Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.1990, Blaðsíða 9
ÞRIÐJUDAGUR 9. OKTÓBER 1990.
9
Útlönd
íraskt skip tekið
íraska flutningaskipið sem bresk-
ir, bandarískir og ástralskir sjóliðar
fóru um borð í á Omanflóa í gær, var
hlaðið hrísgrjónum, hveiti og öðrum
varningi sem braut í bága við við-
skiptabann Sameinuðu þjóðanna.
Seint í gærkvöldi var enn veriö að
rannsaka farm skipsins sem snúið
hafði verið til hafnar. Skipstjórinn
sinnti stöðvunarboði og var því ekki
skotið að skipinu.
Áður höfðu bandarísk, bresk og
áströlsk herskip skotið viðvörunar-
skotum að öðru írösku flutningaskipi
undan höfuðborg Omans. Farmur
skipsins reyndist löglegur.
Útlagastjórn Kúvæts hefur hvatt
andspyrnuhreyfmguna í landinu til
að draga úr aðgerðum sínum gegn
íröskum hermönnum vegna grimmi-
legra hefndaraðgerða þeirra gegn
óbreyttum borgurum. Flóttamenn
sem koma frá Kúvæt greina frá því
að enn megi heyra skothríð í Kúvæt-
borg. Þeir hafa einnig greint frá.
sprengjutilræðum. Margir Kúvæt-
búar eru sagðir hafa gripiö til þess
ráðs að múta íröskum hermönnum
svo þeir geti flúið land.
íranir hafa varað útlagastjórn Kú-
væts við afhendingu lands sem lið í
friðarsamkomulagi við íraka. Bubiy-
an-eyja hefur einkum verið nefnd í
slíku sambandi. Ef írakar fengju
hana myndi aðgangur þeirra að sjó
verða betri. Segjast íranir munu gera
allt sem í þeirra valdi stendur til að
koma í veg fyrir afhendingu eyjar-
innar.
Háttsettur sovéskur embættismað-
ur greindi frá því í gær að um þriðj-
íraskt flutningaskip á siglingu á Omanflóa.
ungur þeirra fimm þúsund sovésku
borgara sem eru í Irak yrði fluttur
heim til Sovétríkjanna áður en
samningar rynnu út. Hin óháða
fréttastofa Interfax greindi hins veg-
ar frá því að sovéskur sérfræðingur
í írak hefði látist stuttu áður en hann
átti að fara til Sovétríkjanna í síðustu
viku. Sagt var að staðaryfirvöld
væru að rannsaka málið.
Tveir bandarískir flugmenn létu
lífið er flugvél þeirra fórst í Saudi-
Arabíu í gær og óttast er aö átta sjó-
liðar hafi beðið bana eftir að þyrlur
þeirra hurfu á æfingaflugi.
írakar hafa lokað flugvellinum í
Kúvæt fyrir farþegaflugvélum. Gæti
þessi aðgerð haft áhrif á þá áætlun
Símamynd Reuter
Bandaríkjamanna að flytja banda-
ríska þegna og ef til vill breska frá
Kúvætborg á morgun. Bandarískum
stjórnarerindreka í Bagdad hefur
verið tjáð að fljúga verði frá öðrum
flugvelli sem er við Basra í írak.
Reuter
Hlé á deilum þings og forseta 1 Bandaríkjunum:
Bush tókst að beygja
þingmenn til hlýðni
- aukafl árveitingar gilda meðan gengið er frá fj árlagafrum varpi
Landbúnaðarráðherrar EB:
Ekki sammála um
niðurskurðá
styrkjum
Landbúnaðarráðherrar
Evrópubandalagsins, EB, náðu
ekki samkomulagi um tillögu um
niðurskurð á styrkjum til land-
búnaðar á fundi sínum í Luxem-
burg í gær. Ákváðu ráðherrarnir
að fresta ákvarðanatöku þar til í
næstu viku og kváðust vilja fá
meiri upplýsingar um hvaða
áhrif áætlunin myndi hafa fyrir
bændur.
Nú er varla gert ráö fyrir að
Evrópubandalagið geti komið
með tilbúna tillögu um niður-
skurð - á landbúnaðarstyrkjum
þegar GATT-viðræöurnar hefjast
í Genf í næstu viku. GATT er lúð
almenna samkomulag um tolla
og viðskipti.
Vonast hefur verið til að sam-
komulag um niðurskurð myndi
nást áður en GATT-viðræðunum
lýkur í Brussel í desember.
Gagnrýnaaðstæð-
urígrænlensku
fangelsi
Fimm dönskum þingmönnum
brá mjög í brún við heimsókn í
fangageymslur í Maniitsoq á
Grænlandi og hafa þeir farið fram
á það við Hans Engell dómsmála-
ráöherra að þegar í staö verði
gerðar ráðstafanir til að bæta
aðstæðurnar.
Að því er þingmennirnir sögðu
lá drukkið fólk læst inni í timb-
urskúr þar sem ekki var neitt
eftirlit né viðvörunarkerfi. Þetta
var fangelsi bæjarins. Einn þing-
mannanna sagði aðstæðurnar
verri en hann haföi ímyndað sér
í fangabúðum í Chile. Þaö var auk
þess skoðun þingmannanna að
þrír lögregíumenn bæjarins
hefðu svo mikið að gera að það
væri óverjanlegt.
Tölvupappír
iiii
George Bush Bandaríkjaforseti hefur
náð samkomulagi við leiðtoga flokk-
anna á þingi um aukafjárveitingar
sem gildi fram til 19. október. Þetta
tryggir að rekstur ríkissjóðs verður
með eðlilegum hætti þar til fjárlög
verða samþykkt. Vonast er til að það
geti orðið fyrir lok næstu viku.
Þegar hefur náðst samkomulag á
þingi um niðurskurð á útgjöldum
ríkisins næstu fimm árin. Þá á að
vera búið að vinna bug á fjárlaga-
halla sem nemur um 500 milljörðum
Bandaríkjadala. Enn er þó mikið
starf óunnið við fjárlögin og ekki
hefur náðst nema óformlegt sam-
komulag um auknar skattaálögur.
Eftir því sem best er vitað skrifar
Bush undir lögin um aukafjárveit-
ingu þegar í dag og rekstur á vegum
hins opinbera verður með eðlilegum
hætti eftir langa fríhelgi þar sem öll
starfsemi lá niðri önnur en sú sem
gat tahst nauðsynleg.
Leiðtogar repúblikana segja að nið-
urstaðan af deilunúm um íjárlögin
hafi orðið sú sem forsetinn vildi og
mestu skipti að samkomulag hafi
náðst um verulega niðurskurð á rík-
isútgjöldum.
Öldungadeild þingsins hefur sam-
þykkt bæði hugmyndirnar um niður-
skurðinn og einnig nýjustu tillöguna
um aukafjárveitingu. Bush hafði
beitt báðar þingdeildir verulegum
þrýstingi um helgina. Hann neitaði
að samþykkja aukafjárveitingar
nema þingið féllist á hugmyndir hans
um niðurskurð og nýjar álögur.
Leiötogar á þingi höfðu áður sam-
þykkt hugmyndir forsetans en felldu
þær sfðan við atkvæðagreiðslu.
Vildu þingmenn nú fresta fjárlaga-
umræðunni en samþykkja aukaijár-
veitingu til að halda ríkissjóði opn-
um.
Bush féllst.ekki á þetta og beitti
neitunarvaldi gegn öllum hugmynd-
um þingmanna ef þeir féllust ekki á
tillögur um niðurskurð fyrst. Á end-
anum hafði forsetinn betur og er nú
laus úr mesta vanda sem hann hefur
komistíáheimavelli. Reuter
Vinningstölur laugardaginn
Hverlisgotu 78, simar 25960 25566
6. okt. 1990
VINNINGAR FJÖLDI | VINNINGSHAFA UPPHÆÐ Á HVERN VINNINGSHAFA
1. 5af 5 1 5.493.316
O £• 4 af 11 52.795
3. 4af5 279 3590
4. 3af5 7446 313
Heildarvinningsupphæð þessa viku:
9.406.269 kr.
UPPLÝSINGAR: SÍMSVARI 681511 - LUKKULÍNA 991002
George Bush getur nú snúið sér að fjárlagagerðinni af krafti því linurnar hafa þegar verið lagðar. Forsetinn þykir
hafa bjargað sér vel út úr deilunum sem hann lenti í við þingmenn. Simamynd Reuter