Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.1990, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.1990, Blaðsíða 22
22 LAUGARDAGUR 22. SEPTEMBER 1990. Páll Guðlaugsson, landsliðsþjálfari í Færeyjum: Strákar, látum þá fá hiksta - og þeir komust í heimsblöðin Einar Kristjánsson, DV, Færeyjum; Páll Guðlaugsson heitir hann. Margir hafa spurt að undanfórnu hver sá maður sé, eftir hinn eftir- minnilega sigur færeyska lands- liðsins á hði Austurríkis. Til að svala forvitninni heimsótti frétta- ritari DV í Færeyjum Pál kvöld eitt á meðan fárviðrið geisaði fyrir ut- an. Það var hann sem gerði Færeyj- ar heimsfrægar á einu kvöldi. Páll Guðlaugsson er fæddur í Reykjavík 9. september 1958 og er því 32ja ára gamah. Faðir hans er Guðlaugur Sveins- son frá Reykjavík og móðirin Ingi- björg Sigurðardóttir, sem ættuð er úr Húnavatnssýslu en þau búa í Reykjavík. „Ég var níu ára þegar fjölskyldan flutti til Vestmannaeyja. Við bjugg- um 1 Eyjum þegar gaus og ég vann viö að hreinsa bæinn dagana eftir það. Árið 1976 byrjaði ég að þjálfa hjá íþróttafélaginu Tý í Vestmannaeyj- um og hef spilaö með öllum flokk- um félagsins," segir PáU. „Mér fannst atvinnuástandiö ekki lofa góðu áriö 1978 og tók þá ákvörðun um að flytja til Færeyja. Ég fékk samning við skipasmiðju og út- skrifaðist árið 1981 sem skipasmið- ur.“ Færeysk eiginkona Páll kynntist eiginkonu sinni, færeyskri blómarós, Maigun Sol- munde, eftir að hann kom hingað og eiga þau einn son, Ómar, sem er níu ára. Þau hjónin búa í Götu og þar reka þau eigin íþróttavöru- verslun. Það var árið 1984 sem Páll fór að blanda sér í færeyska knattspyrnu en þá byrjaði hann að æfa og keppa með GI frá Götu. Síöan þá hefur hann ekki stoppað. Páll tók að sér að þjálfa EB frá Eiði sem spUaði þá í þriðju deUd. Einnig þjálfaði hann 6. flokk hjá EB og varö liðið í fyrsta skipti Færeyjameistarar í þessum flokki. „Árið 1988 flutti ég mig yfir tíl ÍF úr Fuglafirði og komumst við sama ár í úrsht í bikarkeppninni. Sama ár tók ég að mér þjálfun færeyska landshösins. Við spUuðum okkar fyrsta leik innan FIFA og UEFA gegn íslandi á Akranesi og töpuð- um með einu marki gegn engu,“ segir Páll ennfremur þegar hann rifjar upp feril sinn. Þess má geta að Færeyingar hafa aldrei unnið íslendinga í fótbolta. „Á Eyjaleikunum árið 1989, sem fram fóru í Færeyjum, unnum við aUa leUú okkar og hlutum guhverö- laun.“ Páh og félagar endumýjuðu samning sinn við Fótboltasam- bandið á þessu ári en hann er ekki tímabundinn. - Páh var einn af frumkvöðlum að þátttöku Færeyinga í Evrópu- keppni landshða. Mikil gagnrýni - En hvemig er að þjálfa færeyska Uðið? „Það er mjög erfitt. Liðsmennim- ir búa um aUar eyjar og því er mjög erfitt að safna þeim saman til æf- inga. Þeir vinna aUan daginn og Páll Guðlaugsson, landsliðsþjálfari Færeyinga, og eiginkonan, Maigun Solmunde, færeyska blómarósin. DV-mynd EK Á úrslitastundu. Páll æpir að leik- mönnum sínum í leiknum fræga gegn Austurrikismönnum sem gerði Færeyinga heimsfræga á einu kvöldi. Mynd; Dimmalætting Þetta er ekki tekið á Ólafsvöku heldur þegar landsliðsmenn Færeyinga komu heim úr sigurför sinni. Fánar blöktu og sérstök hátiðarstemmning rikti i bænum. þurfa svo að ferðast upp í tvo og hálfan klukkutíma til þess að kom- ast til Þórshafnar að æfa. Við get- um aldrei æft lengur en einn og hálfan tíma í einu af þessum sök- um. Þá getum við ekki spUað um helgar því að strákarnir þurfa hvíld fyrir deildarleikina á sunnu- dögum.“ - Þú varst gagnrýndur mjög mikið fyrir Evrópuleikinn. Veistu hvers vegna það var? „Gagnrýni er góð ef hún á rétt á sér. í fótboltanum geta aldrei aUir verið sammála um það liö sem spU- ar hveiju sinni.“ - Hvaða möguleika tölduð þið ykk- ur eiga gegn Austurríkismönnum? „Ég var sannfærður um að við ættum góða möguleika á jafntefli eftir að ég sá leik hjá þeim á móti Svisslendingum þar sem þeir töp- uðu.“ - Hvað brýndir þú helst fyrir Uðs- mönnum áður en þeir héldu á vöU- inn? - Ég sagði: „Strákar, látum Hic- kensberger fá hiksta í leiknum." - Hverju þakkar þú þessi úrsUt? „Ef ég á að segja eins og er þá held ég að austurríska liðið geti ekki orðið betra en það er í dag. Við vorum ákveðnir í aö láta þá Heimkoman var góö og allir bæj- arbúar þyrptust að hinum frægu knattspyrnuköppum. Hér veifar Páll blómaskreytingu sem lands- liðið fékk við komuna heim. hafa fyrir þessu. Daginn fyrir leik- inn fóru þeir austurrísku til Dan- merkur að horfa á leik Dana á móti Wales. Þá gáfu þeir þá yfirlýs- ingu að þeir þyrftu ekki að spila leikinn við Færeyinga því að hann væri unninn fyrirfram. Meðal ann- ars sagði þeirra besti maður, Post- er, (metinn á 700 millj. kr.), að þeir myndu sigra minnst tíu/núll. Við fengum hins vegar mjög góðan tíma saman fyrir leikinn. Fyrstu og annarri deild var frestað helgina áður en leikurinn átti að vera. Viö gátum þvi farið hingað laugardag- inn fyrir leikinn og þjáúfað alla helgina. Á þriðjudeginum gaf ég þeim svo frí,“ heldur Páll áfram. Bjartsýnir á næstu leiki Margar skemmtilegar greinar hafa verið í erlendum blöðum um sigur Færeyinga. Til dæmis sagði Roger Gottfridsson, ritstjóri sænska blaðsins Arbete: „Ingen, och alra minst osterrikarna gav faroarna storre chans en snoboll i helvete ...,“ og þýði sá sem þýða vill. - Þann 10. október eigið þið að spila á móti Dönum í Idrædtspar- ken í Kaupmannahöfn. Hveiju áttu von á þar? „Danska liðið er örugglega miklu sterkari en það austurríska. Áhugi okkar minnkar ekki við það og við ætlum að vinna leikinn. Ég reikna þó með að það verði skemmtilegur en erfiður leikur. Strákarnir bera ekki neina sérstaka virðingu fyrir Dönum eftir ummæli þeirra um færeyska liðið þar sem Michael Laudrup sagði meðal annars: Júgo- slavar verða erfiðir, Austurríkis- menn geta orðið erfiðir heima, það sama er um N-íra en við tölum ekkert um Færeyinga. Um úrslitin vil ég ekkert segja en ég get lofað því að markataflan springur ekki eins og Danir hafa lofað,“ segir Páll. Þess má geta að dómarinn verður íslendingurinn Guðmundur Haraldsson. Virða íslenska knattspyrnumenn „Annars eru margir leikir fram- undan hjá okkur. í apríl spilum við á móti Tyrkjum og í maí spilum við tvo leiki í Evrópukeppnini. Næsta sumar tökum við svo þátt í smáþjóðakeppni þar sem ísland verður meðal þátttakenda.“ Páll telur langt í að Færeyjar vinni ísland í fótbolta. Hann segir að Færeyingar beri mikla virðingu fyrir íslenskri knattspyrnu. - Hvað finnst þér um leikinn sem Færeyingar og íslendingar léku í Færeyjum í ágúst? „Það var góður leikur. En ég held að íslendingamir hafi verið heppn- ir aö sleppa með sigur. Jafntefli hefði verið sanngjarnt, að mínum dómi.“ - Hvernig er íþróttaandinn hér í Færeyjum? „í fótbolta er hann alveg ótrúleg- ur. Hér búa um það bil 47.000 manns og 5.300 eru skráðir í fót- boltafélögin hér. Að auki eru 5 deildir í meistaraflokki karla þar sem fjórðu og flmmtu deildum er líka skipt í riðla.“ Enginn grasvöllur - Hvernig stendur á því að þið völduð að spila í Landskrona en ekki í Reykjavík eins og ykkur var boðið? „Viö getum ekki spilað heima- leiki í Færeyjum vegna þess að við höfum ekki grasvöll. Ástæðan fyrir því að við völdum Landskrona er sú að um það bil 20.000 Færeyingar búa í Danmörku og þvi auðvelt fyr- ir þá að ferðast á milh Danmerkur og Svíþjóðar. Ástæðan fyrir því að við fórum í þessa keppni var fyrst og fremst sú að viö vildum fá alþjóðlega reynslu í fótbolta og stokka upp í yngri flokkunum. Einnig gerum við okk- ur vonir um að fá fjárhagslegan ávinning úr þessu. Þeir sem stóðu að þessu þorðu að taka áhættu og höfðu trú á liðinu, sérstaklega var þaö Torleif Sigurðsson formaður, Fótboltasambands Færeyja, sem barðist eins og ljón fyrir þessu.“ - Að lokum, Páll, ætlar þú ekki aftur heim tilTsIands? „Nei, það hef ég ekki hugsað mér. Við hjónin vorum á Akureyri í eitt ár og þráðum það heitast að komast aftur hingað til Færeyja. Hér er miklu betra að vera og auk þess eigum við verslun hér í Götu sem gengur mjög vel.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.