Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.1990, Page 12
12
LAUGARDAGUR 1. SEPTEMBER 1990.
V
Mynd-
bönd
Umsjón.
Sigurður M.
Jónsson
Hilmar Karisson
í
DV-LISTINN
1. (1) Road House
2. (2) Parenthood
3. (6) Worth Winning
4. (5) Honey, I Shrunk the Kids
5. (-) Action Jackson
6. (4) Back to the Future II
7. (-) Blind Fury
8. (-) The Seventh Sign
9. (3) Lock up
10. (8) Casualties of War
Breytingar eru fáar á listanum að þessu sinni. Útkastarinn heldur 1.
sætinu þriðju vikuna í röð og er greinilegt að efnið vekur áhuga margra
íslendinga. Þrjár nýjar myndir fara inn á listann og gætu þær eitthvað
bætt sig þó að þær séu tæplega líklegar til að hrifsa fyrsta sætið til sín.
★★!4
Dómsdagur nálgast
THE SEVENTH SIGN
Útgelandi: Arnarborg
Leikstjóri: Carl Schultz. Handrit: W.W.
Wicket & George Kaplan. Aöalhlutverk:
Demi Moore, Michael Biehn, Peter
Friedman og Jurgen Prochow.
Ðandarísk, 1988. 92 mín. Bönnuð yngri
en 16 ára.
Hér er á ferðinni dómsdagsmynd
sem segir frá því þegar furðulegir
atburðir taka að gerast um allan
heim. Glöggt fólk tekur eftir því að
þessir atburðir hafa ákveðna merk-
ingu og berst leikurinn heim á
bandarískt millistéttarheimih þar
sem konan gengur með frumburö
sinn. Sérkennilegur leigjandi fær
þar inni og fljótlega hefst kapp-
hlaup um að bjarga heiminum.
Myndin er snyrtilegri en gengur
og gerist um slíkar myndir þar sem
fólk hefur það yfirleitt fyrir sið að
springa í tætlur eöa deyja á ein-
hvem annan áberandi hátt. Hand-
ritið er bærilega skrifað þó að smá-
hiksti komi í lokin, eins og í aftöku-
atriðinu, sem einfaldlega kemur
ekki heim og saman við endinn.
DEMl MOORE
Ef maður horfir fram hjá,sliku
er fátt til að ergia sig yfir í mynd-
inni. Leikur er ágætur og dóms-
dagur er nú alltaf dálítið drama-
tískur. -SMJ
í sönnum Parísaranda
THE MODERNS
Útgefandi: Myndform
Leikstjóri: Alan Rudolph. Handrit: Alan
Rudolph og Jon Bradsaw. Framleiðend-
ur: Carolyn Pfeiffer og David Blocker.
Aöalhlutverk: Keith Carradine, Linda
Fiorentino, Genevieve Bujold, Gerald-
ine Chaplin, Wallace Shawn, Kevin O’-
Connor og John Lone.
Bandarísk, 1989. Bönnuö yngri en 16
ára.
Alan Rudolph virðist kunna því
vel að vinna með sama fólkinu
mynd eftir mynd en mér telst svo
til að þetta sé að minnsta kosti
þriðja mynd hans með sömu fram-
leiðendum og leikurum. Áður hafa
birst hér á myndbandaleigum
myndir hans Choose Me síðan 1984
og Trouble in Mind frá 1985.
Myndir Rudolphs eru athyghs-
verðar, án þess þó að hafa burði til
að slá almennilega í gegn. Það sem
er kannski mest áberandi í mynd-
um hans, fyrir utan það að Bujold
og Carradine birtast þar alltaf, er
myndatakan en hann er fyrir þoku
og skugga í anda film noir.
Þetta nýtur sín ágætlega í þessari
mynd sem gerist í listamannaklíku
Parísar á millistríðsárunum. Aðal-
persónur eru ekkert mjög skýrar
en umhverfið er óneitanlega for-
vitnilegt og fjöldi athyghsverðra
aukapersóna vegur þungt. Er gam-
an að sjá Hemingway og Gertrud
Stein á reiki en fröken Stein fær
ansi skondna útreið.
Furðu lítiö hefur farið fyrir Ru-
dolph, miðað við sérvisku hans, en
óhætt ætti að vera að mæla með
myndumhans. -SMJ
Púslað í eyður
NIGHT WALK
Útgefandi: Steinar hf.
Leikstjóri: Jerold Freedman.
Aðalhlutverk: Robert Urich og Lesley
Ann Down.
Ðandarisk, 1989. Sýningartimi 90 min.
Það verður að segjast eins og er
að sjónvarpsstjörnumar Robert
Urich og Lesley-Ann Down, sem
leika aðalhlutverkin í Night Walk,
fá engin meðmæli fyrir leik sinn í
þessum þriller sem er eiginlega of
flókinn fyrir þá hæfileika sem
þarna em samankomnir og er þá
enginn undanskihnn.
Lesley-Ann Down leikur van-
rækta eiginkonu, Ceneva Miller,
sem flýr um stundarsakir frá eigin-
manni sínum og heldur til sumar-
bústaðar á Flórída þar sem hún
ætlar sér að hugsa máhn í ró og
næði.
Friðurinn verður þó ekki langur
því kvöld eitt sér hún morð framið
á ströndinni fyrir framan húsið
sitt. Hún kallar á lögreglu staðarins
og þar er í broddi fylkingar sjarm-
örinn Robert Urich. Málin vandast
þegar ekkert lík fmnst og heldur
finnst lögreglunni saga frú Miller
ótrúleg en vegna beiðni Miller
ákveður lögregluforinginn aö hefja
rannsókn...
Night Walk er sama marki
brennd og svo margar aðrar kvik-
myndir sem gerðar eru fyrir sjón-
varp: Tíminn hefur verið of naum-
ur til að vinna sæmilega úr flóknu
handriti og því verður myndin eins
og hver önnur færibandavinna þar
sem aðaláherslan er lögð á að sýna
sem mest af kvikmyndastjörnun-
um í stað þess að fá einhvern botn
ísöguþráðinn. -HK
★★
TILL WE MEET AGAIN
Útgefandi: Myndform
Leikstjóri: Charles Jarrott. Handrit:
Andrew Peter Marin, byggt á sögu Jud-
ith Krantz. Aðalhlutverk: Michael York,
Bruce Boxleitner, Barry Bostwick og
Mia Sara.
Bresk-bandarísk 1989.2x100 min. Bönn-
uö yngri en 12 ára.
Flestir ættu að kannast við sáp-
umar I’h take Manhattan og Mistr-
als daughter en þær hafa báðar
verið sýndar í sjónvarpinu auk
þess að vera um skeið fáanlegar á
myndbandaleigum.
. Þessar sápur eru eftir Judith
Krantz sem skrifar einmitt þá sögu
Stríðssápa
sem hér er stuðst við. Þetta er
dæmigerö sápusmíði með langri
fléttu og persónum sem hafa til að
bera hinn dæmigerða sápuper-
sónuleika, það er að segja vondi
gæinn, uppreisnargjarna stúlkan,
góðviljaða móðirin og strangi faðir-
inn. Þeir sem á shkt efni horfa ættu
að átta sig á að þeir fá ekkert sem
vekur undrun eða hrifningu. Hið
óvænta er bannað, khsjan lykilorð.
í fyrstu minnir þátturinn á ömur-
legan sætsúran kokkteil frá Bar-
böru Cartland þar sem persónurn-
ar eru eins og klipptar út úr 19.
aldar veggfóðri. Sem betur fer fæ-
rist lítilsháttar líf í þær er á hður
og að sjálfsögðu er það vondi gæinn
sem bjargar þvi. Myndin er að
nokkru epísk að gerð en sagnfræð-
in tæpast merkileg. Það er greini-
legt að nasistarnir og heimsstyrj-
öldin eru ótæmandi sjóður í shkum
myndum og bregðast ekki þeim
sem á það treysta hér.
Það sýnir sig að það eru fjölmarg-
ir sem geta hugsað sér að sitja í 3
til 4 klukkutíma og horfa á tilbúna
veröld sápunnar og sem shk er
þessi mynd hvorki betri né verri
en það sem gengur og gerist.
-SMJ
★★★ Vt
Hin fullkomna skennntun
CASABLANCA
Útgefandi: Steinar hf.
Leikstjóri: Michael Curtiz.
Aöalhlutverk: Humphrey Bogart, Ingrid
Bergman, Paul Helnreid, Claude Rains
og Peter Lorre.
Bandarisk, 1943. Sýningarlfmi 102 min.
Um fáar kvikmyndir hefur verið
jafnmikið fjallað í rituðu máh, sem
og í myndmáh, og Casablanca sem
fyrir löngu er orðin klassísk kvik-
mynd. Setningar í myndinni eru
orðnar að málsháttum og sum at-
riðin hafa verið endurtekin í fjöl-
mörgum útgáfum af merkum kvik-
myndagerðarmönnum.
Nú er það svo að ekki er hægt
að kaha Casablanca meistaraverk;
til þess eru gahamir of margir þeg-
ar myndin er skoðuð ofan í kjöhnn,
en fáar kvikmyndir hafa jafnmikið
skemmtanagildi. Fyrst og fremst
er það þó einhver duhnn sjarmi,
sem fylgir myndinni frá upphafi til
enda, sem gerir það að verkum aö
hún er ógleymanleg og ein af þeim
kvikmyndum sem hægt er aö sjá
aftur og aftur.
Óþarfi er að fjalla mikið um sögu-
þráðinn - hann þekkja flestir.
Myndin gerist á stríðsárunum í
Casablanca sem að nafninu til er
hlutlaus. Þama hittast óhkar per-
sónur sem annaðhvort em að hitt-
ast í fyrsta skipti eða endumýja
kynni sín. Alhr sem koma til Casa-
blanca hittast svo á Rick’s Cafe þar
sem hinn rótlausi ævintýramaður
Rick ræður ríkjum. Þar em laun-
ráö bmgguð á hveiju borði.
Það er Humphrey Bogart sem
leikur Rick eftirminnilega. Gömul
ást, sem hann getur ekki gleymt,
birtist í hki Ingrid Bergman og fal-
in sár eru ýfð upp undir ljúfum
tónum lagsins sígilda, As Time
Goes By.
Allt er eins og það á að vera þeg-
ar Casablanca er skoðuð og hefði
mátt halda að handritið hafi verið
vel undirbúið en svo var nú ekki.
Sagt hefur verið að fáir leikarar
hefðu í raun vitað um hvað myndin
var meðan á kvikmyndun stóð.
Handrit var laust í reipum og unn-
ið var frá degi til dags undir stjórn
ungverska leikstjórans Michael
Curtiz sem hvorki fyrr né síðar
gerði mynd sem vakti athygli á
borðviðCasablanca. -HK
Tdf ftOGART COUfCTIOX
Hættuleg
fjársjóðsleit
THE EVIL BELOW
Útgefandi: Bergvík hf.
Leikstjóri: Wayne Crawford.
Aðalhlutverk: Wayne Crawford, June
Chadwick og Ted LePlatt.
Bandarisk, 1989. Sýningartími 90 mín.
Bönnuð börnum innan 16 ára.
The Evil Below fjallar um leit
kafara að fjársjóðskipi og er að
mestu leyti í ætt við margar aörar
sams konar myndir. Til að krydda
kunnuglegan söguþráð er blandað
saman dularfullum atburðum sem
eiga sér stað. Um leið og einhver
finnur skipið, sem allir leita aö, er
sá myrtur af ódauðlegum varð-
manni sem hefur verið settur á
land th að verja fjársjóðinn.
The Evh Below fer nokkuð vel
af stað en eftír því sem atburðimir
verða óraunverulegri hrakar
myndinni sem verður þó aldrei
leiðinleg. Leikstjóri er Wayne
Crawford og leikur hann einnig
aðalhlutverkið. Hefði hann ein-
göngu átt að vera bak við mynda-
vélina því hann er slakastur þeirra
leikara sem koma fram í myndinni.
-HK