Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.1990, Blaðsíða 5
LAUGARDAGUR 22. SEPTEMBER 1990.
5
Fréttir
EFTA og EB-viðræðumar:
íslendingar vilja
tíu undanþágur
Samkvæmt leynilegu plaggi, sem
dagblaöið Dagens Nyheter í Svíþjóö
birti, hafa íslendingar gert tíu kröfur
um undanþágur frá lögum og reglu-
gerðum Evrópubandalagsins í við-
ræðum EFTA-ríkjanna við bandalag-
ið. Undanþágukröfur íslendinga eru
fleiri en Svía, Finna og Austurríkis-
manna en færri en Norðmanna og
Svisslendinga sem gera kröfur um
undanþágur frá 16 atriðum.
Blaðið íjallar ekki ítarlega um und-
anþágukröfur íslendinga. Sam-
kvæmt flokkun þess hafa Islendingar
sett fram kröfur um undanþágur frá
lögum bandalagsins um matvörur,
áburðarefni, hættuleg efni, umhverf-
ismál, útblástur bíla, beinar fjárfest-
ingar útlendinga og fasteignakaup,
ijarskipti og sjónvarps- og útvarps-
sendingar og frjálsan vinnumarkað.
Jón Baldvin Hannibalsson hefur
staðfest að íslendingar hafi lagt fram
kröfur um undanþágur í tíu liðum.
Þær munu hins vegar vera mismikil-
vægar.
Það er einkum tvennt sem er ófrá-
víkjanlegt af íslands hálfu; annars
EHraður
kræklingur
í umf erð
Um 300 Frakkar hafa fengið slæma
magakveisu með tilheyrandi niður-
gangi eftir að hafa borðað niðursoð-
inn krækling frá Limafirði í Dan-
mörku. Hefur sérstakt þörungaeitur
fundist í kræklingnum. Unnið hefur
verið að innköllun Limafjarðar-
kræklings af mörkuðum í Frakk-
landi, Vestur-Þýskalandi, Austur-
ríki, Sviss og Ítalíu.
Danska sjávarútvegsráðuneytið
hefur innkallað fjölda vörumerkja
og lokað kræklingasvæðum í vestan-
verðum Limafirði á Jótlandi. Sam-
kvæmt upptalningu frá ráðuneytinu
virðist aðallega um að ræða krækl-
ing settan á krukkur og dósir
snemma í ágúst. Meðal vörumerkja,
sem varað er við, eru Limfjord, Lund,
Dronning Naturel, Officer naturel,
Vemu DK naturel og Marina.
Samkvæmt upplýsingum frá ís-
lenskum söluaðilum kræklings frá
Limafirði er minni hreyfing á þessari
vöru hérlendis. Er kræklingur frá
Limafirði, sem finnst í hillum ís-
lenskra verslana, settur fyrr á
krukkur og dósir en eitraði krækl-
ingurinn og mun því vera hættulaus.
-RB/hlh
Flugleiðir:
um
6% hækkun á
innanlands-
fargjöldum
Flugleiðir hafa lagt inn beiðni til
Verðlagsráös um 6% hækkun á far-
gjöldum innanlands vegna hækk-
unar á ílugvélaeldsneyti. Einnig fara
þær fram á sams konar hækkun á
farmgjöldum innanlands af sömu
ástæðum.
Einar Sigurðsson, blaðafulltrúi
Flugleiða, sagði í samtah við DV í
gær að vegna hagstæðra innkaupa
hafi verið hægt að afstýra háekkun-
um til 1. október. Vegna þess að hluti
af rekstrarkostnaði innanlandsflugs-
ins er í dollurum er hækkunarþörfin
núna minni en eldsneytishækkanir
einar gefa tilefni til.
Nú stefnir í 120 milljón króna halla
í rekstri á innanlandsflugi í ár.
-hge
vegar að útlendingum verði ekki
leyft að fjárfesta í íslenskum sjávar-
útvegi og hins vegar að þeir hafi ekki
ótakmarkaðan aðgang að fiskimið-
unum. Önnur atriöi eru umsemjan-
leg og má túlka undanþágukröfur
íslendinga fyrst og fremst sem ósk
um aðlögunartíma.
-gse
#SUMDAKAFFI V/SUNDAHÖFN
Sími: 56520
Höfum opnað
nýjan matsal
í vesturenda
hússins
m/ölkrá.
Allar veitingar.
Matseðill laugardaginn 22.9.
Rjómalöguð sveppasúpa
Roast beef með beamaisesósu og bökuðum
kartöflum. Verð kr. 1.150,-
Steikt smálúðuflök í grænpiparsósu.
Verð kr. 850,-
Opið
föstudaqa
18-01
laugardaga
18-01
Þjónað til borðs, þú heyrir bara Ijúfa, lága tónlist
Sundakaffi - ölkrá - bar - Sundahöfn
Nú opnast
ný Sparileið!
Góður kostur fyrir þd sem eru vel d veg
komnir í sparnaði!
Sparileiö 4 býbur hœstu vexti innan Sparileibanna!
Meö tilliti til þeirrar staöreyndar aö engir tveir sparifjáreigendur eru eins
er Sparileiö 4 í rökréttu framhaldi af öörum Sparileiöum íslandsbanka. Þar bjóöast
hæstu vextir innan Sparileiöanna, enda erféö bundiö í a.m.k. 24 mánuöi.
Reikninaurinn er verötryaaöur oa ber 6% vexti.
SparUeib 4 býbur vaxtatryggingu á bundib fé!
Vextirnir eru endurskoöaöir á sex mánaöa fresti. Þaö veitir eigendum
reikninganna ákveöna vaxtatryggingu, því vextirnir haldast óbreyttir í sex
mánuöi í senn.
SparUeib 4 er opin til úttektar tvo mánubi á ári!
Sparíleiö 4 er einföld og reikningurinn er opinn til úttektar tvo mánuöi á ári,
íjanúarog júlí, svo fremi aö binditími reiknipgsins sé oröinn a.m.k. 24 mánuöir.
Láttu tímann vinna meö þér og kynntu þér vel nýju Sparileiöina frá
íslandsbanka, Sparileiö 4.
Þú getur hringt eftir leiöarvísi eöa komiö á nœsta afgreiöslustaö
til skrafs og ráöageröa viö starfsfólk bankans.
ISLANDSBANKI
- í takt við nýja tíma!
Sparileiðir Islandsbanka - fyrir fólk sem
fer sínar eigin leiðir í sparnaði!