Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.1990, Blaðsíða 27

Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.1990, Blaðsíða 27
jrf=?<rr'r/ .•>fk,—:r;:- FÖSTUDAGUR 9. NÓVEMBER 1990. 35 Lífestm TÓMATAR +19% !?§- !■ 498 249 SVEPPIR -5% I o I 550 290 Munur á hæsta og lægsta verði á kartöflum var 260% i könnun DV. DV kannar grænmetismarkaðinn: Hvítkál lækkar, blómkál hækkar - mikill verðmunur á kartöflum DV kannaði verð á grænmeti í eft- irtöldum verslunum: Fjarðarkaupi í Hafnarfirði, Bónusi i Hafnarfirði, Miklagarði í vesturbæ, Kjötstöðinni Glæsibæ og Hagkaupi Kringlunni. Bónus selur sitt grænmeti í stykkja- tali meðan aðrar verslanir selja eftir vigt. Til aö fá samanburð á verðinu hjá Bónusi og hinum verslununum er stykkjaverð umreiknað eftir með- alþyngd yfir í kílóverð. Meðalverð á tómötum hækkar um 19% og er nú 335 krónur. Ódýrastir voru þeir í Hagkaupi á 249 en fast á eftir var Mikligarður með 259. Dýr- astir voru þeir í Kjötstöðinni á 498, en tómatar voru of smáir í Bónus og Fjarðarkaupi til að komast í fyrsta flokk. Munur á hæsta verði og lægsta var 100%. Meðalverð á gúrkum lækkar um 15% og er nú 200 krónur. Þær vocu ódýrastar í Bónusi á 135, næst kom Mikligarður 139, Fjarðarkaup 198, Hagkaup með 239 og dýrastar voru þær í Kjötstöðinni á 288 krónur. Munur á hæsta og lægsta verði var heil 113%. Meðalverð á sveppum lækkaði ei- htið eða um 5% og er nú 436 krónur. Sveppir voru ódýrastir í Bónus, þar töluvert á eftir kom Mikligarður með 405, Hagkaup 409, Fjarðarkaup 528 og dýrastir voru þeir í Kjötstööinni, á 550. Munur á hæsta og lægsta verði var 90%. Sveppir voru mjög fallegir á öllum stöðum. Meðalverð á grænum vínberjum er nánast það sama og í síðustu viku-, lækkaði um tæpt 1% en það er nú 179 krónur. Vínber voru langódýrust í Bónusi, 129 krónur en þar á eftir komu Hagkaup 249, Fjarðarkaup 253, Mikligarður 265 og Kjötstöðin með 298 krónur. Munur á hæsta verði og lægsta var 131%. Meðalverð á grænni papriku lækk- aði um 7% en það er í samræmi við þróun undanfarinna vikna. Meðal- verðið er nú 216 krónur. Ódýrust var hún í Bónus 112 krónur. Á eftir komu Kjötstöðin’l86, Mikligarður 244, Hag- kaup 269 og Fjarðarkaup 271. Paprik- an var áberandi fallegust í Hag- kaupi. Munur á lægsta og hæsta verði var 142%. Meðalverð á kartöflum hækkaði í fyrsta sinn í langan tíma, er nú 56 krónur. Lægstar voru þær í Mikla- garði 25 krónur, þar á eftir komu Bónus 30, Kjötstöðin 53, Hagkaup 82 og dýrastar voru þær í Fjarðarkaup, á 90 krónur. Munur á hæsta verði og lægsta var heil 260%. Meðalverð á blómkáli hækkaði nokkuö eða um 22%, en þaö er nú 188 krónur. Ódýrasta blómkálið fékkst í Fjarðarkaupi, næstódýrast í Hagkaupi 179, þar á eftir kom Mikli- garður meö 199 kr. og dýrast var það í Kjötstöðinni, 225 krónur. Blómkál var ekki til í Bónusi. Munur á lægsta og hæsta veröi var 52%. Meðalverð á hvítkáli lækkaði tals- vert, eða um 46% og er nú 50 krón- ur. Hagstæðast var að kaupa það í Bónusi á 45 krónur, síðan komu Mikligarður 59, Hagkaup 69, Fjarðar- kaup 79 og Kjötstöðin 98. Munur á hæsta og lægsta verði var 118%. Meðalverð á gulrótum haekkar um 10% og er nú 208 krónur. Ódýrastar voru þær í Bónusi 147, næst kom Fjarðarkaup 190, Hagkaup 229, Kjöt- stöðin 231, og dýrastar voru gulræt- urnar í Miklagarði, 245 krónur. Mun- ur á hæsta og lægsta verði var 67%. ÍS Sértilboð og afsláttur: Komfleks, kók og kjúklingar Meðal tilboðsvara hjá versluninni Bónus í Hafnarfirði er gosdrykkur- inn kók í tveggja lítra umbúðum á 135 k.r stk. Einnig fæst Gillette Sens- or rakvélin á 390, raksápan Sabre í 380 ml. brúsa á 129, Campbell sveppa- súpa, 370 gramma dós, á 72 og þvotta- efnið, Milt fyrir barnið, í þriggja kílóa pakkningum á 399 krónur. Fjarðarkaup býður upp á kjúkhnga á 479 króna kílóaverði, níu stykki af Dixcel salernisrúllum á 235, Fixie barnableyjur, 64 stk., á 1.598 og Clar sápuvír á 60 kr, 5 stk. í pakka. Hagkaup Kringlunni var með 10 stk. af Myllu smábrauðum í 550 gramma pakka á tilborðsverðinu 99 krónur. Einnig Kelloggs kornfleks, 500 grömm, á 179, Ajax hreingern- ingalög í tveggja lítra brúsum á 199 og Tilda pudding rice pakka, i 500 gramma pokum, á 59 krónur stykkið. Kjötstöðin Glæsibæ, sem nýlega opnaði tilboðsvegg, bauð upp á gul eph á 113 krónur kg„ Cocoa Puffs pakkamat 340 g á 179, Hunts tómat- sósu á 139 í 907 gramma brúsa. Einn- ig voru nýkomnar Bonduelle niður- suðudósir með gulrótum og grænum baunum, 400 gramma, á 58 krónur. Mikhgarður í vesturbæ bauð upp á 6 manna matar og kaffistell á 3.749 krónur, allt ófrosið lambakjöt í kjot- borðinu hjá þeim var á 10% afslætti, innflutt norskt smjörhki í hálfs kílóa pakkningum fékkst á 65 krónur stykkið og ávaxtasafi, epla eða app- elsínu í eins Utra umbúðum frá MS, kostaði99krónur. ÍS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.