Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.1990, Síða 25
LAUGARDAGUR 1. SEPTEMBER 1990.
37
íslandsmótið - 4. flokkur karla:
Knattspy ma unglinga
Góður endasprettur færði
Blikunum meistaratitil
Eftir frekar rysjótt gengi í A-riðli
4. flokks tóku Breiðabliksstrákarnir
sig heldur betur á og sigruðu alla
andstæðinga sína í úrslitakeppninni
sem fór fram á Kópavogsvelli sl.
sunnudag. Þeir léku til úrslita gegn
KR og unnu í góðum leik, 2-1.
Breiðablik hafnaði í 4. sæti A-riðils
og varð því að fara í undanúrslitin á
Akureyri, þar sem Blikunum tókst
að vinna sæti í úrslitunum. Forráða-
menn liðsins höfðu á orði eftir á að
sú ferð hefði orðið þeim til mikilla
heilla. Þeir vildu meina að í undan-
úrslitunum hefði leikmönnum tekist
að bæta upp það sem á vantaöi í riðla-
keppninni.
Blikamirtóku
írumkvæðið
Úrslitaleikurinn, sem var gegn KR,
var þrunginn spennu lengst af en
samt var eins og Blikarnir hefðu
ávallt meira frumkvæði.
Leikurinn byijaði með þreifmgum
beggja liða. Um miðjan hálfleikinn
fóru hlutirnir að gerast og meira sótt.
Aron Haraldsson skoraði fyrra mark
Bhkanna með glæsilegum skalla í
bláhornið, eftir að Kjartan Antons-
son hafði unnið boltann og gefið fyr-
ir markið.
Við markið var eins og KR-strák-
amir misstu þolinmæðina og fóru að
leika undir getu. Blikarnir réðu
meira gangi leiksins og voru nær því
að bæta öðru marki við en KR að
jafna. Fleiri urðu mörkin þó ekki í
fyrri hálfleik.
Réttlátur sigur
Blikamir byrjuðu betur í síðari
hálfleik og á 15. mínútu jók Guð-
mundur Árnason forystu Breiða-
bliks í 2-0 þegar hann skoraði af ör-
yggi frá markteigshorni með föstu
skoti, óverjandi fyrir Ágúst Jóhanns-
son í marki KR.
KR-ingar voru þó nokkurn tíma að
jafna sig eftir áfaUið en þegar um 15
mínútur voru eftir af leik tóku þeir
af skarið og minnkuðu muninn í 2-1
og var það markahrókurinn Bjarni
- sigruðu KR, 2-1, í úrslitaleik
Jónsson sem skaut þrumufleyg í blá-
hornið. Við þetta vöknuðu KR-ingar
af dvalanum og reyndu hvað þeir
gátu að jafna og munaði litlu að þeim
tækist það á lokamínútunum.
KjartanogAron
menn leiksins
' ■■
Guðmundur Arnason, bakvörðurinn sterki í 4. flokki Breiðabliks (3), er í þann mund að skora 2. mark Kópavogs-
liðsins i úrslitaleiknum gegn KR. DV-myndir Hson
Sigur Breiðabhks var réttlátur.
Leikmenn léku yfirvegað og af skyn-
semi. Liðið er skipað mjög jöfnum
og góðum strákum. Menn leiksins
eru þó tvímælalaust Breiðabliks-
drengimir Kjartan Antonsson í
vörninni og sóknarleikmaðurinn
Aron Haraldsson. Þeir áttu báðir í
einu orði sagt stórleik. Hinn kviki
framheiji, ívar Sigurjónsson,
splundraði oft vörn KR-inga með lip-
urð sinni og hraða og miðjuleik-
mennirnir áttu allir góðan dag. Gísli
Þór Jóhannsson var öryggið upp-
málað í markinu. Guðmundur Árna-
son sóknarbakvörður hefur vaxið
með hverjum leik og er mjög góður
stoppari. Hann las leikinn einnig
mjög vel. Þaö var reyndar erfitt að
koma auga á veikan hlekk í Blikalið-
inu í þessum leik.
KR-strákarnir áttu í vissum erf-
iðleikum. Hver svo sem ástæðan var
þá komust þeir aldrei verulega inn í
leikinn og voru hikandi í öllum sín-
um aðgerðum. Það voru helst þeir
Nökkvi Gunnarsson, Bjarni Jónsson
og Andri Sigþórsson sem náðu að
sýna hvað í þeim býr. Ágúst Jó-
hannsson í markinu stóð fyrir sínu
og verður ekki sakaður um mörkin.
Aðrir voru langt frá sínu besta. Að
vísu gekk Vilhjálmur Vilhjálmsson
ekki heill til skógar, meiddist í leikn-
um gegn Þór, A. í raun áttust hér við
tvö nokkuð jöfn og góð lið, en senni-
lega hefur einhver liður í undirbún-
ingi ráðið hér úrslitum. Annars verð-
ur það að teljast mjög viðunandi ár-
angur að hljóta silfurverðlaun í ís-
landsmóti.
Þjálfari Breiðabliks er Anton
Bjamason en Sigurður Helgason
þjálfar KR-liðið.
-Hson
Riðlakeppni 4. flokks
Riðill 1:
KR-KA........................5-2
Grindavík-Þór, A............13-0
KA-Þór, A....................1-0
Þór, A.-KR.................0-3
KR-Grindavík..............13-0
Grindavík-KA...............1-5
Lokastaðan í riðlinum:
KR................3 3 0 0 21-2 6
KA................3 2 0 1 8-6 4
Þór, A............3 1 0 2 10-4 2
Grindavík.........3 0 0 3 3-14 0
Riðill 2:
Stjarnan-Breiðablik.............0-3
Týr, V.-ÍR......................5-0
Breiðablik-ÍR...................5-0
Stjarnan-Týr, V.................0-2
Týr, V.-Breiðablik..............0-2
ÍR-Stjarnan.....................3-4
Lokastaðan í riðlinum:
Breiöablik........3 3 0 0 10-7 6
Týr, V........v...3 2 0 1 7-2 4
Stjarnan......... 3 1 0 2 4-8 2
ÍR................3 0 0 3 3-14 0
Leikið um sæti:
1.-2. sæti: Breiðablik-KR.....2-1
3.-4. sæti: KA-Týr, V..........3^
5.-0. sæti: Stjarnan-Þór, A...1-2
7.-8. sæti: Grindavík-ÍR......4-7
(Staðan var 4-1 fyrir Grindavík í leik-
hléi).
Hér eru tveir góðir úr 4. flokki Breiðabliks. Aron Haraldsson fyrirliði, til
hægri, átti frábæran leik og skoraði fyrra markið gegn KR og Kjartan Ant-
onsson, varnarmaðurinn sterki. Þær voru óteljandi sóknarloturnar sem
brotnuðu á honum.
íslandsmótið-3. flokkur:
Bikarinn áfram í KR-heimilinu
KRsigraði Tý, 3-0, í úrslitaleik
Mikael Mikaelsson, fyrirliði 3. flokks
KR, hampar íslandsbikarnum eftir
sigurinn gegn Tý frá Vestmannaeyj-
um. KR-ingar urðu einnig íslands-
meistarar í fyrra. Þetta er sérlega
glæsilegt hjá Haraldi Haraldssyni
sem séð hefur um þjálfun liðsins
bæði keppnistimabilin. DV-mynd SS
Sigurgeir Sveiusson, DV, Akranesi:
Úrshtakeppni íslandsmótsins í 3.
flokki fór fram á Akranesi um sl.
helgi og lauk með sigri KR sem lagði
Tý, V., í úrslitaleik, 3-0. Leikurinn
var lítið fyrir augað, enda leikmenn
orðnir þreyttir eftir riðlakeppn-
ina.
Liðin skiptust á að sækja og voru
Týrarar meira með boltann í fyrri
hálfleik. Hjá KR var það Ásmundur
Haraldsson sem var þó sá leikmaður
sem var sífellt ógnandi, enda sprett-
harður. Hann fékk tvö góð færi eftir
skyndisóknir en markvörður Týr-
ara, Grétar Pálsson, varði glæshega.
Týrarar fengu og sín færi þegar
Tryggvi Guðmundsson og Daði Páls-
son komust í gegn en KR-vörninni
tókst að bjarga í bæði skiptin á síð-
ustu stundu. Ekkert mark var skorað
í fyrri hálfleik.
Týrarar hófu síðari hálfleikinn vel.
Strax á 6. mínútu komst Tryggvi í
dauðafæri en Jón Indriðason mark-
vörður bjargaði meistaralega. Það
sem eftir liföi leiks voru KR-ingar
sterkari og fékk Ásmundur tvö gullin
færi th að skora en Grétar í marki
Týrara var vel á verði og bægði hætt-
unni frá. Það kom svo loks að því að
Ásmundur skoraði fyrir KR á 30.
mínútu. Skömmu seinna var Davíð
Hahgrímssyni, varnarmanni Týrara,
vikið af leikvelli fyrir gróft brot. Það
var síðan Magnús A. Magnússon sem
skoraði tvö mörk undir lok leiksins
og innsiglaði 3-0 sigur KR-inga.
Bestir í liði KR voru þeir Jón Ind-
riðason í markinu og Ásmundur
Haraldsson. Einnig átti Magnús A.
Magnússon ágætan leik.
Bestur Týrara var markvörðurinn,
Grétar Pálsson. Tryggvi Gunnarsson
og Daði Pálsson áttu og góða leik-
kafla.
Ánægður með sigurinn
„Það er stórkostlegt að vinna ís-
landsmótið - og að sjálfsögðu er
KR-liðið best. Allir leikir úrslita-
keppninnar voru mjög erflðir, sér-
staklega gegn Akurnesingum. Þetta
er toppurinn," Mikael Mikaelsson,
fyrirliði KR-inga sem var að vonum
ánægður með stöðu mála.
íslandsmeistarar KR í 3. flokki:
Jón Indriðason, Örvar Ólafsson, Ei-
ríkur Valdimarsson, Jóhann Sig-
urðsson, Otto Karl Ottosson, Þórir
Steinþórsson, Ásmundur Haralds-
son, Mikael Mikaelsson, Magnús A.
Magnússon, Andri Sveinsson, Brynj-
ar Gunnarsson, Atli Knútsson, Jón
Halldórsson, Gestur Pálsson, Sigurð-
ur Óli Hákonarson og Þorsteinn Jó-
hannsson.
Riðlakeppnin
Riðill 1:
Fram-Þór, A.................2-3
Fram-Týr, V.................0-2
KA-Fram................... 1-4
Þór, A.-Týr, V..............0-2
KA-Þór, Á...................4-2
Týr, V.-KA..................2-1
Lokastaðan í riðli 1:
Týr.V...........3 2 0 1 6-4 4
Þór, A..........3 2 0 1 8-8 4
Fram............3 1 0 2 6-6 2
KA..............3 1 0 2 6-8 2
Riðill 2:
KR-Akranes...................3-2
Víkingur, R,-Akranes.........1-2
Akranes-FH...................4-0
Víkingur, R.-KR..............2^4
KR-FH........................2-1
Víkingur, R.-FH..............1-0
Lokastaðan i riðli 2:
KR..............3 3 0 0 9-5 6
Akranes.........3 2 0 1 8^1 4
Víkingur,R......3 1 0 2 4-6 2
FH..............3 0 0 3 1-7 0
Leikir um sæti:
1.-2. sæti: Týr, V.-KR..........0-3
3.-4. sæti: Ákranes-Þór, A......2-1
Leikur hðanna var mjög góður og
skemmtilegur á aö horfa og lauk með
sigri Skagamanna, 2-1, og voru öll
mörkin skoruð í fyrri hálfleik. Mörk
Akraness gerðu þeir Borgþór Þ. Ein-
arsson og Hjörtur Hjartarson en
mark Þórs skoraði Guðmundur
Benediktsson. Dómari var Gunnar
J. Viðarsson og dæmdi mjög vel.
5.-6. sæti: Víkingur, R.-Fram.....2-5
7.-8. sæti: KA-FH.................3-1