Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.1990, Qupperneq 15

Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.1990, Qupperneq 15
LAUGARDAGUR 22. SEPTEMBER 1990. 15 Vargöld á vegunum Á hverju einasta ári eru tugir íslendinga drepnir. Vanmáttugar tilraunir þjóöfélagsins til þess að hindra blóðfórnirnar á vegum landsins skila engum árangri, enda er oftast tekið á skaðvöldunum með silkihönskum og þeim sleppt refs- ingahtið eða jafnvel refsingalaust út á vigvöh umferðarinnar á nýjan leik. Tala þeirra sem láta lífiö á vegun- um er nokkuð svipuð frá ári til árs. Yfirleitt er um að ræða tuttugu og fimm til þrjátíu mannslíf á ári. í fyrra féllu fil dæmis þrjátíu ís- lendingar á vígvelli umferðarinn- ar. Þijátíu og þrír árið 1988. Tutt- ugu og sex árið 1987. Og tuttugu og fimm áriö 1986. Á hverjum áratug er þannig fóm- að hátt í þrjú hundruð íslending- um. Þrjú hundruð fjölskyldur missa einhvern sinna nánustu al- gjörlega að óþörfu vegna kæruleys- is, tilhtsleysis og sinnuleysis öku- manna og þjóðfélagsins. Margfalt fleiri verða fyrir líkam- legum og andlegum meiðslum í umferðinni, hljóta örkuml sem gera þeim ókleift að lifa eðlilegu hfi og njóta hæfúeika sinna. í mörg- um tilvikum er um að ræða svo alvarlegar misþyrmingar að jafna má við manndráp. Er ekki mál að þessu blóðbaði hnni? Er ekki tímabært að stjórn- völd tryggi með stórauknu eftirliti og leiðsögn að lögum landsins sé fylgt í umferðinni? Er ekki tími til kominn að ökumenn séu gerðir ábyrgir voðaverka sinna? Silkihanskar Það er yfirleitt tekið með silki- hönskum á þeim sem stórslasa eða drepa samborgara sína ef vopnið er bíll en ekki byssa, hnífur eða barefh. Þegar um gróf tilvik er að ræða fá þeir þó stundum fangelsisdóm en hann er þá að mestu eða öllu leyti skilorðsbundinn. Eftir nokkra mánuði eru þessir menn gjaman komnir með ökuskírteini á ný og þar með út í umferðina. Það er glæpsamlegt athæfi þegar drukkinn maður sest undir stýri og fer að aka bíl sínum um götum- ar ölvaður. íslenskir ökumenn fremja þetta alvarlega afbrot í þús- undir skipta á hverju ári. Stundum eru þeir teknir og sviptir ökuleyfi um sinn. Fljótlega er þeim þó sleppt út á vegi landsins á ný. Þúsundir ökumanna þverbijóta ákvæði um hámarkshraða í um- ferðinni. Eitt árið voru hátt í tvö þúsund þeirra teknir fyrir of hrað- an akstur í Árnessýslu einni. Þar sem lögreglan hefur ekki eftirht með umferðinni aha daga og nætur er ljóst að hér var einungis um að ræða lítinn hluta þeirra sem í reynd brutu gegn landslögum að þessu leyti í þessari einu sýslu landsins. Geta menn þá gert sér í hugarlund brotatíðnina á landinu öllu. Og þá er ekki verið að tala um ökumenn sem fara fimm til tíu kíló- metra fram yfír hámarkshraðann: Þessir ökufantar þeysa gjarnan á 120 til 150 kílómetra hraða. Séu hraðakstursmenn á annað borð teknir og sviptir ökuleyfi þá er það einungis um stundarsakir. Fljótlega eru þeir komnir á fleygi- ferð á nýjan leik. Ómenning Sú tíð er löngu liðin að bíllinn sé lúxusvara. Hann er nauðsyn í nú- tímasamfélagi hvort sem mönnum líkar betur eða verr. Stundum er talað um umferðar- menningu. Þá er væntanlega átt við það umhverfi sem þjóðfélagið hef- ur skapað bílaumferðinni í landinu. Þau lög og reglur sem gilda um akstur. Gæði og öryggi Laugardags- pistill Elías Snæland Jónsson aðstoðarritstjóri vegakerfisins. Og það hversu mikið tillit þegnarnir taka til þess ramma sem umferðinni er þannig settur. Fullyrða má að Islendingar búi við ómenningu í umferðarmálum. Til dæmis um það er ekki aðeins þetta blóðbað á götunum og van- máttug viðbrögð við því. Nei, ómenningin birtist ekki síður í því almenna tillitsleysi sem einkennir umferðina hér. Hver kannast ekki við ökumenn- ina sem skapa stórhættu á slysum með sífelldum framúrakstri þar sem engar aðstæður eru til slíks? Eða þá sem gefa í þegar gult ljós kemur á gatnamótum og ógna lífi og velferð samborgara sinna með því að bruna yfir þegar rauða ljósið er komið? Eða aka yfir rækilega merktar gangbrautir, oft á miklum hraða, án tillits til þeSs að gangandi vegfarendur eiga réttinn? Eða skipta sífelit um akreinar án þess að gefa stefnuljós? Þannig haga þeir ökumenn sér sem varðar ekkert um rétt annarra í umferðinni. Þeir bijóta reglurnar í trausti þess að aðrir ökumenn, og gangandi vegfarendur, víki þótt rétturinn sé þeirra megin. Vegna viðbragða annarra ökumanna sleppa þessir ökuníðingar oft við árekstur. Og löggæslan er yfirleitt í órafjarlægð. Alltof oft geta jafnvel skjót varn- arviðbrögð þeirra, sem á er brotið, hins vegar ekki komið í veg fyrir slys. Þannig missa margir líf eða heilsu í umferðarómenningunni án þess að eiga nokkra sök á því sjálf- ir. Og þjóðfélagið setur upp silki- hanska þegar kemur að sökudólg- unum. Hvaó er til ráða? Ekki er annað að sjá en þeir sem málum ráða hafi sætt sig við þessa vargöld á vegum landsins. Aðgerð- ir þeirra beinast fyrst og fremst að því að reyna að draga úr líkum á alvarlegum meiðslum þeirra sem í árekstrum lenda, svo sem eins og með því að skylda notkun sætisóla hér og þar. Það er út af fyrir sig gott og bless- að. En höfuðverkefnið hlýtur þó að vera að gera göturnar öruggari fyr- ir aha vegfarendur með því að draga úr villimennskunni. Það verður ekki gert nema með strangari kröfum til ökumanna, stórauknu eftirliti lögreglunnar og harkalegri viðurlögum við alvar- legum og síendurteknum brotum. Enginn efast um að með þvi að færa löggæsluna út á vegina sé hægt að draga verulega úr slysa- hættunni. Það sýnir sig til dæmis mestu umferðarhelgarnar að öflug löggæsla á öllum helstu vegum tryggir skipulagða og slysalitla umferð. Það að lögréglubílar séu ávallt sýnilegir á götunum er til dæmis besta leiðin til þess að draga úr hraðakstri. Um hríð gekk ofbeldisalda um miðbæ Reykjavíkur í og með vegna þess að lögreglan dró sig í hlé. Þeg- ar hún lét sjá sig á ný á götunum héldu ofbeldisseggirnir sig í skefj- um. Hið sama gildir um ökuníðing- ana. Hvað kostar mannslíf? Stjórnvöld bera því vafalaust við að stóraukið skipulegt eftirlit á göt- unum sé alltof dýrt. Auðvitað kost- ar það peninga. En hvað kosta þrjá- tíu mannslíf á ári? Hvað kosta ör- kuml hundraða manna? Ekki bara í sorg og eymd einstaklinganna heldur í beinhörðum peningum? Niðurstaða þess reikningsdæmis yrði örugglega sú að það væri ódýr- ara að drífa lögregluna út á göturn- ar. Ekki er síður mikiívægt að gera ökumenn ábyrga gerða sinna. Taka verður hart á þeim sem brjóta hvað eftir annað gróflega þau lög og regl- ur sem tryggja eiga slysalausa umferð. Það á einkum við þá sem aka ölvaðir eða á brjálæðislegum hraða. Háar sektir gera vafalaust eitthvert gagn en meira þarf til aö koma, til dæmis strangt próf, tíma- bundin ökuréttindi og aukið eftirlit með síbrotamönnum í umferðinni sérstaklega. Sums staðar eru slíkir afbrotamenn skikkaðir í þegn- skylduvinnu til að bæta fyrir brot sín gagnvart samfélaginu. Síðast en ekki síst þarf að taka ofan silkihanskana gegn þeim sem eyða lífi annarra, eða eyðileggja hehsu þeirra og lífshamingju, með bíl að vopni. Gera þarf ökumönn- um það fyllilega ljóst að samfélagið líti á manndráp á vegum landsins sem alvarlegan glæp. Elías Snæland Jónsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.