Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.1990, Blaðsíða 2
2
FÖSTUDAGUR 9. NÓVEMBER 1990.
Fréttir
Vitnaleiðslur 1 Sakadómi Reykjavíkur vegna morðsins í Stóragerði:
Akærðu sögðu sambýlis-
konum frá verknaðinum
- báðar konumar ákváðu að bera vitni í Sakadómi í gær
Dómarar, rannsóknarlögregla og fulltrúi ríkissaksóknara við bensínstöð
Esso í Stóragerði þar sem gerð var vettvangsrannsókn á miðvikudag.
DV-mynd GVA
Fjöldi vitna mættu í þinghald í
Sakadómi Reykjavíkur í gær vegna
morðsins á bensínstöð Esso við
Stóragerði 25. apríl síðastliðinn. Báð-
ar sambýliskonur sakborninganna,
þeirra Snorra Snorrasonar og Guð-
mundar Helga Svavarssonar, ákváðu
að bera vitni þrátt fyrir að þeim
bæri ekki skylda til þess vegna
tengsla sinna við mennina. Þær voru
einungis spurðar út í atriði sem
varða afmarkaða þætti málsins.
Höíðað hefur verið mál á hendur
konunum tveimur með ákæru. frá
ríkissaksóknara. Málshöfðunin
byggist á ákvæðum hegningarlaga
um hylmingu varðandi ránsfenginn.
Samkvæmt ákæruskjali tóku þær
þátt í að eyða peningum sem Snorri
og Guðmundur stálu á bensínstöð-
inni. Dómsmeðferð þeirra máls bíður
þar til dómur hefur gengið vegna
morðmálsins. Dómari í máli kvenn-
anna er Ingibjörg Benediktsdóttir
sakadómari.
Mennirnir sögðu
frá morðinu
Sambýliskona Snorra skýrði frá
því að hún hefði vaknað um það leyti
sem Guðmundur Helgi kom heim af
morðstaðnum. „Hann var óttasleg-
inn á svipinn,” sagði hún. Hún bar
að Snorri hefði komiö 15-20 mínútum
síðar - skelfdur og hikandi. Mennim-
ir sögðu- henni frá verknaðinum er
hún spurði þá hvaö hafði gerst.
Snorri sagði henni að Guðmundur
hefði slegið manninn á bensínstöð-
inni í höfuðið. Guðmundur sagöist
hafa orðið manninum að bana, að
sögn konunnar. Konan margspurði
Snorra hvernig þeir gátu fengið það
af sér að gera þetta. Lítið varð um
svör. Þeir greindu henni frá því að
hinn látni hefði dáið í kjallaranum -
hefði verið sleginn uppi en fallið nið-
ur þegar Snorri var í kjallaranum.
Sá frétt um morðið í
DV og benti á mennina
Við vitnaleiðslur í Sakadómi í gær
kom einnig aðili sem sagðist hafa
haft vitneskju um fyrirætlanir
Snorra og Guðmundar um að fremja
rán á bensínstöðinni - „Stóra rán-
ið“. Hann skýrði einnig frá því að
þegar hann las um atburðinn í DV,
daginn sem morðið var framið, hefði
hann haft samband viö lögreglu og
bent á mennina - hann grunaöi strax
hverjir heíðu átt hlut að máli við
ódæðisverknaðinn og lét vita. Guð-
mundur og Snorri voru handteknir
nokkrum dögum síðar.
Skynjaði „eitthvað hræðilegt"
Sambýliskona Guðmundar bar
mjög við minnisleysi þegar hún bar
vitni við þinghaldiö. Orsökina sagði
hún vera langvarandi áfengis- og
fikniefnaneyslu áður en voðaatburð-
urinn gerðist. Ætti hún því meðal
annars erfitt með að muna tímasetn-
ingar. Einn dómaranna minnti hana
á að hún hafi sagt við lögreglu í maí
að nákvæmlega klukkan 7.13 um
morðmorguninn hefði hún fariö að
skjálfa og fundið á sér aö „eitthvað
hræðilegt hefði gerst“.
Konan sagði í gær að hún myndi
óljóst eftir því að hafa farið með blóð-
ug fót Guðmundar og hent þeim.
Guðmundur sagði henni að hann
hefði lamið mann. Konan var minnt
á ábyrgð sína vegna sannsögli þar
sem framburði hennar bar ekki alveg
ídómsalnum
Óttar Sveinsson
saman við lögregluskýrslur. Eins var
hún beðin um að lesa yfir framburð
sinn við lögreglu þann 7. maí en hann
staðfesti konan í Sakadómi 22. mai.
Hún staðfesti aftur í gær að fram-
burður hennar í skýrslunum væri
„örugglega" rétt eftir henni hafður.
Konan sagði að áður en Guðmund-
ur og Snorri fóru í Stóragerði hefðu
þeir deilt um hvernig þeir ættu að
fara á staðinn. Snorri vildi fara með
strætisvagni en Guðmundur í leigu-
bíl. Konan sagði að Guðmundur hefði
verið veikur og átt erfitt með gang.
Vangaveltur
vegna bílferða
Viö þinghaldið í gær kom fram hjá
rannsóknarlögreglumönnum að bíll
Þorsteins Guðnasonar hefði verið
rannsakaður mjög ítarlega. Við þá
rannsókn kom lítið fram sem benti
til þess að sakborningarnir hefðu
skilið blóðkám eftir sig í bílnum.
Blóðkám fannst þó í gólfmottu og á
einni bílhurðinni að utanverðu.
Mennirnir segjast báðir hafa ekiö
í bílnum frá morðstaðnum. Þeir
deildu um það áður en þeir fóru
hvernig þeir ættu að fara í Stóra-
gerði. Snorri vildi fara með strætis-
vagni, svo síöur væri hægt aö benda
á þá. Guðmundur hefur hins vegar
sagt að hann vildi fara með leigubíl
þar sem hann var „veikur“ af fíkni-
efnaneyslu. Þar sem ekkert blóð
fannst í bíl hins látna hafa verið uppi
nokkrar vangaveltur.
Sakborningarnir hafa báðir sagt í
framburði sínum að þeir hafi tekið
strætisvagn frá Hlemmi aö Grensás-
vegi þaðan sem þeir gengu í Stóra-
gerði. Hins vegar hefur enginn stræt-
isvagnabílstjóri kannast við aö hafa
tekið þessa menn upp í snemma að
morgni morðdagsins.
Starfsmaður á bensínstöðinni, sem
kom fyrstur að eftir morðiö, sagði í
gær að hann hefði séö bifreiö Þor-
steins ekið á brott þegar hann átti
stutt eftir ófarið að stöðinni rétt fyrir
klukkan hálfátta. Honum og lög-
reglumönnum bar saman um að ekk-
ert ljós hafi verið kveikt í kjallara
þegar að var komið.
í framburði læknis kom fram að
allar líkur bentu til þess að hinn látni
hafi dáið í kjallara stöðvarinnar.
Framburður lögreglumanna við
vitnaleiðslurnar í gær styrkti fram-
burð læknisins. Við vettvangsrann-
sókn kom þó einnig í ljós að mikil
átök áttu sér stað á efri hæðinni.
-ÓTT
Geðsjúkir afbrotamenn úti í kuldanum:
Læknum að kenna
- segjaKarlSteinarogGuðmundurBjamason
Ungfrú heimur: ~
Okkar stúlka
ekki á blað
„Astæðan fyrir því að geðsjúkir
afbrotamenn eru ekki vistaðir á við-
eigandi gæslustofnun á geðsjúkra-
húsunum er fyrirstaða lækna. Það
eru smákóngar í kerfinu sem hafa
getað komið í veg fyrir að vistunar-
mál geösjúkra afbrotamanna kæm-
ust í eðlilegt horf hér á landi. Þessi
mál eru í alvarlegu ástandi og til
skammar,“ sagöi Karl Steinar
Guðnason alþingismaður. Hann var
meö fyrirspum á Alþingi til heil-
brigðisráðherra um hvenær von
væri á úrlausn í vistunarmálum geð-
sjúkra afbrotamanna.
Guðmundur Bjamason heilbrigð-
isráðherra tók undir með Karli og
sagði að kenna mætti læknum um.
Fyrirstaða væri hjá þeim og það
væri erfitt að fá þá til aö koma þess-
um málum í viðeigandi horf.
Hann sagðist vona að nú mætti
búast við lausn á þessu mikla vanda-
máli. Nefnd, sem hann skipaði til að
Sighvatur Björgvinsson er talinn
öruggur með fyrsta sæti á framboös-
hsta Alþýðuílokksins á Vestfjörðum
fyrir alþingiskosningamar.
Heimildir DV segja að hörð barátta
muni hins vegar veröa um annað
sætiö. Þeir Kristján Jónasson, áður
forseti bæjarstjórnar á ísafirði, og
gera tillögur um úrbætur, hefur skil-
að áfangaskýrslu. Það hafi komið í
ljós að aöstaða er til að koma upp
réttargeðdeild við geðdeild Landspít-
alans fyrir 10 til 12 manns. En til
þess að það geti orðiö verður að
fækka rúmum á almennri geðdeild
um 15.
Guðmundur sagði að lausn málsins
væri orðin svo aðkallandi að hann
myndi ekki bíða lengur heldur beita
ráðherravaldi sínu til að leysa það.
Salome Þorkelsdóttir minnti á að
30 ár væru liðin síðan fyrst hefði
verið farið að ræða þetta mál sem
og ríkisfangelsi á íslandi. Öðru hvoru
síðan hefði málið komið til umræöu
á Alþingi. Alltaf hefðu allir verið
sammála um að brýna nauösyn bæri
til aö leysa það en samt hefði aldrei
neift gerst. Málið hefði ekki einu
sinni þokast fetið.
Pétur Sigurðsson, forseti Alþýðu-
sambands Vestfjarða, hafa gefið kost
á sér í það sæti.
Fundur í kjördæmisráöi flokksins
verður um næstu helgi. Er búist við
átakafundi þar sem línumar um list-
ann munu skýrast.
-hlh
Ásta Sigríður- Einarsdóttir, fulltrúi
íslands í keppninni Ungfrú heimur í
London í gær, gengur fram á sviðiö.
DV-mynd Kvein Lamarque
Gina Marie Tolleson, 21 árs gömul
Suðurríkjastúlka frá Bandaríkjun-
um, vann titlinn ungfrú heimur í
úrslitakeppni sem fram fór í London
í gærkvöldi. Önnur í röðinni varð
ungfrú írland og þriðja varð ungfrú
Venesúela.
Okkar stúlka, Ásta Sigríður Ein-
Gylfi Kristjánsson, DV, Aknreyn:
Fyrsti skiptafundur í þrotabúi
Kaupfélags Norður-Þingeyinga hefur
verið haldinn og að sögn Björns Jós-
efs Arnviðarsonar skiptastjóra nema
lýstar kröfur í þrotabúið 320 milljón-
um króna.
Að sögn Bjöms nema lýstar for-
gangskröfur tæplega 10 milljónum
króna og er þar fyrst og fremst um
að ræða lífeyrissjóðagreiðslur.
Ekki liggur endanlega fyrir hvaö
arsdóttir, komst ekki á blað meðal
þeirra bestu og endaði neðarlega í
hópi 80 keppenda.
Ungfrú heimur er með brúnt hár
og 180 sentímetrar á hæð. Hún hefur
fengist við ballett, djass og steppdans
en segist hafa mestan áhuga á aö
verðasjónvarpsfréttakona. -hlh
til er í búinu upp í kröfur en þó átti
kaupfélagið bæði fasteignir og
lausafé. Sláturhús kaupfélagsins hef-
ur þegar verið selt bændum sem
slátruðu þar i haust og eru með hús-
ið í rekstri. Hvað aðrar fasteignir
varðar er ekki reiknað með að mikl-
ar upphæðir fáist fyrir þær vegna
þess hvar þær eru en fasteignaverð
er lágt á Kópaskeri. Næsti skipta-
fundur veröur haldinn 6. desember
og er þá reiknað meö að málin skýr-
ist frekar.
-S.dór
Kratar á Vestíjörðum:
Slagur um annað sætið
Gjaldþrot Kaupfélags N-Þingeyinga:
Kröfur 320
milUónir