Dagblaðið Vísir - DV - 20.09.1990, Blaðsíða 2
2
FIMMTUDAGUR 20. SEPTEMBER 1990.
Fréttir
Tveir lögreglumenn uröu að láta fyrirberast á Þorskafl arðarheiði:
Annar gekk í nær fjórar
klukkustundir eftir hjálp
- bíllinn festist 1 forarpytti eftir að blindbylur skall á
„Við vorurn á leiðinni til Stykkis-
hólms frá ísafirði. Þegar við vorum
að leggja af stað frá ísafirði var til-
kynnt í kvöldfréttum útvarps
hvaða vegir væru ófærir á Vest-
fjörðum. Þar var Þorskafjarðar-
heiðin hvergi nefnd, þannig að við
ákváðum að fara um hana, enda
er þaö stysta leiðin til Stykkis-
hólms. Um kvöldið skall síðan á
blindbylur og hörkufrost - það var
komið vitlaust veður. Við enduðum
svo úti í einhverjum snjó- og drull-
upytti. Þetta var eins og að lenda í
steypu. Það var því fyrirséð að við
gátum ekkert annað gert en að láta
fyrirberast í bílnum um nóttina,“
sagði Jóhannes Jensson, varaform-
aður Landssambands lögreglu-
manna, í samtali við DV.
Jóhannes var á ferð ásamt kolleg-
a sínum, Þorgrími Guðmundssyni,
formanni Landssambandsins. Þeir
komu til Reykjavíkur í gærkvöldi
úr hringferð um landið en þeir
höfðu verið að sinna ýmsum erind-
um fyrir Landssambandið. Suba-
rubifreiö þeirra, sem er með fjór-
hjóladrifi, festist í slæmri færð uppi
á Þorskafj arðarheiði í fyrrakvöld.
Mennirnir urðu að halda kyrru
fyrir í bílnum um nóttina. Jóhann-
es gekk síðan í næstum fjórar
klukkustundir til að biðja um hjálp
í gærmorgun:
„Við vorum vel búnir, höfðum
svefnpoka og teppi meðferðis og
sváfum vel um nóttina. Klukkan
sex að morgni fórum við á fætur
og þá var komið fallegt veður. Síð-
an gekk ég til byggða eftir hjálp og
hélt áleiðis til Bjarkarlundar. Ég
var þó farinn aö halda að ég fengi
engan bíl. Þama fóru tveir bílar
um með nokkurra klukkustunda
milhbih. Ég sá einn þegar ég var
uppi í fjallinu, náði honum ekki og
hélt því áfram að ganga. Ég var
sennilega kominn um hálfa leið til
Bjarkarlundar þegar annar bíll
kom loksins. Það var elskulegt fólk
og það keyrði mig niður í Bjarkar-
lund. Þar hitti ég svo fólk sem út-
vegaði okkur jeppa. Bílnum okkar
náðum við svo upp klukkan tvö
síðdegis. Þetta var mikið ævintýri
en gott að þetta fór svona vel,“
sagði Jóhannes Jensson sem er frá
Keflavík.
-ÓTT
Margt manna sótti alþjóölegu sjávarútvegssýninguna I Laugardalshöll við opnun hennar I gær. Á meðal þeirra
var forseti íslands, Vigdis Finnbogadóttir. Fimmtíu íslensk fyrirtæki sýna auk um fjögur hundruð erlendra fyrir-
tækja frá um tuttugu löndum. Sýningarsvæðið er um 8 þúsund fermetrar. Hér er forsetinn að skoða vel unnin fisk-
flök úr fullkominni flökunarvél. DV-mynd GVA
Námsefnisgjald skoðað 1 menntamálaráðuneytinu:
Slagurinn stendur
um túlkun laganna
- segir deildarstjóri grunnskóladeildar
„Máhð er í skoðun og við bíðum
eftir umsögnum ýmissa aðha sem
máhð snertir. Máhð varðar ekki
einungis svokahað efnisgjald held-
ur einnig kaup á námsefni eða
námsbókum. Við viljum heyra
hvað námsgagnastofnun hefur að
segja um túlkun umboðsmanns
Alþingis. Efnisgjaldið snýr að
sveitarfélögum og við viljum vita
hvað Samband íslenskra sveitarfé-
laga hefur um það að segja. Það
verður ekkert gefiö út um málið
fyrr en búið er að heyra í þessum
aðilum," sagði Hrólfur Kjartans-
son, dehdarstjóri grunnskóladeild-
ar menntamálaráðuneytisins, í
samtah við DV vegna innheimtu
gjalds fyrir námsgögn í grunnskól-
um.
- Nú hefur umboðsmaður Al-
þingis komið fram með áhtsgerð
þar sem segir að gjaldtaka fyrir
námsefni í grunnskólum standist
ekki lög. Er ekki um prinsippmál
að ræða þar sem spumingin er
hvort foreldrar eigi yflrhöfuð að
borga fyrir námsefni? Er ekki alveg
ókeypis skólaganga fyrir grunn-
skólanemendur á Islandi?
„Það stendur skýrt í lögum að
kennsla skuh látin ókeypis í té í
opinberum skólum. Varöandi ann-
að sem nemendur þurfa á að halda
í skólum, eins og námsgögn, er
ekki skýrt kveðið á um í lögunum.
Það er túlkunaratriði í lögunum og
þess vegna er þessi vandræðagang-
ur. Slagurinn stendur um túlkun
laganna og menn spyrja hver vhji
löggjafans hafl verið. Það vhjum
við í ráðuneytinu fá á hreint sem
fyrst því við viljum vita hvemig
við eigum aö vinna.“
- Hvenær má eiga von á niður-
stöðum?
„Sem fyrst, en þetta er ekki bara
mál ráðuneytisins. Það eru fleiri
aðhar sem eiga hlut að máli og sem
verða einnig að fjaha um máhð.
Þannig er þetta ekki síður mál Al-
þingis þar sem lögin era svo óljós
hvað námsefniskostnað varðar."
Hrólfur sagði að ríkið teldi sig
leggja th námsefni í skyldunámi í
gegnum Námsgagnastofnun. Hins
vegar hafl komið upp tilfelli þar
sem kennarar hafa ekki viljað not-
að efni Námsgagnastofnunar. Þá
hafi foreldrar verið rukkaðir.
„Það er spuming hvort heimht
sé aö nota annað efni, en það má
líka líta á þetta frá þeirri hlið hvort
rétt sé að taka þann möguleika frá
foreldrum að bæta við námsefni
bamanna eöa hafa áhrif á það.
Málið er þannig tvíbent."
- Nú eru dæmi um að kennarar
hafa ekki talið sig geta notað náms-
efni frá Námsgagnastofnun. Bein-
ast þá ekki spjótin að þeirri stofn-
un?
„Vissulega. Þess vegna er verið
að biðja hana um áht á niðurstöðu
umboðsmannsins."
-hlh
Steingrímur Hermannsson:
Ritarbréf
til MHterrand
Steingrímur Hermannsson forsæt-
isráðherra hefur ritað Mitterrand
Frakklandsforseta bréf þar sem
óskar eftir að Mitterrand beiti áhrif-
um sínum til þess að framkvæmda-
stjórn Evrópubandalagsins verði
heimhað að ganga til samninga við
ísland um að tollar veröi felldir niður
af öhum útflutningi sjávarafurða ís-
lendinga til ríkja Evrópubandalags-
ins án þess að nokkrar kröfur verði
gerðar um aðgang að fiskimiðum ís-
lendinga.
Steingrímur vitnar í bréfinu til
ummæla Mitterrand, sem hann lét
falla á blaðamannafundi þegar hann
var hér á landi í ágúst. Þá sagði Mitt-
errand: „Mér virðist að viturlegast
væri að stefna að sérstökum samn-
ingi mhli Evrópubandalagsins og ís-
lands eða að öðrum kosti milli banda-
lagsins og EFTA-ríkjanna sex. Ég vil
taka fram að ísland hefur fullan
stuðning Frákklands í þessu máli.“
-sme
Ríkissaksóknari:
Niðurstaða væntanleg vegna
nauðgunarmálsins í Kópavogi
- máliðbráðlegasenttilSakadóms
Rannsóknarlögregla ríkisins sendi gömlum manni, Gísla G. Þórarins-
nýlega niðurstöður th ríkissaksókn- syni. Hann réðst grímuklæddur og
ara vegna nauðgunarmálsins við vopnaður hnífi að konunni og neyddi
Skemmuveg í Kópavogi í nóvember hana til samræðis við sig. Rannsókn-
á síðasta ári. Niðurstöðu er að vænta in stóð yfir í níu mánuði og játaði
í lok vikunnar hjá embætti ríkissak- maðurinn fljótlega eftir að óyggjandi
sóknara. Máhð verður síöan sent niðurstaða blóðrannsóknar, sem
Sakadómi Reykjavíkur þegar ákæra send hafði verið th Bretlands, lá fyr-
hefur verið gefin út. ir hjá RLR.
Játning hggur fyrir hjá 29 ára .pTT
Sjálfstæðismenn:
Lokað prófkjör í Reykjavík
Fuhtrúaráð sjálfstæöisfélaganna í
Reykjavík samþykkti að halda próf-
kjör fyrir komandi alþingiskosning-
ar. Á fundi í gærkvöldi var ákveðið
að hafa það dagana 26. og 27. október.
Prófkjörið verður lokað fyrir aöra
en flokksmenn en kosningarétt hafa
allir fuhghdir félagsmenn í sjálfstæð-
isfélögunum í Reykjavík. Einnig fá
þeir kosningarétt sem undirritað
hafa inntökubeiðni í eitthvert flokks-
félaganna fyrir lok kjörfundar.
Tillaga um opið prófkjör var fehd
og sömuleiðis thlaga um forval.
-SMJ
Grundarkjör:
Kærur og riftanir
Hjá rannsóknarlögreglu eru um
tiu kærar til rannsókna vegna gjald-
þrots Grundarkjörs. Ekki er vitað
hvenær rannsóknunum muni ljúka.
Kærumar lúta allar að hugsanlegum
undanskotum frá fyrirtækinu. Eins
og fram hefur komið í DV eru eignir
fyrirtækisins 30 th 40 mhljónir. Þær
samanstanda af lagerum, útistand-
andi kröfum og kjallaraíbúö við
Lindargötu í Reykjavík. íbúð eigin-
konu Jens Ólafssonar, aðalaeigenda
Grandarkjörs, er veðsett fyrir ein-
hverjum hluta skulda fyrirtækisins.
Grundarkjör skuldar á þriðja hundr-
að milljóna.
Hugsanlegt er að farið verði í rift-
unarmál við uppgjör búsins. Þá er
aðallega htið th ráðstafana á
greiðslukortanótum en þeim hafði
verið ráðstafað fram í tímann. Á-
kvörðun um það verður tekin á
skiptafundi sem haldinn verður í
næstamánuði. -Sme