Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.1990, Page 37
LAUGARDAGUR 1. SEPTEMBER 1990.
49
dv Smáauglýsingar - Sími 27022
Toyota twin cam ’87, ekinn 53 þús.,
álfelgur, útvarp/segulband. Uppl. í hs.
91-84616 og vs. 91-84009. Jón Ingi.
Audi 200, árg. '85, til sölu, sjálfskiptur,
cruisecontrol, ABS hemlar, elektron-
ísk miðstöð, rafmagn í rúðum o.fl.
o.fl., ekinn 110 þús. km. Til sýnis á
bílasölunni Bliki, Skeifunni 8.
Citroen D super, arg. '74, til sölu. Uóð-
ur bíll, ekin tæpl. 100 þús. km, mikið
af varahlutum getur fylgt. Verðtilboð.
Uppl. í síma 91-656814.
GullmoliiPontiac Trans Am, ’82, 350
Chevy, 5,7 ltr., ca 200 hö., dökkrauð-
ur, leður, T-toppur, rafm. í rúðum,
speglum og sæti, 4ra gíra, álfelg., ek.
80 þús. m. Ath. sk. 0-930 þús. S. 681258.
Til sölu Honda Prelude, árg. ’79, álfelg-
ur, topplúga, útvarp, þeinskiptur, ek-
inn 140 þús. Verð 250 þús. Góður stað-
greiðsluafsláttur. Skipti koma til
greina. Uppl. gefur Anna í sima
91-77239 á kvöldin.
Cherokee Chief, árg. 1987, ekinn 35
þús. km, 4 lítra vél, krómfelgur. Uppl.
hjá Bílasölunni Bílaporti hf., Skeif-
unni 11, sími 688688.
Toyota Celica GT 2000 ’87 til sölu, raf-
magn í rúðum, samlæsingar, digital-
mælaborð, álfelgur, skipti á ódýrari
koma til greina. Uppl. í síma 92-11108.
Mercedes Benz 200 ’83 til sólu, lall-
egur og vel með farinn. Uppl. í síma
91-626423.
Ford Sierra 1600 '83 til sölu, ekinn
70.000 km, mjög góður bíll, verð
390.000, engin skipti. Uppl. í síma
32426.
Golf GL ’87 til sölu, ekinn 64 þús. km,
gullsans. Skuldabréf eða góður stað-
greiðsluafsláttur. Uppl. í síma
91-25775 eða 91-626165.
Tll sölu Ford Bronco II, árg. ’85, keyrð-
ur 66 þús'. mílur, litur blár og hvítur,
vel með farinn bíll. Uppl. í sima
91-31164.
Volvo vörubíll F-86, árg. ’67, þarfnast
lagfæringar. Bíllin er til sýnis að
Fiskislóð 107. Tilboð. Uppl. í vs.
91-25554 og hs. 91-652426 og 91-52226.
Subaru Legacy 1800 st. ’90, útvarp/seg-
ulband, rafmagn í rúðum, ekinn 6.000
km. Til sölu á Bílasölunni Blik, sími
91-686477. Skipti koma ekki til greina.
Toyota Hiace 4x4 ’87, sæti fyrir 10 far-
þega, hentugur í skólaakstur. Uppl. í
síma 93-81591 eða 985-23115.
Ford Mercury Topaz, árg. ’87, til sölu,
ekinn 48 þús km. Uppl. í síma 92-68458.
Ymislegt
Aðalfundur Jeppakúbbs Rvíkur verður
haldinn þriðjud. 4/9 kl. 20 stundvís-
lega að Bíldshöfða 14. Dagskrá aðal-
fundar: 1. Skýrsla stjórnar. 2. Lagðir
fram reikningar. 3. Lagabr. 4. Kosning
í nýja stjóm. 5. Önnur mál. Félags-
menn eru hvattir til að mæta.
Andlát
Óskar Gissurarson, Dvcdarheimilinu
Hrafnistu, er látinn.
Torfi Bjorn Loftsson, Álfaskeiði 78,
Hafnarfirði, lést í Landspítalanum
29. ágúst.
Sveinbjörg Sveinbjörnsdóttir, Garð-
braut 25, Garði, lést i Sjúkrahúsi
Keflavíkur að morgni 30. ágúst.
Þórarinn Pálsson, Skeggjastöðum,
Fellum, er látinn.
Jón Jónasson járnsmiður, Eskihlíð
22, Reykjavík, lést fimmtudaginn 30.
ágúst.
Kjartan Jóhannesson, Karfavogi 34,
andaðist á Vífilsstaðaspítala 30.
ágúst.
Jarðarfarir
Aðalbjörn S. Gunnlaugsson kennari,
Lundi í Öxarfirði, lést á Landa-
kotsspítala 25. ágúst. Hann fæddist á
Grund á Langanesi 26. febrúar 1936
og ólst upp á Bakka í Kelduhverfi.
Hann var sonur hjónanna Guðbjarg-
ar Magnúsdóttur og Gunnlaugs Sig-
urðssonar, bónda og síðar skrifstofu-
manns í Reykjavík, en hann lést árið
1973. Aðalbjörn lauk kennaraprófi
1960, var kennari á Reykjaskóla í
Hrútafirði, í Skúlagarði í Keldu-
hverfi og í Lundi í Öxarfirði frá árinu
1965. Árið 1963 kvæntist Aðalbjörn
Erlu Óskarsdóttur frá Reykjarhóli í
Reykjahverfi, dóttur hjónanna Stein-
unnar Stefánsdóttur og Óskars Sig-
tryggssonar. Aðalbjörn og Erla eign-
uðust sex börn og eitt barnabarn.
Útför Aðalbjarnar fer fram frá
Skinnastað í Öxarfirði í dag, laugar-
dag.
Tilkymiingar
Félag eldri borgara
Opnum aftur eftir sumarleyfi. Opiö hús
í Goðheimum, Sigtúni 3, sunnudaginn 2.
september. Kl. 14, frjáls spilamennska,
kl. 20, dansað. Göngu-Hrólfar fara í
haustferð í Dalasýslu 7. september. Nán-
ari upplýsingar á skrifstofu félagsins.
Húsdýragarðurinn
í Laugardal
Dagskrá laugardaginn 1. og sunnudaginn
2. september. Kl. 10, opnað; kl. 11, selum
gefið; kl. 11.30, hestar teymdir um svæð-
ið; kl. 14, selum gefið; kl. 15, hreindýr
teymd um svæðið; kl. 16.15, selum gefið;
kl. 16.30, nautgripir reknir í fjós; kl. 16.45,
kindur, geitur og hestar tekin í hús; kl.
17, hænur og kjúklingar tekin í hús; kl.
17.15, minkar og refir fóðraðir; kl. 17.30,
kýr mjólkaðar. Verð kr. 100 fyrir böm
og 200 kr. fyrir fullorðna.
„Stórar stelpur” flutt
í nýtt húsnæði
Verslunin Stórar stelpur verður opnuð í
dag, 1. september, í nýju, stærra og bjart-
ara húsnæði að Hverfisgötu 105. Opiö í
dag kl. 10-16.
Ferðalög
Ferðafélag íslands
Sunnudagsferðir 2. september.
1. Kl. 08 Þórsmörk - Langidalur. Verð
kr. 2.000. (7-15 ára með foreldrum sínum
greiða 1.000 kr). Kynnist Þórsmörkinni
með Ferðafélaginu, stansað 3-4 klst.
2. Kl. 09 Þórisdalur. Áhugaverð göngu-
ferð í þennan fræga útilegumannadal í
skjóli þriggja jökla. Verð 1.500 kr.
3. Kl. 10.30 Hengill - Nesjavellir. Gengiö
frá Kolviðarhóli yfir hæsta hluta Hengils
(803 m.y.s.) um dali norðan hans að
Nesjavallavirkjun. Ekið heim um Nesja-
vallaveg. Verð 1.000 kr.
4. Kl. 13 Jórukleif - Nesjavallavegur.
Skemmtlleg og auðveld ganga í Grafn-
ingnum. Nesjavallavirkjun skoðuð að
lokinni göngu og ekið heim um hina fall-
egu útsýnisleið, Nesjavallaveginn. Verð
1.000 kr., fritt f. böm 15 ára og yngri í
fylgd foreldra sinna. Brottför frá Um-
ferðarmiðstöðinni, austanmegin.
Ný ferð á miðvikudagskvöldið 5. sept. kl.
20. Kvöldganga og blysfór á fullu tungli
í Búrfellsgjá, fallegustu hrauntröð Suð-
vestanlands.
Fjölskylduferð í Álftavatn verður helg-
ina 7.-9. sept. Gönguferðir, ratleikur,
leiðbeint í Ijósmyndun og fl., pylsugrill
og kvöldvaka. Eitthvað fyrir alla. Sér-
stakur fjölskylduafsláttur, m.a. frítt fyrir
böm 9 ára ogyngri í fylgd foreldra sinna.
Gist í skála FI meðan pláss leyfir, annars
í tjöldum.'
Útivistarferðir
Sunnudaginn 2. september heldur Útivist
áfram í hinni vinsælu Þórsmerkur-rað-
göngu sem endar í Básum á Goðalandi
22. september nk. Áfanginn, sem farinn
verður nk. sunnudag, er sá 15. í röðinni
og verður farið inn með Giljum. Þar verð-
ur gefrnn góður timi tU að skoða Bæjar-
gU, NauthúsagU, Merkurker/IUagU og
fleira. Lagt er af stað kl. 8. Þetta er ein-
stakt tækifæri tU að kynnast hinni stór-
brotnu náttúm sem hlíðar Eyjafjallajök-
uls hafa að geyma. Staðfróðir EyfelUngar
verða fylgdarmenn. Fólk getur slegist í
hópinn á Selfossi og HeUu. Að venju er
helgarferð í Bása á Goðalandi á vegum
Útivistar. Farið er frá BSÍ, bensínsölu,
kl. 20 í kvöld.
Náttúruverndarfélag
Suðvesturlands
Gönguferð - vettvangsferð
Laugardagur 1. september,
kl. 13.30: Laugardalur - Laugarnes.
NVSV stendur fyrir gönguferð sem teng-
ir saman Laugardal og Laugarnes. Geng-
ið verður frá Húsdýragaröinum í Laugar-
dal og gegnum íbúðarhverfið niður á
Laugarnestanga, síðan með ströndinni
og upp hjá Barnhóli til baka að Hús-
dýragarðinum. Tilgangur gönguferðar-
innar er að vekja athygli á nauðsyn þess
að gera fólki auðvelt að fara á milli Laug-
ardalsins og Laugarnessins en það myndi
gefa báðum svæðunum aukiö gildi um
leið og þar myndaöist skemmtileg göngu-
leið. Náttúrufræðingar veröa með í fór
og kynna jarðfræði og lífríki svæðisins.
Komið verður við i Listasafni Siguijóns
Ólafssonar og málin skýrð og rædd.
KI. 16.30: Uppgræðsla í Lækjarbotnum
NVSV fer vettvangsferð til að skoða ár-
angur af starfi áhugafólks um upp-
græðslu í noröur- og vesturhlíðum Selja-
fialls og nágrennis. Þar eru örfoka melar
að breytast í gróið land vegna sjálfboða-
vinnu hjóna. Áburður, fræ og dreifingar-
kostnaður var greiddur með peningum
sem frúin fékk í afmælisgjöf í vor. Hjónin
stefna að áframhaldandi uppgræðslu
næstu árin. Þau verða heimsótt í vett-
vangsferðinni og gengið með þeim um
svæðið. Áhugafólk um uppgræðslumál
er hvatt til að koma með í ferðina. Til
leiöbeiningar þátttakendum verður sett-
ur upp vegvísir viö þjóðveginn við gatna-
mót síðasta afleggjara til hægri áöur en
komið er að Lögbergsbrekkunni.
Tónleikar
Sýningar
Samsýning í Hafnarborg
í dag, 1. september, opna 8 textíllistakon-
ur samsýningu á verkum sínum í Hafnar-
borg, menningar- og listastofnun Hafnar-
fjarðar. Listakonumar, sem sýna, eru
Björk Magnúsdóttir, Fjóla Kristín Arna-
dóttir, Helga Pálína Brynjólfsdóttir,
Hrafnhildur Sigurðardóttir, Hulda Sig-
urðardóttir, Ingiriður Óðinsdóttir,
Kristrún Agústsdóttir og Ragnhildur
Ragnarsdóttir. Þær hafa numiö í mynd-
listaskólum hérlendis, í Skotlandi og
Finnlandi og tekið þátt í sýningum hér
heima og erlendis. Á sýningunni í Hafn-
arborg gefur að líta fiölbreytta textíllist,
svo sem máluð og þrykkt myndverk og
nytjalist. Sex af þeim átta listakonum,
sem taka þátt í þessari sýningu, reka
sameiginlega textílvinnustofu að Iðnbúð
5, Garðabæ. Vinnustofan, sem starfrækt
hefur verið frá árinu 1986, gengur undir
nafninu „4 grænar og 1 svört í sófa“.
Tvær af listakonunum reka eigin vinnu-
stofur, þær Kristrún Ágústsdóttir að
Lækjargötu 8, Hafnarfirði, og Fjóla Krist-
ín Ámadóttir aö Blönduhlíð 31, Reykja-
vík. Textílsýningin, sem er sölusýning,
stendur til 16. september og er opin alla
daga nema þriöjudaga kl. 14-19.
Árbæjarsafn
sími 84412
Safniö er opið alla daga nema mánudaga
kl. 10-18. Kafiihús safnsins, Dillonshús,
er opiö á sama tíma og safniö.
Tónleikar í Heita pottinum
Jasshljómsveitin Gammar mun halda
tónleika á sunnudag, 2. september, í Heita
pottinum, Duus-húsi. Á efnisskrá hljóm-
sveitarinnar er nær eingöngu frumsamin
íslensk jasstónhst eftir meðlimi hennar.
Hljómsveitina skipa þeir Þórir Baldurs-
son, píanó, Bjöm Thoroddsen, gítar, Stef-
án S. Stefánsson, saxófónn, Bjarni Svein-
bjömsson, bassi, og Halldór G. Hauksson,
trommur. Tónleikarnir hefiast kl. 22.
Leikhús
Ferðaleikhúsið
Sýningar Ferðaleikhússins á Light
Nights em í Tjamarbíói við Tjörnina i
Reykjavík (Tjamargötu lOe). Sýningar-
kvöld em fjögur i viku, fimmtudags- ,
fóstudags-, laugardags- og sunnudags-
kvöld. Sýningar hefjast kl. 21 og lýkur
kl. 23. Light Nights sýningarnar em sér-
staklega færðar upp til skemmtunar og
fróðleiks enskumælandi ferðamönnum.
Efnið er allt íslenskt en flutt á ensku.
Meðal efnis má nefna: þjóðsögur af
huldufólki, tröllum og draugum, gamlar
gamanfrásagnir og einnig er atriði úr
Egilssögu sviðsett. Þetta er síðasta sýn-
ingarhelgi Ferðaleikhússins á þessu ári.
Fyrirlestrar
Sunnudaginn 2. september nk. kl. 14 flyt-
ur sænski læknirinn Christian Osika fyr-
irlestur í Norræna húsinu um antrópósó-
fisk læknavísindi en það er stefna innan
vestrænnar læknisfræði er leggur
áherslu á að meðhöndla sjúklinga í heild
sinni og að nota við lækningar einungis
lyf úr ríki náttúrunnar. Christian Osika
hefur starfað sem læknir i Svíþjóð í 25
ár. Undanfarin ár hefur hann unnið við
Vidarkliniken í Jarna en það er antró-
pósófiskt sjúkrahús sem opnað var í okt-
óber 1985 og er eina náttúmlækninga-
sjúkrahúsið á Norðurlöndum. Christian
Osika mun flytja fyrirlestur sinn á ensku
og að fyrirlestrinum loknum mun hann
svara fyrirspumum. Aðgangur er öllum
þeimill meðan húsrúm leyfir.
Fundir
JCNes
Fyrsti félagsfundur JC Nes á þessu
starfsári verður haldin í JC-heimilinu að
Laugavegi 178 mánudaginn 3. september
kl. 20.30.
C-Moll messa eftir Mozart og
söngnámskeið hjá Söngsveit-
inni Fílharmóníu
Söngsveitin Fílharmónia hefur 31. starfs-
ár sitt 3. september næstkomandi. Aðal-
verkefni vetrarins verður flutningur á
C-moll messu eftir Wolfgang Amadeus
Mozart, K 427, sem flutt verður í Háskóla-
bíói með Sinfóníuhljómsveit íslands 10.
janúar 1991. Jólatónleikar verða í Krists-
kirkju snemma á jólafostunni.
Ákveðið hefur verið að gangast fyrir
námskeiði til undirbúnings og til að
hvetja ungt fólk til inngöngu í kórinn. Á
námskeiðinu verður kennd raddbeiting,
nótnalestur og undirstöðuatriði í tón-
fræði.
Með námskeiðinu vill Söngsveitin gefa
ungu söngfólki tækifæri til að kynnast
kórstarfmu og auka kunnáttu sína um
leið. Raddprófun fer fram í lok nám-
skeiðsins og gefst þá þátttakendum kost-
ur á að ganga til Uðs við kórfnn.
Kórstjóri Fílharmóníu er Ulrik Ólason
og verður hann kennari á námskeiðinu
ásamt Margréti Pálmadóttur, aðalradd-
þjálfara kórsins, og EUsabetu Erlings-
dóttur óperusöngkonu.
Námskeiðið hefst mánudagimt 3. sept-
ember, kl. 20, og verður kennt í húsi FÍH
að Rauðagerði 27 í Reykjavík mánudaga,
miðvikudaga og fimmtudaga í tvær vik-
ur, frá kl. 20 til 22.30. Þátttökugjald er
3000 krónur. Nánari upplýsingar fást hjá
formanni kórsins og gjaldkera í símum
39119 og 611165 á kvöldin og skráning á
námskeiðið er í sömu símum.
Kórinn getur bætt við sig góðu söng-
fólki, sérstaklega i karlaraddir. Æfingar
hefjast á C-MoU messu að loknu nám-
skeiðinu í Melaskóla mánudaginn 17.
september, kl. 20.30, og verður æft tvisvar
í viku á þeim stað, mánudaga og miðviku-
daga, í vetur.
Að loknum tónleikum í janúar mun
kórinn hefja æfingar á verkefni til flutn-
mgs vorið 1991 en ekki hefur endanlega
verið ákveðið hvert verkefnið verður eða
hvar flutningur fer fram.