Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.1990, Blaðsíða 8
8
LAUGARDAGUR 22. SEPTEMBER 1990.
FRÚARLEIKFIMI
Frúarleikfimin í Langholtsskóla hefst þriðjudaginn
25. sept. Holl hreyfing er heilsubót.
Upplýsingar í síma 78082 i kvöld og næstu kvöld.
Kennari: Aðalheiður Helgadóttir.
íþróttahús Fjölbrautaskólans í Breiðholti
Loftræsikerfi
Tilboð óskast í gerð loftræsikerfis í iþróttahús Fjölbrautaskólans
í Breiðholtk Um er að ræða frágang þriggja blásarasamstæðna
og gerð loftræsistokka, sem alls eru um 7000 kg að þyngd. Verk-
taki skal leggja stjórnbúnað og tengja hann.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu Innkaupastofnunar ríkisins,
Borgartúni 7, 105 Reykjavík, gegn 10.000,- kr. skilatryggingu.
Tilboð verða opnuð á sama stað fimmtudaginn 4. október 1990
kl. 11.00.
INNKAUPASTOFNUN RIKISINS
BORGARTUNI 7. 105 REYKJAVIK
ÚTBOÐ
K^RARIK
RAFMAGNSVEITUR RÍKISINS
Rafmagnsveitur ríkisins óska eftir tilboðum í reisingu
á 113 staurastæðum í 66 kV háspennulínu milli Valla
við Hveragerði og Þorlákshafnar.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofum Rafmagns-
veitnanna, Gagnheiði 40, 800 Selfoss, Dufþaksbraut
12, 860 Hvolsvöllur, og Laugavegi 118,105 Reykja-
vík, frá og með fimmtudeginum 20. september 1990
og kostar kr. 700 hvert eintak.
Tilboðum skal skila á skrifstofu Rafmagnsveitna ríkis-
ins í Reykjavík fyrir kl. 14.00 miðvikudaginn 17.
október 1990 og verða þau þá opnuð í viðurvist
þeirra bjóðenda sem þess óska.
Tilboðin séu í lokuðu umslagi, merktu „RARIK-
90006 66 kV Þorlákshafnarlína. Staurareising".
Rafmagnsveitur ríkisins
Laugavegi 118
105 Reykjavík
Roðflettivélar frá
Hmhliðin
Sá færeyski með
húfuna bestur
- segir Ari Kristinsson kvikmyndagerðarmaður
„Við höfum fengið mjög góða aösókn á Pappírs-Pésa
um helgar en það var eins og við bjuggumst við. Hins
vegar er íslenskur markaður svo lítill að myndin getur
aldrei borið sig nema vera sýnd annars staðar í heimin-
um. Við höfum þegar selt hana til Þýskalands og Holl-
ands og eigum nokkuð góða von um að koma henni á
Bandaríkjamarkað," segir Ari Kristinsson kvik-
myndagerðamaður.
Ari hefur unniö það afrek að koma íslenskri barna-
mynd á hvíta tjaldið, mynd sem heillað hefur jafnt
fullorðna gangrýnendur sem börn á öllum aldri. Þó
er alltaf vissum vandkvæðum bundið að ráðast í svo
dýra framleiðslu hér á landi. Ari segir að þó að áhorf-
endur fari í fjörutíu þúsund náist tæplega fyrir helm-
ingi kostnaðar. Þess vegna er allt kapp lagt á erlendan
markað og hefur myndinni verið breytt örlítið í er-
lendu útgáfunni. Og vonin er góð því á heimsmarkaðn-
um er mikil eftirspurn eftir barnamyndum. Það er
Ari Kristinsson sem sýnir hina hhðina að þessu sinni.
Fullt nafn: Ari Kristinsson.
Fæðingardagur og ár: 16. apríl 1951.
Maki: Margrét Pálsdóttir.
Börn: Kristinn fæddur 1971 og Bergþóra fædd 1986.
Bifreið: Saab árg. 82.
Starf: Kvikmyndagerðamaður.
Laun: Ekki veit ég hvað maður á að segja þegar skuld-
in er 22 milljónir en óhætt er að fullyrða að þau eru
misjöfn.
Áhugamál: Það er tvímælalaust kvikmyndagerð en ég
hef unnið viö hana undanfarin tíu ár eingöngu.
Hvað hefur þú fengið margar réttar tölur í lottóinu?
Ég hef fengið þrjár tölur en ég spila með þegar ég er
alveg á heljarþröm.
Hvað fmnst þér skemmtilegast að gera? Mér fmnst
skemmtilegast að vinna við að gera bíómyndir. Um
þessar mundir er ég að vinna Böm náttúrunnar eftir
Friðrik Þór Friðriksson og hef nóg að gera.
Hvað finnst þér leiðinlegast að gera? AUt í sambandi
við bókhald og peninga og að leggja saman nótur.
Uppáhaldsmatur: Allur gamaldags matur finnst mér
góður, t.d. saltfiskur. '
Uppáhaldsdrykkur: Ætli það sé ekki bara vatn.
Hvaða íþróttamaður fmnst þér standa fremstur í dag?
Það er þessi færeyski markvörður með húfuna. Eg
fylgist ekkert með íþróttum en mér er þessi náungi
mjög minnisstæður.
Uppáhaldstímarit: Ég les aldrei tímarit og veit ekki
einu sinni hvað það er langt síðan ég sá slíkt blað síö-
ast.
Hver er fallegasta kona sem þú hefur séð fyrir utan
maka? Reyna ekki allir að leysa þessa spurninga án
þess að allt verði brjálað? - ég segi því bara að það sé
dóttir mín.
Ertu hlynntur eða andvígur ríkisstjórninni? Ég verð
að vera andvígur henni, hún vinnur markvisst að því
að leggja niður íslenska kvikmyndagerð í landinu.
Hvaða persónu langar þig mest að hitta? Mig langar
mest að hitta Chaplin.
Uppáhaldsleikari: Gísli Halldórsson.
Uppáhaldsleikkona: Sigríður Hagalín.
Uppáhaldssöngvari: Bubbi þegar hann er ekki að
syngja eigin lög.
Uppáhaldsstjórnmálamaður: Gorbatsjov.
Uppáhaldsteiknimyndapersóna: Tommi og Jenni.
Uppáhaldssjónvarpsefni: íslenskar bíómyndir en það
mætti gera meira að því að sýna þær í sjónvarpi.
Ertu hlynntur eða andvígur veru varnarliðsins hér á
landi? Þaö er dálítið skrýtin staða í heiminum og ég
er því hlynntur í dag.
Hver útvarpsrásanna finnst þér best? Ég hef verið úti
á landi í allt sumar og ekki heyrt neitt nema rás tvö
en mér hefur fundist hún ágæt.
Uppáhaldsútvarpsmaður: Bjarni Dagur.
Hvort horfir þú meira á Sjónvarpið eða Stöð 2? Álíka
lítið á báðar.
Uppáhaldssjónvarpsmaður: Vala Matt.
Uppáhaldsskemmtistaður: Ég fer mjög sjaldan á
skemmtistaði en ef ég fer er það helst Gaukur á Stöng.
Uppáhaldsfélag í íþróttum? Ég bý í Hafnarfirði svo
auðvitað er það FH enda er sonur minn í því félagi.
Stefnir þú að einhveiju sérstöku í framtíðinni? Já, að
gera fleiri bíómyndir.
Hvað gerðir þú í sumarfríinu? Ég hef ekki tekið sum-
arfrí í mörg ár enda eru bíómyndir yfirleitt teknar á
sumrin. En sl. vetur fór ég til Tékkóslóvakíu og það
varmjöggaman. -ELA
Uppáhaldsmatur _________________________
„Týpisknr" haustmatur
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
„Er ekki best aö ég gefi uppskriftir
að „týpiskum" haustmat“ segir Úlf-
hildur Rögnvaldsdóttir, bæjarfull-
trúi á Akureyri, sem leggur lesend-
um til uppskrift vikunnar að þessu
sinni. Bæði lax og gæs er mjög vin-
sæll matur á okkar heimili en það fer
nokkuð eftir því hversu duglegur
hósbóndinn er að veiða hvað þetta
er oft á borðum hjá okkur.“
Úlfhildur situr nú 9. árið í bæjar-
stjórn Akureyrar og er oddviti fram-
sóknarmanna á þeim vígstöðvum.
Hún segir að hún sé dálítið mikið að
heiman en á heimilinu hjálpist allir
að og eiginmaðurinn, Hákon Hákon-
arson, sem er formaður félags Málm-
iðnaðarmanna á Akureyri, fáist oft
við hversdagsmatinn. Hins vegar
komi þaö í hennar hlut að annast
matseldina þegar meira sé viðhaft.
Reyktur lax með
rækjufyllingu
„Þetta er mjög fínn forréttur og
auöveldur. Laxinn er skorinn í sneið-
ar, síðan lagað rækjusalat og haft
fremur þykkt. Það er síðan sett á
laxasneiðarnar sem er rúllað upp og
fest með pinna. Þetta er borið fram
með ristuöu brauði.“
Úlfhildur Rögnvaldsdóttir, bæjarfull-
trúi á Akureyri, mælir með laxafor-
rétti og fylltri gæs, sannkölluðum
hátíðamat.
Fylltgæs
Þyngd 3-4 kg
Steikingartími 3 klst.
Hiti 180-200 gráður
Núið hreina gæsina með salti.
Fylling
Blandið saman einni matskeið af
hökkuðum lauk og tveim af vatni.
Látið standa í tvær mínútur. Bræðið
'h bolla af smjöri og setjið laukblönd-
una út í ásamt eftirfarandi kryddi:
'A tsk. sellerísalt
'A tsk. salt
1 tsk. persille
pipar
'/2 tsk. salvía (sage)
1. tsk. poultry seasoning (krydd-
blanda)
'/3 bolli vatn
3 bollar brauðmylsna (ágætt aö nota
þurrt franskbrauð, malað í gróf-
mylsnu með kefli).
Þetta er látiö hitna á pönnunni og
hrært í þar til allt hefur blandast vel
saman en má þó ekki brúnast. Þegar
gæsin hefur verið fyllt með þessu og
saumuð saman eru leggendarnir
jafnaðir og bundnir saman, sömu-
leiðis vængbörðin. Leggið gæsina á
álþynnu, rúmlega tvisvar sinnum
lengd fuglsins. Bijótið þynnuna vel
saman svo hún verði loftþétt og soðið
renni ekki út. Setjið gæsina í
ofnskúffu í_heitan ofninn og gætið
hvort nokkurt gat er á álþynnunni.
Síðustu 20 mín. steikingartímans er
þynnan opnuð til að láta gæsina
brúnast og ausið yfir hana soðinu.
Búin er til venjuleg brún sósa úr
soðinu og gæsin borin fram með
soðnum kartöflum, grænmeti og rifs-
beijahlaupi. f
„Þetta er mjög góður matur, sann-
kölluö hátíðagæs,“ sagi Úlfhildur.