Dagblaðið Vísir - DV - 20.09.1990, Síða 25
FIMMTUDAGUR 20. SEPTEMBER 1990.
33
Heimkeyrð gróðurmold til sölu. Sú
besta sem völ er á. Upplýsingar í
símum 91-666052 og 985-24691.
■ Húsaviðgerðir
Til múrviðgerða:
múrblöndur, fínar og grófar, hæg- og
hraðharðnandi, til múrviðgerða úti
sem inni.
Fínpússning sf., Dugguvogi 6, s. 32500.
Alhliða húsaviðgerðir, sprunguviðg.,
steypuskemmdir, þakrennur, sílan-
böðun, geri við tröppur, málun o.fl.
R. H. húsaviðgerðir, s. 39911.
Klæðum og gerum við þök, sprungu-
þéttingar og allar múrviðgerðir.
Smíða- og málningarvinna. Áhersla
lögð á vandaða vinnu. S. 22991. Stefán.
Litla dvergsmiðjan. Sprunguviðgerðir,
lekaviðgerðir, blikkrennur, blikk-
kantar, steinarennur, þakmálun
o.m.fl. Góð þjónusta. Sími 91-11715.
■ Parket
Til leigu parketslipivélar (eins og fag-
menn nota). Eukula parketlökk,
margar gerðir, Watco gólfolía, sand-
pappír og m.fl. til parketviðhalds.
Parketgólf hf., Skútuvogi 11, s. 31717.
Til sölu parket, hurðir, flísar, lökk'og
lím. Viðhaldsvinna og lagnir. Slípun
og lökkun, gerum föst tilboð. Sími
91-43231.
■ Nudd
Tek að mér nudd. Ef þú átt erfitt með
að komast að heiman þá get ég einnig
mætt á staðinn. Nánari uppl. og tíma-
pantanir í síma 91-76534.
■ Til sölu
Alltaf eitthvað nýtt. Verslunin Fislétt,
Hjaltabakka 22, kjallara. Opin frá kl.
13-18.
Kays-listinn.
Kays vetrarlistinn. Meiri háttar
vetrartíska, pantið jólafötin og -gjafir
tímanlega. Jólalisti á bls. 971. Listinn
er ókeypis. B. Magnússon, sími 52866.
Vörubílahjólbarðar.
•Ný afturdekk Nylon:
11.00x20/14 kr. 17.800.
• Ný framdekk Nylon:
10.00x12/14 kr. 16.700.
• Kaldsóluð dekk:
12 R 22,5 kr. 20.000
13 R 22,5 kr. 23.000
Barðinn hf.
Skútuvogi 2, Reykjavík
Símar: 91-30501 og 84844.
Drögum úr hraða ^
-ökum af skynsemi!
Smáauglýsingar
Jeppahjólbarðar frá Kóreu:
235/75 R15 kr. 6.950.
30/9,5 R15 kr. 6.950.
31/10,5 R15 kr. 7.950.
33/12,5 R15 kr. 9.950.
Örugg og hröð þjónusta.
Barðinn hf., Skútuvogi 2, Reykjavík,
símar 30501 og 84844.
■ Verslun
Arfax 1000 hágæðamyndsenditæki frá
Artek, 4 tæki í einu, símsvari, ljósrit-
unarvél, sími og telefax, klukkustýrð
sending, sjálfvirk móttaka, fjarstýrð
sending og móttaka, tvöfalt skammval
(100 minnishólf), sjálfvirkt endurval,
sjálfvirk villugreining o.m.fl. Heild-
sala, smásala. Karl H. Björnsson, sím-
ar 91-642218 og 91-45622 og fax 45622,
einnig á kvöldin.
Nýjar gerðir af sturtuklefum og hurðum
úr öryggisgleri. Á & B byggingavörur,
Bæjarhrauni 14, Hf., s. 651550.
Allar gerðir af
stimplum
Félagsprentsmiðjan, stimplagerð.
Spítalastíg 10, sími 91-11640,
ísfugl
Kaupið ódýra kjúklinga beint frá fram-
leiðenda. Isfugl hf., Reykjavegi 36,
Mosfellsbær, sími 91-666103. Sama
leiðin og að Reykjalundi.
Ódýrar jeppa- og fólksbilakerrur. Allar
gerðir af kerrum, vögnum og dráttar-
beislum. (Greiðslukjör). Opið alla
laugardaga. Veljum íslenskt. Vfkur-
vagnar, Dalbrekku, símar 91-43911 og
45270.
Skólagjöld við HÍ?
Rök gegn skólagjöldum hljöma eins
og sjálfsagðir hlutir. Þorri þjóðar-
innar vill jafnrétti til náms; hún er
á móti því að fjárhagur, búseta eða
aðrar félagslegar aðstæður ráði
úrshtum um það hverjir fái að læra
hér á landi.
Þessi atriði eru rifjuð upp hér því
að blikur eru á lofti. Fjárlög ríkis-
ins fyrir árið 1991 eru í farvatninu,
þ. á m. fyrir Háskóla íslands. í við-
ræðum háskólans við fulltrúa rík-
isins munu þeir síðarnefndu hafa
bent á skólagjöld sem tekjumögu-
leika fyrir skólann - væntanlega til
að létta undir með ríkissjóði.
Fyrst tók ég þessu sem hverri
annarri slúðursögu, óábyggilegum
orðrómi, enda um gjörbreytta
stefnu að ræða. Svo mun þó ekki
vera. Þá hugsaði ég með mér: Þetta
er ekki annað en að færa peninga
úr einum vasa í annan. Hlutverk
Lánasjóðs íslenskra námsmanna
er að tryggja jafnrétti til náms,
námslán hækka því í kjölfarið.
Vissulega er um lán að ræða en ef
skólagjöld bætast við eykst
greiðslubyrðin að námi loknu. Og
þetta verður sjóðnum erfitt - var
hann þó ekki burðugur fyrir. En
hugmyndir ráðamanna eru víst
ekki þær að LÍN komi við sögu.
Stúdentar eiga að greiða þetta úr
eigin vasa.
Ráðamenn geta ekki hafa hugsað
málið til enda.
Stúdentar taka því ekki
með þögninni
Námsmönnum er það ómögulegt
að taka þetta á sig. í sumarfríum
mega þeir hafa jafnmikið í laun og
þeir fá í námslán á jafnlöngu tíma-
bili yfir veturinn. Stúdent í leigu-
húsnæði getur því fengið ríflega
50.000 krónur á mánuði í laun áður
en lánið byrjar að skerðast. Þrjár
af hveijum fjórum krónum um-
Kjallarinn
Pétur Már Ólafsson
fulltrúi stúdenta í háskólaráði
af lista Röskvu, samtaka
félagshyggjufólks
fram það dragast frá. Námsmaður-
inn getur því ekki bjargað sér með
því að vinna meira yfir sumarið.
Peningar fyrir skólagjöldum eru
ekki gripnir upp úr grjótinu, þeir
verða a.m.k. ekki klipnir af láninu
sem er til framfærslu yfir veturinn.
Gamla sagan skyldi þá ekki endur-
taka sig: Þeir sem eru af efnameira
fólki komast í háskóla - hinir geta
étið það sem úti frýs. Og því taka
stúdentar ekki með þögninni.
Spurningar til ráðherra
Ég sé mig þess vegna knúinn til
að spyrja ráðherra mennta- og fjár-
mála hvort það sé virkilega rétt að
fulltrúar ríkisvaldsins hafi í við-
ræðum við HÍ um fjárlagatillögur
næsta árs komið fram með þá hug-
mynd að skólinn rukki nemendur
sína um skólagjöld? Er það stefna
,,Er það stefna ríkisstjórnar sem kenn-
ir sig við jafnrétti og félagshyggju að
hrinda þessu í framkvæmd eða var
þetta aðeins gamansemi embættis-
manna í samningaviðræðum?“
,,... hugmyndir ráðamanna eru
vist ekki þær að LÍN komi við
sögu,“ segir greinarhöf. m.a.
DV-mynd JAK
ríkisstjórnar sem kennir sig við
jafnrétti og félagshyggju að hrinda
þessu í framkvæmd eða var þetta
aðeins gamansemi embættismanna
í samningaviðræðum? Er það
stefna Alþýðubandalagsins að mis-
muna fólki á þennan hátt? Á að
koma á skólagjöldum við Háskóla
íslands?
Pétur Már Ólafsson
Rýmingarsala á eldri gerðum af sturtu-
klefum, hurðum og baðkarsveggjum.
Mikil verðlækkun. A & B, Bæjar-
hrauni 14, Hafnf., sími 651550.
Körfugerðin, Ingólfsstræti 16, Rvik.
Okkar vinsælu barna- og brúðukörfur
ávallt fyrirliggjandi. Körfugerðin,
sími
91-12165.
■ BQar til sölu
Vegna brottflutnings er til sölu Honda
Civic GL, 16 ventla, á sérstöku verði.
Bíllinn er rauður, með sóllúgu og á
álfelgum. Sumar- og vetrardekk, út-
varp/segulband fylgir. Uppl. í síma
91-39986 eftir kl. 19. Kristinn.
Wagoneer ’83 (Brougham) til sölu,
selec trac drif, upphækkaður, góð
dekk, bíll í góðu standi. Verð 1 millj.,
bein sala, skipti á ódýrari, skuldabréf.
Uppl. í símum 91-681666 og 91-611744
eftir kl. 19.
Úrval
■ Ymislegt
BF Goodrich sandspyrna Bílabúðar
Benna verður haldin sunnud. 23/9 á
bökkum Ölfusár við Eyrarbakka.
Keppni hefst kl. 14 en keppendur
mæti fyrir kl. 12. Skráning og nánari
uppl. eru í síma Kvartmíluklúbbsins
91-674530 eða 91-45731 á kv. Almennir
félagsfundir eru í félagsheimili akst-
ursíþróttafél. að Bíldshöfða 14 á
fimmtudagskv.
Vegna úthlutunar úr Framkvæmdasjóði
fatlaðra árið 1991
Vegna úthlutunar úr Framkvæmdasjóði fatlaðra árið
1991 óskar Svæðisstjórn málefna fatlaðra í Reykja-
vík eftirfarandi upplýsinga:
1. Yfirlits yfir stöðu þeirra framkvæmda í Reykjavík
sem ólokið er og úthlutað hefur verið til úr Fram-
kvæmdasjóði fatlaðra.
2. Sundurliðaðrar framkvæmdaáætlunar vegna ólok-
inna verkefna í Reykjavík og áætlunar um fjármögn-
un hvers verkefnis. Sérstaklega skal sundurliða hvern
verkáfanga fyrir sig og möguleika hvers fram-
kvæmdaaðila á fjármögnun til framkvæmdanna (þ.e.
•eigin fjármögnun eða önnur sérstök framlög).
3. Umsókna framkvæmdaaðila í Reykjavík um fé úr
Framkvæmdasjóði fatlaðra árið 1991.
Nauðsynlegt er að ofangreindar upplýsingar berist
Svæðisstjórn eigi síðar en 27. september nk.
Svæðisstjórn málefna fatlaðra í Reykjavík,
Hátúnl 10, 105 Reykjavík.