Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.1990, Blaðsíða 7
FÖSTUDAGUR 9. NÓVEMBER 1990.
7
Fréttir
SlimpiMukkuslagurinn á Landspítalanum:
Fá um 200 starfsmenn
bara dagvinnulaunin?
- gæti komið til þess, segir Pétur Jónsson, framkvæmdastjóri stjómunarsviðs
Um 200 manns, sem starfa á
Landspítalanum, geta átt von á þvi
aö fá eingöngu greidda dagvinnu um
næstu mánaðamót. Það eru þeir sem
hafa neitað að nota stimpilklukkur
sem settar hafa verið upp í spítalan-
um. En þeir sem nota klukkumar,
um 100 manns, fá greidda þá tíma
sem stimpilklukkan sýnir.
Pétur Jónsson, framkvæmdastjóri
stjómunarsviðs Landspítalans, segir
að þeir sem neiti að nota klukkumar
geti lent í erfiðleikum með að fá yfir-
vinnu sína greidda.
Stimpilklukkumar hafa verið sett-
ar upp smám saman á deildunum en
starfsfólkið er ekki sátt viö það. Pét-
ur segir að þetta virðist vera mikið
tiifinningamál. „Það er til dæmis ein
deild, endurhæfingardeild, sem byrj-
aði að nota klukkumar en hætti því
og viU ekki byija aftur. Ástæða þess
var að það var einn læknir á deild-
inni sem ekki hlýddi. Fólk getur ekki
neitað þessu, því þetta eru lögleg fyr-
irmæh,“ segir Pétur.
Eina af ástæðunum fyrir því að
Verslunarskatturinn:
Álagninginá
næsta ári
nemur 535
milljónum
Lagt hefur verið fram á Alþingi
frumvarp til laga um sérstakan skatt
á verslunar- og skrifstofuhúsnæði.
Gert er ráð fyrir að álagning hans á
næsta ári nemi 535 milljónum króna
samkvæmt frumvarpinu.
Sérstakur skattiu- var fyrst lagður
á skrifstofu- og verslunarhúsnæði
árið 1979. Hefur hann verið lagður á
árlega síðan samkvæmt sérstökum
lögum sem gilda fyrir eitt ár í senn.
I ár er gert ráð fyrir að innheimtar
tekjur af þessum skatti verði 445
milljónir króna. Og enda þótt gert sé
ráö fyrir að álagning skattsins á
næsta ári verði 535 milljónir er ekki
gert ráð fyrir að innheimtist af hon-
um nema 482 milljónir að meðtalinni
innheimtu af eftirstöðvum fyrri ára.
-S.dór
Dagsbrún:
Jóhannes
Guðnason í for-
mannsslaginn
Lagður hefur verið fram Usti með
nöfnum þeirra sjö maima sem bjóða
sig fram í aðalstjóm Dagsbrúnar
gegn núverandi forystu, en allsheij-
aratkvæðagreiðsla fer fram í janúar.
Frambjóðendur em: til formanns
Jóhannes Guðnason, trúnaðarmað-
ur hjá fóðurblöndunarstöð SÍS, til
varaformanns Jóhannes Sigur-
sveinsson, frá Eiríki og Ingva, til rit-
ara Óskar D. Ólafsson frá Ewos, til
gjaldkera Þórir Karl Jónasson frá
Pósti og síma en hann er fram-
kvæmdastjóri hstans, til fjármálarit-
ara Einar Sigurðsson, fyrrverandi
formaöur Dímons, og til embætta-
meðstjómenda þeir Páll Þorgríms
Jónsson frá íslensku bergvatni og
Jónas Guömundsson frá Ríkisskip.
-ÓTT
fólkið neiti að nota stimpilklukkurn-
ar segir Pétur vera þá að fólk sé hrætt
um að þegar upp verði staðið verði
það ekki alhr sem þurfi að nota
klukkumar. „Trúlega heldur fólk að
yfirmennimir þurfi ekki að nota þær
heldur bara undirmennimir. Mér
þykir það líklegt. Það er hins vegar
ekki meiningin, því það verða annað-
hvort allir eða enginn að nota þær.
Máhð er í biðstöðu núna og það er
verið að ræða við fólkið. Ég sé hins
vegar ekki neina lausn í sjónmáli
þessa stundina," segir Pétur.
Einar Jónmundsson, yfirlæknir á
röntgendeild, segir líka að máhð sé
í biðstöðu. Röntgendehd er ein þeirra
deilda þar sem fólk neitar að nota
klukkurnar. „Mér finnst að það verði
að koma fram að það er ekki bara
röntgendeildin sem neitar þessu. Það
em margir sem halda það, en það er
alls ekki rétt. Fólk hefur aðeins fund-
að um þetta mál en þetta er allt í
biðstöðu. Það em margir lausir end-
ar í málinu og það er ekki eins ein-
falt að setja upp stimpilklukku á spít-
ala og í verksmiðju. Þetta þarf að
ræðast betur.“
Einar segir að ekki hafi verið rætt
um hvernig bregðast skuh við ef ein-
göngu verður greidd dagvinna um
næstu mánaðamót. „Það getur verið
að það eigi að fara að þessu með of-
forsi en það er ekki frá okkur kom-
ið,“segirEinar. -ns
Aukasencfing af sérútbúnum
Þaö er mikil reynsla að aka BMW í fyrsta
skipti og njóta þeirra gæöa og fágunar sem
einkenna þennan eöalvagn.
BMW er framleiddur af einum þekktasta og
virtasta bifreiöaframleiöanda veraldar, þar
sem það besta er sjálfsagður hlutur.
Útlit BMW segir allt um hiö innra; hönnunin
er óaðfinnanleg og frágangurinn tákn um
fullkomnun.
Sportlegt útlit, frábærir aksturseiginleikar og
105 hestafla vél meö tölvustýrðri beinni.
innspýtingu uppfylla síöan kröfur þínar um
hinn fulikomna bíl.
Eignist þú BMW ertu kominn í hóp stoltra
eigenda sem ekki láta sér nægja nema það
besta hverju sinni.
Við bjóöum nú sérstaka aukasendingu af
BMW Bavaria og BMW Edition til afgreiðslu
strax, á verði sem mun koma þér á óvart.
Dæmi um verð:
BMW Bavaria. 2ia dvra. frá kr. 1.590.000.-
BMW Edition. 4ia dvra oa siálfskiotur.
frá kr. 1.790.000.-
Þetta er síðasta tækifærið til að eignast
BMW Bavaria og BMW Editfon ó þessu
hagstæða verði.
Söludeildin er opin alla virka daga frá kl. 8 til
18 og laugardaga frá kl. 13 -17.
Reynsluakstur allan daginn.
Bílaumboðið hf SjZ,
Krókhálsi 1 -3, Reykjavík, sími 686633 Ifklir
BMW Bavaria og BMW Edition