Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.1990, Qupperneq 6

Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.1990, Qupperneq 6
Úflönd ...... ..... .....................___________PX Viðskiptabann Sameinuðu þjóðanna á írak hefur loks sýnileg áhrif: írakar verða að skammta olíu - utanríkisráðherra Breta segir að hervaldi verði senn beitt gegn írak Stjórn íraks hefur tilkynnt að eftir- leiðis verði olía skömmtuð til lands- manna. Þetta er sterkasta vísbend- ingin til þessa um að viðskiptabann Sameinuðu þjóðanna hafi tilætluð áhrif í írak. Olíumálaráðherra íraks sagöi að tilgangurinn með skömmtuninni væri að tryggja að nægar birgðir væru til í landinu. Hann sagði jafn- framt að olíuframleiðsla íraka væri nú aðeins um 400 þúsund tunnur á dag og færi minnkandi. James Baker, utanríkisráðherra Fjölskylda Aouns fær að f ara úr landi Stjórn Líbanons hefur leyft f]öl- skyldu Michels Aouns hershöfðingja og nánustu vinum hans aö fara úr landi. Aoun fær þó ekki að fara sjálf- ur og heldur ekki tveir samverka- menn hans. Fólkið hefur síðustu sjö daga átt hæli í franska sendiráðinu í Beirút eöa allt frá því Aoun varö að gefast upp fyrir ofurefli liðs um síðustu helgi. Fólkið fer til Frakklands en stjórnin þar heldur hlífiskildi yfir Aoun. Það eru eiginkona Aouns, þijár dætur þeirra, ættingjar tveggja yfir- manna úr liði Aouns og tveir yfir- menn að auki sem fá að fara í friði úr franska sendiráðinu og úr landi. Stjóm Líbanons heldur enn fast við þá kröfu að Aoun verði framseldur og einnig tveir menn aðrir sem lengi hafa staðiö við hlið hans. Ætlun stjómarinnar er að ákæra þremenn- ingana fyrir stríðsglæpi. För fólksins er heitið til Kýpur í fyrsta áfanga á leiðinni til Frakk- lands. Franska sendiráðið í Beirút er nú umkringt af hermönnum stjórnarinnar en varðmenn sendi- ráðsins hafa sést vopnaðir á þaki þess. Loft er því lævi blandið á sendi- ráðslóðinni en þó er ekki talið líklegt að hermennirnir ráðist á sendiráðið enda væri það brot á alþjóöalögum. Reuter Bónorð í heilsíðu- auglýsingu Svíi nokkur varði um 900 þús- undum íslenskra króna tíl að biöja unnustu sinnar með heil- síðuauglýsingu í Sænska dag- blaðinu. Þegar sí ðast fréttist haföi hin heittelskaða ekki svarað aug- lýsingunni en það hafði hins veg- ar fjöldi annarra kvenna gert. Auglýsingin var einföld. „Ása, vfltu giftast mér?“ stóð stórum stöfum á síöunni og fyrir neðan símanúmer hins ástfangna en hann heitir Magnús Anderson. Þetta átti að nægja til að unnust- an vissi hver væri að auglýsa. Þau skötuhjú búa saman en af einhverjum ástæðum kþm blaðið ekki á réttum tíma og Ása fór til vinnu án þess aö hafa séð þaö. Magnús beiö heima og þess var skammt að biöa að síminn yröi rauöglóandi þvi fjöldinn allur af „Ásum“ var tilbúinn að ganga að eiga Magnús. Heilsíðuauglýsing í Sænska dagblaðinu kostar um 94 þúsund sænskar krónur eða ríflega 900 þúsund íslenskar. Magnús sagði við fréttamann Reuter að hann teldi þessum peningum vel varíö. Heuter Bandaríkjanna, sagði aö Bandaríkja- menn ætluðu nú að tryggja heimild frá Sameinuðu þjóðunum til að beita hervaldi gegn írak í þeim tilgangi að binda endi á stjóm Saddams Hussein í landinu. Slíkt hefur ekki enn verið samþykkt þar þótt einstök ríki hafi heimild til að fylgja viðskiptabann- inu eftir með valdi. Douglas Hurd, utanríkisráðherra Bretlands, gekk enn lengra og sagði að ríki heims ættu engra annarra kosta völ en að fara með hernaði á hendur írökum ef friðsamleg lausn fyndist ekki á allra næstu dögum. Hurd sagði að Saddam Hussein yröi að skiljast að ríki heims hefðu bæði getu og vilja til aö hrekja hann frá völdum. Bretar hafa undanfamar vikur oft talað um nauðsyn þess að ráðast gegn írak og hefur Hurd margítrekað að til stríðs kunni að koma við Persaflóann nú í haust. George Bush, forseti Bandaríkj- anna, hitti í gær að máh Jevgeny Primakov, sem nýkominn er úr sendiför á fund Saddams á vegum Mikhails Gorbatsjovs. Bush sagði Primakov aö Bandaríkjamenn gætu ekki sætt sig við aðra lausn á deil- unni um framtíð Kúvæts en aö írak- ar færu þaðan með allan her sinn og viðurkenndu sjálfstæði landsins á ný. Bæði Sovétmenn og Frakkar hafa viljað bíða enn um sinn og sjá hvort viðskiptabannið hefði ekki tflætluð áhrif áður en ráðist yrði gegn írak með vopnavaldi. Primakov flutti þau boð af fundin- um með Saddam í síðustu viku að hann væri tilbúinn að fara með her sinn frá Kúvæt gegn því aö fá land- ræmu til sjávar. Þessu var síðar neit- að í írak en Bandaríkjamenn óttast að Sovétmenn fallist á einhverja slíka málamiðlun og rjúfi þar með samstöðu ríkja heims í andstöðunni við Saddam Hussein. Sovétmenn hafa tfl þessa þó ekki hikað í afstöð- unni. Reuter Peningamarkaður INNLÁNSVEXTIR (%) hæst Innlán óverðtryggð Sparisjóðsbækur ób. 2.0-2.5 Lb.Bb,- Sb Sparireikningar 3ja mán. uppsogn 2,5-3 Allir nema Bb 6 mán. uppsögn 3,5-4 Ib.Sb 12mán. uppsögn 4-5 lb 18mán. uppsögn 10 Ib Tékkareikningar, alm. 0,5-1 Allir nema Ib Sértékkareikningar 2-2,5 Lb,Bb,- Sb Innlán verðtryggð Sparireikningar 3ja mán. uppsögn 1.5 Allir 6 mán. uppsögn 2,5-3,0 Allir nema Ib Innlán meðsérkjörum 3-3,25 Ib Innlán gengistryggð Bandaríkjadalir 7-7,25 Ib Sterlingspund 13,5-13,6 Sp Vestur-þýskmörk 7-7,25 Sp Danskar krónur 9-9,4 Sp ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst Útlán óverðtryggð Almennirvixlar(forv.) 12,25-13,25 Allir Viðskiptavixlar(forv.) (1) kaupgengi Almennskuldabréf 11,25-13,5 Ib Viðskiptaskuldabréf(1) kaupgengi Allir Hlaupareikningar(yfirdr.) 15,5-16,0 Bb.lb Utlán verðtryggð Skuldabréf 7,75-8,5 Lb Utlántilframleiðslu Isl. krónur 11,75-13,5 ib SDR 11-11,25 Lb.Bb,- Sb Bandarikjadalir 10-10,2 Allir nema Sp Sterlingspund 16,5-16,7 Allir nema Sp Vestur-þýsk mörk 10-10,2 Allir nema Húsnæðislán 4,0 Sp Lífeyrissjóðslán 5-9 Dráttarvextir 21,0 MEÐALVEXTIR Óverðtr. okt. 90 14,0 Verðtr. okt. 90 8.2 VÍSITÖLUR Lánskjaravisitala okt. 2934 stig Lánskjaravisitala sept. 2932 stig Byggingavisitala okt. 552 stig Byggingavisitala sept. 172,5 stig Framfærsluvisitala okt. 147,2 stig Húsaleiguvisitala óbreytt l.okt VERÐBRÉFASJÓÐIR Gengi bréfa verðbréfasjóða Einingabréf 1 5,121 Einingabréf 2 2,781 Einingabréf 3 3,369 Skammtímabréf 1,725 Lífeyrisbréf Kjarabréf 5,061 Markbréf 2,694 Tekjubréf 1,997 Skyndibréf 1,509 Fjölþjóðabréf 1,270 Sjóðsbréf 1 2,456 Sjóðsbréf 2 1,780 Sjóösbréf 3 1,712 Sjóðsbréf 4 1,466 Sjóðsbréf 5 1,031 Vaxtarbréf 1,7345 Valbréf 1,6300 Islandsbréf 1,061 Fjórðungsbréf 1,036 Þingbréf 1.061 Öndvegisbréf 1,055 Sýslubréf 1,066 Reiðubréf 1,046 HLUTABRÉF Söluverð að lokinni jöfnur m.v. 100 nafnv.: Sjóvá-Almennar hf. 688 kr. Eimskip 567 kr. Flugleiðir 217 kr. Hampiðjan 176 kr. Hlutabréfasjóður 174 kr. Eignfél. Iðnaöarb. 187 kr. Eignfél. Alþýðub. 131 kr. Skagstrendingur hf. 420 kr. Islandsbanki hf. 179 kr. Eignfél. Verslunarb. 140 kr. Olíufélagið hf. 605 kr. Grandi hf. 200 kr. Tollvörugeymslan hf. 110 kr. Skeljungur hf. 662 kr. (1) Við kaup á viöskiptavíxlum og við- skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi, kge. Skammstafanir: Bb= Búnaðarbankinn, Ib = Islandsbanki Lb = Landsbankinn, Sb = Samvinnubankinn, Sp = Sparisjóð- irnir. Nánari upplýslngar um peningamarkað- inn birtast i DV á fimmtudögum. Dick Cheney fékk að skoða það sem hann vildi í herstöðvum Sovétmanna. Dimitri Jasov þótti þó vissara aö hafa auga með honum. Símamynd Reuter Vamarmálaráðherra Bandaríkjanna kominn heim á ný: Cheney þykir nóg um herstyrk Sovétmanna - fékk að fara inn á gafl 1 sovéskum herstöðvum Dick Cheney, vamarmálaráðherra Bandaríkjanna, kvaddi Sovétmenn meö þeim orðum að hann væri ekki lengur vantrúaður á vilja Sovét- stjómarinnar til afvopnunar. Hann sagði augljóst að utanríkisstefnan heföi breyst vamalega en tók þó fram að hemaðarmáttur Sovétríkjanna væri enn geigvænlega mikill. Cheney var gestur sovéska vamar- málaráðherrans Dimitris Jasov 1 flóra daga og saman skoðuðu þeir fjölmörg hemaðarmannvirki sem áður vom harðlokuð öllum NATO- mönnum. Cheney sagði að stjóm hans styddi Sovétmenn í breytingunum sem nú stæðu fyrir dymm í efnahagsmálum og sagðist vona að framhald yrði á samdrætti í herafla landsins. „Ég er bjartsýnn á framhaldið en ég er líka efahyggjumaöur," sagði Cheney. Cheney sagði að heimkoma sov- éskra hermanna frá Austur-Evrópu, sameining Þýskalands og samdrátt- ur í útgjöldum til hermála væm allt vísbendingar um að stefna heföi breyst en tók fram að það þýddi ekki aö Bandaríkjamenn hættu að hugsa um hættuna sem stafaði af heijum Sovétríkjanna. Cheney sagði að Bandaríkjamenn hlytu enn um sinn að líta á Sovétrík- in sem andstæðing og Jasov tók í sama streng. Hann bætti þó við aö ef bæði ríkin losuðu sig við allar langdrægar eldflaugar væri lítil ástæða til fjandskapar. Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.