Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.1990, Qupperneq 11
ÞRIÐJUDAGUR 9. OKTÓBER 1990.
11
Utlönd
í kjölfar blóðbaðsins í Peking í júní í fyrra settu Vesturlönd á viðskiptaþvinganir gegn Kína. Nú er gert ráð fyrir
að Evrópubandalagið ákveði að aflétta þeim í áföngum. Simamynd Reuter
Vænta af náms refsi-
aðgerða gegn Kína
„Það er ekki hægt að knésetja Kína
með viðskiptaþvingunum þó menn
vilji,“ segja vestrænir stjómarerind-
rekar. Þeir eru hins vegar þeirrar
skoðunar að viðskiptaþvinganirnar,
sem settar voru gegn kínverskum
yfirvöldum í kjölfar blóöbaðsins í
Peking í fyrra, hafi borið þann árang-
ur sem þeim var ætlað, það er að
gefa kínversku stjóminni til kynna
andúð Vesturlanda á aðgerðum
hennar.
Búist er við að utanríkisráðherrar
Evrópubandalagsins muni á fundi
sínum 22. október í Luxemburg sam-
þykkja að refsiaðgerðunum gegn
Kína verði aflétt í áföngum. ítalir,
sem eru nú í forsæti bandalagsins,
era helstu stuðningsmenn þess að
samskiptin við Kína verði bætt. Er
tahð að stuðningur kínverskra yfir-
valda við viðskiptaþvinganir Sam-
einuðu þjóðanna gegn írak ráði þar
einhveiju um. Utanríkisráðherra ít-
ahu, Gianni de Michehs, hefur lagt
áherslu á að auðvitað verði að þrýsta
á um mannréttindi í Kína en hins
vegar sé ekki gott að viðhalda gjánni
á mhli Evrópubandalagsins og svo
mikilsvægs lands sem Kína.
Þrýstingur viðskiptaaðila
Stjórnir þeirra Vesturlanda, sem
átt hafa mikh viðskipti við Kína, eru
undir miklum þrýstingi ýmissa við-
skiptaaðila sem vilja að refsiaðgerð-
unum verði aflétt. Reyndar hefur því
veriö haldið fram að sumar stjórnir
hafi þegar létt á banninu að einu eða
öðru leyti. Og Spánverjar hafa th
dæmis tilkynnt að spænski utanrík-
isráðherrann muni bráðlega fara í
heimsókn til Kína.
Bush Bandaríkjaforseti sendi
þjóðaröryggisráögjafa sinn, Brent
Scowcroft, tvisvar th Kína í fyrra og
var önnur forin leynheg, þrátt fyrir
bann Vesturlanda við samskiptum
háttsettra embættismanna. Scow-
croft hitti Deng Xiaoping, en margir
telja að hann sem yfirmaður kín-
verska herráðsins hafi fyrirskipað
hermönnum að skjóta á námsmenn
á Torgi hins himneska friðar í Pek-
ing.
Níu hundruð sleppt
Stjórnarerindrekar segja að ef Evr-
ópubandalagið ríði á vaðið til að
bæta samskiptin við Kína geti það
auðveldað Bush að gera slíkt hið
sama. Alþjóðabankinn geti einnig
farið að veita Kínveijum lán að nýju.
Að því er stjómarerindrekar segja
áttu viðskiptaþvinganimar sinn þátt
í því að nær níu hundruð pólitískum
föngum var sleppt af kínverskum
yfirvöldum, auk þess sem samkomu-
lag hafi náðst um andófsmanninn og
vísindamanninn Fang Lizhi. Fang
var leyft að fara úr landi er hann
hafði dvalið í ár í bandaríska sendi-
ráðinu í Peking. Margir þekktir and-
ófsmenn era þó enn í fangelsi og
opinber mótmæh era ekki leyfð.
Reuter
Skoöanakönnun í Noregi:
Gorbatsjov fái
friðarverðlaunin
Mikhah Gorbatsjov, forseti Sov-
étríkjanna, er heitasta nafnið í
umræðunum um friðarverðlaun
Nóbels nú þegar vika er þar til
verðlaunahafinn verður kynntur.
Vafi þykir hins vegar leika á því
hvort verðlaunanefndin þori að
útnefna þjóðarleiðtoga sem í krafti
stöðu sinnar gæti gripið til aðgerða
sem ekki samræmast friðarverð-
launahafa.
Samkvæmt skoðanakönnun í
Noregi um helgina voru 34 prósent
aðspurðra fylgjandi því að Gor-
batsjov fengi friðarverðlaunin í ár.
Auk hans er þrír þekktir leið-
togar nefndir í sömu andrá. Chai
Ling, leiðtogi kínverskra náms-
manna, fékk 28 prósent atkvæö-
anna, blökkumannaleiðtoginn Nel-
son Mandela fékk 22 prósent en
Vaclav Havel, forseti Tékkóslóva-
kíu, varð að láta sér nægja 10 pró-
sent. Þess skal getið að Chai Ling
kom í heimsókn til Noregs í haust
og þverpólitísk nefnd kvenna á
norska þinginu notaði tækifærið til
að benda á hana sem verðugan frið-
arverðlaunahafa.
NTB
/ÆSks
rc. vyn
yccjy
Frigor
TILBOÐ
FRYSTIKISTUR
MÁL H x B x D STÆRÐ GERÐ STAÐGR. VERÐ
90x73x65 1851 B20 31.950
90x98x65 2751 B 30 35.730
90x128x65 3801 B40 39.960
90x150x65 4601 B 50 43.470
ÁRATUGAREYNSLA
DÖNSK GÆÐATÆKI Á CÓÐU VERÐI
rnm r/ Samkort
VISA
EUROCARD
itM
SAMBANDSINS »
O
VIÐ MIKLAGARÐ SÍMAR 68 5550-6812 66
Nóbelsverðlaunin í læknisfræöi:
Tveir Bandaríkjamenn
deila þeim með sér
Tveir bandarískir læknar deha
með sér Nóbelsverðlaununiön í
læknisfræði í ár. Þetta era þeir Jos-
hep E. Murray og E. Donnall Thomas
sem báðir hafa unnið um árabil að
líffæraflutningum og þróað þá grein
læknavísindanna meira en aðrir
menn. Þeir deha með sér verðlauna-
fénu sem nemur fjórum mhljónum
sænskra króna eða um 40 mihjónum
íslenskra króna.
Murray er nú 71 árs gamall og
vinnur á sjúkrahúsi í Boston. Hann
hefur einkum þróað aðferðir th að
koma í veg fyrir að líkaminn hafni
nýju líffæri. Murray tókst fyrstum
manna að flytja nýra mhli tveggja
eineggja tvíbura og hann var einnig
fremstur í flokki þegar farið var að
flytja líffæri úr látnu fólki.
Thomas stendur nú á sjötugu.
Hann vinnur við krabbameinsrann-
sóknir í Seattle. Hann hefur einnig
rannsakað viðbrögð líkamans. við
nýjum líffæram og var leiðandi í
flutningi á beinmerg mhli manna.
í umsögn Karolínska sjúkrahúss-
ins í Gautaborg um verðleika þessara
manna sagði að þeir hefðu með rann-
sóknum sínum hnað þjáningar tug-
þúsunda sjúkhnga og fundið aðferðir
th að lækna sjúkhnga sem ella hefðu
látist.
Reuter/TT
VARAHLUTAÞJÓNUSTAN S/F
NOTAÐIR VARAHLUTIR í NÝLEGA BÍLA
Kaplahrauni 9b - 220 Hafnarfjöróur - S:653008
Innfluttar notaðar japanskar vélar.
Eigum á lager vélar í eftirtaldar
tegundir:
Mazda Subaru
Mitsubishi Daihatsu
Nissan Toyota
Eigum mikið úrval gírkassa, sjálfskiptinga,
startara og alternatora.
ísetning á staðnum Þríggja mánaða árbyrgð á vélum