Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.1990, Side 2
2
ÞRIÐJUDAGUR 9. OKTÓBER 1990.
Fréttir
Sjálfstæðisflokkurinn 1 Reykjavik:
Arslaun þingmanns
í próf kjörsbaráttu
þingmennimir sleppa mun betur
Þeir sem taka þátt í prófkjörum
fyrir alþingiskosningarnar, og eru
ekki sitjandi þingmenn, geta reikn-
að með að baráttan geti kostað
hvern og einn þátttakenda um eina
milljón króna. Þettá á aðallega við
um frambjóðendur í prófkjöri Sjálf-
stæðisflokksins í Reykjavík.
Eflaust þurfa frambjóöendur ann-
arra flokka og í öðrum kjördæmum
einnig að kosta til háum fjár-
hæðum. Þar sem Reykjavík er fjöl-
mennasta kjördæmið er dýrast að
berjast fyrir þingsæti þar.
Þingmenn, sem sækjast eftir end-
urkjöri, sleppa mun betur kostnað-
arlega frá baráttunni, enda þurfa
þeir ekki að minna eins mikið á sig
og hinir sem minna eru þekktir.
Þó er þaö mjög misjafnt milli
manna. Þingmennirnir sleppa ekki
frá prófkjörslagnum án útgjalda.
Einn þekktari þingmanna Sjálf-
stæðisflokksins, sem DV ræddi við,
sagðist gera ráð fyrir að eyða um
300 þúsundum króna í prófkjörs-
baráttuna.
Einn nýliðanna sagði, í samtali
við DV, að mesti kostnaðurinn fari
í útgáfu bæklinga og annað prentað
efni. Þá kostar talsvert að reka
kosningaskrifstofur með tveimur
eða jafnvel þremur símum auk
ýmissa annarra útgjalda. Sumir
hafa ráðið kosningastjóra til að
stj órna baráttunni.
Davíð Oddsson borgarstjóri þarf
væntanlega ekki að kosta eins
miklu til og aðrir nýliðar í próf-
kjöri fyrir þingkosningar.
Þeir sem DV ræddi við voru sam-
mála um að það væri ólíklegt að
nýliðarnir kæmust af með minna
en eina milljón. Það lætur nærri
að vera árslaun þingmanns eftir
skatta. Frambjóðendurnir fjár-
magna baráttuna með eigin fram-
lagi og leita til vina og kunningja
og jafnvel til fyrirtækja um fjár-
hagsleganstuðning. -sme
Heimsmeistaraeinvígið hafið í New York:
Karpov hafði undirtökin
í fyrstu skákinni
- en jafntefli varð í þrjátíu leikjum
Það var demantssíld í hæsta gæöaflokki sem Halldóra HF kom með til Norðfjarðar á sunnudagskvöld og veiddist
i Berufjarðarál. 89% aflans reyndist yfir 33 sm að stærð og meira en 300 grömm að þyngd. Fór því í stærsta flokk-
inn og ætti þvi að geta farið á Japansmarkað. 9% voru á bilinu 30-33 sm og aðeins 2% fóru í úrgang. Síldinni var
strax landað á Neskaupstað. DV-mynd Hjörvar Sigurjónsson
Olíuverðshækkunin:
Leggst nær alfarid
á sjómenn
Hækkun olíuverðs um síðustu
mánaðamót hefur valdið því að tekj-
ur allflestra sjómanna hafa lækkað
um 8%. Þetta gildir þó ekki um sjó-
menn á skipum sem selja afla sinn á
erlendum mörkuðum. Veröi frekari
hækkanir á olíu mun hún að mestu
leggjast á útgerðarmenn, enda botni
náð hjá sjómönnum varðandi skipta-
hlut samkvæmt gildandi samningum
Vegna ákvæðis í kjarasamningum
þeirra valda olíuverðshækkanir
minnku.. skiptahlutar niður í allt að
70% af aflaverðmæti. Meö öðrum
orðum þýðir þetta aö áður en kemur
til skipta eru tekin 30% af aflaverð-
mæti til að standa straum af olíu-
kostnaði útgerðar. Fyrir olíuverðs-
hækkunina var skiptahluti hins veg-
ar 76% aflaverðmætis.
Samkvæmt útreikningum frá Far-
manna- og fiskimannasambandi ís-
lands ber minnkun skiptahlutar allt
að 72% af olíuverðshækkuninni. Þá
eru dæmi um að útgeröaraöilar
skipa, sem brenna svartolíu, hagnist
umtalsvert á minnkun aflahlutar
sjómanna. Samkvæmt útreikningum
FFSÍ getur hagnaður þessara aðila
numið hátt í 400 þúsund á hverri
veiðiferð. Skýringin á þessu er sú aö
svartolía hækkaði mun minna en
gasolía. Þar sem viðmiðunarramm-
inn varðandi tengsl aflahlutar og ol-
íuverðs tekur einvörðungu mið af
gasolíuverði hefur aflahluti útgerð-
armanna, sem nota svartolíu, aukist
á kostnað sjómanna, án þess að til-
kostnaðurinn hafi aukist á sama
hátt.
Mikil óánægja er meðal forsvars-
manna sjómanna vegna þessa máls
og telja þeir að mikið skorti á sann-
girni í málinu. Aö sögn Benedikts
Valssonar hjá FFSÍ hafa sjómenn
árangurslaust reynt aö fá útgerðar-
menn til að lagfæra gildandi kjara-
samning að þessu leyti en þeir alfar-
ið hafnað því fram til þessa.
„Kjarni þessa máls er að vilji menn
viðhalda þessu kerfi, sem feist í því
að dreifa áhættunni af. olíuverðs-
hækkunum, xþá verður ábyrgðar-
dreifmgin að vera sanngjörn. Því
miður er því ekki til að dreifa í dag,“
sagði Benedikt Valson.
Að sögn Óskars yigfússonar hjá
Sjómannasambandi íslands, var það
hald manna í kjarasamningum sjó-
manna 1987 að með því að koma á
ákveðinni tengingu milli aflahlutar
og olíuverðs yrði minni hætta á bein-
um inngripum ríkisvaldsins, eins og
algengt var í „olíukreppunni" á síð-
asta áratug.
„Við höfum notiö þessa samnings
hingaö til og hann losaöi okkur að
hluta undan lögum frá 1983, gerði ráð
fyrir fastri skerðingu á aflahlut sjó-
manna. Það gat hins vegar enginn
séð fyrir að einhver snarvitlaus
arabahöfðingi gerði allt vitlaust í
heiminum varðandi olíuverð."
-kaa
Heimsmeistarinn Garrí Kasparov
og Anatoly Karpov, áskorandi hans,
hófu einvígi sitt um heimsmeistara-
titilinn í dimmu, hálftómu Hudson-
leikhúsinu á Broadway í gær. Þeir
sátu á svörtum stólum, með taflið á
svartri borðplötu og svört tjöld risu
baksviðs. Eina Ijósglætan á skugga-
legu sviðinu voru skjannahvítir skór
Karpovs.
Karpov hafði einnig hvítt í skák-
inni sem hófst nokkrum mínútum
of seint. Mikill kliður var í salnum
og yfirdómarinn, Hollendingurinn
Geurt Gijssen, varð að biðja áhorf-
endur aö hafa lægra. Vel fór á með
meisturunum sem tókust innilega í
hendur. Eftir því var tekið aö þeir
brostu hvor til annars þrátt fyrir að
í sálarstríðinu fyrir einvígið hafi
spjótin gengið á milli.
Um leið og skákklukkan var sett í
gang lék Karpov drottningarpeði
fram og Kasparov svaraði með
kóngsindverskri vörn - merki þess
að hann væri í árásarskapi. Skákin
var hin skemmtilegasta en einkennd-
ist af taugaspennu á báða bóga.
Karpov náði undirtökunum og marg-
ir töldu hann hafa komist nálægt
sigri eftir að Kasparov freistaði þess
að losa um stöðu sína með framrás
á miðborðinu. Kasparov átti aðeins
stundarfjórðung til að ljúka siðustu
þrettán leikjunum fyrir tímamörkin
en náöi þó jafnvæginu og eftir þrjátíu
leiki sættust þeir á skiptan hlut.
Athygh vakti að einungis Karpov
tefldi undir sovéskum fána en fáni
rússneska sambandsins var á borð-
hluta Kasparovs sem afneitaði þeim
sovéská af pólitískum ástæðum.
Hvítt: Anatoly Karpov
Svart: Garrí Kasparov
Kóngsindversk vörn
1. d4 Rf6 2. c4 g6 3. Rc3 Bg7
Kasparov velur kóngsindverska
vörn sem gjarnan leiðir til mikUla
sviptinga en þykir ekki að sama
skapi traust. Með þessu gefur hann
til kynna að hann sé hvergi banginn!
Fischer hafði dálæti á þessari byrjun
sem Kasparov hefur hafið til virðing-
ar á ný eftir erfiðleikatímabil í sögu
hennar. Kasparov beitti vöminni í
síðasta heimsmeistaraeinvígi í Se-
villa 1987 en þar var Grunfeldsvörn
helsta vopn hans (3. - d5).
4. e4 d6 5. f3
Svonefnt Somisch-afbrigði. Kasp-
arov kunni ekki svar við því í skák
við Gulko á stórmótinu í Linares sl.
vetur og Karpov hyggst einnig freista
gæfunnar.
5. - (M) 6. Be3 c6 7. Bd3 a6
í stað 7. - e5, eins og Kasparov lék
í áðurnefndri skák við Gulko, brydd-
ar hann nú upp á gamalli leikaðferð.
8. Rge2 b5 9. 0-0 Rbd7 10. Hcl
Karpov velur heldur ekki algeng-
ustu leiöina en varla hefur þetta ver-
ið fyrirfram ákveðið - hann hugsaði
Skák
Jón L. Árnason
um næsta leik sinn í 20 mínútur. Hér
er 10. Dd2, 10. b3, eða 10. cxb5 axb5
11. b4 (Geller - Fischer, Havana 1965)
mögulegt.
10. - e5 11. a3 exd4 12. Rxd4 Bb7 13.
cxb5 cxb5 14. Hel Re5 15. Bfl He8 16.
Bf2
16. - d5?!
í staö 16. - Hc8, freistar Kasparov
þess að opna taflið og leysa öll hugs-
anleg vandamál. En hann ofmetur
stöðu sína eftir uppskiptin.
17. exd5
Ekki 17. f4?! Reg4 18. e5 Rxf2 19.
Kxf2 Db6! með góðu tafli á svart.
17. - Rxd5 18. Rxd5 Dxd5 19. a4!
Nú hefur Karpov lítið en öruggt
frumkvæði - það er einmitt í þannig
stöðum sem hann unir sér best.
Kasparov þarf nú að halda vel á spöð-
unum ef ekki á illa að fara.
19. - Bh6 20. Hal Rc4!? 21. axb5 axb5
22. Hxa8 Hxa8 23. Db3 Bc6 24. Bd3?!
Lítur vel út en nú nær Kasparov
að rétta hiut sinn. Hvítur á íviö betra
eftir uppskipti á c6 og 24. Hdl kemur
einnig til greina.
24. - Rd6! 25. Dxd5 Bxd5 26. Rxb5
Svarið viö 26. Bxb5 yrði 26. - Hb8
og nær peöinu aftur.
26. Rxb5 27. Bxb5 Bg7!
Ekki 27. - Hb8? 28. He8+ og forðar
peðinu.
28. b4 Bc3 29. Hdl Bb3 30. Hbl Ba2
Og jafntefli samið. Hvítur missir
vald á b-peðinu og þá blasir jafnteflið
við. -JLÁ