Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.1990, Blaðsíða 3
LAUGARDAGUR 22. SEPTEMBER 1990.
3
Fréttir
Byggingamefnd Þjóðleikhúss:
Fær ákúrur frá stjórn
opinberra innkaupa
Stjórn opinberra innkaupa hefur
sett ofan í við byggingarnefnd Þjóð-
leikhússins fyrir að hafa ekki efnt til
útboðs á smíði á stólum og tilheyr-
andi innréttingum í leikhúsið. Stjórn
opinberra innkaupa segir brýnt að
opinberir aðilar hagi innkaupum
sínum í samræmi við lög og reglu-
gerðir og segist vænta þess að starfs-
hættir byggingarnefndarinnar verði
ekki ráðandi í framtíðinni.
Eins og DV hefur skýrt frá þá hefur
stjórn Félags húsgagnaframleiðenda
skrifað byggingarnefndinn bréf og
óskað skýringa. Árni Johnsen, for-
maður byggingamefndar, sagði í
samtali við DV að ástæðan hefði ver-
ið annars vegar skammur tími og
hins vegar hefði könnun byggingar-
nefndarinnar bent til þess að einung-
is einn innlendur framleiðandi réði
við verkið. Þessu hafa forsvarsmenn
annarra fyrirtækja vísað á bug í
fréttum DV.
í samþykkt stjórnar opinberra inn-
kaupa segir að hún hafi kynnt sér
viðhorf byggingarnefndar og hús-
gagnaframleiðenda til málsins og
teiji „að hér sé um svo stór innkaup
að ræða að átt hafi að efna til út-
boðs, ef til vill að undangengnu for-
vali, meðal húsgagnaframleiðenda
áður en gengið var til samninga um
kaup á umræddum stólum.“
í samþykktinni segir einnig:
„Stjórnin telur brýnt að opinberir
Sjálfstæðisfélag ísaflarðar:
Pétur formaður
Formannaskipti urðu í Sjálfstæðis-
félagi fsafjarðar á aðalfundi félagsins
sem haldinn var á Hótel ísafirði á
fimmtudag í síðustu viku. Pétur H.R.
Sigurðsson mjólkurbússtjóri bauð
sig fram á móti Guðmundi Þórðar-
syni byggingaverktaka, sem verið
hefur formaður félagsins frá febrúar
1987.
Pétur var kjörinn formaöur með
35 atkvæðum á móti 28 atkvæðúm
Guðmundar. Sex seðlar voru auðir.
í stjórn voru kosin Herdís Þor-
steinsdóttir, Pétur Jónasson, Eiríkur
Böðvarsson og Bergmann Ólafsson.
aðilar hagi innkaupum sínum í sam-
ræmi við lög og reglugerðir þar að
lútandi og að almenningur í landinu
og bjóðendur telji réttlátlega að mál-
um staðið hvað varðar ráðstöfun á
opinberu fé og samkeppnisaðstöðu
bjóðenda. Stjórnin væntir þess að
þeir starfshættir, sem hér voru tíðk-
aðir af hálfu byggingarnefndar Þjóð-
leikhússins, verði ekki ráðandi viö
opinber innkaup í framtíðinni."
-gse
• •
A nœstu
dögum ...
... mun fjölda íslendinga
Derast rautt umslag í pósti.
Innihald þess markar
þáttaskil í
íslenskri tryggingasögu.
LI FTRYG1SIJ\GAFÉL4G
ÍSLAfSiDS HI’
----:—:-----------------y-
E0 VATRYGGINGAFELAG ISLANDS HF AÐ BAKHJARLI
iMÚLA SÍMI 60 50 60, PÓSTHÓLF 1400, 12! REYKJAVÍK ▼8W