Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.1990, Blaðsíða 10
10
MÁNUDAGUR 5. NÓVEMBER 1990.
Sumir
spara sérleigubíl
adrir taka enga áhættu!
Eftir einn
-ei aki neinn
□
Glæsilegir
fataskápar
í úrvali
Smi&juvegi 2, Kópavogi, s:
UtLönd
Lögreglan í Leipzig skaut 17 ára ungling til bana:
Fótboltabullur rústuðu
verslanir og fjölda bfla
- í þriðja sinn sem lögreglan verður að nota skotvopn á þessu ári
Lögreglan í Leipzig sætir haröri
gangnrýni í Þýskalandi fyrir aö
hafa fellt ein ungan mann og sært
þrjá alvarlega í verstu ólátum sem
hafa orðið eftir knattspyrnuleik í
héruöunum þar sem áður var
Austur-Þýskaland.
„Hvenær lýkur þessu brjálæði?"
spurði þýska blaðið Bild am
Sonntag en lögreglan í austur-
héruðunum er að mati margra
ófær um að fást við vaxandi of-
beldisöldu í landinu. T.d. eru ólæti
eftir knattspyrnuleiki að verða
daglegt brauð í landinu.
Að þessu sinni fóru um 500 óláta-
seggir um miðborg Leipzig eftir
knattspyrnuleik og brutu allt og
brömluðu. í miðborginni var 31
verslun lögð í rúst og fjöldi bíla
eyðilagður. Lögreglan var of fá-
menn til að ráða við mannfjöldann
og varð á endanum að grípa til
skotvopna.
í skothríðinni féll 17 ára gamall
unglingur, auk þeirra sem særð-
ust. Lögreglan handtók um 80
manns en þá var tjónið í miðborg-
inni orðið gífurlegt.
„Lögreglumennirnir áttu engra
annarra kosta völ en að nota byss-
urnar. Ólátaseggirnir voru marg-
falt fleiri en lögreglumennirnir og
tilraunir til að dreifa mannfjöldan-
um með táragasi höfðu mistekist,"
sagði Peter Heimann, talsmaður
lögreglunnar.
Lögreglan í Leipzig hefur tvívegis
áður skotið að ólátaseggjum í borg-
Miðborg Leipzig var eins og vígvöllur yfir að lita á laugardagskvöldið.
Á innfelldu myndinni er unglingurinn sem féll eftir að lögreglan hóf
skothríð. Símamyndir Reuter
inni. Það eru einkum nýnasistar
og fótboltabullur sem hún hefur
þurft að fást við með þessum hætti.
Lögreglumenn í vesturhluta
landsins segja að ein ástæða þess
að félögum þeirra í austrinu geng-
ur illa að fást við ólátaseggi sé
hversu illa þeir eru þjálfaðir. í
Berlín þýði t.d. ekkert að láta lög-
reglumenn úr austurhlutanum fást
við mótmælendur því þeir hafl alls
enga þjálfum í slíkum verkum.
Reuter
Kókaín finnst
hjáNASA
Kókaín fannst undir borði í flug- sætt gagnrýni fyrir slök vinnubrögð
skýlinu þar sem geimskutlur Banda- en illa hefur gengið að standa við
ríkjamanna eru geymdar á Canaver- geimferðaáætlun Bandaríkjanna á
alhöfða. Ekki var þó um mikið magn síðustu árum vegna tíðra bilana og
að ræða en kókaínfundurinn hefur óhappa.
þó orðið til að eiturlyflalögreglan vill NASA vill sem minnst gera úr
rannsaka húsakynni NASA, banda- kókaínfundinum því aðeins hafi
rísku geimferðastofnunarinnar, bet- fundist nokkur grömm. Þó er búist
ur. við að eiturlyfjamálið beini enn at-
Atvik þetta þykir einnig koma á hyglinni að stofnuninni og rýri álit
slæmum tíma fyrir stofnunina því hennar.
hún hefur á undanförnum árum Reuter
Fjórir forsetar lok-
uðust inni í lyftu
- á fjórðu hæð háskólans í Alexandriu
Forsetar fjögurra ríkja urðu aö saman inni í lyftu.
notast við neyðarútganga eftir að Forsetarnír, sem þarna urðu að
þeir festust í lyftu á ijórðu hæð í bjarga sér af eigin rammleik, eru
aðalbyggingu háskólans í Alex- Hosni Mubarak, forseti Egypta-
andriu í Egyptalandi. lands, Francois Mitterrand Frakk-
Forsetarnir voru þó aldrei í ' landsforseti, Abdou Diouf frá
hættu en atvikið þótti merkilegt Senegal og Mobuto Sese Seko frá
fyrir þá sök að ekki er vitað að svo Zaire.
margir forsetar hafi áður lokast Reuter
Daihatsu Rocky EL 2000 ’87, 3ja
d., rauður, ek. 55.000. V.
1.390.000, upph.
Isuzu Trooper 3.0 2000 '86, 3ja
d., blár. ek. 68.000. V. 950.000.
Ford Bronco II Eddie Bauer 2800
’85, sjálfsk., 3ja d., blár/brúnn,
ek. 89.000. V. 1.270.000.
í"
Jeep Cherokee 2500 ’84, sjálfsk.,
3ja d., blár, e k. 112.000. V.
970.000.
JÖFUR HF
Nýbýlavegi 2 • Sími 42ó00
Opið
laugard.
13-17
NÝBÝLAVEGI 2, KÓPAV0GI, SÍMI (91)42600
Jeep Cherokee Pioneer 4000 ’87,
sjálfsk., 4ra d., blár, ek. 78.000.
V. 1.695.000.
Lada Sport 1600 ’88, 3ja d„
grænn, ek. 30.000. V. 540.000.
Ford Bronco XLT 2900 '86,
sjálfsk., 3ja d., brúnn, ek. 70.000.
V. 1.375.000.