Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.1990, Qupperneq 20

Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.1990, Qupperneq 20
Í0O Kvikcnyndir 4aA LKJAKDAfíUR- 20. QKTÓBER 1S90. 1 x>v Cohen-bræður á uppleið frumleika og ferskleika sem ein- kenndi öll vinnubrögö og margir gagnrýnendur settu myndina á lista yfir tíu bestu kvikmyndir ársins 1985. Bræðurnir höföu meiri peninga milli handanna þegar þeir geröu Raising Arizona. Hún heillaði aftur gagnrýn- endur og áhorfendur fyrir frumleika sem samanstóö af gamni, spennu og kærleika. Það er þó með Miller’s Crossing sem þeir nú virðast ætla að slá eftir- minnilega í gegn. Hvort þeirri mynd verður fylgt með enn betri er ómögu- legt að segja á þessu stigi málsins. Alla vega verður þaö erfitt því að slíku lofi hefur verið hlaðið á Mill- er’s Crossing, þótt vissulega séu það ekki allir sem eru jafnhrifnir, að er- fitt verður að fylgja því eftir. Þeir bræður eru samt ekkert að hvíla sig og eru að byija að kvikmynda næstu mynd sína sem þeir nefna Barton Fink. Þar leika aðalhlutverkin John Goodman og John Turturro en hann leikur einnig í Milier’s Crossing. -HK Það er enginn vafi á því að Cohen- bræðumir Joel og Ethen eru þeir kvikmyndagerðarmenn sem vakið hafa hvað mesta athygli af yngri kvikmyndagerðarmönnum í Banda- ríkjunum. Þótt það sé Joel Cohen sem er titl- aður leikstjóri Blood Simple, Raising Arizona og Miiler’s Crossing er aldr- ei vitnað í myndirnar þrjár sem afrek Joels heldur er ávallt bætt við nafni bróður hans, Ethen, sem er titlaöur framleiðandi. Allir sem með kvik- myndum fylgjast vita að á milh bræðranna er náin samvinna sem nær yfir aha þætti kvikmyndagerð- arinnar og því eru þeir ávallt nefndir báðir á nafn þegar talað er um hver hafi gert fyrmefndar kvikmyndir. Miller’s Crossing var frumsýnd á kvikmyndahátíðinni í New York fyr- ir mánuði og vákti mikla athygli. Virðist samkvæmt öhum fréttum vera á ferðinni kvikmynd sem eng- inn má missa af. Gerist myndin í ónafngreindri borg ogfjallar um vin- skap milli Leo, sem er spilltur stjórn- málamaður, og Tom sem er maður- inn á bak við hann. Vinskapur þeirra verður að fjandskap þegar báðir verða ástfangnir af sömu konunni. Tom gengur til liðs við andstæðing Leos og blóðugt stríð hefst í borginni. Það hefur verið ákveðinn vfiji hjá Cohen-bræðrum að reyna að endur- taka aldrei það sem þeir hafa áöur gert. Með það í huga fóru þeir að skrifa Miller’s Crossing. Þá langaði til að gera mynd um mafíustarfsemi og til hUðsjónar þegar þeir byijuðu að skrifa handritið höfðu þeir um- hverfi og persónur sem Dashiell Hammett hafði skapað: „í bókum Hammett er sögð saga sem fer oft í kringum sjálfan meginsöguþráð- inn,“ segir Joel. „Það er í raun heU- mikið púsluspil sem fer fram í bak- grunninum og beinir því lesandan- um meira að persónunum en sögu- þræðinum.“ Með þetta í huga fóru þeir að skrifa handritið að MUler’s Crossing og enduðu með handriti að kvikmynd sem þeir kalla „drulluborgarkvik- mynd“. Miðpunkturinn er Tom sem fer á milU stríðandi fylkinga án þess að verða háöur neinum. „Hann er hin dæmigerða Hammett persóna," segir Joel. „Áhorfandinnfæraldrei að vita nákvæmlega hvað mikið hann veit eða hvað hann ætiar sér. Hann fræðist um hvað aðrir ætla sér að gera og notar þá vitneskju sér til handa. Hann hefur sín áhugamál og siðferði en hann er alls enginn engUl. Það er írski leikarinn Gabriel Byme sem leikur Tom. Byme, sem fær sitt stærsta tækifæri í Miller’s Crossing, byijaði feril sinn hjá Ab- bey-leikhúsinu í DubUn. Hans fyrsta kvikmyndahlutverk var smáhlut- verk í kvikmynd John Boorman’s, Excalibur. Síðan hefur hann leikiö í nokkrum kvikmyndum og eru þær helstar, Hannah K, Gothic, Julia, Juliaog Siesta. í hlutverki Leo er breski stórleikar- inn Albert Finney og eins og hans er von og vísa slær hann eftirminni- lega í gegn í hlutverkinu og hefur fengið frábæra dóma. Upprunalega átti Trey WUson að leika Leo en hann hafði leikið í Blood Simple og Raising Arizone. Hann lést rétt áður en hann átti að fara að kvikmynda. Cohen- bræður leituðu því til Finneys, sem þeir höfðu kynnst í New York, og báðu hann að hlaupa í skarðið. Fin- ney, sem aldrei hefur látið undan þeirri freistingu aö gera langtíma- samninga, var á lausu, þá vom að- eins tveir dagar áður en kvikmynda- tökur áttu að hefjast og honum leist það vel á handritið að hann sló til. Joel Cohen til vinstri og Ethan eru hér við töku á Miller’s Crossing. Albert Finney og Gabriel Byrne leika vini sem snúast hvor gegn öðrum. Marcia Gay Harden, sem sést á innfelldu myndinni, leikur stúlkuna sem verður til þess að þeir verða óvinir. Kvikmyndir Hilmar Karlsson tökurnar. Atriðin vom kannski film- uð fimm eða sex sinnum og aldrei eins. Síðan, þegar komið var aö klippingu, skeyttu þeir atriðinu sam- an eins og þeim þótti það koma best út.“ Finney hefur þetta um þá bræður að segja eftir að hafa unnið með þeim: „Það sem mér fannst stórkost- legt við þá bræður var að þeir voru ávallt að koma einhveiju nýju inn í Ungir sérvitringar Bræðumir Joel, sem er 35 ára, og Ethen, sem er 33 ára, læröu ekki báðir til kvikmyndagerðar. Joel nam kvikmyndagerð við New York Uni- versity of Film School meöan Ethan var við sálfræðinám í Princeston en hugur Ethan stóð einnig til kvik- myndagerðar og þegar hann frétti að bróðir hans væri farinn að vinna við khppingu á myndum héldu honum engin bönd og hann flutti til New York og saman byijuðu þeir að skrifa handrit fyrir framleiðendurna sem Joel var að vinna fyrir. Þegar ekkert gekk að koma hand- ritunum á framfæri ákváðu þeir að stofna sitt eigið fyrirtæki. Um leið ákváöu þeir að þeirra fyrsta kvik- mynd skyldi vera Blood Simple. Þeir gátu önglað peningum, urðu sér úti um leikara sem vildu vinna fyrir lít- ið og héldu til borgarinnar Austin sem er í Texas þar sem myndin var tekin. Þetta var 1984. Þegar svo Blood Simple kom fyrir augu almennings voru það margir sem heilluðust af myndinni sakir Fljótiega mun Stjömubíó taka til sýningar gamanmyndina The Freshman sem státar af því að hafa engan annan en Marlon Brando í aðalhlutverki. Er þetta i fyrsta skipti síöan ííann lék í The Form- ula 1980 aö hann leikur aðalhlut- verk í kvikmynd. Þrátt fyrir að Brando hafi látið út úr sér að hon- um þætti lxtið varið í myndina hef- ur hún fengiö mjög góöa dóma vest- anhafs og urðu ummæli hans alls ekki til þess aö skaöa aösóknina. í The Freshman leikur Brando viðskiptajöfurinn Carmine Sabat- ini sem ræður ungan mann í vinnu sem vægast sagt hefur verið óhepp- inn í samskiptum sínum við annaö fólk. Sabatini vorkennir unga manninum og tekur hann upp á sína arma og veitir honum innsýn í líf sem hann haföi ekki óraö íýrir að væri til. Það er Matthew Brod- eríck sem leikur unga manninn og segir hann aö það að leika á móti Brando sé eins og að leika fótbolta við fótboltastjörnu: „Hann gefur fullkomnar sendingar sem verða til þess að ég get leikiö betur." Leiksljóri og handritshöfundur myndarinnar segist ekki hafa haft Marlon Brando í huga þegar hann skrifaöi handritið. Framleiöandinn hafði stungið upp á þvi að þeir sendu honum handritið upp á von og óvon um að hann myndin lesa það. Þeir urðu aldeilis undrandi þegar Brando haföi samband viö þá og bauö þeim til eyjarinnar Tet- iaroa sem hann á, Þar hélt Brando þeim uppi á snakki um allt milli himins og jarðar í tvo daga en minntist aidrei á kvikmyndina. Á þriöja degi, rétt áöur en þeir voru á fórum, sagðist hann ein- faldlega ætia að leika í myndinni og hann stóð við það og þótt ekki hafi alltaf andað hlýju miili leik- stjórans og stjörnunnar var allt klárað á réttum tíraa og útkoman er kvikmynd sem veitir öllum skemmtun sem hana sjá. Eins og flestum er kunnugt hefur Marlon Brando staðið vörö um son sinn aö undanfómu en hann er sakaöur um aö hafa drepið tilvon- andi tengdason Brando. Hefur það komiö i veg fyrir áætlanir um gerð kvikmyndarinnar Jerhico sem hann hefur skrifað og haföi ætiað sér að leikstýra og leika aöalhiut- verkið í. Hvort af þessari mynd verður er því óljóst, alla vega verö- ur það ekki í bráö. -HK Marlon Brando leikur viðskiptajöfurinn Carmine Sabatini í The Fresh- man.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.