Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.1990, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.1990, Blaðsíða 16
16 FÖSTUDAGUR 9. NÓVEMBER 1990. íþróttir Stúfarfrá Englandi Grindvíkingar B Guimar Sveinbjöma30ti, DV, Englandi: Mark Hughes, fram- herji Manchester Un- ited, er á góðum bata- vegi eftir ökklameiðsli sem hrjáð hafa hann. Hughes vonast til að verða oröinn góður þegar Tottenham heimsækir Un- ited á Old Trafford 25. nóvember næstkomandi. Ensk lið sækjast eftirTékkum Áhugi enskra hða á tékkneskum leikmönnum virðast engin tak- mörk sett þessadagana. Nú hefur Leicester bæst í hópirm en með félaginu hefur æft að undanfórnu 22 ára markvörður, Pavel Srnicek að nafni. Smicek þessi er leik- maður með tékkneska félaginu Banik Qstrava. Chelsea vinnur í réttarsalnum Liö Chelsea hefur unnið stórsig- ur, þó ekki á knattspyrnuvellin- um heldur í réttarsalnum, gegn eigendum Stanford Bridge sem er heimavöllur félagsins. Eigend- ur „Brúarinnar" töldu að Chelsea ætti eftir að greiða þeim upphæð sem næmi allt að 750 þúsund pund. Krafan var tilkomin vegna auglýsingatekna og sjónvarps- réttar svo að eithvaö sé nefnt en dómarinn var á annarri skoðun og Chelsea slapp með skrekkinn. Aðeins einn markvörður hjá Southampton Southampton á nú í miklu basli með markverði sina. Aðalmark- vörðurinn, Tim Flowers, er að vísu heíll heilsu en varamaöur hans er meiddur og sömuleiðis varamaður varamarkvarðarins. Ef eitthvað hendir Flowers verð- ur Southampton að fá lánaðan markvörð eða tefla fram 16 ára pilti sem að öllu jöfnu ver mark unglingaliðsins. Colchester vill nýjan völl Colchester United, sem datt út úr deildakeppiúnni á síðasta ári, hefur síður en svo lagt árar í bát. Félagið hefur lagt inn umsókn fyrir nýjum velli í útjaðri bæjar- ins. Völlurinn á að taka 10 þús- und maxms í sæti og áætlaður kostnaður er 5-10 milljónir punda en einnig verður hægt að stunda veöhlaup(hunda), frjálsar íþróttir og amerískan fótbolta á þessum sama velli. Heil umferð í körfunni Heil umferð er á dagskrá úrvals- deildarinnar í körfuknattleik um helgina og má búast við fjörugum og spennandi leikjum eins og hingað til á íslandsmótinu sem ekki hefur farið betur af stað í mörg ár. • Stórleikur umferðarinnar verð- ur að teljast viöureign KR og ÍBK í Laugardalshöllinni á sunnudags- kvöldið kl. 20.00. • Snæfellingar leika loks heima- leik eftir nokkra „útiveru“ og mæta Valsmönnum kl. 16.00 á sunnudag. • Þórsarar leika gegn hinu harðsnúna liði Njarðvíkinga í Höll- inni kl. 20.00 á sunnudagskvöldiö. • ÍR-ingar eiga heimaleik gegn Grindvíkingum í Seljaskóla á sunnu- dagskvöldið kl. 20.00 og hafa þessi lið oft háð jafna leiki. • FimmtiTeikur umferðarinnar er viðureign Tindastóls og Hauka á Sauðárkróki og má þar búast við hörkuleik. Hann hefst kl. 20.00 á sunnudagskvöld. -SK á sigurbraut - unnu Hauka 1 Hafnarfirði í gær, 80-83 Grindvíkingar unnu sann- gjarnan sigur á Haukum í spennandi leik í úrvals- deildinni í körfuknattleik í íþróttahúsinu við Strandgötu í Hafnarfirði í gær. Lokatölur urðu, 80-83, eftir að Haukar höfðu leitt í hálfleik, 46-T3. Haukar voru sterkari framan af og náðu mest 7 stiga forskoti um miðjan hálfleikinn og höfðu undirtökin allan hálfleikinn. í síðari hálfleik komu Grindvíking- ar sterkir til leiks. Þeir náðu upp öflugri vörn sem Haukum gekk illa að ráða við og voru þeir oft í vand- ræðum í sóknarleik sínum. Munur- inn var þó alltaf lítill á liðunum og þegar ein mínúta var til leiksloka höfðu Grindvíkingar eins stig for- skot, 79-80. Haukar fengu tækifæri á að komast yfir en þeim mistókst og Suðurnesjamennirnir tryggðu sér sér sigurinn á lokasekúndunum. Haukarnir lentu í miklum villu- vandræðum og misstu fjóra lykil- menn af leikvelli í síðari hálfleik með 5 villur. Bandaríkjamðurinn í liði Hauka, Mike Noblet, átti sinn besta leik í vetur og atkvæðamestur. Jón Arnar Ingvarsson hefur oft verið betri en í þessum leik um munar um minna. Grindvíkingar hafa á mikilli sigl- ingu undanfarið og er til alls líklegt. Liðiö er geysilega baráttuglatt og sig- urvilji þeirra var meiri en Haukanna og því fór sem fór. Bandaríkjamður- inn Dan Krebbs var bestur í liði þeirra og eins átti Guðmundur Bragason góðan leik. Leikinn dæmdu þeir Jón Otti Ólafs- son og Helgi Bragason og voru þeir mjög slakir og þá sérstaklega Helgi. • Stig Hauka: Mike Noblet 2, Jón Arnar Ingvarsson 18, ívar Ásgríms- son 14, Pálmar Sigurðsson 10, Henn- ing Henningsson 6, Pétur Ingvarsson 4, Reynir Kristjánsson 4 og Sveinn Steinsson 1 stig. • Stig UMFG: Dan Krebbs 23, Guð- mundur Bragason 19, Jóhannes Kristbjömsson 14, Marel Guðlaugs- son 11, Rúnar Árnason 7, Steinþór Helgason 7 og Ellert Magnússon 2 stig. -RR Móralskur sigur Þórs - þegar liðið sigraði ÍR á Akureyri 1 gær, 120-90 Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri: ÍR-ingarnir Douglas Shouse og Jó- hannes Sveinsson réðu ekki við Þórsara er liðin mættust í úrvals- deildinni á Akureyri í gærkvöldi. Þórsarar unnu öruggan 30 stiga sigur sem hefði getað orðið mun stærri ef keyrt hefði verið á sterkasta liðinu allan tímann, en lokatölur Jeiksins urðu, 120-90, fyrir Þór. Það er varla von að ÍR-ingar vinni leik í deildinni enda er lið þeirra byggt upp á tveimur leikmönnum, þeim Shouse og Jóhannesi sem ljúka flestum sóknum liðsins. Jóhannes var sterkur framan af en í síðari hálfleik tók Shouse við og skoraði nánast í nverri sókn lengi vel, alls 30 stig í síðari hálfleik. En þetta nægi ekki. Þórsarar léku á köflum sterkan sóknarleik og höfðu fomstuna allan leikinn. Stað- an í hálfleik var 52-43 og eftir 3 mín- útur í síðari hálfleik munaði 20 stig- um, 65-45, og eftir það var spuming- in aðeins um hversu stór sigur Þórs yrði. Jón Örn sterkur hjá Þórsurum Jón Örn Guðmundsson var geysi- sterkur hjá Þór í gærkvöldi. Aö öðm leyti var byijunarliðið jafnt, en mót- spyrnan lítil. Sigurinn hlýtur þó aö vera „móralskur" fyrir þórsara sem hafa tapað mörgum leikjum naumt, og mæta Njarðvíkingum á sunnu- dagskvöld fyrir norðan. Stig Þórs: Jón Örn Guðmundsson 29, Sturla Örlygsson 19, Cedric Evans 19, Guðmundur Bjömsson 15, Kon- ráð Óskarsson 13, Björn Sveinsson 13, Högni Friðriksson 6, Davíð Hreiö- arsson 4 og Ágúst Guðmundsson 2. Stig ÍR: DouglaS Shouse 43, Jó- hannes Sveinsson 22, Björn Bollason 6, Gunnar Þorsteinsson 6, Pétur Hólmsteinsson 4, Björn Leósson 4, Hilmar Gunnarsson 2 og Brynjar Sig- urðsson 1. 1 0 * V Körfubolti /> Úrvalsdeild KR A-riðill: ..7 5 2 577-550 12 Njarðvík.... ..8 5 3 703-611 10 Haukar ..8 4 4 641-641 8 Snæfell ..7 16 536-659 2 ÍR ..8 0 8 626-785 0 Keflavík B-riðill: ..8 7 1 815-730 14 Tindastóll.. ..7 6 1 724-638 12 Grindavík.. ..8 4 4 655-667 8 Valur ..7 3 4 625-630 6 Þór ..8 3 5 769-750 6 • Heil umferð verður leikin um helgina. Einum leik hefur verið flýtt. Snæfell leikur sinn fyrsta heimaleik í nýju íþróttahúsi í Stykkishólmi og veröur leikurinn á laugardag og hefst kl. 17. Körfuknattleikssamband Islands heturendumýjað samning sinn við Austur- bakka hf. Samningurinn er til eins árs og teggur Austurbakki hf. tii bolta, skó, keppnis- og æfingagalla, sokka, töskur, boli og léttan fatnaö til landsliðanna. Auk þess fá allir sem æfa meö landsliðinu, en þau er 5, verulegan afslátt hjá Frísport. Samningur Austurbakka hf. og Körfuknattleikssambandsins er metinn á tvær milljónir króna. Á myndinni talið frá vinstri eru Kolbeinn Pálsson, formaður KKÍ og Árni Árnason, forstjór) Austurbakka hf. viðundirskriftsamningsins. DV-mynd Brynjar Gauti • Bandaríkjamennirnir Dan Krebbs í Krebbs að skora körfu án þes að Pálmar -sagði Fc Ægir Már Kárason, DV, Suðumesjum: „Það er alltaf gaman að vinna Njarð- vík. Þetta var skemmtilegur leikur en við náöum að halda haus undir lokin. Þeir voru lengi að átta sig hvað við vorum að gera í vörninni í fyrri hálf- leik og einnig hittum við mjög vel í fyrri hálfleik. Undir lokin hetöi þó sigurinn getaö lent báðum megin,“ sagöi Falur Harðarson, leikmaður Keflvíkinga, eft- ir að Keflavík hafði unnið nágranna sína úr Njarövík, 92-91, í íþróttahúsinu í Keflavík í gærkvöldi aö viðstöddu miklu fjölmenni áhorfenda. Keflvíking- ar höfðu mikla yfirburði í fyrri hálfleik og staðan í leikhléi, 53-36. Keflvíkinga byrjuðu með miklum lát- um og náðu fljótlega að komast í 31-17. Njarðvíkingar áttu ekkert svar viö

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.