Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.1990, Síða 28
28
ÞRIÐJUDAGUR 9. OKTÓBER 1990.
Menriing
Fréttir
Gaman í leikhúsi
Gamanleikhúsið varð til fyrir fimm árum og hefur
síðan sett upp sjö verkefni sem sýnd hafa verið þar
sem heppilegt húsnæði hefur fengist. Tvisvar sinnum
hefur allur hópurinn farið og sýnt á erlendum leiklist-
arhátíðum.
Það sem skilur Gamanleikhúsið frá öðrum áhuga-
hópum er að stofnendur og þátttakendur eru börn og
unglingar sem að öllu leyti sjá um sýningar og skipu-
lagningu sjálf. Þau taka málið fóstum tökum og sýna
ótrúlega útsjónarsemi og dugnað.
Verkefnavahð hefur að sjálfsögðu verið miðað við
yngri leikhúsgesti og nú er það engin önnur en fjörkálf-
urinn Lína langsokkur sem birtist á sviðinu í Iðnó
með ærsl sín og skemmtileg uppátæki.
Að mörgu er að hyggja áöur en heil leiksýning sér
dagsins ljós. Það þarf að smíða leikmynd, velja bún-
inga og leikmuni, taka upp tónlist og söngva og svo
auðvitað að æfa leikendurna. Aöaldriffjööurin í Gam-
anleikhúsinu og framkvæmdastjóri er Magnús Geir
Þórðarson. Hann er stofnandi hópsins og leikstýrir
verkinu.
Börnin sem stóðu að sýningum í upphafi eru núna
oröin unglingar og standa á tímamótum. Áhyggjulaus
og einlæg framsetning er blönduð tilfinningunni fyrir
aukinni ábyrgö. Þau gera greinlega kröfu til sjálfra
sín um „alvöruleik" og hafa þannig nálgast aðra
áhugahópa.
Leikmynd og búninga hafa krakkarnir sjálf vahð og
hannað. Umgjörðin er litrík í ekta „Línustíl" og marg-
ar lausnir skemmtilega útfærðar þegar skipta þarf um
svið.
Valið á leikendum er eins og efni standa til þó að
þau Anna og Tommi hefðu aö ósekju mátt vera lægri
í loftinu. Eva Hrönn Guðnadóttir leikur aðalhlutverk-
ið, Línu langsokk, pg náði sér vel á strik eftir dálítiö
þvingaða byrjun. (Ég sá 2. sýningu.) Uppátæki hennar
og tilburðir vekja óskipta kátínu ungra áhorfenda sem
kunna vel að meta það þegar hún stendur á höndum,
tuktar til löggur eða reynir að hleypa lífi í hina gadd-
freðnu frú Prússólín, fulltrúa barnaverndarnefndar.
Eva Hrönn hefur skýra framsögn og það er reyndar
svo um flesta leikendur. Þó að krakkarnir hefðu ekk-
ert annað upp úr allri vinnunni en þá dýrmætu skólun
sem aginn og samhæfingin í leikhúsinu veitir þeim
þá er tímanum sannarlega ekki eytt til einskis.
Hljómflutningstæki voru ekki nógu góð en auðheyrt
var að mikilli vinnu hafði verið eytt í að taka upp tón-
hst og söngva og auðvitað var öll sú vinna og flutning-
ur í höndum Gamanleikhúsmanna sjálfra.
Fjöldi barna og unghnga stendur þannig á einn eða
annan hátt að sýningunni en ekki er ástæða til að fara
Eva Hrönn Guðnadóttir leikur Línu langsokk. Með
henni á myndinni eru Víðir Óli Guðmundsson og
Bryndís Björk Ásgeirsdóttir.
Leiklist
Auður Eydal
að tíunda frekar frammistöðu einstakra leikenda eða
annarra. Allur hópurinn hefur lagt hönd á plóginn og
á sinn þátt í framgangi og árangri hins gagnmerka
leikhúss, Gamanleikhússins.
Hugmynd og frumkvæði Magnúsar Geirs Þórðarson-
ar hefur undið heldur betur upp á sig og þessi hópur
sýnir sköpunar- og samtakamátt barna sem vilja starfa
saman að heilbrigðu og gefandi starfi.
Betra innlegg í umræðuna um málefni og velferð
barna er varla hægt að hugsa sér.
f
Gamanleikhúsið sýnir í lönó:
LÍNA LANGSOKKUR
Höfundur: Astrld Lindgren
Tónlist: Goeorg Riedal
Þýðing: Þórarinn Eldjárn
Leikstjórn: Magnús Geir Þórðarson
Lýsing: Magnús Þór Torfason, Helgi Jóhannesson
Leikmynd og búningar: Unnið í samvinnu -AE
Afmæli
Johanna Helgadóttir.
Jóhanna
Helgadóttir
Jóhanna Helgadóttir frá Vest-
mannaeyjum, th heimihs að Hásteins-
*vegi 60, Vestmannaeyjum, er sjötíu
og fimm ára í dag.
Maður Jóhönnu var Sigurður Sig-
urjónsson en hann er látinn fyrir
nokkrum árum.
Jóhanna tekur á móti gestum eftir
klukkan 16.00 í dag á heimili dóttur
sinnar og tengdasonar, Heiðvangi 34,
Hafnarfirði.
Andlát
Arnfríður Gestsdóttir frá Mel í
Þykkvabæ, síöast til heimilis á Dal-
braut 23, lést á Borgarspítalanum
sunnudaginn 7. október.
Gísli Þórarinn Halldórsson pípulagn-
ingameistari, Úthlíð 6, er látinn.
Hólmfríður Rögnvaldsdóttir lést á
Hrafnistu þann 6. október.
Sveinn Sigurðsson, Bakkagerði 8,
lést á Landspítalanum 6. október.
Raymond G. Newman, Vesturgötu
»46, Keflavfk, lést 5. október.
Jaröarfarir
Útför Sveinbjörns Sigurðssonar bif-
vélavirkjameistara, Meðalholti 14,
Reykjavík, fer fram frá Háteigs-
kirkju miðvikudaginn 10. október kl.
15.
Guðlaug Jóhannesdóttir, verður
jarðsungin frá Fossvogskirkju mið-
vikudaginn 10. október kl. 15.
Útfór Alberts Erlingssonar kaup-
manns, Grenimel 2, fer fram frá Nes-
kirkju föstudaginn 12. október kl.
13.30.
Sigurbjörg Gunnarsdóttir, Ásvegi 15,
Reykjavik, verður jarðsungin frá
Fossvogskirkju miðvikudaginn 10.
október kl. 10.30.
Sigríður Sigurbjarnadóttir, Greni-
mel 27, andaðist á heimili sínu 3.
október. Jarðsett verður frá Foss-
vogskapellu fimmtudaginn 11. októ-
ber kl. 13.30.
Guðbjörg Runólfsdóttir frá Gröf,
Hvassaleiti 56, Reykjavík, verður
jarðsungin frá Akraneskirkju mið-
vikudaginn 10. október kl. 11.
Anna Hallgrímsdóttir lést 1. október.
Hún var fædd á Siglufirði 18. júní
1931, dóttir hjónanna Herdísar Lár-
usdóttur og Hallgríms G. Björnsson-
ar. Eftirlifandi eiginmaður hennar
er Hreinn Sumarliðason. Þau hjónin
stofnuöu „Kjörbúðina Laugarás"
sem þau ráku í fyrstu í samvinnu við
önnur hjón, en síðar ein. Anna og
Hreinn eignuðust þrjár dætur. Útför
Önnu verður gerö frá Áskirkju í dag
kl. 13.30.
Kristinn Guðjónsson forstjóri er lát-
inn. Foreldrar hans voru Guðjón
Jónsson og Kristín Ólafsdóttir. Krist-
inn var við verslunarnám m.a. í Eng-
landi á árunum 1921-25 og hóf eftir
það störf hjá Vélsmiðjunni Héðni,
fáum árum síðar, 1942 stofnaði hann
heildverslunina E. Ormsson hf. og
stuttu síðar Stálumbúðir hf. með
Hahdóri Kjartanssyni. Það fyrirtæki
rak hann þar til heilsan gaf sig fyrir
2 árum. Eftirlifandi eiginkona hans
er Sigurveig Margrét Eiríksdóttir.
Þau hjónin eignuðust þrjár dætur.
Útfór Kristins verður gerð frá Dóm-
kirkjunni í dag kl. 13.30.
Tilkyimingar
Öryrkjabandalag íslands
efnir til ráðstefnu um atvinnumál fatl-
aðra fóstudaginn 12. október nk. Ráö-
stefnan verður haldin að Borgartúni 6
og hefst kl. 9.15.
Húsmæðrafélag Reykjavíkur
Fyrsti fundur vetrarins verður haldinn i
félagsheimilinu Baldursgötu 9 kl. 20.30
miðvikudaginn 10. október. Rætt verður
um vetrarstarfiö og tekiö í spil. Félags-
konur flölmennið.
Klassískt kvöld í
Fjölbraut, Breiðholti
í tilefni menningarviku FB verður klass-
ískt kvöld kl. 20.30 í kvöld í hátíðarsal
skólans. Fram koma fyrrverandi nem-
Föstudagsumferðin á bílastæðinu hjá Miðbæ:
Hundur dró inn-
kaupakörfu á
Mercedes Benz
- hafði verið tjóðraður við körfima fyrir utan verslun
„Ég var að keyra inn á bílastæðið
hjá Miðbæ við Háaleitisbraut og ætl-
aði að komast í síma. Á bílastæðinu
var ísbíll og ég ætlaði að keyra fram
fyrir hann. Þá sá ég innkaupagrind
fuha af hvítkálshausum koma
skyndilega á fleygiferð, og það var
hundur sem dró hana. Grindin hafði
staðið fyrir utan verslunina og hund-
urinn verið tjóðraður við hana. Síðan
kom eifthvert fát á hundinn sem
hljóp af stað með grindina á eftir
sér,“ sagði Ingibjörg Kristjánsdóttir
sem varð fyrir töluvert miklu tjóni
þegar þung innkaupakarfa, sem
hundur dró, -slóst af afli utan í Merce-
des Benz bifreið hennar síðdegis á
föstudaginn.
„Grindin skall fyrst aftan á ísbíln-
um en síðan á hurðinni á Benzinum
hjá mér. Hundurinn hljóp svo aftur-
fyrir bhinn með grindina á eftir sér.
Hanri rétt slapp á mihi bíls sem var
að bakka út og annars sem var kyrr-
stæður. Ævintýrinu lauk með því að
grindin fór á hhðina, hvítkálshaus-
arnir fóru út um allt og hundurinn
hljóp í burtu. Við þurftum að hlaupa
á eftir honum til að finna greyið.
Ég kenndi mikið í brjósti um hund-
inn og strákinn sem átti hann. Það
var ekki hægt að sjá hvor skalf meira
eftir allt saman. Þetta var töluvert
stór hundur og afskaplega fahegur.
Hurðin á Bensinum kengbognaði.
Lögreglumennirnir sem komu á
staöinn voru að velta vöngum yfir
hvernig ætti að fylla út skýrslu því
það hafa ekki margir lent í svona
löguðu. En lögreglan og vegfarandi
sögðu mér að ef leyfi hefur fengist
fyrir hundum, eins og þessi hafði, séu
þeir um leið tryggðir gagnvart hugs-
anlegu tjóni sem þeir valda. Þetta
kemur þó allt í ljós,“ sagði Ingibjörg
Kristjánsdóttir. -ÓTT
Mikið annríki hjá lögreglu 1 Reykjavík:
Átta líkamsmeiðinga-
mál um síðustu helgi
Átta tilfelli voru tilkynnt til lög-
reglu vegna líkamsmeiðinga um
helgina, þar af fimm á fóstudags-
kvöldið.
Um miðnættið á fóstudagskvöld
veittust nokkrir ungir menn að phti
í Keilusalnum í Öskjuhlíð og hlaut
hann meiðsli af. Einn var fluttur á
slysadeild eftir slagsmál við Casa-
blanca og var árásarmaðurinn hand-
tekinn. Einnig barst kæra um lík-
amsmeiðingar vegna slagsmála í
Austurstræti. Nokkru síðar var mað-
ur handtekinn eftir slagsmál á sama .
stað.
Um nóttina komu síðan tveir menn
á miðborgarstöð lögreglunnar og
greindu frá slagsmálum sem höfðu
orðið á Fógetanum í Aðalstræti. Ár-
ásaraðilinn var síðan handtekinn en
einn var fluttur á slysadeOd. Um
nóttina var einnig tilkynnt um til-
felli þar sem aðOi hafði hlotið meiðsli
eftir átök í heimahúsi.
Á laugardagskvöldið var maður
handtekinn eftir átök í heimahúsi við
Vegamótastíg. Um nóttina var maður
síðan handtekinn og færður í fanga-
geymslur eftir að hafa valdið líkams-
meiðslum á öðrum á Fógetanum.
Einn maður var fluttur á slysadeild.
Einnig kom til átaka í Þjóðleikhús-
kjallaranum. Þar kom til ósættis sem
þó leystist án kæru til lögreglu.
Að sögn lögreglu eru þeir sem eiga
hlut að líkamsmeiðingum flestir á
aldrinum 18-25 ára og eiga átök sér
yfirleitt stað á skemmjtistöðum eða í
heimahúsum. Færri ulfelli verða á
götum úti. -ÓTT
endur skólans sem nú starfa viö tónlist-
arkennslu og tónhstarflutning. En þaö
eru þau: Elín Gunnlaugsdóttir, píanó,
Harða Harðardóttir, sópran, Helga Sig-
hvatsdóttir, blokkflauta, Laufey Geir-
laugsdóttir, sópran, Snorri Valsson,'
trompet, Theódóra Þorsteinsdóttir, sópr-
an og Ynnur Vilhelmsdóttir, píanó. Meö-
leikarar eru Guðmundur Magnússon
píanóleikari og Lára Rafnsdóttir píanó-
leikari. Á miðvikudagskvöldið verða tón-
leikar með Megasi og Björk úr Sykurmol-
unum í Undirheimum. Þá stendur yfir í
Fjölbrautaskólanum myndlistarsýning á
verkum fyrrverandi nemenda skólans og
er hún opin kl. 14-18 í dag og kl. 14-20 á
morgun.
KR konur
Muniö fundinn í kvöld kl. 20.30. Gestur
fundarins verður Hallgrímur Magnússon
læknir og mun hann fjalla um heilbrigt
liferni og mataræði.
ITC deildin Harpa
heldur kynningarfund að Brautarholti
30 kl. 20 í kvöld. Allir velkomnir.
Fjölmiðlar
Hvað er að frétta?
Allt síðan Stöð 2 tók til starfa hef-
ur verið eínhverskonar samkeppni
mihi fréttastofa sjónvarpsstöðv-
anna. Á köflum hefur geisað heilagt
stríð þar sem stórskotahríð fleðm
legra auglýsinga er öflugasta vopn-
iö. Ennfremur hafa fréttastofumar
skipst dálítið á fréttamönnum sem
hafa látið yfirboö skáka sér úr einu
liöi í annað eins og hverjum Öðrum
eitruðum peðum. Hinnalmenni
sjónvarpsáhorfandi geispar yfir öllu
saman.
í gærkvöldi voru sagðar 14 fréttir
í Sjónvarpinu en 17 á Stöð 2. Sjón-
varpið bauöfram 10 íslenskar fréttir
en Stöðin 9. íslensku fréttirnar, en
þeim hofur fólk mestan áhuga á,
voru ekki nema að litlu leyti þær
sömu hjá stöðvunum tveimur en
erlendu fréttirnar þeirra voru nær
alveg eins nema hvað Stöð 2 stytti
þær meira.
Framsetning fréttanna er nær al-
veg eins á báðum stöðvum enda
flestir eöa allir starfsmenn Stöövar
2 aldir upp við ríkisjötuna á Lauga-
vegínum. Þeir Stöðvarbændur virt-
ust segja frá af meiri áhuga og á
flestan hátt snöfurmannlegar en
hinír. Á Sjónvarpinu voru menn
sýnilega að afplána eina vaktina
enn.
Hitt er svo annaö mál að fréttir
Sjón varpsins voru íslenskari. Þar
voru fréttir utan af landi. Það var
talað við verkstjóra í kjötvinnslu hjá
KEA og kornbónda austur á héraöi.
Ennfremur sagði Sjónvarpið frá
niðurstöðum í skoðanakönnun DV
sem þótti fréttnæmt. Stöð 2 þagði
þunnu hljóði um málið enda þeirra
mennániðurleið.
Það sem vantaði á báðum bæjum
voru skemmtílegar fréttir, mann-
legar sögur. Báðir lögðu ahtof mikla
áherslu á pólitík, efnahagsmál og
þras um álmáhð sem hálf þjóðin er
löngu komin með hálfgert ofæmi
fyrir.
Páll Ásgeirsson