Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.1990, Blaðsíða 4
4
MÁNUDAGUR 5. NÓVEMBER 1990.
Fréttir
Heimsmeistaraeinvígið:
Leynivopn
Karpovs bar
góðan árangur
Um 80 erlendir nýnemar við HÍ skráðu sig á íslandskynningu.
DV-mynd BG
Erlendir námsmenn við háskólann:
Fá ísland beint í æð
Fimmta einvígi Karpovs og Kasp-
arovs um heimsmeistaratitilinn
virðist í engu ætla að verða frábrugð-
ið fyrri glímum þeirra. Mikið jafn-
ræði er með köppunum óg eftir jafn-
tefli í tíundu skákinni hefur hvor
hlotið fimm vinninga. Þeir tefla alls
24 skákir - 12 í New York og jafn-
margar í Lyon í Frakklandi en leik-
urinn þar hefst 23. þessa mánaðar.
Kasparov nægir jafntefli til að halda
heimsmeistaratitlinum.
Tíunda skákin var sú stysta í ein-
víginu til þessa sem kom fáum á
óvart eftir það sem á undan er geng-
ið. Margir spáðu því að annar hvor
fengi skákinni frestað en í stað þess
er eins og þeir hafi bundist samtök-
um um að tefla á hálfum hraða. Tafl-
ið stóð aðeins yfir í átján leiki. Þá
bauð Kasparov, sem hafði hvítt, jafn-
tefli og Karpov þáði, enda staðan lítt
spennandi.
Þó svo leikhúsgestir á Broadway
hafi varla átt ánægjulega kvöldstund
var skákin þó býsna athyglisverð frá
fræðilegum sjónarhóli. Karpov beitti
nú Petrovs-vörn í fyrsta skipti í ein-
víginu en þeirri alræmdu jafnteflis-'
byrjun hefur skotið upp kolhnum
endrum og sinnum í fyrri einvígjum
þeirra. Strax í þriðja leik breytti
heimsmeistarinn út af en Karpov
hafði unnið heimsvinnuna vel. Hann
lumaði á leynivopni í áttunda leik -
óvæntu hliðarspori riddara - sem
varð til þess að Kasparov lagðist í
þunga þanka. Honum tókst ekki að
finna leið til aö hrekja hugmynd
Karpovs og er þeir undirrituðu frið-
arsamninga var staðan í hárfínu
jafnvægi.
Karpov sýndi í þessari skák að
hann á fleira í pokahorninu en
gömlu, góðu afbrigðin. Hann er eldri
en tvævetur: Ætlar hann kannski að
spara mikilvægustu vopnin þar til
síðar í einvíginu?
Hvítt: Garrí Kasparov
Svart: Anatoly Karpov
Petrovs-vörn
1. e4 e5 2. Rf3 Rf6 3. d4
Þetta er nýjung í vopnaskiptum
þeirra félaga en hinn aðalleikurinn
- 3. Rf3 - hefur fram að þessu orðið
fyrir vahnu. Nú leiðir 3. - Rxe4 4.
Bd3 d5 5. Rxe5 til afbrigðis, sem mjög
hefur veriö í sviðsljósinu síðustu
misseri. Karpov dustar hins vegar
rykið af „gamla leiknum".
3. - exd4 4. e5 Re4 5. Dxd4 d5 6. exd6
fr.hl.
Þrátt fyrir fingurbrjóta í síðustu
skákum hvarflar ekki að heims-
meistaranum aö falla í byrjunar-
gildruna velþekktu: 6. Rc3? Bc5! 7.
Dxd5? Bxf2+ og í næsta leik drepur
svartur á c3 með skák og þar á eftir
fellur drottningin.
6. - Rxd6 7. Rc3 Rc6 8. Df4
Svartur á ýmsa kosti í þessari vel-
þekktu stööu. í nýlegri skák Sax og
Jusupov var leikið 8. - Bf5 9. Bb5! sem
gaf hvítum yfirhöndina. Aðalleikur-
inn er 8. - g6 með það fyrir augum
að setja biskupinn á homalínuna og
ljúka liðsskipan en svartur hefur
ekki getað sýnt fram á algjöra tafl-
Skák
Jón L. Árnason
jöfnun. Karpov hristir nú þriðja
möguleikann fram úr erminni...
8. - Rf5!?
Byrjendum er kennt að koma öll-
um mönnunum fram á borðið og
leika ekki sama manninum oft. Hér
brýtur Karpov þessa reglu en leikur-
inn er þó rökréttur. Hann rýmir d6-
reitinn fyrir biskup sinn, þar sem
hann stendur afar vel.
9. Bb5 Bd6 10. De4+ De711. Bg5 f6 12.
Bd2
Kasparov hefði mátt reyna 12. Bxc6
bxc6 13. Bd2 og gefa svörtum tvípeð
á c-línunni. En hætt er við að biskup-
amir tveir séu nægilegt mótvægi.
T.d. 13. - c5 14. 0-0-0 Dxe4 15. Rxe4
Bb7 16. Hhel Kf7 o.s.frv.
12. - Bd7 13. 0-0-0 Dxe4 14. Rxe4 Be7
15. g4 a6! 16. Bc4 Rd6 17. Rxd6+ Bxd6
18. Hdel +
Og jafntefli samið.
-JLÁ
Um 80 námsmenn víðs vegar að
úr heiminum skráðu sig á Island-
skynningu fyrir erlenda nýnema,
sem Háskóli íslands, menntamála-
ráðuneytið og utanríkisráðuneytið
stóðu að fyrir helgina.
Á kynningunni má segja að nem-
endurnir hafi fengið ísland nánast
beint í æð, en haldnir voru fyrirlestr-
ar um jarðsögu íslands og auðlindir,
íslenska félagsgerð, efnahagslíf og
stjórnmál og um sögu og menningu
íslendinga.
Ásta Kr. Ragnarsdóttir, deildar-
stjóri Námsráðgjafar HÍ, segir að
kynning sem þessi sé afar mikilvæg
fyrir erlenda námsmenn. „Þótt
kynningar sem þessi hafi verið við-
„Auðvitað er maður glaður þegar
manni vegnar vel, ég er bara mann-
legur í þeim efnum. Ég gerði ráð fyr-
ir að fá álíka fjölda atkvæða í fyrsta
sætið og ég fékk, hins vegar hélt ég
að önnur atkvæði, sem féllu á fyrsta
sætið, myndu ekki dreifast jafnmikið
og raun ber vitni. Ég bjóst við að þau
myndu fara meira á Pétur, sagði 01-
afur Þ. Þórðarson þegar úrslit í próf-
kjöri framsóknarmanna á Vestfjörð-
um lágu fyrir.
hafðar áður er þetta í fyrsta skipti
sem við erum í samvinnu við utan-
ríkis- og menntamálaráðuneyti.“
íslandskynningin er tvískipt. Ann-
ars vegar er farið með hópinn út fyr-
ir bæinn, að Gullfossi og Geysi, og
hins vegar er fræðileg umfjöllun um
land og lýð. Eftir það er nemendun-
um boðið upp á íslenskan mat.
„Þetta á að veita þeim meiri upp-
lýsingar um land og þjóð. Þeir skilja
betur umhverfi sitt og hvernig þjóð-
félagið er uppbyggt. Komið hefur í
ljós að það hefur tekið lungann úr
dvöl sumra að átta sig á flokkakerf-
inu hérna og hvernig íslensk dagblöð
virka. Þessi kynning ætti þess vegna
að nýtast þeim vel“„ segir Asta. -ns
Ólafur var ótvíræður sigurvegari í
prófkjörinu, fékk alls 292 atkvæði í
fyrsta sætið af 478 en alls hlaut hann
409 atkvæði í prófkjörinu.
Pétur Bjarnason hafnaði í öðru
sæti en hann fékk 111 atkvæði í
fyrsta sætið en 371 atkvæði alls.
Katrín Marísdóttir hafnaði í þriðja
sæti, Magnús Bjömsson í því fiórða
og Magdalena Sigurðardóttir lenti í
fimmta sætinu.
-J.Mar
.. t
Olafur Þ. efstur á VestQörðum:
„Auðvitað glaður“
í dag mælir Dagfari
Miskunnsömu samverjarnir
íslenska sjónvarpsfélagið hélt
nýlega aðalfund. Fór sá fundur
fram með hefðbundnum hætti,
nema það að gengið var frá svoköll-
uðum starfslokasamningi við fyrr-
verandi aðaleigendur Stöðvar tvö,
sem útleggst þannig að Jón Óttar
og félagar voru leystir út með pen-
ingum, sem var bæði viðeigandi og
verðskuldað. Þétta eru jú mennirn-
ir sem unnu það afrek að fremja
bankarán aldarinnar, með því að
ræna Verslunarbankann fyrir súp-
unni sem kostaði að stofnsetja
Stöðina. Verslunarbankinn fór
nærri því yfir um og hefði gert
það, ef nokkrir miskunnsamir
samverjar úr verslunarstétt hefðu
ekki af góðsemi sinni hlaupiö undir
bagga með bankanum og keypt
hann út úr sukkinu með nokkrum
hundruðum milljónum sem þeir
áttu afgangs.
Síðan hafa þessir miskunnsömu
samveijar glímt viö það verkefni
að reisa Stöð tvö úr rústum og feng-
u skólastjórann í Versló í Uð með
sér undir forystu þeirra manna
sem mest og best hafa vit á pening-
um í verslunarstétt. Var það fríður
hópur eins og nærri má geta, þótt
hann hafi mátt una því að banka-
ræninginn hafi lagst í það forað að
klína á þá hverskyns prettum,
svikum og fiárglæfrum. Má lesa
þann pistil í Pressunni en þess á
milli hefur Jón óttar gefið nýju eig-
endunum góð ráð um það, hvernig
megi græða á Stöðinni. Hann er
ekki í vandræðum með þaö, kapp-
inn sá, eftir að hafa hlotið viður-
kenningu ársins sem „markaðs-
maður Norðurlanda", fyrir
kænsku sína í bankaránunum. Fór
afhending þeirrar viðurkenningar
fram í Þjóðleikhúsinu að viðstödd-
um öörum mikilmennum úr við-
skiptaheiminum. Þetta mun hafa
gerst um það leyti sem Verslunar-
bankinn uppgötvaði að hann hefði
verið rændur.
Stjórn íslenska sjónvarpsfélags-
ins er ljóst að mikilmenni á borð
við Jón Óttar þarf aö leysa út með
gjöfum og þar að auki er augljóst
að miskunnsömu samverjarnir í
íslenska sjónvarpsfélaginu hafa
farið að ráðum bankaræningjans
um aö það sé enginn vandi að
græða á Stöð tvö. Það var nefnilega
opinberað á aðalfundinum að áætl-
aður hagnaður á yfirstandandi ári
muni nema 22 milljónum króna.
Og ekki nóg með það. Jafnframt
var tilkynnt á þessum sama aðal-
fundi að gróðinn á næsta ári muni
nema 114 milljónum, árið 1992,162
milljónum og 1993 verður hann
kominn í 218 milljónir króna. Ná-
kvæmt er það. Allt upp á punkt og
prik og gróðinn ákveðinn upp á
krónu.
Þetta eru aldeilis tíðindi, ekki síst
í ljósi þess að fyrr á þessu ári, efndu
þessir sömu menn til blaðamanna-
fundar til að skýra fráþví að Versl-
unarbankinn og nýi Islandsbank-
inn hefðu platað þá. Það vantaði
sem sagt nokkur hundruð milljónir
upp á að endar næðu saman gagn-
stætt því sem bankinn hafði gefið
upp þegar selt var. Reyndar kom í
ljós, að mennimir sem keyptu
Stöðina, voru mennirnir sem seldu
Stöðina, þannig að sömu mennirnir
sátu báðum megin borðsins. Á ein-
hvem óskiljanlegan hátt hafði
þeim tekist að plata sjálfan sig svo
rosalega, að efna þurfti til blaða-
mannafundar til að segja frá gabb-
inu. Bankinn hafði með öðrum orð-
um rænt samverjana með líku
sniði og Jón Óttar hafði rænt bank-
ann. Menn læra af mistökunum.
En ekki samt nóg, því þeir áttuðu
sig ekki á því að þeir höfðu verið
að plata sjálfa sig við samninga-
borðið.
Einhvern veginn hafa aumingja
mennirnir komist yfir þetta áfall
og eru þess í stað farnir aö reikna
út gróðann á næstu árum og fram
á næstu öld. Skyldi engan undra
þótt slíkir menn efnist og eigi af-
gang undir koddanum til að kaupa
sjónvarpsstöð í gustukaskyni. Auð-
vitað gleðjast allir yfir þessari vel-
gengni og kannski kemur að því
að hægt verður að ráða Jón Óttar
aftur til starfa, því það fer enginn
í föt markaðsmanns Norðurlanda,
þegar menn þurfa á því að halda
að eyða gróðanum. Eftir því sem
gróðinn verður meiri, minnka lík-
urnar á því að Stöðin tapi, en tap
Stöðvarinnar er einmitt lykillinn
að því að Stöðin græði. Þetta geng-
ur auðvitað ekki upp nema Stöðin
sé rekin af mönnum sem vita
hvernig á að tapa til að geta grætt.
Og svo þarf að hafa menn í stjórn
sein kunna að reikna gróðann fram
í tímann.
Dagfari