Dagblaðið Vísir - DV - 27.07.1990, Blaðsíða 32
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt- ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn.
Ritstjórn - Auglýsingar - Ás >kritt - Dreifing; Sími 27022
Frjálst,óháð dagblað
FÖSTUDAGUR 27. JÚLÍ 1990.
Húnavatnssýsla:
Veiðivörður
tók 13 net
Eiríkur H. Helgason, veiöivöröur
Miðfjarðarár, fór við annan mann
og dró í land.13 silunganet sem voru
við sjávarströnd Miðfjarðar. Eiríkur
skoðaði fimmtán net. Að hans mati
voru tvö net lögleg. Hann lét þau
liggja áfram en fór með þau þrettán
sem hann taldi ólögleg til lögreglunn-
ar á Blönduósi.
Eigendur netanna hafa kært Eirík
fyrir stuld á netum.
„Hann hefur heimild, samkvæmt
skipunarbréfi, til að gera þetta,“
sagði Kristján Þorbjörnsson, varð-
stjóri lögreglunnar í Húnvatnssýsl-
um.
í vor tók gildi ný reglugerð um
netaveiðar. Netin verða að vera
merkt og eins má aöeins vera með
einþátta net úr girni. Máhð er í hönd-
um lögreglunnar. í netunum þrettán
var ein bleikja, selkópur og tveir
fuglar.
-sme
Níu refir
skotnir í
Vörðufelli
Níu refir voru skotnir við greni í
Vörðufelli á Skeiðum í síðustu viku.
Það voru tvær tófur, einn refur og
sex yrðlingar. Hafði þá ekki verið
unnið greni í fellinu síðan 1959 en
þar áður var greni unnið þar 1940.
„Það gekk vel aö taka fullorðnu
dýrin en við vorum viku að ná yrð-
Ungunum. Grenið var undir stórum
steini og ógerningur að grafa það út.
Því urðum við að fara einu sinni til
tvisvar á dag í heila viku til að ná
yrðUngunum úti við. Það gekk að
lokum og við erum því lausir við
þennan ófógnuð í biU,“ sagöi Bjarni
Valdimarsson á FjaUi á Skeiðum.
yaldimar, sonur hans, og Sigurður
Ásgeirsson, gamalreynd grenja-
skytta og vinnumaður í Gunnars-
holti, lágu með honum á greninu.
Bjarni sagði að mjög óvanalegt
væri að vinna greni með tveimur
tófum og einum ref eins og tilfeUið
var á dögunum. Hann sagði að gren-
ið hefði uppgötvast fyrir hálfum
mánuði en menn hefðu séð ref á þess-
um slóðum öðru hveiju síðastliðin
tvö ár. Fundust bein í greninu en
ekki vissi Bjarni til að bændur hefðu
orðið fyrir skaða af völdum dýranna.
Þegar tófan var skotin var hún á leið
í grenið með fullvaxna gæs í kjaftin-
um. Annars virðast refirnir hafa sótt
í fýlsvarp í fjallinu og tekið þar egg
og unga.
-hlh
LOKI
Sá gamli var vel yfir pari í
Norðuránni!
Áhættan tekin á
bráðabirgðalögum
- þjóöarsáttin og lif stjómarinnar látin í hendur dómstóla
Eftir samráð ríkisstjórnarinnar
við aðUa vinnumarkaðarins í gær
bendir margt til þess að hún neyð-
ist til að taka áhættuna á að dóms-
stólar hnekki ekki bráðabirgðalög-
um sem taka burt 4,5 prósent
hækkun tU háskólamanna.
Alþýðusambandið heldur fast i
þá kröfu sína að fá 4,5 prósent
hækkun til háskólamanna annað-
hvort afnumda eða bætta strax.
Þaö hafnar þvi að fá hækkunina
bætta í áföngum á samningstíman-
um. Það er mat Alþýðusambands-
ins að ef 4,5 prósent hækkun til
háskólamanna verði látin standa
muni hún hvort sem er fara út í
þjóðfélagiö með launaskriði. Auk
þess benda þelr á að ýmsar stéttir,
þar með taldir þingraenn, hafi laun
sín bundin háskólamönnum í gegn-
um úrskurði kjaradóms.
Það eru margir annmarkár á því
að hleypa 4,5 prósent hækkun út í
allt launakerfið. Atvinnurekendur
telja sig ekki geta staðið undir
henni. Slík almenn launahækkun
myndi leiða til veröbólgugusu í
haust' sem færi langt upp fyrir
rauðu strikin. Samkvæmt samn-
ingunutn á það síðan að leiða til
frekari launahækkana. Grundvöll-
ur þjóðarsáttarinnar væri því fyrir
Bæöi Alþýðusambandið og at-
vinnurekendur hafa þ ví helst ;kpsið
að 4,5 próse'nt launahækkun til
háskólamanna verði afhumin. Rík-
isstjórnin hefur boðað lögfræðinga
á sinn fund til að fá úr því skorið
hvort slík Jagasetning rauni stand-
ast fyrir dómstólum. Þeir hafa ekki
vlljað lofa því.
Ef háskólamenn hafna einhverj-
um tilslökunum í viðræðum sínum
við fjármálaráðherra stendur rík-
isstjómin þvi frammi fyrir vali
milh tveggja kosta. Annars vegar
lagasetningar sem Alþýðusam-
bandið, vinnuveitendur og Fram-
sókn eru fylgjandi. Þvi fyigir að
viss áhætta er tekin á því að dóm-
stólar hnekki þeim lögum og kippi
þar með fótunum undan þjóðar-
sáttinni og ríkisstjórninni. Hins
vegar að reyna að ná samkomulagi
um að öörum launþegum verði
bætt þessi 4,5 prósent launahækk-
: un háskólamanna og þá með þeim
hætti að það raski verðlagi sem
minnst. Alþýðusambandið er hins
vegar tregt til tilslakana á 4,5 pró-
senta launahækkun strax.
• Jack Nicklaus með fjórða lax sinn í Norðurá rétt áður en hann hætti veiöum í gærmorgun og veiðistaðurinn
er Breiðan i Stekknum. DV-mynd FFSS
Veðrið á morgun:
Bjartast vestan-
lands og í inn-
sveitum norðan-
lands
Austanátt, strekkingur allra
syðst á landinu en hægari annars
staðar. Þokusúld eða rigning
verður suðaustanlands og nokk-
uð vestur með suðurströndinni
en í öðrum landshlutum verður
þurrt en mistur í lofti. Einna
bjartast verður vestanlands og í
innsveitum norðanlands en við
norðurströndina og við Húnaflóa
verður þokuloft. Hlýtt verður
áfram.
Davíð Oddsson:
Uppsögn hefur
enga þýðingu
„Uppsögn samninganna hefur ekki
nokkra þýðingu sem slík. Okkar
samningar eru á marga lund öðru-
vísi en samningar ríkisins. Við erum
ekki aðilar að þeirri endurskoðunar-
vinnu sem er meginefni samningsins
við ríkið og erum ekki með þau refsi-
ákvæði inni sem deilt er um. Menn
eru búnir að gleyma því að þessi 4,5
prósent hækkun er sérstök refsi-
hækkun sem ríkið varð að borga þar
sem vinna við samanburð var ekki
lengra komin 1. júlí en hún reyndist
vera. í okkar samningi felst í raun
ekki annað en það að við munum
tryggja að okkar háskólamenn sitji
ekki viö lakara borð en þeir sem
vinna hjá ríkinu,“ sagði Davíð Odds-
son borgarstjóri þegar hann var innt-
ur eftir viðbrögðum borgaryfirvalda
gagnvart samningi háskólamennt-
aðra borgarstarfsmanna.
„Ég skildi ekki þessa uppsögn
samninganna hjá ríkinu. Það er göm-
ul regla hér á Islandi að samningur
gildi þar til annar hefur verið gerð-
ur. Ef menn hefðu sagt upp samn-
ingnum og sett lög um leið hefði ver-
ið eitthvert vit í þessu. Ríkisstjórnin
hefur hins vegar klúðraö þessu máli
þó hún hafi haft fjórtán mánuði til
að undirbúa sig. Það hefur nefnilega
ekkert gerst í þessum samningi sem
ekki mátti vita þegar Ólafur Ragnar
skrifaðiundirhann.“ -hlh
Norðurá:
Jack Nicklaus
veiddi fjórða
laxinn á
síðustu stundu
„Golfleikarinn var hress með veiði-
túrinn og fiskamir urðu fjórir hjá
honum, hann setti í einn skömmu
áður en hann hætti í morgun,“ sagði
tíðindamaður okkar við Norðurá í
Borgarfirði í gærkveldi. „Síðasti lax-
inn hans var 5 punda fiskur en
skömmu áöur slapp einn hjá honum
á sama stað. Hann veiddi alla laxana
á flugu, enda reynir hann ekki ann-
að.
Laxana fékk Jack í Landamerkja-
fljóti, á Víðinesi, Eyrinni og Breið-
unni í Stekknum, þeir voru 4 til 6
punda. Fjölskyldan veiddi 7 laxa í
það heila. Hann talaði um að koma
aftur til veiða næsta sumar í Norðurá
en þar hefur hann ekki veitt áður.“
Jack Nicklaus veiddi síðast á ís-
landi 1983, í Grímsá, en hann hefur
nokkram sinnum veitt hérlendis.
-G. Bender
labriel
HÖGG-
DEYFAR
Verslió hjá fagmönnum
Gi varahlutii
LH.
Hamarshöfða 1 - s. 67-6744
'
K&ntucky
Fried
Chicken
Faxafeni 2, Reykjarík
Hjallahrauni 15, Hafnaríirði
Kjúklingar sem bragö er aö
Opið alla daga frá 11-22