Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.1990, Page 16
16
MÁNUDAGUR 5. NÓVEMBER 1990.
HERRA-
HÁRLITANIR
Er hárið farið að grána?
Er það upplitað
eða viltu breyta til?
Notum aðeins viðurkennd efni.
Leitaðu upplýsinga.
HÁRSNYRTISTOFAN
IHÍAIÍÓ.
Laugarnesvegi 52, s. 35204.
BlLASTÆÐI VIÐ DYRNAR.
Svæðameðferðog létt rafmagnsnudd
ásamt acupunchturmeðferð með lacer
Sérhæfing við bólgu í herðum, baki og höf-
uðverk.
ELSA HALL,
Langholtsvegi 160, simi 68-77-02.
Meruung__________________dv
Medea tekur ekki
þátt í neinum
málamiðlunum
- segir Jórunn Sigurðardóttir sem leikur Medeu
Alþýðuleikhúsið frumsýndi á föstudagskvöldið í Iðnó
gríska harmleikinn Medeu eftir Evrípídes. Leikritið
er sýnt í nýrri þýðingu Helga Hálfdanarsonar en mn
þessar mundir er að koma út bók sem inniheldur þýð-
ingar Helga á grískum harmleikjum og þar á meðal
er einmitt þýðing hans á Medeu. Alþýðuleikhúsið mun
sýna verkið tvisvar til þrisvar í viku fram yfir mánaða-
mót.
Titilhlutverkið leikur Jórunn Sigurðardóttir sem fær
hér að spreyta sig á einu stærsta kvenhlutverki leik-
bókmenntanna. Jórunn er ekki þekkt nafn í íslensku
leikhúslífi. Leiklistarferill hennar spannar samt rúm-
lega tíu ár. DV fékk hana í stutt spjall um leikritið og
sjálfa sig. Var hún fyrst spurð hvort hún hefði haft
langan undirbúning til að æfa hlutverkið.
„I rauninni ekki. Það hefur verið ósköp venjulegur
æfingartími á leikritinu. Við byrjuðum að æfa í lok
september. Ég vissi að vísu svolítið fyrr að ég fengi
að takast á við þetta mikla hlutverk.“
- Telur þú að grískir harmleikir nái til nútímamanns-
ins:
„Það fer örugglega eftir því hvemig leikritið er fram-
sett. Texinn í Medeu er mjög fallegur og í rauninni
mjög einfaldir. Hann er eigi að síður mikill. Það er
margt sagt og hér eru miklar tilfmningar sem veriö
er að fjalla um. Það sem kom mér samt mest á óvart
við þennan harmleik er hvað hann er nútímalegur,
hvað hugsanir okkar og tilfinningar hafa lítið breyst.
Við erum alveg eins nú og við vorum á þeim tíma sem
Evrípídes skrifaði Medeu.“
- Telur þú uppsetningu Alþýðuleikhússins á Medeu
hefðbundna uppfærslu á leikritinu?
„Nei, ég vil nú segja að uppsetningin sé að vissu leyti
frábrugðin. Það er til að mynda samin sérstök tónlist
viö verkið, sem Leifur Þórarinsson gerir, og er hún
flutt lifandi á sýningum. Þá er þaö draumur okkar að
listgreinamar, dansinn, hreyfingar, textinn og tónhst
renni saman í eitt.“
„Medea er þitt stærsta hiutverk til þessa?
„Það hggur í augum uppi. Hlutverk Medeu er eitt
af stærstu kvenhlutverkum leikbókmenntanna og aö
sjálfsögðu mitt langstærsta hlutverk hingað til. Ég
lærði í Þýskalandi og útskrifaðist 1979. Þá kom ég
heim og við stofnuðum nokkur saman barnaleikhús
og kölluðum okkur „Pæld’íð’í hópinn”, eftir unglinga-
leikriti sem við settum upp fyrst. Við héldum þessari
bamaleikhússtarfsemi úti í ein fimm ár og settum upp
jafnmargar sýningar. Ég lék líka eitthvað smávegis
hjá leikhúsunum á þessum ámm.
Leið mín lá síöan aftur út til Þýskalands, ég bjó þar
í fimm ár og starfaði við leiklist í Berlin, sem þá var
Vestur-Berhn, lék bæði í leikhúsum og meö óháðum
leikhóp. Ég kom svo heim aftur fyrir rúmi ári og lék
í Þjóðleikhúsinu á síðasta leikári. Var með í Heimili
Vernörðu Ölbu.“
Meöfram leikhstinni starfar Jórann Sigurðardóttir
við Ríkisútvarpið. Er hún einn hlekkurinn í menning-
armálaritstjórn sem hefur umsjón með menningarefni
'sem flutt er í Ríkisútvarpinu. Við spyrjum hana hvort
það gangi ekki upp að vinna eingöngu sem lausráðin
leikkona.
„Nei, það gengur engan veginn upp. Einhvers staðar
verður maður að fá aurana til að geta lifað. Það eru
Jórunn Sigurðardóttir í hlutverki Medeu í forgrunni
myndarinnar. Með henni eru Þórunn Magnea Magn-
úsdóttir og Jóhanna V. Þórhallsdóttir.
alltof margar leikkonur um fá hlutverk og það eru lít-
il tækifæri til að halda sér við og þroskast í listinni.
Það er hæpið að eitt hlutverk á ári dugi til. Við getum
að vísu verið í ýmsum þjálfunartímum til að halda
okkur við en það er ekki það sama og að standa á
sviðinu og miðla til áhorfenda og finna það samspil
sem myndast milli leikarans og áhorfandans.”
Að lokum spyrjum við Jórunni hvað henni finnist
sjálfri um leikritið og konuna Medeu:
„Það sem mér finnst mikilvægast við leikritið er hve
nútímalegt það er í raun. Efnið er togstreita sem mjög
margir ganga í gegnum einhvern tímann á lífsleið-
inni. Hamingjan og metorðin togast á. Medea er full-
trúi fyrir þá sem ekki eru reiðubúnir til að láta drekkja
sér í einhverjum smáatriðum. Hún tekur ekki þátt í
neinum málamiðlunum og hún elskar skiiyrðislaust.
Hún hugsar ekkert um hvað hún fær út úr því.
Medea elskar þennan mann og hefur lagt allt í söl-
urnar fyrir hann og þar sem ástin hefur verið heitust
þar logar hatrið sterkast. Þaö er ekki bara aö Jason
svíkur hana. Hún stendur uppi algjör einstæðingur.
Hún er búin að svíkja ættland sitt og er búin að fremja
voðaverk í öðrum löndum. Hún á í ekkert hús að
venda. Ég furðaði mig á því þegar fólk var að spyija
mig að því hvort ekki væri hræðilegt að leika þessa
konu sem drap börnin sín. Verknaðurinn er ekki þema
leikritsins heldur þessi mikla örvænting. Medea á
ekki annarra kosta völ. Það er ekkert velferðarþjóð-
félag til sem hún getur snúið sér til.“
-HK
Norrænt samstarf um gerð
sjónvarpsþátta á Grænlandi
Ámi Johnsen mun stjórna leiðangri
sem siglir á nokkra afskekkta staði,
meðal annars í Parísardal undir
jöklinum.
Danska, sænska og norska sjón-
varpið hafa ákveðiö að gahga til sam-
starfs við Sjónvarpið um gerð þriggja
sjónvarpsþátta sem teknir verða upp
á slóðum norrænna manna á Suður-
Grænlandi.
Árni Johnsen átti hugmyndina að
þáttunum og hyggst hann stjórna
fimmtán manna leiðangri sem fer á
fimm gúmmí-hraðbátum um byggðir
norrænna manna frá árunum 1000-
1500. Siglt verður á nokkra afskekkta
staði, meöal annars Parísardal undir
jökhnum.
Slóðir norrænna manna á Suður-
Grænlandi eru sérstæðar í sögu
Norðurlanda vegna þess leyndar-
dóms sem hvílir yfir hvarfi nor-
rænna manna á Grænlandi um 1500.
Allvíöa era þó enn sjáanlegar rústir
norrænna byggöa og ummerki frá
fyrri öldum. Farin verður 1000 km
löng leið á tólf til tjórtán dögum.
Ekki hafa áður verið gerðir samsvar-
andi sjónvarpsþættir um eyðifirðina
á Grænlandi sem tengjast óijúfan-
lega sögu Norðurlanda. Kvikmynda-
tökumaður í leiðangrinum verður
Páll Reynisson og hljóömaður Gunn-
ar Hermannsson. Ráðgert er aö leið-
angurinn verði farinn fyrri hluta
ágústmánaðar 1991.
-HK