkann. meðalverð á þeim 106 krónur. Munur á hæsta og lægsta verði var 58% en ráðlegt er að skoða gæði kartafln- anna sem í boði eru. Gæði geta verið skýring á verðmun á kartöflum svo og öðru grænmeti. Bónus seldi sínar kartöflur á 86 krónur og 50 aura og var það lægsta verðið. Einnig var boöiö upp á 5 kílóa poka og var verð þá tæpar 60 krónur. Hagkaup og Mikligarður voru með sínar kartöfl- ur á sama verði sem fyrr og kostuðu þær 99 krónur og 50 aura. Fjarðar- kaup seldi kílóið á rúmar 104 krónur og Blómaval var með hæsta verðið, 138 krónur og 50 aura. Gæta ber að því að verslanirnar eru nokkuð ólíkar. Verslunin Bónus hefur til að mynda skemmri af- greiðslutíma og er einungis hægt að borga með reiðufé. Þjónusta er einn- ig af öðrum toga en í öðrum stór- mörkuðum sem kannaðir eru. Blómaval er, eins og flestum er kunnugt, blómaverslun en ágætlega er staðið þar að grænmetismarkaði. -tlt I Hagkaupi var grillmat af ýmsu tagi aö finna í kæliborðum verslun- arinnar. Má meðal annars nefna pylsur og kryddlegið lambakjöt. Var verð á kryddlegnum lærissneiðum 1049 krónur kílóið og kryddlegnar lambatvírifjur voru á 868 krónur kílóið. Þurrkryddaðar kótelettur fengust einnig á 868 krónur en þurr- kryddaöar mjaðmasneiðar á 698 krónur kílóið. Safa og flögur var einnig að flnna á góðu verði. Verslunin Bónus er með eitt og annað á tilboðsverði. Er ætlun þeirra aö opna nýja verslun og verða sér- stök tilboð þar vegna opnunarinnar. í Miklagarði voru bananar á góðu verði en kílóið kostaði 98 krónur. Mikil verðlækkun hafði orðið á róf- um hjá þeim og var kílóverð 125 krónur. Gos er alltaf á tilboðsverði og fékkst 1 'A lítri af Pepsí á 132 krón- ur. Sami drykkur í tveggja lítra um- búðum kostaði 132 krónur. Pilsner og Pripps í hálfs lítra dósum voru á tilboðsverði og kostaði hvor tegund 69 krónur. Hy top vörumar voru áfram á hagstæðu verði. Tvö kíló af sykri var að fá á 149 krónur. -tlt Gúrkur Hrökkbrauö er eitt af því sem hægt var að fá á tilboðsverði þessa vikuna. Sértilboð og afsláttur: Hrökkbrauð og grillmatur

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.