Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.1990, Side 18
Veiðivon
Aðalfundur Landssambands stangaveiðifélaga í Munaðamesi um næstu helgi:
Helstu málin ástandið í haf-
inu, laxveiðin, kvótakaupin
Einn og einn vænn lax gladdi veiðimenn í sumar en það gæti orðið há upphæð ef reikna ætti kílóverðið á laxinum
eftir þetta sumar. Upphæðin yrði líklega i kringum 16-17 þúsund krónur fyrir kílóið.
DV-mynd G.Bender
„Það verða mörg mál tekin fyrir á
þessum aðalfundi sem endranær en
Landssamband stangaveiðifélaga er
40 ára á þessu ári. Félagið var stofn-
að 29. október 1950 og Sæmundur
Stefánsson var kjörinn fyrsti for-
maðurinn," sagði Grettir Gunn-
laugsson, formaður LS, í vikunni en
það styttist í aðalfundinn sem hald-
inn veröur 27. og 28. október í Mun-
aðarnesi í Borgarfirði. „Á fundinum
verður rætt um ýmsilegt, eins og
ástandið í haflnu við landið og á
hvern hátt það stjómar afkomu lax-
Grettir Gunnlaugsson, formaður
Landssambands stangaveiðifélaga,
með 17 punda lax úr Svartá í Húna-
vatnssýslu.
DV-mynd Ólafur Ingi Grettisson
ins og endurkomu hans í árnar. Það
er spuming hvort hafið sé ofbeitt -
hver áhrif hafa hinar miklu seiða-
sleppingar undanfarinna ára haft? -
hvernig hafa t.d. loðnu- og rækju-
veiðar verkað á laxastofnana? Hvað
með veðurskilyrði, hafstrauma, hita-
stig, ís og fleira? Gestur okkar verður
Sven Aaage Malmberg og mun hann
fjalla um málið á víðum grunni.
Einnig verður Árni ísaksson veiði-
málastjóri gestur okkar og mun hann
greina okkur frá störfum Veiðimála-
stofnunar á árinu. Ámi mun ræða
um ástandið, horfur og vandann í
veiðimálunum. Væntanlega fáum við
einnig að heyra frá Orra Vigfússyni
um stöðuna í kvótamálinu og svo
mun Aðalbjörn Kjartansson segja
okkur frá Rangárævintýrinu. Það
má líka gera ráð fyrir að menn velti
fyrir sér og ræði dvínandi veiði og
einni verð veiðileyfa. Auk þess verða
auðvitað hefðbundin aðalfundar-
störf, farið yfir árið, staðan metin og
svo stjórnarkjör," sagði Grettir í lok-
in.
Grettir Gunnlaugsson, núverandi
formaður, gefur kost á sér áfram sem
formaður, að minnsta kosti í ár í við-
bót.
Búast má við aö á þessum aðal-
fundi komi mörg mál upp á yfirborð-
ið. Veiðimönnum finnst að tími sé
kominn til að lækka verð á veiðileyf-
um. Það er sama hvað veiðin er lé-
leg, ekkert lækka veiðileyfin, það er
verið að selja fyrir næsta veiðiár.
„Kannski verður það gott veiðisum-
ar næst,“ segja leigutakarnir.
Veiðimenn munu fjölmenna á
þennan stærsta veiðifund ársins frá
mörgum stöðum landsins. Fundar-
menn verða líklega eitthvað í kring-
um eitt hundrað og Munaðarnes er
orðinn fastur staður í tilverunni sem
fundarstaður fyrir þing veiðimanna.
-G.Bender
LAUGARDAGUR 20. OKTÓBER 1990.
Þjóðar-
spaug DV
Hreintglas
Tveir menn komu eitt sinn inn
í veitingahús í Reykjavík. Pönt-
uðu þeir báöir pilsner og sagði
aimar þeirra við afgreiðsludöm-
una að hann vildi hafa glasið sitt
tandurhreint. Þegar af-
greiðsludaman kom aö horöi
þeirra með drykkina sagði hún
sposk á svip:
: „Hvor ykkar var það sem vildi
fá hreina glasið?“
Skyrið
Bóndi á VestQörðum þurfti að
ná tali af lækni sínum. Um leið
og þeir hittust rétli bóndinn hon-
um fulla fötu af sky ri og bað hann
aö þiggja. Ekki fannst lækningum
skyrið lystilegt svo hann afþakk-
aði gjöfina. Þá heyrðist í bóndan-
um:
„Ég gef þá bara einhverjum
ÖÐRUM aumingja það.“
Vantar pláss
Útlendur tannlæknir settist eitt
sinn að í kauptúni hér á landi.
Var hann af heimamönnum tal-
imi hinn þokkalegasti tannlækn-
ir en slakur í tannsmiði. Ein-
hverju sirrni smíðaði hann tennur
í einn af frammámönnum staðar-
ins. Nokkrum dögum síðar ltitt-
ust þeir á götu og spurði þá tann-
læknirinn hvcrnig honum fynd-
ust tennurnar.
„Þær eru alveg ágætar," svar-
aði maðurmn, „en það vantai'
hins vegar alveg pláss fýrir tung-
una.“
Blessað
brennivínið
Ilaraldur IQálmarsson, sem
kenndur var við Kamb, háði
marga glimuna við Bakkus. Eftir-
farandi vísa er eftir Harald:
Brennivín er besti matur,
bragðið góðá svíkúr éigi.
Eins og hundur fell ég tlatur
fyrir þvi á hverjum degi.
Finnur þú fimm breytingai? 77
Þú segir að bðmin hafi það gott. Hvaða börn?
Nafn:.........
Heimilisfang:
Myndirnar tvær virðast við
fyrstu sýn eins en þegar betur
er að gáð kemur í íjós að á
myndinni til hægri hefur
fimm atriðum verið breytt.
Finnir þú þessi fímm atriði
skaltu merkja við þau með
krossi á hægri myndinni og
senda okkur hana ásamt nafni
þínu og heimilisfangi. Að
tveimur vikum liðnum birtum
við nöfn sigurvegara.
1) Hitateppi fyrir bak og
hnakka, kr. 3.900,-
2) Svissneska heilsupannan,
kr. 2.990,-
Vinningamir koma frá Póst-
versluninni Príma, Hafnar-
firði.
Merkið umslagið með
lausninni:
Finnur þú fimm breytingar? 77
c/o DV, pósthólf 5380,
125 Reykjavík
Vinningshafar fyrir sjö-
tugustu og fimmtu getraun
reyndust vera:
1. Jón Halldórsson,
Njálsgötu 86,
101 Reykjavík
2. Elísa Magnúsdóttir,
Langagerði 52,
-108 Reykjavík
Vinningamir verða
sendir heim.