Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.1990, Síða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.1990, Síða 21
LAUGARDAGUR 20. OKTÓBER 1990. Neytendasamtökin: Jóhannes Gunnarsson, formaður Neytendasamtakanna, segist ætla að reka þau með hagnaði á næsta ári. Neytendasamtökin voru nokkuö í fréttum fyrr á árinu þegar skýrt var frá því aö fjöldi félaga þeirra hefði á skömmum tíma aukist úr 8 þúsund í 20 þúsund. Neytendasam- tökin fluttu á árinu í nýtt og glæsi- legt húsnæöi á Skúiagötu eftir aö hafa hírst í þrengslum á Hverfis- götu um árabil. Símalínum var fjölgaö og þjónustan aukin. Fyrir skömmu birtist grein um samtökin í einu blaðanna þar sem því var haldið fram að fjármál Neytendasamtakanna væru farin úr böndunum og eytt væri um efni fram. DV gekk á fund Jóhannesar Gunnarssonar formanns og spuröi: - Er allt í ólestri hjá ykkur, Jó- hannes? „Þær fullyrðingar sem birst hafa í fjölmiðlum eru alrangar," sagði Jóhannes. „Það er vissulega ljóst að halli verður á rekstri samtak- anna þetta árið sem nemur u.þ.b. 2,7 milljónum en þess ber að gæta að reikningar liggja ekki fyrir enn- þá. Samtökin rekin með hagnaði á næsta ári í áætlun, sem við erum að taka saman núna, kemur í ljós að miðað við óbreytta starfsemi Neytenda- samtakanna á næsta ári greiðum við niður þennan halla og skilum góðum hagnaði af rekstrinum. Ástæða þessa halla er sú að veru- leg aukning hefur orðið á þjónustu og umsvifum samtakanna. Sá fjöldi nýrra félaga sem bættist við og gerði þetta kleift gekk að mestu í samtökin á miðju ári og greiddi því að sjálfsögðu ekki nema hálft ár- gjald eða 1.100 krónur. Þess utan er dýrt að safna félögum með þess- um hætti. Þetta fólk greiðir fullt árgjald á næsta ári sem veröur að vísu ekki hækkað mikið milh ára. Það segir sig því sjálft að rekstur samtakanna er tryggður á næsta ári. Ég tel hins vegar að samtök af þessu tagi eigi ekki að reka með hagnaði heldur rétt við núflið. Þaö eru meira en næg verkefni sem þarf að vinna fyrir neytendur," sagði Jóhannes. „Við jukum útgáfu Neytenda- blaðsins úr fjórum blöðum í fimm á ári og stórbættum kvörtunar- þjónustuna. Það kom í ljós að gífur- leg þörf var á aukinni kvörtunar- þjónustu og fjöldi símtala inn til okkar hefur margfaldast. Þetta varð dýrara en reiknað var með.“ Áætlaðar tekjur samtakanna á þessu ári eru um 25 milljónir króna. Styrkur frá hinu opinbera er rúmar 3 milljónir. En verða tekj- ur samtakanna á næsta ári ekki miklu meiri miðaö við að inn komi aukin félagsgjöld? „Þetta er nú allt frekar óljóst. Við höfum ekki ákveðiö hver hækkun verðm- á félagsgjaldinu milfl ára. Við vitum ekki hvert framlag hins opinbera verður á fjárlögum." Jóhannes gefur kost á sér áfram Á þingi Neytendasamtakanna í dag munu reikningar samtakanna liggja frammi og fjárhagsáætlun næsta árs. Það er hins vegar ekki ýkja flókið reikningsdæmi að tekj-. urnar hijóta að verða 35 mifljónir hið minnsta á næsta ári. Á þingi samtakanna verður ný stjórn kjör- in en Jóhannes gefur áfram kost á sér sem formaður. - Eru samtökin of dýr í rekstri? „Því var haldið fram í áður á- minnstu blaöi að starfsmenn hér væru sjö og ég vildi óska að svo væri en hið rétta er að þeir eru sex. í kvörtunar- og leiðbeiningar- þjónustu eru tvö og hálft starf, einn starfsmaður sér um Neytendablað- ið, einn og hálfur sinna almennum skrifstofustörfum. Síðan gegni ég starfl launaðs formanns. Við vild- um gjaman geta ráðið fleiri starfs- menn til þess að sinna ýmsum sér- hæfðum verkefnum." - Hvað fá neytendur fyrir félags- gjaldið? „Þeir fá Neytendablaðið fimm sinnum á ári. Við aðstoðum okkar félagsmenn þeim að kostnaðar- lausu verði þeir fyrir því að kaupa gallaða vöru og ná ekki fram rétti sínum. Þetta er það sem neytendur sjá beint. Síöan vinnum við að fjöldanum öllum af málum sem snerta neyt- endur á margvíslegan hátt. Við höfum knúið mjög fast á um að löggjöf á sviði neytendaverndar verði bætt. Ég geri mér fastlega vonir um að á næsta Alþingi komi fram frumvörp þar sem ýmis okkar baráttumál verða að veruleika. Fulltrúar okkar sitja í fjölmörgum nefndum og ráðum þar sem hags- muna neytenda er gætt og reynt að styrkja stöðu þeirra. Þetta er starf sem er ekki mikið í sviðsljós- inu en er mikilvægt samt.“ Ætlum að krefjast frelsis í innflutningi búvara - Þvi hefur veriö haldið fram að Neytendasamtökin séu ekki nógu einörð í sinni afstöðu og t.d. veigri þau sér viö aö taka afstöðu í við- kvæmum deilumálum sem snerta alla neytendur. Hvað með afstöðu samtakanna gagnvart innflutningi á landbúnáðarafurðum? „Ég veit ekki betur en að Neyt- endasamtökin hafi á undanförnum árum gengið fram fyrir skjöldu og gagnrýnt harðlega það landbúnað- arkerfi sem er við lýði á íslandi í dag. Við höfum þó til skamms tíma ekki viljað krefjast innflutnings á landbúnaðarvörum. Það er ekkert launungarmál að í okkar röðum, þar á meðal hjá mér, eru vaxandi efasemdir um þessa afstöðu. Á þingi samtakanna verð- ur því lögð fram ályktun þar sem lagt er til að stefnu Neytendasam- takanna hvað þennan málaflokk varðar verði breytt. Þess verður krafist að innflutningur matvæla verði á 3-5 ára bifl gefinn frjáls. Við verðum að gera okkur grein fyrir því að þaö er búið aö hneppa þessa atvinnugrein, landbúnaðinn, í þvíflkar viðjar einokunar og framleiöslustýringar að ef þeim yrði svipt af í einni andrá myndi íslenskur landbúnaður hrynja. Það viljum við ekki.“ - Én er það hlutverk samtakanna að bera hag einnar stéttar sérstak- lega fyrir bijósti. Eru ódýrar mat- vörur ekki það sem skiptir neyt- endur mestu máfl? „Við höfum trú á íslenskum land- búnaði. Ef hann fengi að búa við fijálst markaðskerfi og framleið- endur að framleiða á eigin ábyrgð þá geti hann staðið fyllflega jafn- fætis samkeppni erlendis frá,“ sagði Jóhannes. „Mér finnst rétt- ara að setja fram hófsamari en um leið raunhæfari kröfur en þær að krefjast innflutningsfrelsis strax. Ég vek athygli á að í skoöanakönn- un samtakanna kom í ljós að tæpur meirihluti aðspurðra var hlynntur innflutningsbanni. Við vfljum láta hlusta á okkur og viljum ná ár- angri. -Pá 21 L'ORÉAL glens 09 TiVOLi HVERAGERÐI Opiðallar helgar í október og nóvember kl. 13-18. ÚRVALSBÆKURNAR FÁSTÁNÆSTA BÓKA- OG BLAÐSÖLUSTAÐ ÚRVALSBÆKUR MÁNAÐARLEGA

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.