Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.1990, Síða 42

Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.1990, Síða 42
50 LAUGARDAGUR 20. OKTÓBER 1990. . * > Afmæli Ingólfur Kristinsson Ingólfur Kristinsson, lengst af starfsmaöur viö Sundlaugina á Ak- ureyri, til heimilis aö Hjallalundi 17E, Akureyri, er áttræöur í dag. Starfsferill Ingólfur fæddist á Akureyri og ólst þar upp. Hann missti fööur sinn ungur og þurfti snemma að fara að vinna fyrir sér. Ingólfur vann m.a. við ullarþvott hjá Gefjun og síðan starfaði hann á skrifstofu póstbáts- ins Drangs en lengst af vann hann hjá Akureyrarbæ við Sundlaugina eða í tuttugu og fimm ár. Á yngri árum stundaði Ingólfur íþróttir með íþróttafélaginu Þór og Leikfimisfélagi Akureyrar og fór þá m.a. í sýningarferðir tU Reykjavíkur og víðar. Þá starfaði hann og lék með Leikfélagi Akureyrar og söng í mörg ár með Karlakómum Gey si. Ingólfur hefur sinnt ýmsum fé- lagsstörfum. Hann var m.a. formað- ur Starfsmannafélags Akureyrar í tólf ár, sat á þess vegum þing BSRB í Reykjavík og var gerður að heið- ursfélaga Starfsmannafélagsins er hann varð sjötugur. Þá var hann fulltrúi á aðalfundum Kaupfélags Eyfirðinga. Hann er nú formaður félagsinsKarlII. Fjölskylda Ingólfur kvæntist 26.11.1932 Grétu Jónsdóttur, f. 3.10.1910, d. 25.4.1982, húsmóður. Ingólfur og Gréta eignuðust sex börn. Þau era Hildur, gift Guðlaugi Tómassyni og eiga þau flmm börn og átta barnabörn; Öm, kvæntur Elsu Valgarðsdóttur og eiga þau þrjú börn ogfjögur barnabörn; Ör- lygur, kvæntur Ásu Jónsdóttur og eiga þau fjögur börn og fjögur barnaböm; Ingólfur, kvæntur Sig- rúnu Valdimarsdóttur og eiga þau fimm börn og fjögur barnabörn; Gréta, gift Sigurði Hallgrímssyni og eiga þau íjögur böm og tvö bama- börn; Örvar, kvæntur Erlu Ólafs- dóttur og eiga þau tvö börn. Barna- börnin eru því tuttugu og þrjú að tölu en langafabömin eru orðin tutt- ugu og tvö. Öll börn Ingólfs búa fyr- ir sunnan nema Örlygur sem býr á Akureyri. Systur Ingólfs voru þijár: Helga Sigríður, f. 27.6.1889 í Samkomu- gerði; Magnúsína, f. 1.1.1900 á Æsu- stöðum, og Guðrún, f. 24.10.1904, d. 22.5.1915. Foreldrar Ingólfs voru Kristinn Jósefsson, f. á Krónustöðum í Saur- bæjarsókn, 1.8.1863, búsettur á Ak- ureyri frá 1903, og kona hans, Guð- laug Stefanía Benjamínsdóttir, f. á Stekkjarflötum í sömu sveit 12.8. 1870. Kristinn var sonur Jósefs, b. á Krónustöðum, Sigurðssonar, b. í Suður-Tjarnarkoti, Flóventssonar. Móðir Kristins var Friðbjörg, dóttir Þorláks Nikulássonar og Friðfinnu Friðfinnsdóttur. Guðlaug Stefanía var dóttir Benja- Ingólfur Kristinsson. míns Jónssonar, b. á Stekkjarflöt- um, og konu hans, Guðlaugar Gísla- dóttur. Ingólfur mun taka á móti gestum í Lóni á afmælisdaginn milli klukk- an 15 og 18. Aðalheiður Klemensdóttir Aðalheiður Klemensdóttir, Holts- götu 31, Reykjavík, verður áttræð á morgun. Aðalheiður er fædd í Reykjavík og ólst þar upp. Hún lauk bamaskólaprófi og vann við gard- ínusaum eftir lát manns síns. Hún hefur búið á Holtsgötu 31 undan- famaáratugi. Fjölskylda Aðalheiður giftist 9. júní 1934 Guð- mundi Kristjáni Kristjánssyni, f. 19. júlí 1904, d. 27. janúar 1958, vélstjóra í Héðni. Foreldrar Guðmundar eru: Kristján Jónasson, bifreiðarstjóri í Rvík, og kona hans, Ingibjörg Guð- mundsdóttir. Böm Aðalheiðar og Guðmundar em: Klemens, f. 10. nóvember 1934, kaupmaður í Höne- foss í Noregi, kvæntur Astrid Guð- mundsson og eiga þau fjögur böm; Aðalheiður, f. 11. maí 1942, gift Jóni Helgasyni, vélstjóra í Rvík, og eiga þau þrjú börn; Hrefna, f. 9. septemb- er 1944, starfsmaður RÚV, og á hún þrjú börn; Kristján, f. 4. október 1945, húsasmiður í Rvík, kvæntur Elsu Baldursdóttur bankastarfs- manni og eiga þau þijú börn og Margrét, f. 28. ágúst 1948, gift Geof- frey Brabin, húsasmiði í Englandi, og eiga þau tvö böm. Systkini Aðalheiðar em: Erlingur, f. 12. mars 1912, stýrimaður, á Hrafnistu í Rvík, kvæntur Valgerði Stefánsdóttur, f. 9. nóvember 1910, böm þeirra em: Stefán Karl, f. 24. júlí 1935, d. 5. desember 1935, Klem- ens, f. 30. maí 1937, bifreiðarstjóri á Selfossi, og Hrafnhildur, f. 1944, d. 1945; Valgarður, f. 2. nóvember 1913, sjómaður í Rvík, kvæntur Sigríði Stefánsdóttur, f. 7. september 1918, og eiga þau fjögur börn og Margrét, f. 24. mars 1917, húsmóðir í Rvík, gift Guðna Björgvini Ólafssyni prentara, þau skildu og eiga þau sjö dætur. Ætt Foreldrar Aðalheiðar voru: Klem- ens Klemensson frá Brautarholti á Kjalamesi, f. 1. júní 1886, d. 22. nóv- ember 1918, sjómaður í Rvík, og kona hans, Margrét Guðbrands- dóttir, f. 30. september 1888, d. 13. september 1946. Móðursystir Aðal- heiöar er Rósa, móðir Hauks Mort- hens og Kristins, föður Bubba Mort- hens. Margrét var dóttir Guðbrand- ar, b. á Tjörfastöðum á Landi, bróð- ur Guðrúnar, langömmu Guðlaugs Tryggva Karlssonar hagfræðings, Guðlaugs Bergmann, forstjóra Aðalheiður Klemensdóttir. Karnabæjar, Egils Gr. Thorarensen, forstjóra Síldarrétta í Kópavogi, og Guðlaugs Ægis Magnússonar, for- stjória MM á Selfossi. Bróðir Guð- brands var Sæmundur, afl Guðrún- ar Erlendsdóttur hæstaréttardóm- ara. Guðbrandur var sonur Sæ- mundar, b. í Lækjarbotnum á Landi, Guðbrandssonar, ættföður Lækjar- botnaættarinnar, bróður Sigurðar, langafa Guðmundar Daníelssonar, rithöfundar. Aðalheiður verður að heiman á afmælisdaginn. Dagur Hannesson Dagur Hannesson, eldsmiður og tónhstarmaður, Efstasundi 82, Reykjavík, verður áttræður á morg- un. Starfsferill Dagur fæddist í Hólum í Stokks- eyrarhreppi og ólst þar upp. Hann lærði járnsmíöi í Vélsmiðj unni Héðni og gekk i Iðnskólann í ReyKjavík. Dagur hefur unnið við iön sina allan sinn starfsaldur, lengi i Ofnasmiöjunni i Reykjavík og síð- an í mörg ár þjá Tækni hf. í Reykja- vik. FJÖIskylda Dagur kvæntist 30.9.1938 Sigfriði Sigurðardóttur húsmóöur, f. 28.6. 1901, d. 5.3.1972, frá Flatey á Breiða- firði. Sonur Dags og Sigfríðar er Sigurð- ur, f. 27.9.1944, íþróttakennari í Reykjavík og landsliðsmarkmaður í knattspymu í fjöldá ára, kvæntur Ragnheiði Lárusdóttur, f. 4.4.1949, dóttur Lárasar Blöndal Guðmunds- sonar bóksala og Þórannar Kjart- ansdóttur, en synir Siguröar og Ragnheiðar eru Láras, f. 25.4.1971, Dagur, f. 3.4.1973, og Bjarki, f. 26.9. 1980. Systir Dags, sem nú er á lífi, er Guðfinna Dagmar, f. 28.12.1906, bú- sett í Hveragerði. Systkini Dags, sem nú era látin, em Magnús, f. 28.7.1890; Sigurður, f. 19.6.1894; Guðlaug, f. 6.9.1896; Þórdís Ágústa, f. 31.8.1901, og Jóna, f. 14.9.1905, auk þess sem þrír bræður létust í bemsku. Foreldrar Dags vora Hannes Magnússon, f. 19.10.1858, b. í Hólum í Stokkseyrarhreppi, og kona hans, Þórdis Grímsdóttir húsfreyja. Hannes var sonur Magnúsar Hannessonar, b. á Baugsstöðum, af Bergsætt, og konu hans, Guðlaugar Jónsdóttur, b. á Vestri-Loftsstöðum Jónssonar. Þórdís var dóttir Gríms, b. í Gljá- koti, Jónssonar, af Bergsætt, og konu hans, Guðfmnu Sigurðardótt- ur, b. í Gljákoti, Sigurðarsonar. Dagur tekur á móti gestum hjá syni sínum Sigurði, Efstasundi 82, á milli klukkan 16 og 19.00 á afmæhs- daginn. Þorvarður Þórðarson Þorvarður Þóröarson, fyrrv. bóndi að Votmúla í Sandvíkurhreppi í Flóa, nú til heimilis að Engjavegi 75, Selfossi, verður níræður á morgun. Starfsferill Þorvarður fæddist aö Votmúla og ólst þar upp í foreldrahúsum. Hann naut bamaskólakennslu þess tíma en að öðm leyti kynntist hann snemma öllum almennum sveita- störfum og vann viö landbúnaðar- störf á búi foreldra sinna. Hann tók við búi af foreldrum sínum að Vot- múla árið 1942. Þorvaröur seldi jörð sínaáriðl968. Fjölskylda Þorvarður kvæntist 1.11.1941 ÞóraMagnúsdóttur.f. 7.11.1920, húsmóður en hún er dóttir Magnús- ar Gíslasonar, b. í Stokkseyrarseh, og konu hans, Maríu Aradóttur hús- freyju. Systkini Þorvarðar urðu átta og em fjögur þeirra á lífi. Foreldrar ÞofVarðar voru Þórður Þovarðarson, d. 28.4.1942, bóndi í Votmúla, og kona hans, Anna Lafr- ansdóttir, f. 2.10.1872, d. 11.5.1957, húsfreyja á Votmúla. Ætt Systir Þórðar var Vigdís, móðir Þórðar Bogasonar sem var oddviti á Hehu. Þórður var sonur Þorvarð- ar, hreppstjóra í Litlu-Sandvík, Guðmundssonar, b. í Litlu-Sandvík, Þorvarður Þórðarson. Brynjólfssonar. Móðir Þórðar var Svanhildur Þórðardóttir frá Sviðu- görðum. Þorvarður verður að heiman á afmæhsdaginn. hamingju afmælið 21. október 85 ára Guðfinna Ingíbjörg Clause Fögrubrekku 7, Kópavogi. III 80 ára Martha H. Imsland, Bólstaöarhlíö 48, Reykjavík- 70 ára Guðrún Hansdóttir, Kanastöðum, Austur-Landeyjum, Pálmfríður Bergmann, Heiöarvegi 12, Keflavik. 60 ára Þórður Einarsson, Stekkjaflöt 17, Garöabæ. Jón Kristinn Pálsson, Botnahlíð 21, Seyðisfirði. Guðgeir Sigurðsson, Skammadal, Mýrdal. Erla M. Karcisdóttir, Engihjalla 11, Kópavogi. Lilja Friðbertsdóttir, Engjavegí 32, Seliössi. Sigurveig Björnsdóttir, \'■ ■ bolti 8, ....... Benedikt Guðbrandsson, Nýbýlavegi 94, Kópavogi. Sigurður B. Pétursson, Kirkjugötu 7, Hofsósi. Gylfi Ásmundsson, Rimasíöu 27, Akureyri. Halldór Árnason, Hofteigí 20, Reykjavík. Ingibjói r Magnúsdótti!. Sólbrekku 5, Húsavík. Stcfania Hjartardóttir, Hverfisgötu 10, Hafnarflröi. Erlendur Magnusson Erlendur Magnússon, vitavörður á Dalatanga, verður sextugur á morg- un. Erlendur fæddist á Siglunesi viö Siglufjörð og ólst þar upp í foreldra- húsum við landbúnaðarstörf og sjó- sókn. Erlendur tók viö vitavörslu og veöurathugunum á Siglunesi 1958 og gegndi því starfi ásamt búskap og sjósókn þar til honum var veitt vitavarðarstaðan á Dalatanga í ágúst 1968. Erlendur kvæntist29.6.1951 Elfríð Pálsdóttur, f. 26.5.1930, þýskættaðri, en hún kom hingað til lands 1949, þá ráðin kaupakona á Siglunesi í eittár. Böm Erlends og Elfríðar eru An- tonía, f. 8.4.1951, húsmóðir í Kópa- vogi, í sambýli með Guðmundi Bald- urssyni og eiga þau einn son en Antonía á þrjú börn úr fyrri sam- búð; Regína Magöalena, f. 30.9.1952, húsmóðir í Mjóafirði, í sambýh með Jóhanni Egilssyni og eiga þau tvo syni, auk þess sem Jóhann á þrjú börn úr fyrri sambúð; Helga Erla, f. 22.10.1953, húsmóðir í Mjóafirði, gift Birni Gíslasyni og eiga þau eina dóttur; Hörður, f. 6.6.1956, búsettur á Neskaupstað, kvæntur Guðrúnu Ásgeirsdóttur og eiga þau þijú böm; Marsibii, f. 20.2.1960, húsmóðir á Dalatanga, gift Heiöari W. Jons og eiga þau tvö börn, auk þess sem Heiðar á tvö börn frá fyrra hjóna- bandi; Ema Jóhanna, f. 17.6.1962, Erlendur Magnússon. búsett í Reykjavík; Herdís, f. 23.5. 1967, húsmóðir á Sauðanesi við Siglufjörð í sambýli með Jóni Trausta Traustasyni. Systkini Erlends em Baldvina, f. 21.4.1925, húsmóðir í Reykjavík, gift Snæbirni Pálssyni og eiga þau tvo syni; Erla Guðlaug, f. 16.5.1926, hús- móðir á Akureyri, gift Lýð Bogasyni og eiga þau tvær dætur; Haraldur, f. 26.11.1927, búsettur á Akureyri, kvæntur Ásgerði Sigurbjömsdóttur og eiga þau fimm böm; Guðmund- ur, f. 24.2.1929, búsettur á Akur- eyri, kvæntur Sigríði Jónsdóttur og eiga þau fjögur börn; Hreinn, f. 20.5. 1932, búsettur í Reykjavík, kvæntur Páhnu Sigurðardóttur og eiga þau tvo syni. Foreldrar Erlends vora Magnús Baldvinsson, f. 5.11.1895, d. í sept- ember 1956, bóndi í Siglunesi, og kona hans, Antonía Vilhelmína Guöbrandína Erlendsdóttir, f. 5.5. 1901, d. í júlí 1987, húsfreyja. RafnG. Sigurbjörnsson Rafn Georg Sigurbjörnsson, bóndi og hreppstjóri á Örlygsstöðum II í Skagahreppi á Skagaströnd, er fimmtugurídag. Kona Rafns er Ingibjörg Ólafs- dóttir frá Siglufirði og eiga þau tvö börn, Rafn Inga, f. 15.2.1970, nema við HÍ og Elínu Onnu, f. 2.5.1971, menntaskólanema á Akureyri. Rafn Georg Sigurbjörnsson.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.