Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.1990, Blaðsíða 8
8
FÖSTUDAGUR 9. NÓVEMBER 1990.
RÍKISSPÍTALAR
STARFSMANNAHAID
Kópavogshæli
Starfsmenn óskast til starfa við umönnun vistmanna.
Starfið felur í sér þátttöku í þjálfun, útiveru og al-
mennum heimilisstörfum. Æskilegt er að umsækj-
endur hafi starfsreynslu með þroskaheftum.
Starfsmenn óskast til starfa við ræstingar.
Sjúkraliðar óskast til starfa á hinar ýmsu deildir.
Starfshlutfall samkomulagsatriði, dag- og kvöldvakt-
ir. Æskilegt er að umsækjendur hafi lokið framhalds-
námi fyrir sjúkraliða í elli- eða geðhjúkrun.
Upplýsingar um ofangreindar stöður gefa Hulda
Harðardóttir yfirþroskaþjálfi og Sigríður Harðardóttir
hjúkrunarforstjóri alla virka daga frá kl. 8-16 í síma
602700.
HOLZ-HER
Ótakmarkaðir möguleikar
HOLZ-HER 2356 -
handfræsarans með
stiglausa rofanum
Straumnotkun 850 W
Hulsustærð 8 mm
Lausagangssnúningur 8000-24000 /mfn
Þyngd 2,7 kg
Fræsidýpt - fínstilling 0,5 mm
Strokksnúningur
4 metra gúmmíleiðsla
Land með fípstiílingu
Fjölbreyttir fylgihlutir
LÁTTll EKKI 0F MIKINN HRAÐA
VALDA ÞÉR SKAÐA!
Bygging
hjúkrunarheimilis
Félagsfundur:
Verzlunarmannafélag Reykjavíkur heldur
almennan félagsfund að Hótel Sögu, Súlna-
sal, sunnudaginn 11. nóvember n.k. kl. 15:00.
Fundarefni:
Magnús L. Sveinsson
Séra Sigurður H.
Guðmundsson
1. Kynnt skipulagsskrá fyrir umönnunar- og
hjúkrunarheimilið Eir.
2. Tekin ákvörðun um þátttöku Verzlunar-
mannafélags Reykjavíkur í byggingu
hjúkrunarheimilis.
Framsögumenn:
Magnús L. Sveinsson, formaður V.R.
Séra Siguröur H. Guðmundsson, for-
maður stjórnar Skjóls.
Fundarstjóri:
Elín Elíasdóttir, varaformaður V.R.
Félagsmenn Verzlunarmannafélags
Reykjavíkur eru hvattir til að fjölmenna á
fundinn og taka þátt í ákvörðuna'rtöku um
þetta þýðingarmikla mál.
Elín Elíasdóttir_Verzlunarmannafélag Reykjavíkur
Utlönd
Sovétríkin útiloka
ekki vopnavald
Persafloadeilan:
James Baker, utanrikisráðherra Bandaríkjanna, og Eduard Sévardnadze,
utanríkisráðherra Sovétríkjanna, ræddu ástandið við Persaflóa í gær. Sovét-
menn útiloka ekki beitingu vopnavalds. Simamynd Reuter
George Bush Bandaríkjaforseti fyr-
irskipaði í gær flutninga á auknum
liðsafla til Persaflóa. Þó svo aö Bush
og Dick Cheney, varnarmálaráð-
herra Bandaríkjanna, neituðu að
greina frá hversu margir hermenn
yröu sendir segjast ónafngreindir
bandarískir embættismenn telja aö
þeir veröi um hundrað þúsund. Sov-
étríkin þrýstu einnig á Saddam Hus-
sein íraksforseta í gær og kváðust
ekki útiloka beitingu vopnavalds
gegn írökum. írakar hótuðu hins
vegar að breyta olíulindunum viö
Persaflóa í eldhaf ef á þá yrði ráðist.
Þegar James Baker, utanríkisráð-
herra Bandarikjanna, fór til Moskvu
í gær hafði hann áhyggiur af því að
Sovétmenn kynnu að reyna að
standa í vegi fyrir beiðni Bandaríkj-
anna um að Öryggisráð Sameinuöu
þjóðanna heimilaði árás til aö frelsa
Kúvæt. Eftir níu klukkustunda við-
ræður við Baker í gær varaði Eduard
Sévardnadze, * utanríkisráðherra
Sovétríkjanna, fréttamenn við því að
álykta sem svo að Bandaríkjamenn
og Sovétmenn væru ekki sammála
um afstöðuna gegn írak.
í yfirlýsingu frá Kínveijurn, sem
einnig hafa neitunarvald í Öryggis-
ráðinu, sagði að tilraunir til frið-
samlegrar lausnar ættu að halda
áfram á meðan nokkur vonarneisti
væri.
Willy Brandt, fyrrum kanslari
Vestur-Þýskalands, sem nú er í
Bagdad, tjáði fréttamönnum að hon-
um hefði þótt sem merkja mætti
sveigjanleika hjá íröskum ráða-
mönnum. Málgagn írösku stjómar-
innar varaöi hins vegar Bandaríkin
og önnur lönd, sem sent hafa her-
menn til Persaflóasvæðisins, við. í
blaðinu sagði að Arabíuskagi yrði
brenndur til ösku. Aðeins Mekka og
Medina yrði hhft.
Saddam íraksforseti tjáði Brandt í
gær að hann myndi sleppa flmmtíu
vestrænum gíslum til viðbótar, það
er tuttugu Þjóðverjum, fimmtán
ítölum, tíu Hollendingum og fimm
Bretum. Þar með hefur Brandt fengið
loforð fyrir lausn hundrað og sjötíu
gísla frá því að hann kom til Bagdad.
Yfir tvö hundruð og ijörutíu pólskir
gíslar lögðu af stað heimleiðis í gær.
Viðvörun Thatcher, forsætisráð-
herra Bretlands, til Saddams Hus-
sein um að frestur hans til að fara
frá Kúvæt væri að renna út leiddi til
þess að olíuverð hækkaði skyndilega
en lækkaði svo aftur niður í 34 doll-
ara tunnan í gær. Bush tilkynnti um
aukinn liðsafla eftir að olíumörkuð-
um var lokað.
Samtök breskra friðarsinna til-
kynntu í gær að þau ætluðu að setja
upp friðarbúðir þar sem líklegt þykir
að komi til styijaldar við Persaflóa.
Reuter
! • f
l’ ■ F ~ p
:
i |
IPt 'v ^
IM
ÍÍS
Eiginkonur, mæður og kærustur breskra gísla við komuna til Amman í Jórdaníu í gær. Þaðan ætla þær til Bagdad
til að hitta ástvini sína. Simamynd Reuter
Persaílóadeilan erfiðust við matborðið:
Hermannafæðið ólystugt
- forseti herráðsins lofar úrbótum
Colin Powell, forseti bandaríska
herráðsins, hefur borið til baka sögu-
sagnir um að hermennimir í Saudi
Arabíu nærist eingöngu á ruslfæði.
Hann viðurkenndi hins vegar að
maturinn væri fremur ólystugur.
Heitar umræður spunnust um fæði
hermannanna þegar Powell og Dick
Cheney tilkynntu um að 100 þúsund
hermenn til viðbótar yrðu sendir til
Saudi Arabíu. Piwell varða að svara
spurningum um hvort hermennirnir
fengju aðeins þriggja ára gamlan mat
og það mjög ómerkilegan.
„Þig ættuð að fara sjálflr á staðinn
og kynnast því af eigin raun hvemig
það er að flytja fersk matvæh um
eyðimörkina. Við þurfum að sjá allt
að 25 þúsnd manns fyrir mat á hverj-
um degi og flytja hann allan 13
þúsnud kílómetra leið,“ svaraði Pow-
ell ásökunum um að mataræði her-
mannanna gæti haft slæm áhrif á
baráttuvilja þeirra.
Powell sagðist engu að síður hafa
samúð með þeim mönnum sem
þyrftu að leggja sér þennan mat til
munns og mælti með að reynt yrði
að auka íjölbreytnina. „Mér skilst að
mennirnir finni til vissra leiðinda
þegar þeir taka til matar síns,“ sagði
Powell.
„Við ætlum að reyna að bæta úr
.þessu en ég neita því alfarið að mat-
urinn sé óhollur. Það veröur engum
illt af honum en við verðum að gera
hann lystugri," sagði Powell.
Reuter