Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.1990, Síða 31

Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.1990, Síða 31
Skelfingarópin hljóma frá „rússíbananum" I Busch Gardens. Við höfum séð menn koma þar náföla af skelf- ingu en börnunum og unglingunum er afar vel skemmt. Ævintýralandinu. Þama hitta menn fyrir gamal- kunnar ævintýrapersónur eins og Mjallhvíti og Þyrnirósu. Farið er í neðansjávarsiglingu með Nemo skipstjóra um borð í kafbátnum Nautillus og fleira og fleira. í landi morgundagsins má m.a. sjá hver þróunin hefur orðið inni á heimil- unum frá aldamótum, sýning sem sett er upp á einkar sniðugan hátt. Segja mætti að Epoct Center garðurinn sé e.t.v. meira sniðinn að smekk fullorðinna en hinir Di- sneygarðamir. Þar fara menn í ferð um geiminn og himinhvolfið, kynnast undra- og ævintýraheim- um sem engan óraði fyrir að hægt væri að útbúa. Þar heimsækja menn fjarlæga staði á einni dag- stund en alls hafa ellefu þjóðlönd viðamiklar sýningar frá heima- löndum sínum. Eru allar þessar sýningar afarmerkar, þótt e.t.v. megi segja að Kína beri þar af í einhveiju tilliti. Það skyldi því enginn missa af því að skoða kínversku sýninguna. Þar er sýnd svo stórkostleg kvik- mynd í hringlöguðu kvikmynda- húsi að þeir sem hana sjá hafa aldr- ei upplifað neitt stórkostlegra á hvíta tjaldinu. Einnig era þama til sýnis og sölu kínverskir listmunir svo fagrir að flest annað bliknar. Frændþjóð okkar, Norðmenn, er þama meðal stórþjóða heimsins með sína Guðbrandsdalskirkju og Akershus-veitingastað. Mjög at- hyglisvert er að „sigla“ í gegnum norsku „söguna“. Skandinavísku löndunum mun hafa verið boðið að standa að sam- eiginlegri sýningu þama í Epcot. Forráöamenn þeirra gátu ekki komið sér saman og þótti fyrirtæk- ið einnig of kostnaðarsamt. Norð- menn tóku sig þó út úr og fengu staðinn. Ekki munu þeir sjá eftir því. Norska deildin er heimsótt af hundruðum þúsunda árlega og er talið að kostnaöurinn skili sér í Ferðir landkynningu og sölu minjagripa og vel það. Deginum í Epcot lýkur svo á stór- kostlegri flugelda- og ljósasýningu sem enginn má missa af. í miðjum garðinum er gríðarstórt stöðuvatn og er þar komið fyrir gosbrunnum sem lýstir em upp og síðan er „leik- ið“ á vatnsbunumar á meðan hljóm- list dynur úr hátalarakerfunum. Á meðan era byggingar hinna fjarlægu þjóðlanda upplýstar með skrautlýsingum og leysigeislum þannig aö manni verður orðfall ef á aö lýsa þessu svo nokkur mynd sé á. Þessu má enginn missa af. Halló manni - allt í ganni Kvikmyndaverin tvö, sem opnuð hafa verið almenningi í Flórída, em MGM og Universal. Það fyrr- nefnda tilheyrir Disney. Þar getur að líta allar heimsins tæknibrellur og hægt er að kynnast því hvemig kvikmyndimar verða tíl. Universal-kvikmyndaverið var opnað almemúngi á sl. sumri. Þar fara menn ferð með geimverunni ET, gestir lenda í gífurlegum jarð- skálfta, risinn King Kong gerir gestum lífið leitt, þeir lenda í bát sem nærri er kominn í kjaftínn á stóra hákarlinum Jaws og svo mættí lengi telja. Auðvelt er að gleyma sér í undra- heimi kvikmyndanna og er næsta ótrúlegt hve eðlilega ýmsar brellur líta út þegar þær koma fyrir augu okkar á hvíta tjaldinu. Sea World í sérflokki Nú er ipjög í tísku að gagnrýna dýragarða og aðra staði þar sem dýr em höfð til sýnis og, eins og sumir segja, að „féþúfu“. Náttúm- vemdarmönnum kemur þó saman um að í sjávardýragarðinum Sea World sé vel hugsað um dýrin og hagur þeirra er borinn fyrir brj ósti. Þar verða gestir vitni að stórkost- legum sýningum lifandi dýra eins og höfrunga, sela og stórhvala á borð viö háhyminga. Það er ótrú- legt hvemig hægt er að temja þess- ar risavöxnu skepnur til þess að leika ótrúlega finlegar listír, rétt eins og þær skilji mælt mál. Einnig er hægt að skoða þama hákarla og aðra drápsfiska í neðan- sjávarbúrum og þykir sumum það allra skemmtilegast. Þá sýna sjó- skíðalistamenn einnig listir sínar í Sea World. Enginn má missa af því aö heimsækja þennan stórmerka stað. LAUGARDAGUR 20. OKTÓBER 1990. 39 dv LífsstQl Flórída: Skemmtigarðar Anna Bjamason, DV, Flórída: Á Mið-Flórídasvæðinu em fjöl- margir skemmtigarðar. Þeirra kunnastur eru Disney-garðarnir, Sea World, Busch Gardens, Silver Springs og Universal-kvikmynda- verið sem er þeirra nýjastur. Á svæðinu eru a.m.k. sjö vatns- skemmtígarðar þar sem allt gengur út á vatnsrennibrautir og sund. Frægastir em Wet’nd Wild, Water Mania, Adventure Island og Typ- hoon Lagoón. Skemmtistaðir þar sem boðið er upp á fjölbreytt og í sumum tilfell- um frábær skemmtiatriði eru margir og auk þess nærri óteljandi veitinga- og matsölustaðir. Það er mesti misskilningur að í Banda- ríkjunum sé ekkert að hafa nema hamborgara og franskar í svang- inn. Auðvelt er að komast í skemmtí- siglingar, hvort sem menn kjósa að sigla á lygnum ám í fljótandi veitingastaðnum River Romance eða um borð í skemmtiferðaskipum á borð við „love boat“ sem margir þekkja úr sjónvarpinu. Hægt er að fara dagsferðir með slíkum lúxus- farkostum þar sem farið er rétt út fyrir landhelgi og deginum eytt í glaum og gleði við fjárhættuspil. Einnig er hægt að fara í lengri ferð- ir og þá til nærliggjandi eyja eins og Bahamaeyjaklasans sem er skammt útí fyrir ströndum Flórída. Loks er hægt að fara í siglingar um fenjasvæðin í óvenjulegum loft- skrúfubátum sem svífa með ógur- legum gný rétt í vatnsborðinu. Þá kemur ferðamaðurinn inn á alger- lega óspillt svæði náttúmnnar þar sem lifandi krókódílar flatmaga í sólinni og skjaldbökur liggja í röð- um á tijágreinum að herða á sér skelina og líta út tilsýndar eins og bílar á bílastæði. Disney alveg einstakur- eitthvað fyrir alla „Disney er ekkert fyrir mig,“ hef- ur heyrst frá fullorönum íslending- um sem verið hafa á ferð barnlaus- ir á Orlando-svæðinu. Það er hins vegar mesti misskilningur. Það eiga allir erindi til Disneys, jafnt fullorðnir sem böm. Disney- garðamir em þrír, Magic King- dom, Epoct Center og MGM-kvik- myndaverið. Magic Kingdom er sniðinn eftir ævintýrunum og kannski sá sem höfðar mest til yngstu kynslóðarinnar. Þar geta fullorðnir einnig skemmt sér vel því þar er öllu svo vel og haganlega fyrir komið. Hægt er að fá góða yfirsýn yfir garðinn með því að byija á að fara með jámbrautarlest í kringum hann allan. Garðinum er skipt í fimm aðalsvæði: Main Street USA, Adventureland, Frontierland, Fantasyland og To- morrowland. Jámbrautarlestín stoppar í hveiju „landi“ en einnig er auðvelt að ganga á milli svæð- anna. Þama er ótalmargt að sjá og allt rr\jög áhugavert en látið ekki hjá líða að skoða Pirates of the Caribbean eða sjóræningjana í Karíbahafinu. Þá er að finna í Á Orlando-svæðinu er einnig krókódílagarðurinn Gatorland sem er í Kissimmee. Það er stærstí krókódílagarður í heimi, hvorki meira né minna. Þar er einnig upp- eldisstöð fyrir krókódíla og eru þeir sendir þaðan í dýragarða um gjörvallan heim. Busch Garden er í næsta ná- grenni við Tampa sem er í um það bil hálfs annars tíma aksturs fjar- lægð frá Orlando. Það er ekki síður hægt að skemmta sér þar en í þeim görðum sem fyrr voru nefndir. Þar er að finna gífurlega stóran „rússíbana", sem hvolfir fólki á ofsahraða, risastóran vaggandi bát sem ruggar fram og aftur með gest- ina spennta fasta í sætin þangað til hann fer heilan hring. Þama þeyt- ast menn í litlum bátum með gífur- legum hraða í hlykkjum eftir vatnsbrautum og enda meö því að koma með leifturhraða niður snar- bratta himinháa brekku. Fullorðið fólk kemur náfólt úr þessum skemmtítækjum en börn og ungl- ingar hafa aldrei upplifað neitt eins skemmtilegt. - En það má einnig svífa í körfum yfir svæðið Busch Gardens og skoða það úr rólegu loftfarinu og fara með einteinungi í kringum svæðið. Boðið er upp á ýmsar skemmtilegar sýningar og skemmtanir innanhúss. Ekki má láta hjá líða að nefna ísskautasýn- inguna sem er ólýsanlega falleg og skemmtileg. Þar sýna fæmstu skautalistamenn heimsins listir sínar á skautasvellinu í ótrúlegum skrautsýningum. En ef skipta á dvölinni í Flórída t.d. á milli Orlando og Mexíkóflóa- svæðisins er hentugra að skoða Busch-garðinn þaðan. Enn er eftir að nefna fjölmargt sem er sérlega áhugavert. Get ég ekki látið hjá líða að minnast á eft- irlætisstað undirritaðs sem er Sil- ver Springs. Það er dásamlegur garður í um það bil hálfs annars tíma keyrslu norður af Orlando. Þar er að finna einhveijar stærstu uppsprettur lindarvatns í Bandaríkjunum. Þetta silfurtæra vatn rennur í Sil- furá og er siglt á henni í bátum með glerbotni. Skoðaður er árbotn- inn og lífið undir vatnsborðinu. í Silver Springs er einnig nokkuð af villtum dýrum í „náttúrulegu” umhverfi sínu, apar, gíraffar, gas- ellur og önnur dýr, aö ógleymdum krókódílum og skjaldbökum. Þama er einnig fjölskrúðugt fugla- lif. Allt umhverfið í Silver Springs er sérlega friðsælt og fagurt. Á svæðinu er skóglendi sem er nauðalíkt því sem finna má í Afr- íku. Þama hafa verið teknir fjöl- margar kvikmyndir á undanfóm- um áratugum. Nefna má sérstak- lega að Tarsan-myndimar með Jo- hnny Weissmuller vom allar tekn- ar þama en ekki í Afríku eins og allir héldu. Það er því greinilega ekki að ástæðulausu að Mið-Flórídasvæðið er svona vinsælt meðal feröa- manna. Þangað sækja menn hvað- anæva úr heiminum svo heyra má mörg tungumál þegar gengið er um garða og skemmtistaöi svæðisins.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.