Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.1990, Síða 7
,if ^RÍÐJUbA‘GlÍR‘'9.i Ök^ÓbÉb Í990.
i3v Sandkom
Tommi með
snobbklúbb
Bráðlega verð-
uropnaðurí
KrtnglunniA
nánartiltekiði
kjailaranum.
mikill ogglæsi-
legur„í!ott- .
nufiaklúhlmr".
Paöerveitínga-
maðurinn
ódrepandi,
Tommií
Tommaham-
borgiirum (og
Hard Rock), sem rekur staðinn. Þeir
sem hafa séð staðinn segja hann engu
líkan og þama verði án efa fremsti
snobbklúbbur þjóðarínnar. Það verð-
ur víst eins gott fyrir væntanlega
gesti að hafa eitthvað í buddunni þvi
það á að kosta 1200 krónur inn. Það
er nokkru hærra en venjulegt rúllu-
gjald. Þegar inn verður komið verður
verðlagíð við hæfi þ ví ætlunin mun
vera að hafa vínið 10% dýrara en á
öðrum stöðum. Var það ekki einmitt
eitthvað svona sem þjóöina vantaði?
Matti Matt
á Bessastaði
Kinsogóllum
erkunnugt hef-
ur.MalthiasÁ.
Mathiesen.al-
þingisraaðurog
fyrrverandi
ráöherra.
ákveðiðaö
sýtiagottfor-
d.Tini ogstíga
tilhliðarogeft-
irlátayngri
kynsióðinni
: eftirembætti
sitt. Reyndar stefnir hann aö því að
gera þlngmennskuna að erfðaveldi
og hefur Matthías tekið að sór að
stjóma kosningabaráttunni fyrir
Árna son sinn. Þá hefur Sandkorns-
ritari heyrt þá skýringu á ákvörðun
Matthiasar að hætta að hann stefni á
æðri embætti. Þá er ekki verið að
ræða bara um seðiabankastjórann
heldur forsetaembættið á Bessastöö-
um. Matti þy rfti þá heldur ekki að
flytjasigmjöglangt. Þessmáreyndar
geta að heyrst hefur að Vigdís sé far-
in að velta alvarlega fyrir sér fjórða
kjörtímabilinu en hingað til hefur
hún aftekið það raeð öllu.
Yfirgötuna að
sækja vínið
Selfyssingar
gerðusérgiað-
; andagiupp-
hafimánaöar-
iusogvarfeng-
inírskþjóð
lagahljóinsuút
tii þessaö
skemmtagest-
umáHótelSel-
fossiHúsiö
fylltistá
skömmum
tímaoggestirn-
ir einnig. Því miður hafði enginn átt
von á þvílikum þjóðlagaáhuga og
áður en við var htið haffii allt vín
hússins klárast, allavega þær tegund-
ir sem fólk getur hugsaö sér aö
drekka áður en það hættir að hugsa.
En Selfyssingar em ráðagóðir þegar
kemur að drykkjunniogskunduðu
bara yfir götuna á barinn á Gjánni
og komu til baka með pappaglös full
afvíni.
Ást í löggubíl
Þessiástarsaga
mun liafa átt
sérstaöútia
lmidifyrir
nokknim
arum.i’var
löggm', sín af
hvorukyni,
vorui rólcgrí
eftirbtsferð ■
þegarástin
kviknaðiailtí
einu.Viöþví
varðaðbregð-
ast og var stokkið aftur i bíi. Lög-
reglubílar eru hins vegarþeirrar
náttúru að þá er ckki hægt að opna
að innan en þvi gleymdu skötuhjúin
í æsingnum. Leið nú og beið og fór
lögreglan að undrast um eftirlitsbíl-
inn. Hann fannst síðan vegna ábend-
inga athuguls bónda og losnuðu þá
löggumar úr prísundinni.
Umsjón: Siguröur M. Jónsson
____________________________________________________Fréttir
Sjálfstæðisflokkurinn í Reykjaneskjördæmi:
Hörð barátta verður
um efstu sætin
- Ólafur G. Einarsson sagður öruggur í fyrsta sæti
Þegar hafa tólf manns ákveðið að
taka þátt í prófkjöri Sjálfstæðis-
flokksins í Reykjaneskjördæmi.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur fjóra
þingmenn í kjördæminu. Matthías
Á. Mathiesen, sem hefur skipað
fyrsta sæti listans, hefur ákveðið að
gefa ekki kost á sér til endurkjörs.
Hinir þingmennirnir þrír hafa
ákveðið að vera með í prófkjörinu.
Ólafur G. Einarsson, formaöur þing-
flokks sjálfstæðismanna, er talinn
vera öruggur um fyrsta sæti listans.
Salóme Þorkelsdóttir og Hreggviður
Jónsson eru ekki eins örugg um að
verða í efstu sætum.
Aðrir sem hafa tilkynnt þátttöku í
prófkjörinu eru: Árni R. Árnason,
Keflavík, Árni Mathiesen, Hafnar-
firði, Guðrún Stella Gissurardóttir,
Kópavogi, Helgi Hólm, Keflavík, Kol-
brún Jónsdóttir, Hafnarfiröi, María
Ingvadóttir, Seltjamamesi, Sigríður
Þórðardóttir, Mosfellsbæ, Sveinn
Hjörtur Hjartar, Kópavogi, og Viktor
B. Kjartansson, Keflavík.
Aðrir sem munu vera að hugsa sig
um eru: Gunnar G. Schram prófess-
or, Jóhann Bergþórsson, forstjóri
Hagvirkis, Lilja Hallgrímsdóttir,
fyrrverandi forseti bæjarstjórnar
Garðabæjar og formaður Sambands
sveitarfélaga á höfuöborgarsvæðinu,
og Ólafur Arnarson, framkvæmda-
stjóri þingflokks Sjálfstæðisflokks-
ins. Víglundúr Þorsteinsson vara-
þingmaður hefur tilkynnt að hann
verði ekki með.
Viðmælendur DV eru allir á því að
Ólafur G, Einarsson sé öruggur um
fyrsta sæti í prófkjörinu. Taliö er að
Salóme sé ógnað af kynsystrum sín-
um og það geti orðið til þess að hún
haldi ekki einu af efstu sætum list-
ans. Þar eru helst nefndar til þær
Sigríður Þórðardóttir, en hún er for-
maður Landssambands sjálfstæðis-
kvenna og María Ingvadóttir. Hregg-
viður er ekki talinn vera öruggur um
að lenda í einu af efstu sætunum. Þó
vill enginn afskrifa Hreggvið. Við-
mælendur DV voru á því að ef ekki
kæmi sterkt framboð úr Hafnarfirði
þá væri talið nokkuð öruggt að Árni
Mathiesen væri öruggur að vera í
einu af fimm efstu sætum listans.
Af Suðurnesjamönnunum er Árni
R. Árnason talinn líklegastur til að
ná góðum árangri. Þá voru menn
bjartsýnir fyrir hönd Sveins Hjartar
Hjartar.
Við síðustu kosningar fékk Sjálf-
stæðisflokkurinn þrjá þingmenn í
Reykjaneskjördæmi. Borgaraflokk-
urinn fékk tvo menn kjörna. Annar
þeirra, Hreggviður Jónsson, er geng-
in til liðs við Sjálfstæðisflokkinn og
því hefur flokkurinn fjóra þingmenn
núna.
Frestur til aö tilkynna þátttöku er
til 15. október. Stefnt er aö því að
halda prófkjörið laugardaginn 10.
nóvember. Þeir frambjóðendur sem
fá 50 prósent af kjörfylgi frá kosning-
unum 1987 og þeir s"em fá 50 prósent
eða meira í ákveðið sæti hljóta bind-
andi kosningu.
Kjördæmisráð hefur rétt til að velja
fleiri frambjóðendur í prófkjörið eftir
aðframboðsfresturrennurút. -sme
Kvennalistinn:
Framboðs-
málin rædd á
Hrafnagili
Gylfi Kristjáusson, DV, Akureyri:
Kvennalistakonur víðs vegar af
landinu ætla að hittast á Hrafnagili
í Eyjafirði í byrjun næsta mánaöar
og halda þar landsfund sinn.
í fréttatilkynningu frá Kvennalist-
anum segir að fundurinn muni fyrst
og fremst snúast um kosningabarátt-
una sem fram undan er en einnig
verða þar teknar fyrir skýrslur
starfshópa sem skipaðir voru á vor-
fundi Kvennalistans í júní. ,
Hrefnantogaði
bátinníallaráftir
- segir Brynjar Baldursson
Nýr reykháfur á Patró:
„Getum nú opnað glugga“
Nýr og myndarlegur reykháfur
hefur verið settur upp við fiskimjöls-
verksmiðjuna Fróðamjöl á Patreks-
firði - bæjarbúum til mikillar gleði.
Fyrir nokkrum misserum brotnaði
gamli reykháfurinn af niðri við þak
á verksmiðjunni í hvassviðri. „Fiski-
mjölsilminn“ hefur þvi lagt hindrun-
arlaust yfir bæinn um nokkurt skeið.
Einn viðmælandi DV á Patreksfirði
sagði í gær að allt.annað líf væri að
búa í bænum eftir að nýi reykháfur-
inn var settur upp. „Við getum að
minnsta kosti opnað glugga núna,“
sagði hann.
Reykháfurinn góði var fluttur með
skipi til Patreksfjarðar. Sökum
stærðar varð að flytja hann í tvennu
lagi. Var hann síðan settur saman
og málaður af heimamönnum. Verk-
smiðjan Fróðamjöl, sem stendur á
Vatneyri við höfnina, hét áður Sval-
barði.
-ÓTT
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyrú
„Það hefur sennilega verið um
hálftími sem skepnan togaði bátinn
fram og til baka í allar áttir,“ segir
Brynjar Baldursson, sjómaður á
Litla-Árskógssandi við Eyjafjörð, en
hann lenti í því í fyrradag að festa í
hrefnu þegar hann var að draga lín-
una skammt fyrir innan Hrólfssker
í Eyjafirði.
Brynjar er á 6 tonna dekkbát, Kóp
EA-325, og sagðist hann hafa haldið
að stórlúða væri komin á línuna hjá
sér, svo mikill var atgangurinn.
„Þetta gekk í um hálftíma, allt var á
fleygiferö og mér gekk illa að ná lín-
unni inn. Þarna er um 70 faðma dýpi
og ég sé eftir á að um 50 faðmar hafa
verið frá bátnum í hrefnuna þegar
hún kom fyrst á línuna. Þegar fór
að draga af henni flaut hún upp
skammt frá bátnum. Ég þorði ekki
að reyna að ná henni um borð því
það var ljóst að línan hafði krækst
um sporðinn á henni, og nokkuð var
í hinn enda línunnar.
Ég skar því á og fór að hinum enda
línunnar og var alveg viss um að ég
gæti náð henni þannig. Svo reyndist
þó ekki vera, lykkjan hefur losnað
af henni, en sennilega hefði ég átt að
skjóta hana því ég var með byssu um
borð.“
Brynjar segir að mun meira sé um
hrefnu fyrir Norðurlandi en var í
fyrra, bæði við Grímsey, þar sem
hann var í sumar við veiðar, og eins
hefur hann og aðrir sjómenn, sem
DV hefur rætt við, séð talsvert af
hrefnu á Eyjafirði í sumar og haust.
Nemendur í alþjóðabekknum. Frá vinstri Snædís kennari, George frá Ghana, Ana Filippseyjum, Michelle Banda-
ríkjunum, Ann-Margritt Noregi, Chris Sviss, Simona Ástraliu, Artie Bandarikjunum, Kent Kanada, og Karin Svíþjóð.
DV-mynd Sigrún
Menntaskóllnn Egilsstöðum:
Nemendur frá öllum heimshornum
Sigrún Björgvinsdóttir, DV, Egflsstöðum:
í menntaskólanum á Egilsstöðum er
í vetur kennd íslenska fyrir útlend-
inga og í bekknum eru 10 nemendur.
íbúar á Egilsstöðum eru um 1400 og
þar dvelja nú átta skiptinemar og
auk þeirra sækja tíma tveir útlend-
ingar, gifdr hér.
Allar heimsáifur eiga fulltrúa í
bekknum en nemendur eru frá
Kanada, Bandaríkjunum, Noregi,
Svíþjóð, Ástralíu, Ghana, Filippseyj-
um og Sviss, svo að segja má að þetta
sé þverskurður af mannkyninu. Þeg-
ar fréttamaður kom í tíma var verið
að skila heimaverkefni sem var að
segja frá fjölskyldu sinni, á íslensku
auðvitað, og gekk þaö furðu vel, mið-
að við hvað flestir hafa verið stutt
hér á landi eða frá 10 dögum upp í
nokkrar vikur. Og þótt sum hljóðin
böggluðust svolítið í munni þá voru
allir kátir og ákveðnir í að ná tökum
á þessu furðulega tungumáli.
Kennari er Snædís Snæbjörnsdótt-
ir, kennari við ME.