Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.1990, Blaðsíða 27

Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.1990, Blaðsíða 27
LAUGARDAGUR 20. OKTÓBER 1990. 35 „Ég mun keppa á heimsmeistara- móti áhugamanna í vaxtarrækt sem fram fer í Malaysíu um næstu helgi ásamt ívari Haukssyni. Vegna þess hversu langt er að fara buðu þeir öllum aðildarlöndum tvo flugfrímiða, gistingu og fæði. Við þurfum því engan kostnað að bera nema flugfargjaldið til London,“ segir Guðmundur Bragason, ís- landsmeistari í vaxtarrækt. Und- anfarið hefur hann tekið sér frí frá vinnu til að undirbúa keppnina. Undirbúningur felst í þrotlausum æfingum. íslendingar hafa ekki áöur tekið þátt í alþjóðavaxtarræktarmóti. í fyrra fór keppnin fram í Paris þar sem keppendur voru tvö hundruð. Guðmundur segist ekki vita hversu margir keppendur verða nú en býst viö að þeir verði allmargir þar sem um frímiða er að ræða. Þau lönd, sem eru í alþjóðasambandi vaxtar- ræktarmanna, eru 120 talsins. Guðmundur, sem er 25 ára, fékk áhuga á vaxtarrækt fyrir sex árum. Hann segist hafa verið dreginn nauðugur af kunningjum inn í vaxtarræktarsal og þá varð ekki aftur snúið. „Ég hafði reyndar haft áhuga á þessu löngu áður en þorði aldrei að hefja æfingar enda var ég mjög feiminn. Vaxtarræktin eflir mjög sjálfstraust manna og við það vinnur maður bug á feimninni,“ segir Guðmundur. Sá hópur manna, sem stunda vaxtarrækt fyrir keppni, er ekki stór hér á landi, að sögn Guðmund- ar, einungis fjörutíu til fimmtíu manns. Hins vegar er mikill áhugi á vaxtarrækt og hann er alltaf að aukast. Þeir sem vilja taka þátt í vaxtarræktarkeppni þurfa að gefa sig fram til þátttöku. Vaxtarræktin byggist upp á daglegum æfingum og réttu mataræði. Guðmundur Bragason æfir stíft þessa dagana enda tekur hann þátt i heimsmeistaramóti vaxtarræktarmanna í Malaysíu um næstu helgi. DV-mynd JAK „Menn verða auðvitað sterkir í vaxtarræktinni. Þeir þurfa að skemma vöðvana til að byggja þá ^ upp aftur og þá verða menn óneit- anlega sterkari og sterkari." Stæltar konur Vaxtarræktarkeppni gefur mönnum htið annað en sjálfs- traust, að sögn Guðmundar, enda er hún ekki ósvipuð fegurðarsam- keppni. „Sumir vilja flokka æfing- arnar sem íþrótt en ekki keppnina. Fólk sldlur yfirleitt ekki hvernig maöur nennir að standa í þessu. Ef maður hefur gaman af vaxtar- ræktinni þá er hún lítið mál,“ segir Guðmundur og bætir því við að honum finnist þær konur, sem hafi stundað vaxtarrækt upp að ákveðnu marki, fallegri. „Mér finnst stælt kona bera af. Þær geta hins vegar orðið karlmannlegar ef þær fara of geyst.“ Keppnin í Malasíu fer eins fram og þær sem hafa verið haldnar hér á landi. Menn sýna stælta vöðva sína í fimm flokkum og fimmtán úr hverjum þeirra verða valdir í úrsht. Engin verölaun verða veitt. Til eru atvinnumenn í faginu og Guðmundur segist vel geta hugsað sér slíkt starf. Þá fara menn í keppni sem býður peningaverð- laun. Hér á landi er enginn at- vinnumaður í vaxtarrækt. Allt hár rakað Áður en menn stíga á svið verða þeir að raka hvert hár af kroppi sínum, fara í ljósatíma, bera á sig brúnkukrem og síðan barnaolíu. Þetta er gert vegna þeirra sterku ljósa sem beint er að keppendum. Guðmundur segir að þar sem nokkur ár taki að byggja upp hk- Á leið í vaxtarræktarkeppni í Malaysíu: Utlitið skiptir Breytt mataræði „Ég þurfti hehmiklu aö breyta í mínum matarvenjum þegar ég byijaði í vaxtarræktinni. Við leggj- um mesta áherslu á prótínríka fæðu og kolvetnaríka en fitunni sleppum við. Ég borða engar mjólk- urafurðir og htið af rauðu kjöti. Hins vegar borða ég mikiö af fiski, kjúkhngum, hafragraut, eggjum og brauði. Þegar maður er kominn á lagið með mataræðið er það lítið mál. Ég er svo heppinn að tengda- foreldrar mínir, sem ég bý hjá, eru á sömu hnu í mataræðinu," segir Guðmundur. Þess má geta að unn- usta hans er Inga Steingrímsdóttir sem varð íslandsmeistari kvenna í öllu máli - segir Guðmundur Bragason íslandsmeistari vaxtarrækt á þessu ári. Inga og Guðmundur kynntust í gegnum vaxtarræktina. Guðmundur segir að þó æfmgar taki mikinn tíma séu þær mjög skemmtilegar. Ekki sakar aö sjá stöðugan árangur og breytingar á líkamanum. Guðmundur starfar við Ijósritun, úthtsteikningu og fleira en hann er menntaður raf- eindavirki. Á hverjum degi fer hann í vaxtarræktina eftir vinnu og æfir í tvo th þrjá tíma. Fyrir keppni taka þó æfingar mun meiri tíma. „Þetta er bara eins og hvert annað tómstundagaman,“ segir hann. Fallegt útlit Fólk hefur mismunandi skoðanir á vaxtarrækt en Guðmundur segir aö hún byggist á því fyrst og fremst að líta vel út. „Við leggjum höfuðá- herslu á útlitið en ekki hvort við verðum sterkir eða ekki. Þetta er ekki eins og kraftlyftingar þar sem menn gera sig sterka. Okkar keppni gengur einfaldlega út á að hta vel út þó að skoðanir séu skiptar um hvort sú sé raun- in,“ segir Guðmundur ennfremur. „Við æfum mikið fjölbreyttar held- ur en kraftlyftingamenn og leggj- um áherslu á að stækka vöðvana þannig að samræmið sé gott. Keppnin er tvíþætt," segir Guð- mundur, „annars vegar sjö skyldu- stöður þar sem allir gera eins og síðan frjálsar stöður þar sem menn sýna eigið hugmyndaflug undir valinni tónhst. Þessar frjálsu stöð- ur eru mun betri núorðið hér á landi heldur en áður var og mun listrænni." Guðmundur og Inga æfa mikið saman enda jafngott því annars sæjust þau sjaldnast. „Þetta væri varla hægt annars því þó að maður sé kominn heim þá snýst allt um vaxtarræktina líka.“ Guðmundur segist spá mikið í útht fólks og segist vera kröfuharð- ari en eha. 2 amani áður en að keppni kemur séu keppendur yfirleitt ekki undir tvítugu. Þeir geta hins vegar verið aht upp í sextugt. Guðmundur Bragason hefur æft að undanfömu hjá World Class en hann hyggst breyta th þegar Jón Páh Sigmarsson opnar eigin lík- amsræktarstöð í nóvember. Það er erfitt að byggja upp líkamann og er margra ára vinna. Guðmundur segist stundum hafa verið nærri því að gefast upp. „Þegar maður fer að sjá árangur er ekki hægt að hætta því styttri tíma tekur að hrynja niður en byggja upp.“ -ELA

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.