Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.1990, Page 10
10
Leikfimin
byrjar
4. september
Innritun í símum
45399 og 43323.
Utboð Austurlandsvegur, Jökulsá - Dimmidalur
vt'tín Sm wr Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum í ofan- r greint verk. Lengd kafla 2,1 km, fylling 37.000 rúmmetrar og burðarlag 15.000 rúmmetrar. Verki skal að fullu lokið 1. ágúst 1991. Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkisins á Reyðarfirði og í Reykjavík (aðalgjaldkera) frá og með 5. september nk. Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14.00 þann 17. september 1990.
V Vegamálastjóri J
Útboð ^
'qv/m pr Suðurfjarðavegur, Norðfjarðarv. ~ - Handarhald
Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum í ofan- greint verk. Lengd kafla 4,0 km, fylling 29.000 rúmmetrar og burðarlag 24.000 rúmmetrar. Verki skal lokið 1. júlí 1991. Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkisins á Reyðarfirði og I Reykjavík (aðalgjaldkera) frá og með 5. september nk. Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14.00 þann 17. september 1990.
V Vegamálastjóri ^
CDaus
ALÞJÓÐLEG UNGMENNASKIPTI
Aðalfundur AUS verður haldinn á skrifstofu
samtakanna, Hverfisgötu 50 (4. hæð), þann
8. september nk. kl. 14.00.
Á dagskrá er meðal annars:
• Skýrsla stjórnar.
• Skýrsla endurskoðenda.
• Lagabreytingar.
• Kosningar í stjórn og önnur mál.
Allir velkomnir. Stjórn AUS.
Útboð
Tilboð óskast í smíði og fullnaðarfrágang húss fyrir
fjarskiptastöð að Þverholtum, Álftaneshreppi, Mýra-
sýslu.
Stærð húss er 84,3 fermetrar og skal smíði þess lok-
ið 17. des. nk.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu fasteignadeild-
ar Pósts og síma, Pósthússtræti 5, 3. hæð, gegn
20.000,- kr. skilatryggingu.
Tilboð verða opnuð á skrifstofu umsýsludeildar,
Landssímahúsinu við Austurvöll, þriðjudaginn 18.
sept. nk. kl. 11 árdegis.
Póst- og símamálastofnunin
----------------------------------------4-------
LAUGARDAGUR 1. SEPTEMBER 1990.
Uppáhaldsmatur
Haraldur Gislason á Bylgjunni getur fleira en að leika skemmlileg lög fyrir htustendur. Hann er afbragðs
kokkur og hefur gaman af að búa til sínar eigin uppskriftir. DV-myndJAK
Sjávarréttagómsæti
- að hætti Haralds Gíslasonar útvarpsmanns
„Ég hef mjög gaman af að elda hreinsaður
og geri það alltaf á mínu heimili. 5 eggjarauður
Líklegast byrjaði áhugi á elda- ldlkampavíneðasætthvítvín
mennsku þegar ég var til sjós fyrir ferskurgraslaukur'
mörgum ámm. Þá var humrí,
krabba og fleiri fisktegundum kast-
að í sjóinn. Mig langaöi að smakka
hvernig bragð væri að þessum
sjávardýrum og fór því að flkra
mig áfram við eldamennsku. Það
kom í ljós að þetta var fráþær mat-
ur,“ segir Haraldur Gíslason, út-
varpsmaður á Bylgjunni, en hann
er sagöur frábær kokkur.
Fyrir utan.að matreiöa heima hjá
sér hefur Haraldur tekið aö sér að
sjá um veíslur fyrir vini og kunn-
ingja. „Ég er oft beðinn um að sjá
um kalt borð, t.d. í fermingarveisl-
um, og hef mjög gaman af,“ segir
hann. Ekki hefur Haraldur þó lært
neitt i sambandi við matargerð.
„Ég spila þetta af fingrum fram og
hef mest gaman af að búa til mínar
eigin uppskriftir.“ Fyrir stuttu var
Haraldur kokkur í grillveislu hjá
starfsfólki Bylgjunnar. „Mest gam-
an hef ég af að elda flskrétti enda
eru þeir í mestu uppáhaldi hjá
mér. Þess vegna ætla ég að gefa
lesendum uppskriftir að mjög góð-
um sjávarrétti sem alltaf er vin-
Gratíneraöur reyktur lax
- forréttur fyrir tvo
ca 400 g reyktur lax I sneiðum, bein-
smjór
mulinn pipar
Smyrjið eldfast mót með smjör-
inu og myljið pipar yfir. Leggiö
laxasneiðarnar yfir. Stífþeytið
eggjarauðurnar með víninu yfir
hita þar til hræran er orðin loft-
kennd og hellið yfir laxinn. Stráið
fínt söxuðum graslauknum í sós-
una og myljið pipar yfir. Sett undir
heitt grUl þar tíl sósan hefur fengið
Ijósbrúnan lit. Boríð fram með rist-
uðu brauði og vel kældu hvitvim
eða kampavíni.
Panneruð rauðspretta
/smálúða og humar
í rjómapiparsósu
- hráefni fyrír tvo
4 stórir humarhalar
1 piparostur
1 peli rjómi
4 stórar gulrætur
dvergmais
pipar, hvítlaukssált, kjöt og grill-
krydd
smjör eða Berio ólífuolia
h vítvín (Chateau Duclery)
Fiskurinn er flakaður, roðflettur
og raíabeltin skorin frá. Fiskurinn
skorinn í Iitla bita og kryddaður
meö muldum pipar, hvítlaukssalti
og kjöt og grillkryddi (ekki krydda
mikið). Látið standa við stofuhita í
tvo til þrjá tíma.
Kartöflurnar flysjaðar og soðnar
í léttsöltu vatni. Gulrætumar
hreinsaðar, skornar i strimla og
léttsoðnar. Dvergmaís snyrtur og
soðinn létt meðan steiking fer fram.
Rauðsprettunni/smálúðimni er
velt upp úr hveití og steikt á meöal-
heitri pönnu upp úr snýöri/oliu
(mæli með smjöri). Humarinn er
tekinn úr skelinni, klofinn ogpann-
eraður létt með.
Þegar steikingu er lokið er fiskin-
um og humrínum raðað á tvo diska.
Þá er rjómanum hellt á pönnuna
ásamt fint söxuðum graslauk og
hvítlauk. (Heimatilbúinn hvítíauk-
ur er ræktaður þannig: Þegar rifin
spíra í ísskápnum er þeim skellt í
mold og upp kemur þetta frábæra
krydd.) Loks er piparosturinn
brytjaður og honum bætt saman
við. Hrært í þar til osturinn er
bráðinn. Þynnið sósuna með hvít-
víni. Sósunni er síðan hellt yfir
fiskinn. Kartöflum, dvergmaís og
gulrótum raöað á diskana ásamt
sítrónubátí. Borið fram með heitri
brauökollu eöa snittubrauði. Hvít-
vin drukkiö með. „Hreinn veislu-
matur."
í eftirrétt má bjóða upp á ex-
pressokaffi, koníak og konfekt.
-ELA
sæll hja
Gíslason.
mer, sagði Haraldur
litlarkartóflur
ferskur graslaukur
hvitlaukur (heimaræktaður)