Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.1990, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.1990, Blaðsíða 17
LAUGARDAGUR 22. SEPTEMBER 1990. 17 Heimuriim og ég Landsliðs- maður Ljósmyndari Megas Pétur Pétursson. Heimurinn er svo undarlega smár, fmnst mér, stundum ekki stærri en ísland, eöa stofan heima, og heimsviðburðir svoaðsegja hversdagslegir, rétt éinsog rigning- in, og það gerðist fyrir ekki margt löngu að tvö heimsveldi, á lands- vísu, hittust... á ljósmyndastofu, af öllum stöðum í heiminum, tveir menn, sem hvert mannsbarn frá Fossvogi til Fáskrúðsfjarðar þekk- ir, einsog foður sinn, í sjón að minnsta kosti. Þeir eru: Pétur Pétursson; sem hefur spil- að fótbolta í heiminum í íjölda ára, hér heima og erlendis, og hefur síð- ustu ár farið fyrir svarthvítu leik- mönnunum vestur í bæ, án þess þó að hampa bikar á landsmæli- kvarða. Megas; sem hefur sungiö um hvaðeina milh himins og jarðar, hér heima, í áratugi, Um óheppi- lega fundvísi Ingólfs Arnarsonar, Síra Sæma & Guðmund J, og nú síðast um alíslensku hríðina sem er ævinlega í fangið. Sagan bakviö stundina, þegar þessi tveir allsólíku menn hittust, er stutt, og svohljóðandk.Pétur Pét- ursson komst í læri hjá atvinnuf- ljósmyndara fyrir allnokkru og Pétur, sem hefur svoaðsegja alla tíð hlustað á Megas, og á allar plöturn- ar hans, var beðinn um að mynda manninn, sem mætti á tilskildum tíma, og baö landsliösmanninn um djúpíusa ljósmynd sem myndi engu að síður sýna sig íbygginn og glaö- an. Viti menn; utaná plötu Megasar, sem kom út nýverið, þar sem hann er í félagsskap Hættulegrar hljóm- sveitar og Glæpakvendisins Stellu, Umsjón Þorsteinn Vilhjálmsson er hann sjálfur, á svarthvítri ljós- mynd eftir Pétur Pétursson lands- liðsmann, svolítið djúpíus, svolítið íbygginn og óútreiknanlegur til augnanna, einsog alltaf. Ertu ánægður meö myndina af Megasi, spyr ég landsliðsmanninn og ljósmyndarann Pétur Péturs- son. „Jújújú. Svona sannarlega," svarar hann og segist hafa hug á að horfa meira á heiminn gegnum auga ljósmyndavélarinnar, eftir að tíminn hefur flautað til leiksloka, í lífi hans sem fótboltamanns. Megas. h 1 *l f Tímarltfyrlralia *P| fflliFwal - verðið heftir lækkað RAÍBW $ SAMBANDSINS HOLTAGÖRÐUM SÍMI 68 55 50 VID MIKLAGARÐ & KAUPFÉLÖGIN (SauknBEht ÞÝSK GÆÐATÆKIÁ GÓÐU VERÐI ÍSLENSKA SJÁVARÚTVEGSSÝNINGIN, sem nú er haldin í þriðja sinn í Laugardalshöll, hefur fest sig í sessi sem alþjóðleg stórsýning á sviði sjávarútvegs. Sýningin í ár verður glæsilegri en nokkru sinni fyrr og er von á þús- undum gesta hvaðanæva að úr heiminum. Á 10 þúsund fermetra rými munu á fimmtahundrað íslenskra og er- lendra sýnenda kynna allar helstu nýjungarnar í veiðum, vinnslu og markaðssetningu sjávarfangs. Á meðan sýningin stendur yfir bjóða Flugleiðir sérstakan afslátt á innanlandsflugi fyrir sýningargesti utan af landi. Nánari upplýsingar fást hjá ferðaskrifstofum, sölumönnum og umboðsmönnum um land allt. _ ___ FLUGLEIDIR

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.