Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.1990, Síða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.1990, Síða 19
LAUGARDAGUR 20. OKTÓBER 1990. 19 Ársgamall patti: Á fjórar lang- ömmur á lífi Þaö eru ekki allir jafnríkir og Guö- mundur Þór Hafliðason sem er þó aðeins íjórtán mánaöa. Hann á tvær ömmur og fjórar langömmur á lífi. Það er þykir frekar fátítt að eiga tvær langömmur á lífi en að eiga þær aUar fjórar í kringum sig hlýtur að vera nær einsdæmi, að minnsta kosti fátítt. Sagt er að íslendingar séu með langlífustu mönnum í heimi og er þá jafnan bent á háan aldur ís- lenskra kvenna. Þó má geta þess að langömmur Guðmundar eru enn ungar, að minnsta kosti í útliti og anda. Einn dag nú í vikunni fékk Guð- mundur litli heimsókn allra þess- ara kvenna og var ekki laust við að stráksi væri hálfhissa á öllum þessum ömmum, þótt hann eigi væntanlega eftir að gleðjast frekar yfir þessu ríkidæmi sínu þegar hann eldist. Föðuramma Guðmundar, Hrönn Hafliðadóttir, sagðist sjálf hafa ahst upp með gömlum konum og var samtíma langömmu sinni í sautján ár. „Amma mín las fyrir mig barnabækur en langamma sagði mér sögur frá bernsku sinni. Hún hafði mjög gott minni þrátt fyrir að vera komin talsvert yfir ní- rætt,“ segir Hrönn og bætir við að gamla konan hafi munað jafnt nú- tíðina sem fortíð. Að sögn foreldra Guðmundar, Guðrúnar EUsu Guðmundsdóttur og Hafliða Ingólfssonar, hittir sá litli langömmur sínar ekki oft allar í einu. Þó gerist það ef veislur eru Guðmundur Þór með foreldrum sinum, Hafliða Ingólfssyni og Guðrúnu Elísu Guðmundsdóttur. Amman í fóðurætt er Hrönn Haf- haldnar, t.d. á jólunum í fyrra, af- mælum og öðrum stórhátíðum, svo sem þegar drengurinn var skírður. Það var því margt um manninn í Ásgarðinum í vikunni þegar ömmurnar sex htu inn í kaffisopa. Amma Guðmundar í móðurætt er Ingibjörg Siguijónsdóttir, en drengurinn er hennar fyrsta bamabam, og langömmurnar em Guðrún Jónsdóttir, sem er 83 ára, og Elísa Jónsdóttir, 72 ára. liðadóttir og langömmurnar eru Jónheiður Níelsdóttir, 74 ára, og Andrea Helgadóttir, 85 ára. Sjálfur er Guðmundur ársgamall síðan 16. ágúst. -ELA Guðmundur Þór Hafliðason, fjórtán mánaöa, ásamt ömmum sinum tveimur og fjórum langömmum. Ömmurnar eru fyrir aftan og heita Hrönn Hafliðadóttir og Ingibjörg Sigurjónsdóttir. Langömmurnar eru frá vinstri: Guðrún Jónsdóttir, Jónheiður Nielsdóttir, Andrea Helgadóttir og Elisa Jónsdóttir. DV-myndir Brynjar Gauti _______________________________________Vísmþáttur Við þá gátu þrátt hef þreytt Blaða- og fréttamennska hefur tek- ið svo ótrúlegum breytingum á síð- ustu áratugum að það kemst eng- inn samanburður að milh þess sem var og þess sem er. Hvort sú breyt- ing hefur verið til batnaðar geta þeir best dæmt um sem hfað hafa tímana tvenna. Árni Óla segir svo í lokaorðum bókarinnar Erhl og ferhl blaða- manns: „Blaðamaður lifir stöðugt og hrærist í atburðum líðandi stundar. Það er skylda hans að fylgjast sem best með öllu því er gerist. Hann á því að vera manna fróðastur um aht er við hefur borið á starfsferli hans.“ Það er hreint ekki lítið sem lagt er á blaða- og fréttamenn ef þeir eiga að uppfyha slíkar kröfur mið- að við það hvað heimurinn hefur stækkað, hvert skúmaskot dregið fram í dagsljósið. Það er því engin furða þótt sumir þeirra ruglist í ríminu og trúlega hefur Brynjólfur Einarsson, skipasmiður í Vest- mannaeyjum, haft það í huga er hann kvað: Við þá gátu þrátt hef þreytt og þarf víst lengi að glíma enn. Afvitkast menn yfirleitt ef þeir gerast blaðamenn? Ef th vhl er erhl þeirra og ferih svo lýjandi að sitthvað fer úrskeiðis hjá þeim af þeim sökum. Vel má vera að Rósberg G. Snædal hafi haft það í huga, er hann orti á Akureyri: Hjá íslendingi hef ég sjaldan hátt og hljóður geng að Verka- mannsins kofa. Við Alþýðumannsins dyr ég læðist lágt og lofa Dagsins þreytta barni að sofa. Þegar Páll H. Jónsson var kennari á Laugum í S.-Þing. bar það eitt sinn th, er honum voru borin dag- blöðin, að í Alþýðublaðinu var heh opna auð. Þá kvað hann: Alþýðublaðið á sér tíðum úrræði sem mér líkar við, þeir skjóta inn í það auðum síð- um th uppfyllingar á lesmáhð. Þau ljóð, sem birtast í dagblöðun- um, eru ærið misjöfn að gæðum, ekki síst á þessum síðustu og verstu tímum. Og fyrir kom að menn fólu sig bak við nafnleysið þegar þeir höfðu ekki nægilega sterka trú á sjálfum sér. En það var ekki alltaf vel séð eins og „Stutt ljóöabréf th Morgunblaðsins“, sem birtist í Þjóðviljanum fyrir nokkrum ára- tugum, ber með sér: „Seztu hérna hjá mér systir mín góð“. Hún mamma ætlar að lesa eitt Morgunblaðsljóð. Vandlega hihdu höfði þess höfðndur fer, þvi að það skiptir minnstu máh hver moðhausinn er. Vísnaþáttur Torfi Jónsson Það var þegar frétt barst um breyt- ingu á sunnudagsblaöi Þjóöviljans að einn lesenda hans (Jón Thor Haraldsson?) sendi eftirfarandi vísu: Á blaðinu grundvaharbreyting er ger, og boðar oss lesendum sælu: Laugardagsrövhð hans Áma míns er orðið að sunnudagsþvælu. Hér mun skeytinu hafa verið beint til Áma Bergmanns, sem ég tel í hópi skemmthegustu og skorinorð- ustu blaðamanna á þessum síðustu og verstu tímum. En það er víst engin ný bóla að hnýtt sé í blaða- menn og þá ekki síst ritstjóra og ábyrgðarmenn blaða og jafnvel tal- in nokkur óvissa um sáluhjálp þeirra, samanber eftirfarandi vísu séra Tryggva Kvarans: „Þú mátt eiga þetta hð, það mun við þig stjana“, sagði Drottinn Satan við og sýndi honum ritstjórana. Gísli Ólafsson frá Eiríksstöðum í Svartárdal gerir ekki upp á mhli blaða, þar fær hvert og eitt sinn skammt: Blöðin eggja landsins lið, lygin seggjum hljómar, hlustir leggja lag sitt við lymska og sleggjudómar. Ekki má gleyma útvarpi og sjón- varpi þegar rætt er um fjölmiðla. Áður var útvarpið skotspónn hinna óánægðu en síðan bættist sjónvarpið við. Einhver áhugamað- ur um vísnagerð orti svo fyrir margt löngu undir dulnefninu „Andvari" í Tímann að mig minnir: Ákaflega er að hraka okkar fomu vísnagerð, nú heyrist varla hnyttin staka í hófi eða á skemmtiferð, og unglingunum er ekki kennt að iðka slíka ljóðamennt. Útvarpið þó alla fræði um allt sem finnst á himni og jörð, fátt er um það flytji kvæði af fullkomnustu rímlist gjörð, og aldrei talað heyrist hót um hætti rímna og þess kyns dót. Kvæðið var lengra en þetta verður að duga í bili, því ég þarf að koma hér að stöku sem einn óánægður lesandi sendi Morgunblaðinu 5. febr. 1986, eftir að Guðrún Skúla- dóttir, sem var sjónvarpsþula um skeið, tilkynnti að hún myndi ekki framar lesa fréttirnar á skjánum: Þörf er að breytist þetta og hitt en þess ég bið á hnjánum, að Guðrún augnayndið mitt ekki hverfi af skjánum. Líklega er best að slá botn í þáttinn með limru sem ónefndur maður gaukaði að mér nýlega og er birt hér án ábyrgðar: Þetta fjölmiðlafólk er svo „smart", að því finnst víst andskoti hart, að mega ekki ljúga þegar menn vhja trúa. Maður - nú ‘er það svart. Torfi Jónsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.