Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.1990, Blaðsíða 12
12
MÁiNUDAGUR 5J NÖVBMBBÍl'1990.
Spumingin
Hvernig leggst nýbyrjaður
vetur í þig?
Hanna Svavarsdóttir gjaldkeri: Mjög
vel. Veðriö er í góðu lagi ennþá.
Gísli Simundsson nemi: Svona ágæt-
lega. Þaö er frekar kalt núna en fall-
egt veður.
Guðný Róbertsdóttir verslunarmað-
ur: Ágætlega.
Ingibjörg Jónsdóttir, nemi og versl-
unarmaður: Bara vel.
Þórður Gunnarsson nemi: Bara
ljómandi vel. Að minnsta kosti betur
en á þann síðasta, enn sem komið er.
Daníel Daníelsson verkstjóri: Vetur-
inn leggst alltaf vel í mig. Þetta er
það sem við búum viö.
Lesendur
Umræðan um afgreiðslutíma verslana:
Hvers vegna
þarf lögreglu?
Helga Sigurðardóttir skrifar:
Eina ferðina enn er verið að ræða
í borgarstjóm það mikla hagsmuna-
mál allra borgarbúa hvort hafa skuli
verslanir opnar einhvern ákveðinn
tíma að deginum til, til hálftólf á
kvöldin og á sunnudögum eða hvort
gefa á afgreiðslutímann algjörlega
frjálsan. Tillaga um svo til frjálsan
afgreiðslutíma hefur nú verið borin
upp um af einum borgarfulltrúanum,
Sigrúnu Magnúsdóttur.
En ekki er sopið káhð. Einhverjir
vilja áreiðanlega koma í veg fyrir að
hér færist afgreiðslutími verslana til
nútímalegri hátta. Til þessa dags eru
verslunarhættir í Reykjavík enn með
því sniði sem áður var á landsbyggð-
inni þegar kaupfélögin voru einu
verslanirnar og engin samkeppni á
neinu sviði. Nú hefur landsbyggðin
skotið Reykjavík aftur fyrir sig og
alls staðar utan Reykjavíkur getur
fólk verslað nánast á hvaða tíma sem
er og því lengra frá borginni sem
maður er staddur þeim mun auðveld-
ari era allir verslunarhættir.
Hér í Reykjavík er sem sé deilt í
borgarstjórn um hvort við eigum að
fylgja nútímanum eða ekki. Formað-
ur Verslunarmannafélags Reykja-
víkur, sem sæti á í borgarstjórn, er
reyndar forseti borgarstjómar, segir
að verslanir hafi almennt ekki not-
fært sér þá heimild að hafa opið til
kl. 10 á kvöldin svo að raunverulega
breytingin yrði þvi sunnudagamir.
Já, hér skapaðist náttúrlega óviðun-
andi ástand ef kaupmenn opnuðu
„Enn er deilt um hvort Reykjavík eigi að fylgja nútíma verslunarháttum og
gefa afgreiðslutíma frjáisan."
verslanir sínar á sunnudögum! Ekki
virðist vera neitt óeðlilegt ástand á
Seltjarnamesi eða í Garðabæ og
Hafnarfirði, þar sem matvöruversl-
anir bjóða þjónustu öllum sem vilja
á sunnudögum. - Og ekki vil ég trúa
því að borgarstjórinn sé andvígur því
að veita verslunum og viðskiptavin-
um þeirra meira frelsí. Svo mikið
hefur hann lagt sig fram um að end-
umýja og endurbæta helstu verslun-
arhverfi borgarinnar.
Þeir kaupmenn í Reykjavík, sem
boðið hafa sunnudagsþjónustu, era
nú kærðir til lögreglunnar - og málin
send til ríkissaksóknara! En yíirlýs-
ing frá lögreglunni í Reykjavík er
þess efnis aö hún „treysti sér ekki
til að fylgja þeim reglum sem til stað-
ar eru“. Þykir nú engum mikið! En
ég spyr bara; Hvers vegna er verið
að blanda lögreglu í þetta þjónustu-
mál? Er það glæpur að opna verslan-
ir sínar fyrir viðskiptavinum hér í
höfuðborginni frekar en á lands-
byggðinni og nágrannabæjum? Vilj-
um við búa við steinaldarhætti í
verslunarháttum á árinu 1990?
Hringdi 1 þáttinn „Níu f]ögur“ á Rás 2:
Var sagt að þegja
Hringið í síma
27022
rnilli
kl. 14 og 16
eða skrifið
Christen Sörensen skrifar:
Ég hringdi í hlustendaþjónustu
Rásar 2 í þættinum „Níu f]ögur“
fimmtudaginn 1. nóv. sl. (um kl.
09.50) til að ræða við stjórnendur
þáttarins um hversu mér fyndist
þessi þáttur ganga út í öfgar, t.d. með
eindæma lélegum bröndurum og
fleiru í þeim dúr.
Ég kynnti mig og ræddi við annan
stjórnanda þáttarins á þessum tíma
sem var karlmaður. Hann brást hinn
versti við gagnrýni minni og lauk
samtalinu sjálfur með því að segja
mér að þegja og skellti síðan símtól-
inu á!
Mér fmnst þessi framkoma í ríkis-
fjölmiðh vera forkastanleg og lág-
mark að stjórnendur svona þátta í
opinberri útvarpsstöð svari kurteis-
lega þeim sem þangaö hringja - úr
því á annað borð er verið að bjóða
hlustendum upp á eitthvað sem kall-
ast hlustendaþjónusta.
Ég er nú orðinn roskinn maður og
hef greitt til Ríkisútvarpsins i áratugi
og finnst þetta vera kaldar kveðjur
þegar maður hringir til þeirrar stofn-
unar í fyrsta sinn, jafnvel þótt ég
hafi ætlað að bera fram gagnrýni á
umræddan þátt. Ég vil taka fram að
lokum að mér hefur líkað vel þjón-
usta Ríkisútvarpsins gegnum árin og
hef ekkert nema gott eitt um þá stofn-
un að segja - fram að þessu.
Er Jón Páll gleymdur?
„Það er aðeins einn „sterkasti maður heims“, Jón Páll Sigurðsson“, segir
m.a. í bréfinu.
B.V. hringdi:
í grein í DV í gær (1. nóv.) er grein
sem heitir „Sterkustu menn heims
keppa í Reiðhöllinni". - Greinin
finnst mér uppfull af einhverskonar
misskilingi. Það er aðeins einn
„sterkasti maður heimsins“, nefni-
lega Jón Páll Sigmarsson. - Hann
hefur unnið titilinn fjórum sinnum!!
Keppnin „Kraftur 90“ í Reiöhöll-
inni er vita tilgangslaus, þar sem
Jóni Páli er ekki einu sinni boðið að
keppa. Menn eins og Bill Kasmaier
og fleiri erp menn sem Jón Páll hefur
lagt að velh og sigrað margoft. Síðast
í Finnlandi sl. sumar.
Margir halda að Jón Páll sé hrein-
lega búinn að vera en svo er aldeilis
ekki og enn heldur hanh titli sínum.
En hvað er orðið af Jóni Páli, hinum
eina sanna „sterkasta manni
heims“?
Lokaðkl. 15
Oddur Jónsson hringdi:
Mig langar til að koma á fram-
færi hneykslan >dlr því athæfi
nokkurra opinberra stofnana aö
loka hjá sér kl. 3 á daginn. Þar á
meðal vil ég nefna Borgarfógeta-
embættið og Skattstofu Reykja-
víkur, sem bæði loka á sama tíma
þó þau opni ekki fyrr en kl. 10 á
morgnana. Gjaldheimtan hefur
opið frá kl. 9 til 4 og er það allur
munur því sá afgreiðslutími er
sá sami og hjá bonkunum.
Mér flnnst aö allar opinberar
stofnanir ættu aö hafa samræmd-
an aígreiðslutíma, þann sama og
er t.d. hjá Gjaldheimtunni, frá
9-16. Það er hið versta mál fyrir
þá sem ætla að erinda í borgínni
að koma að lokuðum dyrum opin-
berra stofnana kl. 15. Það er eng-
an veginn hægt að ætlast til þess
að menn kynni sér opnunartíma
hvernar stofnunar fyrir sig.
Heimskulegar
auglýsingar
Jóh. Guðmundsson skrifar:
Mér blöskrar að horfa á auglýs-
ingar sem er verið að gera fyrir
ríkið og sýndar eru í sjónvarpinu
kvöld eftir kvöld. - Ég vil nefna
tvær sem eru i gangi þessa dag-
ana. Önnur er frá Ríkisútvarpinu
og sýnir einhverjar mannverur
(mér finnst þær vera fábjánar)
tuða um hvort greiða eigi af sjón-
varpinu eða ekki og allt svo af-
káralegt og heimskulegt.
Hin auglýsingin á að hvetja fólk
til að kaupa rikistryggð skulda-
bréf. Og þar er sama sagan, allt
heimskulegt og niðurlægjandi.
Það er eins og gert sé í því að
útbúa auglýsingar fyrir hið opin-
bera eins afkáralega og hægt er.
Kannski er bara kastað til þess
höndum af því að ríkið (við sjálf)
greiðum fyrir þetta og enginn
gerir athugasemd.
Látum ekki fara svona með
okkur lengur, kreflumst fag-
mannlegra vinnubragða í auglýs-
ingagerð fyrir ríkið eins og aðra.
H var voru mótmæl-
endumir?
J.Þ. skrifar:
í fréttatíma sjónvarps i gær-
kvöldi (1. nóv.) var frétt um það
að starfsfólk á spítulum vildi ekki
una því aö þurfa að stimpla sig
inn til vinnu. Í sömu frétt var
viðtal við starfsmann sem sagði
að ekkert væri því til fyrirstöðu
af sinni hendi og sinna félaga að
nota þetta viðtekna tæki til aö
fylgjast með mætingum þeirra.
Hins vegar brá svo við, þegar
ræða átti við þá sem stóðu aö
mótmælunum, að þeir þoröu ekki
að láta sjá framan í sig. Frétta-
maöur sagði aö þeir hefðu ekki
viljað tjá sig um málið! Þetta er
löðurmannleg afstaða þessa
fólks. En hvað heldur það að það
sé eiginlega? Getur þetta fólk ekki
sætt sig við víðtekna reglu í þjóð-
félaginu, að láta fylgjast með þeg-
ar það mætir tO vinnu?
Jón gieymdistekki
Lesendasíða DV hefur haft
samband við íþróttadeild blaðs-
ins og fengið þær upplýsingar að
það sem stæöi í DV um keppnina
„Kraftur 90“ væri byggt á upplýs-
ingum frá mótshaldara, Hjalta
Árnasyni. Síðan hefur komið
fram að Hjalti og Jón Páll eiga í
persónulegum deilum.
Lesendasiða DV vill bæta því
við að eftir aö bréfið „Er Jón Páll
gleymdur“ barst til hennar var
Jón Páll í viðtali í útvarpsþætti
síðdegis fimmtud. 1. nóv. og þar
kom frara hjá honum að honum
hafði ekki verið boðið formlega
að keppa á „Krafti 90“ en staðið
til boöa að vera kynnir á mótinu.
Um þetta spunnust allsnarpar
orðræður milli umsjónarmanna
keppninnar og Jóns Páls og varð
þeim í raun ekki lokið i þættin-
um. Vonandi verða skýrari línur
fram komnar þegar þetta birtist.