Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.1990, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.1990, Blaðsíða 18
18 I.AUGARDAGUR 22. SKI’TEMBER 1990. Veiðivon __________________ Wathne-systur hvíldu stóru veiðiámar í sumar Það þótli nokkrum tíðindum sæta er fréttist fyrir skömmu að Wathne- systur hefðu ekki dýft færi í stóru laxveiðiámar hérlendis í sumar. En þetta hafa þær systur gert síðustu tíu árin með góðum árangri. Systurnar ætla þó að mæta vestur á firði og renna fyrir fisk. En sumarhús eitt eiga þær vestur á fjörðum og dvelja þar á haustkvöldum. Systumar Þó- mnn, Soffía og Bergljót skruppu þó til Noregs í byrjun sumars og renndu þar fyrir lax. En þar geta stærstu fiskamir verið um 40 pund. Kannski ekki svo mjög leiðinlegt að fá þessa boltafiska á fluguna. Eiríkur Stefán Eiríks- son ritstjóri Á veiðum Fyrir fáum dögum var Eiríkur Stef- án Eiríksson ráðinn ritstjóri Á veið- um, en hann hefur unnið mikið fyrir Fróða. Eirikur mun allavega verða risfjóri næsta blaðs þeirra Á veiðum, en ekki er vitað um framhaldið. Ei- ríkur er því fjórði ritstjóri blaðsins en á undan voru það Ólafur Jóhanns- son, Steinar J. Lúðvíksson og Þor- steinn G. Gunnarsson. Það er ekki beint hægt að segja að Á veiðum haldist vel á ritstjórum, en blaðið þeirra er væntanlegt í október. Af veiðitímaritamarkaðnum er annars það að frétta af fjórir ein- staklingar hafa ákveðið að gefa út tímarit um skotveiði eingöngu. Blaö- ið á að heita SKOTMARK og á víst að koma fjórum sinnum á ári. Sumir eru óheppnari en aðrir í veióinni Stangaveiðimenn em misheppnir eins og gerist og gengur. Af einum fréttum við sem er í hópi þeirra óheppnu. Vinur hans bauð honum í veiði en hann komst ekki, hann hafði Margir ungir veiðimenn fengu góða veiði í sumar og hér heldur Kolbeinn Friðriksson á failegum urriðum úr Hrauninu í Laxá í Aðaldal. lofað konunni berjatúr vestur á firði. Tíminn leið og beið, aftur átti að bjóða vininum í veiði og núna í enn- þá betri veiðiá en fyrr. En þá tóku verðurguðirnir í taumana og áin varð mórauð. Enginn kom niður færi í ána og vinurinn, sem ekki er búinn að fá nema „einn lax“ í sumar fór í Hvammsvík í Kjós. Þar fékk hann fimm silunga. -G.Bender Góða skapið getur skipt miklu málið þegar farið er í veiðitúra en veiðin er kannski ekki alltaf mjög mikil. DV-myndir G.Bernder og fleiri Of sterkt Bjarni heitinn Þórðarson var lengi bæjarstjóri í Neskaupstað, Hann var sósialisti fram í fingur- góma og fór <?kki dult með. Ein- hverju sinni bað læknir nokkur Bjarna um að gefa blóð. Féllst Bjami á það gegn því skilyrði að þaö færi í framsóknarmann. Kvaðst læknirinn mundu sjá til þess að svo yrði. Viku eftir blóð- gjöfina hitti Bjami lækninn aftur og spurði hvort blóðið úr sér hefði ekki örugglega farið í framsókn- armann. „Jú, blóöið úr þér fór í íram- sóknarmann," svaraði læknirinn 'fremur niðurlútur. „Þú heföir bara átt að sjá, Bjami minn, hversu manngreyið kvaldist stanslaust í þrjá daga, allt þar tii hann dó.“ Þaö þarf varla að taka fram að Bjami var ekki beðinn um aö gefa blóð eftir þennan atburð. Botnlanginn Fyrir mörgum árum gekk ungt par á Siglufirði upp fyrir bæinn, þeirra erinda að eiga góða stund saman. Er þau höfðu komið sér vel fyrir i vænni laut upphófst smáke- lerí en ekkert meira þrátt fyrir ít- rekaðar tilraunir piltsins tR að fá sinu framgengt. Er þau höfðu kelað í dáfítinn tíma spurði stúlkan: „Á ég að sýna þér hvar ég var skorin upp við botnlanganum í vor?“ „Já, endilega,“ svaraði piltur- inn og sá nú fram á „betri tíma“. „Þarna,“ sagði stúlkan og benti á sjúkrahúsið. Að missa fótanna Egill Jónsson hagyrðingur fylgdi eitt sinn heim konu sem eignast hafði barn í lausaleik en faðirinn var kvæntur embætt- ismaður. Er Egill hafði gengið góðan spöl með konunni hrasaði hann. Þegar hann hafði staðiö upp aftur valt þessi vísa fram af vörum hans: Að ég fljóði fylgdi á veg, flumbran gaf til kynna. Það hafa meiri menn en ég, misst þar fóta sinna. Finnur þú fímm breytingar? 73 Maðurinn minn á sér eldheitt áhugamál: Að rökræða pólitik! Nafn:........ Heimilisfang: Myndirnar tvær virðast við fyrstu sýn eins en þegar betur er að gáð kemur í ljós að á myndinni til hægri hefur fimm atriðum verið breytt. Finnir þú þessi fimm atriði skaltu merkja við þau með krossi á hægri myndinni og senda okkur hana ásamt nafni þínu og heimilisfangi. Að tveimur vikum liðnum birtum við nöfn sigurvegara. 1) Hitateppi fyrir bak og hnakka, kr. 3.900,- 2) Svissneska heilsupannan, kr. 2.990,- Vinningarnir koma frá Póst- versluninni Príma, Hafnar- firði. Merkið umslagið með lausninni: Finnur þú fimm breytingar? 56 c/o DV, pósthólf 5380, 125 Reykjavík Vinningshafar fyrir sjötu- gustu og fyrstu getraun reyndust vera: 1. Hlíf Andrésdóttir, Hlégerði 12, 200 Kópavogur. 2. Anna Jónsdóttir, Fellsmúla 18,108 Reykjavík. Vinningarnir verða sendir heím.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.