Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.1990, Blaðsíða 7
LAUGARDAGUR 22. SEPTEMBER 1990.
.7
Fréttir
Sorphaugamir á Dalvik:
Þetta er eins
oghjáskratt-
anum sjálf um
- segir Birgir Þórðarson hjá Hollustuvemd ríkisins
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
„Sveinbjörn Steingrímsson bæjar-
tæknifræðingur sagði í viðtali við
ykkur á DV að það væri allt í lagi
með ástandið á sorphaugunum á
Dalvík, en það er nú eitthvað ann-
að,“ segir Birgir Þórðarson hjá
Hollustuvernd ríkisins vegna frétt-
ar DV í vikunni um ástandið á
sorphaugunum á Dalvík.
„Það mætti halda eftir orðum
Sveinbjöms að ástandiö væri í lagi
þarna en svo er aldeilis ekki, þetta
er eins og hjá skrattanum sjálfum.
Ég var þarna á ferðinni 5. septemb-
er og eftir þá heimsókn hef ég skrif-
að skýrslu til heilbrigðisnefndar
þar sem segir m.a.:
„Að lokum var sorpeyðing Dal-
víkur og nágrennis skoðuð. Allt var
hér í megnasta ólestri, sorp-
brennsluþróin er ekki í notkun
vegna grjótnáms við hana sem er
væntanlega tímabundið meðan
unnið er við vegaframkvæmdir við
Ólafsfjarðarmúla. í engu er farið
eftir ákvæðum starfsleyfis, öll
ákvæði í starfsleyfinu em brotin,
rusli er varpað fram af háu barði
við haugana, síðan kveikt í en eitt-
hvað er urðað. Alls konar úrgangur
er á víð og dreif um allt svæðið
neðan barðsins. Hreinsa þarf til
þarna og fara eftir ákvæðum
starfsleyfis. Einnig þarf að endur-
skoða starfsleyfið með tilliti til of-
anritaðs, sérstaklega vegna hættu-
legra efna og möguleika á endur-
vinnslu úrgangs. Aberandi eru allt-
af þarna plasttunnur og plastílát
sem eru oft úti um al _, líklega úr-
gangurfrá Sæplast' V. á Dalvík...“
Tímabundið ástand
„Það er tímabundið ástand að
þróin er ekki í gangi en það er
vegna hafnarframkvæmda,“ segir
Sveinbjörn Steingrímsson, bæjar-
tæknifræðingur á Dalvík, en eftir
honum var haft í DV að hann teldi
þessi mál ekki í miklum ólestri hjá
Dalvíkingum.
„Birgir segir að allt sé í megnasta
ólestri en ég vil ekki taka undir
það. Það má hins vegar alltaf gera
betur en við erum með tímabundið
ástand þarna núna. Hins vegar
reynum við að urða þarna eins oft
og hægt er en það ekki hægt að
vera með tæki þarna stanslaust.
Hvað snertir tunnur o.þ.h. frá Sæ-
plasti segi ég það að við verðum
að taka við þessum úrgangi og urð-
um hann af og til,“ sagði Svein-
björn.
ISSAN
MICRA
EKKI BARA FALLEGUR OG ÞÆGILEGUR
HELDUR EINNIG NÍÐSTERKUR OG ÖRUGGUR
Rúmgóður og bjartur og auðvelt að
leggja í stæði.
Fjögurra strokka
hljóðlát og aflgóð.
Þríggfa ára ábyrgð.
vél, sparneYtín,
Ingvar
Helgason hf.
Sævarhöfða 2
sími 91-674000
Seðlabankinn:
Ræðum
„Það vill enginn ræða við þig um
fréttina í DV, allavega ekki í dag,“
sagði ritari bankastjóra Seðlabank-
ans þegar blaðamaður hringdi þang-
að í gær til að fá viðtal viö Jóhannes
Nordal, Tómas Árnason eða ein-
hvern annan yfirmann í Seðlabank-
anum vegna fréttar í DV í gær þar
sem sagt er frá manni sem keypti
ríkisvíxla fyrir 32 milljónir. Eins og
kom fram í fréttinni greiddi maður-
inn fyrir með ávísun frá gamla Út-
vegsbankanum. Aðeins um 600 krón-
ur voru inni á ávísanareikningnum
sem ávísunin tilheyrði.
Ritari bankastjóranna sagði það
ekki sína ákvörðun að ekki yrði rætt
við DV. Hún sagði þetta innanhúss-
ákvörðun sem hefði verið tekin eftir
að starfsfólk bankans fékk blaðið í
hendur og hafði lesið fréttina.
í umræddri frétt var einnig greint
frá því að maöurinn, sem keypti víxl-
ana, hefði skilað þeim aftur og fengið
í þeirra stað ávísun frá Seðlabankan-
um upp á 32.076.625 krónur.
Máfið er til meðferðar í Sakadómi
Reykjavíkur. Búið er að yfirheyra
manninn sem keypti víxlana en hann
er ákærður fyrir fjársvik ásamt eig-
inkonu sinni. Eftir er að yfirheyra
þá starfsmenn Seðlabankans sem
hlut áttu að þessum sérkennilegu
viðskiptum.
-sme
Björn sljórnar
tveimur ráðu-
neytum
Forseti íslands hefur veitt Páli
Flygenring, ráðuneytisstjóra í iðnað-
arráðuneytinu, lausn frá störfum frá
og með 1. október. Hefur Birni Frið-
finnssyni, ráðuneytisstjóra í við-
skiptaráðuneytinu, verið. falið að
veita jafntramt iðnaðarráðuneytinu
forstöðu frá sama tíma.
_ -hlh
LEIKFIMI - FÓTBOLTI
ÞREKTÆKI - BADMINTON
LEIKFIMI FYRIR HRESST FÓLK Á ÖLLUM ALDRI
Mánud. og miðvikud. kl. 18.00 0918.50. Laugard. ki. 9.40 0910.30. LÉIKFIMIFVRIR
KONUR þriðjud. og fimmtud. kl. 14.00 og laugard. kl. 9.40 og 10.30.
HVAÐ HENTAR ÞÉR?
VID HÖFUM SALINA,
LEIÐBEINANDI: Katrin Þorbjbrnsdóttir
LEIGJUM ÍÞRÓTTASALINA FRÁ KL. 7 Á MORGNANA.
★ Fótbolti
★ Handbolti
★ Körfuboltl
Tímar lausir til kl. 16.00. Hontar vel fyrir vaktavinnufðlk og þá sem vinna á kvtíldin.
Eigum auk þess nokkra lausa tíma á föstudagskvöldum.
Getum útvegað kennara fyrir sérhópa.
BADMINTONTÍMAR
Eigum nokkra lausa tima um helgar og fyrir kl. 164)0 vkrka daga.
MÁNAÐARKORT Í T/EKJASAL AÐEINS KR. 1900.
Fyrlr 3 mánuði kr. 5.400. Lelðbeinandl: Ásdis Sigurðardðttir,
fyrrv. Islandsmeistari I vaxtarrækt.
★ Blak
★ Badminton
★ Skallatennis
★ Leikfimi
★ Gufuböð
★ Lyftingar í sérstök-
um tækjasal
★ Eða þú getur búið
til þina eigin
iþróttagrein
HRINGDU STRAX. TOKUM NIDUR PANTANIR UM HELGINA.
TRYGGDU ÞÉR TÍMA í SÍMA 672270. GULLSPORT VIO GULLINBRÚ.